Morgunblaðið - 13.08.1985, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 13. ÁGOST 1985
eða sá einn, að hópurinn var upp-
rættur.
Sú hugmynd, að iðnaðurinn sé
rót hins illa, er þó ekki úr sögunni.
Hún er kjarni hugsunarháttar
Græningja. Það er snar þáttur í
starfsemi Græningja að veita auð-
valdinu „óvirka" andspyrnu. Víg-
búnaður er afsprengi iðnaðar. Því
er það langtímamarkmið að leggja
iðnað niður, en skammtímamark-
mið að splundra samvinnu Banda-
ríkjanna og Vestur-Þýzkalands,
því að það er Bandaríkjastjórn
sem neyðir Vestur-Þjóðverja til
þátttöku í iðnaðarkapphlaupi.
Græningjar berjast gegn iðnaði,
vísindum, valdi, stjórnmálum,
mengun, hungri, atvinnuleysi og
karlmennsku. Þeir vilja kvenna-
hreyfingu, jafnrétti, sameign og
sjálfsþurft (sjálfshjálp). Þeir vilja
rífa niður valdakerfið, koma á
stjórnleysi. Samt eiga menn ekki
að krjúpa á fjóra fætur og bíta
gras. Það á að „frelsa" menn und-
an lýðræði og þingræði og kjósa
leiðtoga beint. Þar af sprettur að-
dáun Græningja á Kaddafi Líbýu-
leiðtoga. Nefnd Græningja hefur
sótt fund hans.
Á íslandi krauma hugmyndir af
þessu tagi í pottum Kvennafram-
boðs og Bandalags jafnaðar-
manna. Sami rassinn er undir
báðum. (En líklega án þess þau
viti af því.)
Afnám þjóðríkja
Óskar Lafontaine heitir maður.
Hann er leiðtogi SPD í Saarlandi.
Kosningar gengu honum þar ný-
lega mjög í hag. Hann hefur tekið
upp hugmyndir Græningja í öllum
höfuðatriðum. Hann telur framtíð
vestur-þýzkra stjórnmála fólgna í
varanlegu bandalagi þessara
tveggja flokka. Þannig muni Þjóð-
verjar komast í sitt stjórnmálaess
og fylla upp í aðurnefnt tómarúm.
Þó telur Lafontaine að iðnaðinn
beri að afnema í samráði við
verkalýðssamtökin. Annars sé
hætt við óróa, þegar margir missa
atvinnu skyndilega. Lafontaine
hefur iðkað „óvirka" andstöðu við
uppsetningu bandarískra eld-
flauga í V-Þýzkalandi og vill að
landið gangi úr Atlantshafs-
bandalaginu.
Samherji Lafontaines heitir Er-
hard Eppler. Hann hefur látið til
sín taka innan SPD og einnig ver-
ið forseti kirkjuráðs evangelískra
lúthersmanna.
Eppler tekur uodir guðspjall
Græningja. Náttúrudýrkun er
uppreisn lífsins gegn bráðfeigum
tækniheimi. Tæknin framleiðir
vopn. Þeim fylgir vald. Hvort
tveggja á að leggja niður. Það á að
miða að heimi þar sem ekkert vald
er og engu ofbeldi beitt. Því á að
leggja niður fullveldi ríkja og
þjóðríkið sjálft. Hver maður á að
búa í sinni sveit, en sveitir stofna
kannski sambönd sín á milli.
Eppler mælir með einhliða af-
vopnun Vesturveldanna. Þannig
muni vígbúnaðarkapphlaup stöðv-
að eða úr því dregið. Það á að
hætta að draga upp mynd af ein-
hverju ríki, t.d. Sovétríki, sem
óvini. Þar búa valdahagsmunir að
baki. það á að stefna að samvinnu
við þau, því að Austur-Evrópa er
traustur samskipta- og viðskipta-
aðili. Styrjöldin í Afganistan var
hrapalleg valdbeitingarmistök.
Það á að hætta að reka utanrík-
ispólitík á grundvelli hugmynda-
fræði. Það þýðir að það á ekki að
halda því fram, að annað hagkerf-
ið sigri hitt. Það þýðir að ekki má
minnast á Gúlagið, né segja sann-
leikann um innanlandsástand í
Sovétríkjunum, né skýra frá
markmiði utanríkisstefnu þeirra.
