Morgunblaðið - 06.06.1985, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1985
FRAMTÍÐ LANDBÚNAÐAR/ eftir Stefán Aöalsteinsson 4. grein
Dæmi frá útlöndum
í fyrri greinunum í þessum
flokki var fjallað um vandamál
landbúnaðar á íslandi og helstu
vaxtarbúgreinar hans. Auk þess
voru tekin nokkur dæmi um iðnað
í smáum stíl úti um sveitir, sem
gæti skapað arðbæra vinnu og
treyst byggð.
Hér á eftir verða tekin fáein
dæmi af því, hvernig sveitafólk í
öðrum löndum hefur aflað sér
tekna á nýstárlegan hátt.
Dýrar vörur úr
sauðnautaþeli
Það er lengi hægt að halda
áfram að taka dæmi af því sem
hugsanlegt er að gera. Enginn veit
hvað borgar sig fyrr en það hefur'
verið reynt. Þess vegna er ekki úr
vegi að nefna nokkur dæmi um
hluti, sem reyndir hafa verið er-
lendis með athyglisverðum ár-
angri.
Indíánar í Norður-Ameríku
hafa víða átt í erfiðleikum með
atvinnu, sem gefur góðar tekjur í
aðra hönd. Nýlega frétti ég af því
að í Alaska væru Indíánar með
tamin sauðnaut, sem þeir hefðu til
ullarframleiðslu. Sauðnautaþelið
er mjög verðmætt en Indíánar
selja það ekki sem hráefni, heldur
vinna þeir úr því vandaðar vörur,
sem þeir selja á mjög háu verði til
Japans.
Kasmírull af geitum
I Ástralíu og á Nýja-Sjálandi er
farið að framleiða þel af geitum í
verulegum mæli. Geitaþelið, sem
gjarnan er nefnt Kasmírull eftir
ullargeit með því nafni í Asíu, er
mjög verðmætt. Fyrir það fást nú
um það bil 3.000 kr. á hvert kg í
Bretlandi.
Skotar eru farnir að þróa geita-
rækt hjá sér til framleiðslu á
kasmírull. Þeir hafa safnað saman
villtum geitum í þessu skyni, því
að þær eru með meira þel heldur
en ræktuð kyn af mjólkurgeitum.
Þar mun vera um aðlögun að ræða
vegna útigangsins á vetrum. Svo
er að sjá, að geitastofninn hér á
landi sé með tiltölulega mikið þe)
og gæti því komið til greina að
þróa hann nánar til þelfram-
leiðslu.
Geitarostar
Norðmenn framleiða geitarosta
í allmiklum mæli og fá tiltölulega
gott verð fyrir þá á innlendum
markaði.
Skotar hafa hug á að sameina
ostagerð úr geitamjólk og þel-
framleiðslu, en þeir hafa auk þess
góðan markað fyrir geitakjöt með-
al innflytjenda frá Pakistan og
fleiri löndum. Auk þess nota þeir
geiturnar til að eyða illgresi úr
beitilöndum sauðfjár og slá þann-
ig margar flugur í einu höggi.
Rafeinaiðnaður á bónda-
býli á Hjaltlandi
Það er með ýmsu móti hægt að
skapa sér afkomu á föðurleifð
sinni. Mér var sagt frá því nýlega,
að bóndasonur á Hjaltlandi, sem
hafði aflað sér góðrar menntunar í
Skotlandi, hefði snúið heim til sín
fyrir nokkru til að setjast þar að.
Hann tók þó ekki til við búskap,
heldur setti upp rafeindafyrirtæki
á bænum, þar sem hann setur
saman fullbúin tæki úr aðkeypt-
um einingum og hefur gott upp úr
því.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
Amerísk
úrvalsvara
Þú velur þá gerö sem hentar
Viö eigum allar geröir
★ Venjulega
★ Styrkta
★ Extra styrkta
★ Stillanlega
★ Gasfyllta
★ Stýrisdempara
Póstsendum
HÁBERG HF.
Skeifunni fa — Sími 8*47*88
_____—i—........
.■.-i’.-a'-rföA.:, ... U,
-.2..
Geitamjólk í sælgæti
með viskíbragði
Besta dæmið sem ég hef heyrt
nýverið um sjálfsbjargarviðleitni
er frá skoskum bónda. Hann er
með um 50 mjólkurgeitur. Hann
vinnur mjólkina úr þeim heima
fyrir í sérstakt sælgæti, sem hann
bragðbætir með keim af mismun-
andi viskítegundum. Sælgætinu
pakkar hann síðan í fallegar um-
búðir og hefur ágætar tekjur af
öllu saman.
