Morgunblaðið - 13.08.1985, Qupperneq 6
.-MQRGUNBLAPIÐ^ ÞRIDJUDAGUR L3. ÁGtlST 1985
Nýjabrum
Eitt af hjartans málum þess er
hér talar, hefir náð fram að
ganga þar sem er auglýsing sjón-
varps eftir dagskrárfulltrúa
barnaefnis. Undirritaður hefir um
nokkurt skeið verið heldur óhress
með innlent barnaefni, sérstak-
lega með ýmsa efnisþætti í Stund-
inni okkar þótt vissulega hafi þar
uppá síðkastið verið bryddað uppá
ýmsum nýmælum svo sem hljóm-
sveitakeppni, en betur má ef duga
skal. Hér er vissulega mikið verk
að vinna, enda getur sjónvarpið
haft umtalsverð áhrif á lífsviðhorf
og hugsanagang óharnaðra ung-
menna. Minnist ég í því sambandi
stunda er ég deildi um árið með
krökkum á ónefndu bandarísku
millistéttarheimili. Þessi
samverustund varð til að tengja
okkur nánum böndum fyrir fram-
an sjónvarpið, vegna þess að yngri
krakkarnir voru hálf skelkaðir við
öll skrímslin sem birtust á skerm-
inum, enda vart vöknuð klukkan 6
að morgni. En þannig leið hver
morgunstund á því heimili og hafa
skrímslamyndirnar vafalaust
reynst blessuðum börnunum gott
veganesti í skólann er hófst um
klukkan átta.
Hér heima
En svo við víkjum aftur á
heimaslóðir þá finnst mér per-
sónulega varða miklu að tengsl
sjónvarpsins og leikhúsanna, verði
efld. Ég held að ieikhúsfólkið geti
blásið nýju lífi í Stundina okkar og
á ég þá jafnt við atvinnuleikhús-
fólk og hina er starfa á öðru
leiksviði. Minnumst þess að það
getur verið dýrt að vera fátækur,
sérstaklega þegar í veði er andleg-
ur þroski uppvaxandi kynslóðar.
Fjölmiðlar virðast þessa stundina
einkum uppteknir við að festa á
filmu virðulega fjármálasérfræð-
inga er undirrita dýrindis skjöl, er
sum hver efla fjármálalegt vald
þeirra sjálfra hvort sem það bygg-
ist á yfirráðum yfir verðbréfum og
hlutabréfum eða blessaðri ork-
unni. í þeim samningum virðist
milljónin eða jafnvel milljóna-
tugurinn til eða frá engu máli
skipta. Væri óskandi að svipuð
viðhorf ríktu hjá ráðamönnum
þegar listrænn, vitsmunalegur og
tilfinningalegur þroski barnanna
er lagður á vogarskálarnar, en því
miður er nú mikið misvægi á þeim
vogarskálum í skólum landsins og
barnaheimilum eins og allir vita.
Væri kannski ráð að reisa laxa-
stiga við fyrrgreindar stofnanir
svo úrbætur fengjust?
Nýjar deildir
En það hefir ekki bara verið
auglýst hjá sjónvarpinu eftir
dagskrárstjóra barnaefnis heldur
og eftir fréttastjóra, dagskrár-
fulltrúa erlends efnis og síðast en
ekki síst eftir deildarstjóra inn-
lendrar dagskrárgerðar. Síðast-
talda staðan er einkar mikilvæg
því ef þar velst til starfa harðfylg-
inn, ferskur og áhugasamur mað-
ur, þá getur sjónvarpið okkar orð-
ið til þess að efla til muna inn-
lenda kvikmyndagerð. Er ég
ennfremur þeirrar skoðunar að ef
listrænn og skapandi einstakling-
ur studdur ríkulegu fjármagni
sest i stól deildarstjóra innlendrar
dagskrárgerðar, þá getum við
senn hafið útflutning á sagnaarf-
inum í kvikmyndalíki, ekki bara
til Norðurlandanna heldur um
veröld alla í krafti alheimssjón-
varpsins. Ef slíkt gerist rætist úr
öðru því hjartans máli er undirrit-
aður hefir lengi borið fyrir brjósti
hér í blaðinu. Já það er stundum
ánægjulegt að vera ríkisborgari í
landi elds og ísa.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Lokaþáttur Ferjutollsins
■I Lokaþáttur
15 breska fram-
““ haidsmynda-
flokksins Hver greiðir
ferjutollinn? er á dagskrá
sjónvarps kl. 21.15 i kvöld.