Það væri að mála af þeim „óvina-
mynd“.
Erhard Eppler kyndir undir
hugmyndum annars Þjóðverja,
Jónatans Schells. Maðurinn er
æðsta stig þróunarinnar. Sprengj-
an er æðsta stig siðmenningarinn-
ar. Því er ekki um annað að velja
en að afnema siðmenninguna, þvi
að annars drepur sprengjan allt
líf. Hún mun eyða genabanka
mannkyns. Hinum þarf að bjarga.
Hinn algjöra dauða, sem yfir vof-
ir, kalla þeir, með tilvísun f Op.
Jóh. 20,6, „hinn annan dauða".
Eppler segir þessar hugmyndir
valda svima. Það þarf ímyndunar-
afl til að setja sér fyrir sjónir,
hvernig þessir menn hugsa. Þeir
virðast álíta, að maðurinn, hið
æðsta stig þróunarinnar, sé ekki
skyni gæddari en svo, að nú standi
fyrir dyrum, að hann útrými sjálf-
um sér sem tegund. Árangur
mannvitsins, sprengjan, er hold-
tekja hins illa. Rétta viðbragðið er
að flýja mannvitið og kasta sér
flötum í grasið úti í sveit. Ekki að
furða, að Eppler kallar þennan
hugmyndagraut staðlausa stafi,
útópíu.
Aö lifa með sæmd
Svo virðist sem Eppler og lið
hans viti varla í hvaða heimi þeir
búa eða hvar þeir eru staddir i
honum. Þeim ætti að vera það
ljóst, að þriðja heimsstyrjöldin
hefst á þeirri stundu sem sovét-
stjórnin álítur að hún geti sigrað
Vesturlönd með áhlaupi. Það er
alls ekki gefið, að kjarnorkuvopn
verði notuð. Hvaðeina sem veikir
varnarmátt Vesturlanda færir
okkur nær styrjöld. Leggi Vestur-
lönd niður iðnað og viðbúnað, er
ljóst hvað siglir í kjölfarið. Vest-
urlönd eru dæmd til varna. Æski-
legt er, að dregið verði sem mest
úr vígbúnaði. En að afvopnum
kemur ekki, fyrr en sovétstjórn-
inni verður ljóst, að ekki þýðir að
efna til „byltingarsinnaðs frelsun-
arstríðs" gegn Vesturlöndum. Þau
hljóta að standa vörð um frelsi og
mannréttindi. Eppler og Schell
telja menningu Vestur-Evrópu
ekki þess virði að halda lífi i
henni. En þá skulum við fara að
búa okkur undir það að súpa dauð-
ann úr skel að sovézkum sam-
yrkjuhætti.
Fyrir hvað börðust ungir menn í
Evrópu og Ameríku í stríðinu
gegn Hitler? Fyrir því að þjóðir
þeirra mættu búa við fullveldi,
lýðstjórn og fulla sæmd, en yrðu
ekki einræði að bráð. Nú telja
Eppler og Co. að fullveldi og ör-
yggi ríkja eigi að afnema. Það taki
því ekki að verja mannréttindi. Nú
sé um það eitt að ræða að bjarga
líftórunni, hvað sem það kostar.
Þeim virðist ekki detta í hug, að
nokkur maður vilji leggja líf sitt
að veði fyrir því að fá að lifa með
sæmd. Vel má skilgreina lífið sem
varðveizlu erfðaeinda og aðstöðu
til að treina tóruna. Þá skiptir
litlu máli, hverjar aðstæður eru að
öðru leyti, ef þetta er tryggt.
Hingað til hefur verið álitið, og
ekki aðeins í kristni, að kjarni
mannlífsins væri andleg auðæfi.
Að þeim verður ekki hlúð, nema
þar sem þjóðleg menning fær að
þrífast á grunni réttar og virð-
ingar einstaklingsins. Stjórnleysi
boðar ekki frið. Séu þjóðir af-
numdar, er skorið á rætur sjálfsv-
itundar hvers manns. Ekki er það
friðvænlegt. Endanlegur friður
verður aldrei i þessum heimi.
