Morgunblaðið - 12.09.1985, Page 43
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
43
Alþýðubandalagið álykt
ar um dagvistarmál
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi álykfun frá fundi í fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalags-
ins 2. september sl. með ósk um
birtingu:
„Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins lýsir yfir fyllsta
stuðningi við baráttu starfsmanna
dagvistarheimila og foreldra gegn
þeirri niðurrifsstefnu, sem íhalds-
öflin ástunda nú í málefnum
barna. Framkvæmdastjórnin lýsir
áhyggjum sínum vegna síminnk-
andi aðsóknar að Fósturskóla fs-
lands og telur menntun og viðun-
andi starfskjör starfsfólks á dag-
vistarstofnunum undirstöðu þess,
að dagvistarheimilin séu þær
uppeldisstofnanir, sem lög gera
ráð fyrir. Ljóst er að þessi erfiðu
og mikilvægu störf eru stórlega
vanmetin bæði hvað varðar starfs-
aðstöðu og launakjör, og er nú svo
komið að loka verður deildum á
dagvistarheimilum vegna skorts á
starfsfólki. Sú samfélagsþjónusta
sem rekstur dagvistarheimila er
og á að vera er í hættu og augljós-
lega er stefnt að því að beina henni
yfir til einkaaðila frá sameiginleg-
um sjóði foreldra. Ætti sú stefna
núverandi stjórnvalda og borgar-
stjórnar Reýkjavíkur — en þar er
vandinn alvarlegastur — engum
að koma á óvart.
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins skorar á alla for-
eldra í landinu og starfsfólk dag-
vistarheimila að hvika hvergi frá
kröfum sínum um góð og holl
uppeldisskilyrði fyrir yngstu borg-
arana. Vel mönnuð dagvistar-
heimili eru skilyrði fyrir farsælu
fjölskyldulífi og velferð ungra
barna í landi, þar serp mikill meiri-
hluti foreldra stundar vinnu utan
heimilanna."
NÝJA
NÓAFLÓÐIÐ
ER
SYNDSAMLEGA
GOTT
Hjá Nóa Síríus við Skúlagötuna
keppast menn nú við að pakka
Nóaflóðinu nýja í þartilgerða
vatnshelda plastpoka.
Nóaflóðið nýja er röyndar ekki
vatnsflóð heldur könfektmolaflóð.
í hverjum poka erúhvorki fleiri né
færri en 25 molar úr gæðasúkku-
laði, fylltir með marsipani,
rommrúsínumarsipani, truffli og
öðru gómsætu gúmmulaði.
Hver einasti konfektmoli er
innpakkaður og litur umbúðanna
segir til úm innihaldið.
Molinn kostar aðeins rúmar 7
krónur eða þaðan af minna!
Nóaflóðið - í vatnsheldum
umbúðum!
Veldu íslenskt... ef það er betra!
k
V
‘í v
V