Morgunblaðið - 06.06.1985, Side 64
Átta hvalir
komnir
á land
HVALVERTÍÐIN fór vel af stad að
þessu sinni. f gær voru komnir i
land í hvalstöð Hvals hf. í Hvalfirði
átta hvaiir, allt langreyðar.
Magnús Ólafsson verkstjóri i
hvalstöðinni sagði að þetta þætti
þeim ágæt byrjun, þó erfitt væri
að draga ályktanir eftir tveggja
daga veiði. Veður hefur ekki haml-
að veiðunum. Hvalirnir fengust
suðvestur af Reykjanesi, á hinni
hefðbundnu hvalveiðislóð.
Misstu framan
af tám í garð-
sláttuvélum
AÐ UNDANFÖRNU hefur borið við
að fólk hafi slasast við meðferð
vélknúinna garðsláttuvéla.
Á mánudag urðu tvö slík slys í
Reykjavík. Piltur missti framan
af tám á mánudagskvöldið þegar
hann lenti í garðsláttuvél og
nokkru áður hafði fullorðinn mað-
ur misst framan af tám þegar
’ hann var að slá blett sinn.
Búseti afsal-
ar sér rað-
húsalóðum
BÚSETI hefur afsalað sér 12 rað-
húsalóðum, sem félagið fékk úthlut-
að í Grafarvogi.
Búseti fékk, auk raðhúsalóð-
anna, úthlutað 2 stigagöngum í 8
hæða fjölbýlishúsi við Frostafold
^ 14—16 í Grafarvogi. Félagið hefur
staðið skil á gatnagerðargjöldum
fyrir lóðirnar að upphæð liðlega
2,5 milljón krónur.
27 erlend börn
ættleidd í ár
ÞAÐ SEM af er þessu iri hefur
dómsmilariðuneytið gefið leyfi fyrir
sttleiðingu 27 útlendra barna. Hluti
þessa hóps er kominn til landsins og
koma þau flest fri Sri Lanka. Allt
síðasta ir voru gefin 19 leyfi til
slíkra ættleiðinga.
Að sögn Skúla Guðmundssonar
í dómsmálaráðuneytinu gilda eng-
ar sérstakar reglur eða takmark-
anir um fjölda þeirra barna sem
ættleidd eru. Hann sagði að leyfi
ráðuneytisins fæli í sér vilyrði ís-
lenzkra stjórnvalda fyrir því að
börnin öðlist íslenzkan ríkisborg-
ararétt og áður en leyfi væri gefið
hefði barnaverndarnefnd kannað
hvort væntanlegir foreldrar væru
vandanum vaxnir.
Hópur fólks starfar að þessum
málum og nefnist hann „íslenzk
ættleiðing". Tilgangur félagsins er
að greiða braut þeirra, sem óska
eftir að ættleiða barn. Á árunum
1982—83 voru 60 börn ættleidd frá
Indónesíu, en í fyrra og það sem af
er þessu ári koma börnin flest frá
Sri Lanka, eins og áður sagði. Frá
upphafi hafa á annað hundrað út-
lend börn verið ættleidd hér á
landi.
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Morgunblaöiö/RAX
Neisti litli, sem fæddist 10. maí og fótbrotnaði þremur dögum síðar, hélt sig nærri Blesu móður sinni þegar Magnús bóndi Leópoldsson í Sogni í Kjós
sýndi Morgunblaðsmönnum gipsið á Neista í gær. Faðir Neista, Valur Sörlason, var á beit í haga skammt frá og sýndi afkvæminu skammarlega litla
umhyggju.
Fótbrotið folald sett í gips þriggja daga gamalt
„DÝRALÆKNIRINN er hæfilega bjartsýnn á að
þetta fari allt vel — nú er það spurningin hvort
Neisti verður einhverntíma reiðhestur eða hvort
hann verður alltaf haltur," sögðu hjónin Björk
Valsdóttir og Magnús Leópoldsson, bændur að
Sogni í Kjós, í samtali við Morgunblaðsmenn,
sem voru í ferð um Kjós í gær.
Dætur þeirra, Valdís og María, eiga þriggja
vikna gamalt folald, sem fótbrotnaði á hægri
afturfæti þriggja daga gamalt og var sett í
gips. Brotið virðist gróa vel og er gert ráð
fyrir að folaldið unga, sem heitir Neisti og er
sonarsonur gæðingsins Sörla frá Sauðárkróki,
verði laust við gipsið eftir 3—4 vikur.
„Brynjólfur Sandholt dýralæknir vildi fá
það til sín til röntgenmyndatöku á hestaspít-
alanum í Víðidal og setti það síðan í gips.