Samfélag án árekstra er samfélag
kirkjugarðsins. Sæmileg milliríkj-
asamskipti byggjast á því, að rétt-
ur einstaklings og þjóða sé virtur
og sú regla höfð í heiðri, að ekkert
ríki hefur rétt til að blanda sér í
innanríkismál
annars eða innlima annað ríki
með ofbeldi.
Friðarvinátta
Á íslandi eru uppi menn sem
kalla sig „friðarvini". f greinum,
sem birtust í Morgunblaðinu
haustið 1984 (og síðar komu út
sérprentaðar), vék ég nokkrum
orðum að hugmyndum þeirra.
Séra Gunnar Kristjánsson er einn
„friðarvina“. Hann hefur lýst því
yfir, að við eigum að elska óvini
okkar. Hann hefur mælt með því,
að menn forðist að draga um
„óvinamyndir". Orðum mínum
svarar hinn blessaði guðsmaður í
Morgunblaðinu 14.11.1984. Þeirri
grein verður vart öðruvísi lýst, en
að hún sé samsafn fúkyrða, níðs
og svívirðinga. Þannig fer prestur-
inn að því að iðka það sem hann
prédíkar. Ég bið alla kristna
menn, sem þessar línur lesa, að
minnast hans i bænum sínum.
Ileimildir:
Krhard Eppler Die tödliehe lltopie der Sicher-
heiL Hamburg 1983.
Oskar Lafontaine: Der andere FortahritL Ham-
burj? 1985.
Höíundur er dósent rið Hiskóla
tslands.
Kynlíf íslenskra karlmanna
Myndlíst
Bragi Ásgeirsson
Salurinn, að Vesturgötu 3, eða
„flotta galleríið", eins og sumir
aðstandendur þess vilja einnig
nefna það, býður til sýningar er
ber heitið „Kynlíf íslenskra
karlmanna".
Listrýnirinn var þar á ferð á
dögunum og bjóst við krassandi
sýningu og blóðmiklu æskufjöri
en varð fyrir allnokkrum von-
brigðum. Ekki verður séð hvað
flestar myndirnar á staðnum
koma kynlifi íslenzkra karl-
manna við, nema þá helst að ver-
ið sé að visa til þess að það sé í
daufara lagi. Máski er það lúmsk
orðsending frá betri helming
meðlimanna, sem munu í meiri-
hluta ef ég veit rétt. Á miðju
sumri hefði verið þjóðráð að
hafa sýningu undir þessu nafni
og skipta réglubundið um mynd-
ir þannig að allir sem að salnum
standa hefðu getað látið ljós sitt
skína um þetta mikilsverða
þema.
Þá hefðu mátt liggja frammi
ýmsar leiöbeiningar í rituðu
máli, uppskriftir að ástarseiðum
ásamt litríkum uppákomum í
stíl frumstæðra þjóða, sem eru
meira í tengslum við náttúruna
en við hér uppi á skerinu kalda.
Dregið saman í hnotskurn þá
er þetta frekar dauf sýning þótt
víða megi sjá myndræn tilþrif,
létt og leikandi strik með eró-
tísku ívafi. En það er einungis
ekki nóg. Hér þarf meiri kraft og
áræði, þlóð, tár og svita.
Nú þegar sýningarsalurinn er
kominn af stað aukast kröfurnar
og reynir á útsjónarsemi stjórn-
endanna, — það er nefnilega
harla flókið mál að halda úti
galleríi. Vekja stöðugt forvitni
fólks, sem svo verður ekki fyrir
vonbrigðum, hneykslast gjarnan
en kemur þó stöðugt aftur knúið
af áleitinni forvitni.
VOLVOKJOR
25% lÁNUÐ
Með þessum einstöku
greiðslukjörum gerum
við enn fleirum kieift
að eignast Voivo.
Volvo 340.
- Auk þess að vera
búinn öllum bestu
kostum Volvo er
hann sparneytinn
og á verði frá:
Volvo 340 kr.487þús.
IOmánaða
og gamli bíllinn tekinn upp’i
Volvo 340
Verð frá 487.000,-
PSO
Dœmi:
Volvo 340 Ríó,
Verð: 487 þús.
Lán........125 þús.
Gamli bíllinn
upp í.....200 þús.
Utborgun ...162 þús.
Samtals:487 þús.
Gjörðu svo vel, -
komdu og kynnsfu
Votvonum af eigin
raun.
SUÐURLANDSBRAUT 16 SlMI 35200