Morgunblaðið - 13.08.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 13. ÁGÚST 1985
13
an leik Norðmannsins Ketil Haug-
sand, fallegan en enn þá dulinn
leik Elna Mustonen og siðast var
svo sænski semballeikarinn Eva
Nordenfelt, en fyrir undirritaðan
er leikur hennar nokkur ráðgáta.
Tríó-
sónötur
Á seinni tónleikunum voru
fluttar tvær tríósónötur, ein eftir
Hándel og önnur eftir Bach og
tvær sónötur fyrir blokkflautu og
fiðlu eftir Hándel. Clas Pehrsson
lék á blokkflautur, Ann Wall-
ström á barokkfiðlu og Eva
Nordenfelt á sembal. Samleikur
þeirra var góður og var einkar
fróðlegt að heyra Ann Wallström
leika á barokkfiðlu, sérstaklega í
sónötu í A-dúr, sem er nr. 14 í op.
1, eftir Hándel. Sérkennilegur
tónn fiðlunnar fékk að njóta sín og
minnti á fallegan „gaukstón", auk
þess sem leikur hennar var vel út-
færður. Clas Pehrsson er góður
blokkflautuleikari en á einhvern
hátt tilbúinn og á köflum tilgerð-
arlegur.
Síðasta verkið á efnisskránni
var tríósónata eftir J.S. Bach en
þetta verk er umritun Bachs á
fyrstu gambasónötu hans og ætluð
fyrir tvær þverflautur. Tónverkið
hefði notin sín betur á tvö sam-
stæð hljóðfæri, annaðhvort á tvær
blokkflautur eða tvær fiðlur, að
ekki sé talað um þá hljóðfæraskip-
an er Bach sjálfur tilgreindi.
Verkið var allvel leikið, einkum þó
af hendi fiðluleikarans Ann
Wallström. Að endingu vill undir-
ritaður þakka þeim hjónunum
Helgu Ingólfsdóttur semballeik-
ara og Þorkeli Helgasyni dósent
fyrir að hafa staðið vakt sína í tíu
ár án þess að ætla sér af þessu
einhvern annan ábata en að eiga
sér stund með fallegri og góðri
tónlist, sem er þerapía þeirra er
eiga um önnur sár að binda en
fólkið í Norræna húsinu. Allt um
það, þá þakka þeir, sem notið hafa
góðra stunda í Skálholti, þeim
hjónum fyrir viðvikið.
Svíkur engan
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Scorpions
World Wide Live
EMI/Fálkinn
Einhverra hluta vegna hafði ég
bitið það fast i mig, aö Scorpions
væru á hröðu undanhaldi i þunga-
rokksbaráttunni. Eg verð að skipta
algerlega um skoðun því þeir
sporðdrekar eru ekki aðeins i fínu
formi á þessum tveimur plötum,
heldur eru þær einhverjar allra
bestu tónleikaplötur, sem ég minn-
ist að hafa heyrt lengi.
Á þessum tveimur plötum, sem
teknar eru upp að mestu leyti í
Bandaríkjunum, en einnig í Frakk-
landi og Þýskalandi, er að finna,
held ég megi fullyrða, öll bestu lög
sveitarinnar á liðnum árum — og
þau eru býsna mörg.
Stemmningin og upptakan á
þessu tónleikaalbúmi er frábær og
Klaus Meine í sínu allra besta
formi. Hann hefur átt í verulegum
vandræðum með raddbönd sín und-
anfarin ár en ekki er að heyra að
neitt ami að honum hér. Gítarleik-
ararnir Rudolf Schenker (bróðir
Michaels) og Mathias Jabs skila
sínu meistaralega vel og sömuleiðis
Francis Bucholz en Hermann Rare-
bell á trommunum er fremur ein-
hæfur. Það kemur þó ekki að sök hér
því frammistaða hinna fjögurra
vegur svo margfalt þyngra.
Að ætla sér að taka einstök lög út
úr þessari glæstu heild er harla erf-
itt en ég fæ fiðring í alla útlimi þeg-
ar ég hlusta á gítarstefið í Coast to
Coast. Það lag er samið af Rudolf og
ekki kæmi mér á óvart þótt litli
bróðir, Michael, hefði komið þar við
sögu á sama tíma og það kom fyrst
út. Still loving you, Can’t live with-
out you o.fl. o.fl. væri hægt að tína
til en ég held að þungarokkarar
landsins verði bara að næla sér í
þetta albúm hið fyrsta. Það svíkur
engan.
För um Asíulönd
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
ALL-ASIA GUIDE
Ritstjóri: Bill Cranfield
Útg.: Far Eastern Economic Review
Hong Kong 1984
Það þarf ekki að fara um það
mörgum orðum, að íslendingar
eru ferðaglaðir og hafa löngum
verið það. Ferðahættir hafa óneit-
anlega breytzt með breyttum tím-
um og öðrum samgöngum, ferða-
lög þykja ekki lengur þau tíðendi
sem áður. En hvort sem menn eru
að bregða sér í stutt leyfi til Norð-
urlanda ellegar hyggja á reisur
milli heimsálfa, er jafnan ákjós-
anlegt að undirbúa ferðalagið af
kostgæfni. Það er forsenda þess að
vel takist til. Hyggilegt er til
dæmis að kynna sér ýmsa siði og
háttu erlendra þjóða, gefa gaum
að uppruna þjóða og sögu, lesa um
merka staði. Allt þetta verður til
að auka á ánægju þá sem ferða-
langur getur fengið út úr ferðalag-
inu. Auk þess eru ýmsar hagnýtar
upplýsingar um bólusetningar,
vegabréfsáritanir, hótel og margt
fleira sem er nauðsynlegt að hafa
á hreinu áður en lagt er upp í
langa ferð.
All-Asia Guide 1984 er bók sem
uppfyllir öll þessi skilyrði og vel
það. Fjallað er stuttlega um sögu
og þjóð hvers lands, en þó ekki í
svo flóknu eða menntuðu máli að
erfitt sé að innbyrða fróðleikann.
Myndir eru til mikillar prýði. Skil-
merkilegir kaflar sem koma að
gagni í daglegu vafstri og upplýs-
ingar af nánast öllu tagi. Þá er
gerð grein fyrir gististöðum á
hverjum stað og það á svo hlutl-
ausan og fræðandi hátt að hver
maður hlýtur að hafa gagn af, svo
fremi hann hafi gaman af ferða-
lögum.
Asíulönd eru heillandi heimur
— réttara sagt margir heimar og
hver hefur sín sérkenni. All-Asia
Guide kemur því til skila svo að til
sóma er.
Það er vikuritið Far Eastern
Economic Review sem gefur bók-
ina út og endurnýjar hana árlega
svo að allar upplýsingar eru nýjar
og haldgóðar. Margir vinna við
bókina ár hvert og af þeim kynn-
um sem ég hef sjálf af ýmsum
Asíulöndum finnst mér að bókinni
megi treysta í hvívetna og hún er
sjálfsögð í farangurinn.
■ V"'
,,
HAUSTTISKAN ’85
Spennandi, fjölbreytt tiska.
Nýsnið, nýir heillandi litir.
Alltsem ég helstgœti óskað
mér frá Freeman^SÍ^^BL
SF
Xr
.ý-:
/