Síðan höfum við tvisvar farið með folaldið til
Reykjavíkur til að láta styrkja gipsið," sögðu
þau. „Hentugast hefur reynst að leggja niður
aftursætið í litla fólksvagninum okkar og
leggja Neista þar við hliðina á yngri dóttur
okkar."
MorKunblaÖið/Júlíus
Áfanga
fagnað
Hvítu kollarnir komnir upp.
Menntaskólinn í Reykjavík
brautskráði í gær 189 stúd-
enta. Nýstúdentarnir voru
glaðir í bragði við og eftir út-
skriftina eins og stöllurnar
sem á myndinni fagna þessum
áfanga i lifinu.
Sjá nánar á bls. 2.
*
Viðræður VSI og landssambandanna:
Samningslíkur minnka
með hverjum fundinum
VONIR til þess aö samkomulag atvinnurekenda og launþega takist í kjölfar
þeirra viöræöna sem fyrir alvöru hófust í gær með fulltrúum VSÍ og hinna
ýmsu landssambanda fara minnkandi með hverjum fundinum, eins og einn
forystumaóur Vinnuveitendasambands íslands oröaöi þaö í samtali við
Morgunblaöiö í gærkveldi.
Fulltrúar VSÍ áttu í gær fundi
með Málm- og skipasmiðasam-
bandi íslands, Landssambandi
verzlunarmanna, Rafiðnaðarsam-
bandinu og Verkamannasambandi
íslands. Það helsta sem gerðist á
þessum fundum var að lands-
samböndin kynntu sínar sérkröfur
og var farið yfir þær. Verður í dag
fram haldið samskonar viðræðum
og þá við Landssamband iðn-
verkafólks og Dagsbrún.
Telja vinnuveitendur að kröfur
launþega séu margar hverjar óað-
gengilegar, auk þess sem ósam-
ræmis gæti á milli landssambanda
í kröfugerð.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands
íslands, sagði í gær að þetta hefðu
verið ákaflega vinsamlegar við-
ræður, en að öðru leyti sagðist
hann ekki geta upplýst hvort ein-
hver árangur hefði verið af fund-
inum. Lýsti Guðmundur áhyggj-
um sínum sérstaklega af kjörum
fiskvinnslufólks, sem hann sagði
að þyrfti að leggja mikla áherslu á
að leiðrétta. Taldi Guðmundur að
harka fiskvinnslufólksins hefði
komið vinnuveitendum í opna
skjöldu, þó að forstjórar frysti-
húsanna hefðu verið undir hana
búnir.
Vinnuveitendur segja augljóst
að erfitt sé að bæta kostnaðar-
auka ofan á þá 24,3% launahækk-
un sem þeir hafi boðið yfir samn-
ingstímabilið. Segja þeir að flest-
ar kröfur landssambandanna hafi
í för með sér kostnaðarauka, og
sumar þeirra talsvert mikinn
kostnað.
Tilboð vinnuveitenda gerði m.a.
ráð fyrir því að þeir, sem væru í
hópi þeirra lægst launuðu, fengju
5% kauphækkun umfram aðra, en
sú hugmynd mun ekki hafa fengið
góðan hljómgrunn hjá öllum
landssamböndunum.
Vinnuveitendur bentu á að svig-
rúm til mikils kostnaðarauka gæti
ekki verið mikið þar sem vaxta-
gjöld umfram vaxtatekjur hafi
1980 verið innan við 10% af heild-
arverðmæti útflutningsins hér á
landi, en 1984 um 20% af heildar-
verðmæti.
Þess má vænta að fulltrúar VSÍ
geri upp hug sinn eftir viðræðurn-
ar í dag, hvort þeir telja ástæðu til
þess að halda áfram viðræðum við
launþega á þessum nótum, en ekki
gætir mikillar bjartsýni í röðum
þeirra, því þeir segja að líkurnar á
samkomulagi minnki með hverj-
um fundinum.
Seyðisfjörður:
í lífshættu eftir vinnuslys
VINNUSLYS varð um kl. 21.00 í fyrrakvöld í vélsmiójunni Stáli á Seyóisfiröi.
Veriö var aö flytja til smíöajárnsplötur meö krana og féllu þær á mann sem
var þarna við vinnu.
Maðurinn var uppi í stiga er með flugvél til Reykjavíkur. Hann
slysið varð og tók stiginn nokkuð er mikið slasaður á fótum.
af högginu, en plöturnar vógu 16 Samkvæmt upplýsingum sem
tonn. Hann var þegar fluttur í Morgunblaðið fékk hjá lögregl-
sjúkrahúsið á Seyðisfirði og á unni á Seyðisfirði í gær var mað-
þriðjudagskvöld var hann fluttur urinn enn í lífshættu.