Hugvit í sköpun —
natni í framkvæmd
Þau atriði, sem ég hef drepið
hér á, má ekki líta á sem tillögur
um neina allsherjarlausn á þeim
vandamálum sem landbúnaðurinn
á við að etja í dag. Það er hins
vegar von min, að þau geti orðið
hvati að umræðu um málin, og við
það væri mikið fengið.
Ég vil ennfremur ítreka það, að
þeir atvinnumöguleikar, sem
kynni að vera að finna á þeim
sviðum, sem ég hef gert að um-
talsefni, eiga ekki að koma í stað-
inn fyrir áform um verksmiðju-
iðnað í hefðbundnu formi eða þá
stóriðju, sem á rétt á sér til að
nýta orkuna, sem landið býr yfir.
Tilgangurinn með þessu spjalli
minu er fyrst og fremst sá að
benda á hluti, sem má leita að til
að fylla í stakar eyður í atvinnulíf-
inu í sveitum og öðru dreifbýli.
Þar verður vandinn ekki leystur
með hefðbundnum verksmiðjuiðn-
aði eða stóriðju, heldur með ýms-
um smáiðnaði sem krefst lítillar
fjárfestingar, því meira hugvits í
sköpun og natni í framkvæmd.
Til þess að hægt verði að ná ár-
angri í uppbyggingu slíkra starfa,
þarf tvennt að koma til, sem ekki
er við að styðjast nú.
Samtök um hönnun
og markaðsöflun
Annars vegar þarf að koma á
fót samtökum sem geta sinnt litl-
um fyrirtækjum, sem hafa áhuga
á að stofna til framleiðslu í litlum
mæli á verðmætum varningi.
Þjónusta samtakanna við litlu
fyrirtækin yrði að hluta til fólgin í
aðstoð við val á framleiðsluvörum
og hönnun þeirra miðað við til-
tæka markaði, en auk þess myndu
samtökin sjá um markaðsöflun
fyrir vöruna að einhverju eða öllu
leyti. Ágæt dæmi um slíka sam-
vinnu eru þegar fyrir hendi, þar
sem er ullariðnaðurinn. Þar sinna
stór fyrirtæki markaðsöflun og
sölu fyrir smáfyrirtæki, sem
dreifð eru út um allt land.
Hitt atriði, sem þarf að komast
í höfn, er skipulagning á lánum og
annarri fyrirgreiðslu við stofnun
slíkra starfa. Þar ætti að taka
þannig á málum, að um beinharð-
an „bisness" væri að ræða og öll
lán yrðu veitt með þeim skilningi,
að þau gæfu sömu ávöxtun og ann-
að lánsfé. Við stofnun nýrra
starfa, sem ekki væri reynsla
fyrir, ætti hins vegar að vera til-
tækt áhættufjármagn frá ríkinu,
sem greitt yrði til baka, ef rekstur
gengi vel, en yrði afskrifað ef til-
raunin með nýju störfin reyndist
óarðbær að liðnum ákveðnum
reynslutíma.
Höfuadur er deildarstjóri rið
Ranasóknarstofnun landbúnaðar-
ins.
„Ævintýrasteinninn“
frumsýndur f dag
„Ævintýrasteinninn“ nefnist
kvikmynd, sem frumsýnd verður f
Nýja bíói í dag. Kvikmyndin, sem i
frummálinu nefnist „Romancing the
Stone“, er ævintýramynd í anda
„gullaldarkvikmynda Hollywood“,
segir í fréttatilkynningu fri kvik-
myndahúsinu.
Leikstjóri myndarinnar, sem að
stórum hluta gerist í Suður-
Ameríku, er Robert Zemeckis.
Framleiðandi og aðalleikari
Ævintýrasteinsins er Michael
Douglas — sá hinn sami og átti
heiðurinn af The China Syndrome
(Kjarnleiðsla til Kína) og óskars-
verðlaunamyndinni One Flew
Over the Cuckoo’s Nest (Gauks-
hreiðrið). Með önnur aðalhlutverk
í myndinni fara þau Kathleen
Turner og Danny DeVito.
Nú er sumar á
Fatalagernum
Grandagarði 3
Það hefur aldrei verið meira úrval af
sumarvörum á ótrúlega lágu verði
Dæmi um vorö: Jogginggallar meö nælontopp á kr. 1290
T-bolir á kr. 180
Sumarpeysur á kr. 790
Herrapeysur á kr. 350
Barnajogginggallar á kr. 490
Dömuúlpur á kr. 1090
og margt, margt fleira
Fólk sem feröast erlendis veit
hvaö fötin kosta. Því ekki aö
bera saman veröið hjá okkur?
Opiö mánudaga og föstudaga frá kl.
10—19, laugardaga frá kl. 10—16
**0tmÞiaMÞ
Áskriftarsíminn er 83033