Allt frá því að Alan Hal-
dane kom fyrst til Krítar
hefur margt óvænt komið
fyrir og ýmsir furðulegir
atburðir gerst. Með aðal-
hlutverk í þáttunum fara
Jack Hedley (Alan Hal-
dane) og gríska leikkonan
Betty Arvanity (Annika
Zefreis). í kvöld ættu því
forvitnir sjónvarpsáhorf-
endur loksins að fá að vita
hver greiðir ferjutollinn.
í minningu kjarnorkuárásanna
■I í kvöld verður í
40 útvarpi þáttur í
minningu þess
að nú eru liðin 40 ár síðan
kjarnorkusprengjum var
varpað á japönsku borg-
irnar Hiroshima og Naga-
saki. Þetta er seinni þátt-
ur af tveimur. Umsjón-
armenn eru Ragnar Bald-
ursson og Emil Bóasson.
„í fyrri þættinum fjöll-
uðum við um árásina
sjálfa á borgirnar tvær og
vorum með lýsingar sjón-
arvotta á atburðinum. Þá
greindum við einnig frá
viðbrögðum íslenskra
blaða. í þessum þætti
munum við beina athygl-
inni meira að orsökum
sprengjuárásanna og síð-
an að afleiðingum hennar,
bæði fyrir þá sem lifðu
hildarleikinn af og einnig
fyrir heimsstjórnmálin og
gjörvallan almenning.
Þessi þáttur er fjörutíu
mínútur á lengd. Hugs-
anlegt er að við lesum
búta úr ræðum eftir
Truman Bandaríkjafor-
seta, sagði Ragnar Bald-
vinsson, annar umsjón-
armanna þáttarins.
Kjarnorkusprengjan sem varpað var á Hiroshima. Hún var
nefnd „snáði“ (little boy) 28” í þvermál og 9000 pund að
þyngd. Sprengikrafturinn jafngilti 20.000 tonnum af TNT.
Frístund
■H Síðast á
00 dagskrá rásar
— tvö í dag er
unglingaþátturinn Frí-
stund í umsjá Eðvarðs
Ingólfssonar. „Ég er alltaf
með aðstoðarþul í þáttun-
um. Að þessu sinni kemur
hún frá Hveragerði og
heitir Soffía Valdimars-
dóttir. í þættinum er liður
sem kallaður er „tónlist-
arkynning". Krakkarnir
sjá algerlega um hann
sjálfir. í dag verður
hljómsveitin Frankie goes
to Hollywood kynnt.
Kynnirinn heitir Guðrún
Jónsdóttir og er hún frá
Seltjarnarnesi.
í þættinum er annar
liður sem við köllum „eft-
irlætislögin þrjú“. Róse-
marie Andrésdóttir, 14
ára úr Kópavogi, ætlar að
kynna eftirlætislögin sín.
Ég hef látið stelpur og
stráka skiptast á við að
velja þau lög sem þykja
skemmtileg. I bígerð er að
fá Jón Pál Sigmarsson í
spjall. Ég hef ekki getað
náð sambandi við hann
ennþá en vonandi sér
hann sér fært að mæta.
Síðast er einn af þessum
föstu liðum, bréfalestur-
inn. Krakkarnir skrifa
okkur bréf hvaðanæva af
landinu og segja fréttir af
sjálfum sér og félagslífinu
á staðnum," sagði Eðvarð
Ingólfsson umsjónarmað-
ur Frístundar.
Kvöldtónleikar
í kvöldtónleik-
30 um útvarpsins
“* að þessu sinni
verða atriði úr Töfraflaut-
unni flutt eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Roland
Bracht, Siegfried Jerusal-
em, Édita Gruberova,
Lucia Popp og fleiri
syngja með kór Ríkisóper-
unnar og Sinfóníu-
hljómsveit útvarpsins f
Múnchen. Bernard Hait-
ink stjórnar. Að kvöldtón-
leikum loknum verða
sagðar fréttir en síðan eru
dagskrárlok.
