Morgunblaðið - 13.11.1985, Page 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
257. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1985
Líbería:
V aldaránstilraunin
brotin á bak aftur
Monrovíu, 12. nóvember. AP.
STJÓRNARHERINN í Líberíu tilkynnti í dag, aö hann heföi brotið á bak
aftur tilraun Thomasar Quiwonka hershöfðinga til valdaráns í landinu.
Moses Wright, einn helzti yfirmaður stjórnarhersins, flutti útvarpsávarp
síðdegis í dag, þar sem hann skoraði á landsmenn að halda tryggð við
Samuel K. Doe forseta og stjórn hans.
Miklir bardagar brutust út í
nótt, er uppreisnarmenn gerðu
skyndiárás á forsetahöllina í
Monroviu, höfuðborg landsins.
Voru þar að verki stuðningsmenn
Quiwonka hershöfðingja, sem hef-
ur verið landflótta eftir árangurs-
lausa valdatilraun í nóvember
1983. Bardagar urðu mjög harðir
sums staðar í höfuðborginni í dag
og þó einkum við forsetahöllina.
Féllu þar á annan tug manna.
Fjöldi fólks þusti út á göturnar
og dansaði af gleði, er fréttist um
valdarán Quiwonka. í morgun
lögðu hersveitir hliðhollar forset-
anum til atlögu við uppreisnar-
menn á ný og hröktu þá úr þeim
stöðum, sem þeir höfðu tekið, en
þeir höfðu m. a. náð á sitt vald
annarri helztu útvarpsstöð lands-
ins.
Miklar breytingar
á pólsku stjórninni
AP/Símamynd
Kasparov skoraði þrisvar
Nýbakaður heimsmeistari í skák, Garri Kasparov, sést bér í knattspyrnu-
keppni, sem fram fór í Moskvu í fyrrakvöld milli „Kasparov-liðsins“ og
liðs blaöamanna. Kasparov, sem er mjög liðtækur knattspyrnumaður,
skoraði þrjú mörk í leiknum.
Ákafir bardagar í Afganistan:
Uppreisnarmenn herða flug
skeytaárásir sínar á Kabúl
Varsjá, 12. nóvember. AP.
ZBIGNIEW Messner, hinn nýi for-
sætisráðherra Póllands, skipaði í dag
9 nýja ráðherra og þrjá aðstoðarráð-
herra í stjórn sína. Þrír valdamiklir
hershöfðingjar, sem voru í fyrri
stjórn, verða hins vegar áfram í
stjórninni.
Messner gerði grein fyrir skipan
nýju stjórnarinnar i ræðu á pólska
þinginu i dag. í hópi þeirra, sem
fóru úr stjórninni, var Stefan
Olszowski, fráfarandi utanríkis-
ráðherra, hvað kunnastur. Hann
er foringi þeirra harðlínumanna,
sem oft hafa verið í andstöðu við
Wojciech Jaruzelski, leiðtoga
pólska kommúnistaflokksins.
Marian Orzechowski, 55 ára
gamall sérfræðingur i marxískri
hugmyndafræði, tók við embætti
utanríkisráðherra af Olsowski,
sem áður hafði einnig sagt af sér
sem meðlimur í stjórnmálaráði
kommúnistaflokksins.
Talið er, að brottför Olsowzkis
úr áhrifastöðum verði til þess að
styrkja Jaruzelski í sessi sem leið-
toga flokksins með tilliti til fyrir-
hugaðs flokksþings, sem haldið
verður á næsta ári.
í ræðu sinni lagði Messner aðal-
lega áherzlu á efnahagsvandamál
Póllands, sem eru mjög umfangs-
mikil og erfið viðureignar. Hann
minntist hins vegar varla á stjórn-
arandstöðuna í landinu.
Islamabad, 12. nóvember. AP.
MIKLIR bardagar geysa nú í norður-
og vesturhluta Afganistan. Hafa
hersveitir úr sovézka innrásarliðinu
auk herliðs stjórnarinnar í Kabúl
hert sóknaraðgerðir sínar mjög í
grennd við borgina Herat. Sveitir
uppreisnarmanna hafa brugðizt við
af mikilli hörku. Hafa þ»r króað af
þrjár birgðaflutningalestir Sovét-
manna á þjóðveginum frá sovézku
landamærunum til Kabúl, valdið
þeim miklu tjóni og náð miklu her-
fangi.
