Morgunblaðið - 13.08.1985, Síða 42
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1985
fclk í
fréttum
ÓVENJULEGT
HJÓNABAND
Hann er 28 ára en hún 92
Hjá Rut Kimber og Kevin var
það ást við fyrstu sín. Það
óvenjulega er þó að Rut gæti verið
langamma Kevins því hún er 64
árum eldri en eiginmaðurinn.
Kevin sem er 28 ára segir:
„Nútímastúlkur eru bæði villtar
og spilltar og ekki að mínum
smekk. Rut er sannkölluð hefðar-
kona og þannig konu vil ég eiga.
Haldi einhver að ég hafi gifst
henni peninganna vegna þá var
gerður löglegur samningur þar
sem ég afsala öllu tilkalli til eigna
hennar."
Rut 92 ára segir: „Ég held að
Kevin hafi verið himnasending til
að veita mér hamingju í ellinni."
Martina
komin í
vax
Tennisstjarnan Martina Navrat-
ilova og tvíburasystir hennar?
Nei, ekki aldeilis. Hér er á ferðinni
vaxstytta af Martinu sem mynda-
smiðurinn Judith Craigh á heiður
af.
1 |
ANNA RINGSTED,
RÚVAK
Stysti barna-
tími sem um getur
inu sinni kynnti ég eitt-
hvað á þessa leið: Þetta er
litli barnatíminn, umsjónarmaður
er ... Það líða svo tvær til þrjár
sekúntur en þá hljómar: Þetta var
litli barnatíminn, umsjónarmaður
var...
Þetta augnablikið var ég stödd í
Steinhólaskála hérna á Akureyri
og það ætlaði allt óstöðugan að
æra. Að öllum iíkindum er þetta
einn styzti barnatími sem um getur
og svona hlutir gerast nú þegar
verið er að tala kynningar inn á
segulband fyrirfram."
Anna Ringsted er þula hjá RÚ-
VAK og hefur verið frá því að
ríkisútvarpið á Akureyri var form-
lega stofnað í Norðurgötunni.
„Það var eiginlega hálf skondið
hvernig ég lenti hérna í upphafi.
Ég fór til að biðja Jónas Jónasson
að kenna okkur í Leikfélagi Öng-
ulsstaðahrepps og þá kom það upp
úr kafinu að það vantaði þulu.
Með loforð um skólun frá Jónasi
sló ég til.“
— Hvernig kanntu við þig í út-
varpinu?
„Afskaplega vel. Þetta er mjög
lifandi starf og ólíkt öðru sem ég
hef koraið nálægt. Ég hef kynnst
mörgu yndislegu fólki og fræðst
heilmikið um útvarp. Ég ímyndaði
mér einu sinni að það væri nú ekki
mikið umstang að hafa svosem
einn þátt í útvarpi, en nú er ég á
annarri skoðun. Þetta er heilmikið
mál og ég er næsta undrandi á því
hvað fólk getur oft gert góða hluti
því oftast er það tilfellið að út-
varpsstörf eru aukastarf eða
tómstundagaman hjá fólkinu og
það stundar fulla vinnu og meira
en það með þáttagerðinni."
— Þú hefur eitthvað fengist
sjálf við þáttagerð?
„Já,en ekkert sem orð er á ger-
andi. Ég hef aðallega verið með
efni fyrir börn og komið nálægt
sumarútvarpi unga fólksins. Ég nýt
mín svo vel innan um unglingana."
_ — Þú sagðist vera í Leikfélagi
Öngulsstaðahrepps. Hefurðu unnið
með því leikfélagi lengi?
„Það er nokkuð síðan ég byrjaði
að vinna með þeim og er ákaflega
skemmtilegt. Þarna þurfa menn að
sjá sér fyrir mcnningu sinni sjálfir
og gera það. Við hlutum þarna leið-
sögn Jónasar Jónassonar en einnig
hefur m.a. Þráinn Karlsson aðstoð-
að okkur og ekki sakar það nú að
hafa Leikfélag Akureyrar hérna
rétt hjá okkur.“
Dísa Helgason Hermannsdóttir
innan um íslensku vörurnar.
Island þátttakandi í al-
þjóðlegum vörumarkaði
æ
Island tók þátt í alþjóðlegum basar sem haldinn var í Dallas í Texas í apríl sl. Borgarstjórinn opnaði
markaðinn ásamt Dan Matkin, konsúl íslands i Norður-Texas. Þjóðlöndin voru 35 sem tóku þátt í þessum
þriggja daga markaði og það voru um 20.000 gestir sem heiðruðu svæðið með nærveru sinni.
Helena Waitiker og Lisa Morgan í þjódbúningunum!
Dísa Helgason Hermannsdóttir og Ólafúr Ásgeirsson í íslenska básnum.