Wolfgang Amadeus
Mozart.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
13. ágúst
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur Guðvaröar Más
Gunnlaugssonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorö: — Jón Ölafur
Bjarnason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Matth(as“ eftir Barbro
Lindgren
Sigrlöur Sigurðardóttir les
þýðingu slna (7).
9J0 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 .Ljáðu mér eyra"
Málmfriður Siguröardóttir á
Jaðri sér um þáttinn. RÚV-
AK.
11.15 (fórum mlnum
Umsjón: Ingimar Eydal.
RÚVAK.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.30 Inn og út um gluggann
Umsjón: Heiödls Norðfjörð.
RÚVAK.
13.40 Létt lög
14.00 .Lamb" eftir Bernard
MacLaverty
Erlingur E. Halldórsson les
þýöingu slna (5).
14.30 Miðdegistónleikar.
a. Lltil sinfónla eftir Benjamln
Britten.
St. Martin-in-the-Fields
hljómsveitin leikur; Nevllle
Marriner stjórnar.
b. Holberg-svlta op. 40 eftir
Edvard Grieg.
Norska kammersveitin leikur;
Terje Tönnesen stjórnar.
15.15 Út og suður
Endurtekinn þáttur Friðriks
Páls Jónssonar frá sunnu-
degi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Upptaktur
— Sigurður Einarsson
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 .Hvers vegna, Lamla?"
eftir Patriciu M. St. John
Helgi Ellasson les þýðingu
Benedikts Arnkelssonar (5).
17.40 Slödegisútvarp
— Sverrir Gautí Diego.
Tónleikar. Tilkynningar
19.25 Sól og strönd.
Fjóröi þáttur, og teiknimynd
um Millu Marfu.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið).
Þýöandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Vonarglæta.
(Ray of Hope).
Bresk heimildamynd um
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Sviti og tár
Guðrún Jónsdóttir stjórnar
þætti fyrir unglinga.
20.40 40 ár
Slðari hluti dagskrár I minn-
ingu þess aö liðin eru 40 ár
slðan kjarnorkusprengjum
var varpað á japðnsku borg-
irnar Hiroshima og Nagas-
aki. Umsjón: Emil Bóasson
og Ragnar Baldursson.
21.20 Hljómsveitarsvlta eftir
Leos Janacek
Nýja strengjasveitin leikur;
Josef Vlach stjórnar.
(Hljóöritað á tónleikum
1983).
21v45 Útvarpssagan: .Ther-
esa“ eftir Francois Mauriac
leysigeisla og margvlslega
notkun þeirra, bæöi til góös
og ills.
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
21.15 Hver greiðir ferjutollinn?
Lokaþáttur.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I átta þáttum. Aöal-
hlutverk: Jack Hedley og
Betty Arvaniti.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.00 Verndum votlendi jarðar-
innar.
Kristján Arnason þýddi.
Kristln Anna Þórarinsdóttir
les (11).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Leikrit: .Boðiö upp I
morð" eftir John Dickson
Carr
Fimmti þáttur endurtekinn:
Hefndin er sæt.
Þýðing, leikgerð og leik-
stjórn: Karl Agúst Úlfsson.
Leikendur: Hjalti Rögn-
valdsson, Jón Hjartarson,
Helga Þ. Stephensen, Jón
Sigurbjðrnsson, Guðmundur
Ölafsson, Kristján Franklln
Magnús, Marla Sigurðardótt-
ir, Erlingur Gfslason, Helgi
Skúlason, Aðalsteinn Berg-
dal og Arnar Jónsson.
23.30 Kvðldtónleikar: Tónlist
(Saving the World’s Wet
Lands).
Bresk heimildamynd um
mikilvægi votlendis fyrir llfrlki
jaröarinnar og þær hættur
sem aö þvl steðja. Einnig er
fjallað um þau úrræði til
bjargar votlendinu sem hægt
er að gripa til, sé viljinn fyrir
hendi.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.30 Fréttir I dagskrárlok.
eftir Wolfgang Amadeus
Mozart
Atriöi úr .Töfraflautunni”.
Roland Bracht, Siegfried
Jerusalem, Edita Gruberova,
Lucia Popp og fleiri syngja
með kór Rlkisóperunnar og
Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins I Múnchen; Bernard Hait-
ink stjórnar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
13. ágúst
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Meö sinu lagi
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
13. ágúst