Þannig náðu uppreisnarmenn í
einni árás 11 flutningabifreiðum,
sem fluttu eldsneyti fyrir flugvélar
Sovétmanna. í tveimur öðrum
árásum eyðilögðu uppreisnarmenn
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Filippseyjar:
Dóms að
vænta í
Aquino-
málinu
Manila, Filippseyjum, 12. nóvember. AP.
ÞRIGGJA manna dómur,
sem fjallað hefur um Aquino-
málið á Filippseyjum, hefur
komist að einróma niður-
stöðu en ekki verður frá
henni skýrt fyrr en að átta
dögum liönum. 25 hermenn
og óbreyttir borgarar voru á
sínum tíma sakaðir um að
drepa Benigno Aquino, leið-
toga stjórnarandstöðunnar.
Augusto Amores forseti
dómsins vildi ekkert segja um
sjálfa niðurstöðuna í dag. Fab-
ian C. Ver, hershöfðingja, og 24
mönnum öðrum, hermönnum og
óbreyttum borgurum, hefur
verið stefnt fyrir réttinn 20.
nóvember nk. til að hlýða á
dómsuppsöguna.
fjölda flutningabifreiða og her-
vagna fyrir Sovétmönnum. Hafa
Sovétmenn brugðið á það ráð að
leggja jarðsprengjur meðfram
þjóðveginum úr norðri til Kabúl
til þess að hindra leifturárásir
uppreisnarmanna á flutningalest-
irnar.
Uppreisnarmenn hafa jafn-
framt aukið mjög flugskeytaárásir
sínar á Kabúl. Skutu þeir 10 flug-
skeytum á sovézka sendiráðið í
Kabúl 4. nóvember og á laugar-
dagskvöld gerðu þeir einnig flug-
skeytaárás á herflugvöll borgar-
innar. Daginn áður réðust þeir á
varðstöð inni í borginni, þar sem
þeir felldu fjölda hermanna en
komust síðan undan með mikið af
vopnum frá stjórnarhernum.
Sovétmenn auka nú mjög við-
búnað sinn í Panjsherdal. Sást
mikil herflutningalest þeirra
halda í austur frá Kabúl á fimmtu-
dag og önnur á sunnudag. Að
undanfömu hefur fjöldi fallinna
og særðra sovézkra hermanna
verið fluttur til Kabúl eftir bar-
daga í Panjsherdal, en þar hafa
átökin verið hvað hörðust í landinu
frá upphafi styrjaldarinnar þar.
Gert er ráð fyrir, að sovézka
innrásarliðið eigi enn eftir að
herða sóknaraðgerðir sínar á
næstunni til þess að tryggja stöðu
sína sem bezt, áður en vetur leggzt
að.
Beirút:
Hús hrundi í spreng-
ingu og fjórir biðu bana
Beirút, 12. nóveniber. AP.
SPRENGJUMAÐUR framdi sjálfsmorð í dag með því að aka vörubifreið
hlaðinni sprengiefni á byggingu í Beirút, þar sem kristnir menn héldu
fund til þess að ræða friðaráætlun Sýrlendinga. Beið maðurinn bana í
sprengingunni ásamt konu og tveimur líbönskum hermönnum, sem reyndu
án árangurs að skjóta á ökumanninn, er hann stefndi með miklum hraða
á húsið.
Mennirnir fjórir eru Terry
Anderson, fréttamaður AP-frétta-
stofunnar, séra Lawrance Jenco,
sem er kaþólskur prestur, David
Jacobsen, yfirmaður bandaríska
háskólasjúkrahússins í Beirút, og
Thomas Sutherland, yfirmaður
landbúnaðardeildar bandariska
háskólans þar.
Ástæðan fyrir för Waites nú er
sú, að hann hefur fengið orðsend-
ingu frá mannræningjunum, sem
vakið hefur bjartsýni um að fá
megi mennina fjóra lausa. Mann-
ræningjarnir krefjast þess, að 17
félagar sínir, sem dæmdir voru í
Fimm kunnir forystumenn
kristinna manna, þeirra á meðal
Camille Chamoun, fyrrverandi
forseti Líbanons, særðust í
sprengingunni. Einnig særðust
aðrir tólf menn til viðbótar.
Frá því var skýrt í dag, að Terry
Waite, sérstakur sendimaður
Roberts Runcies, erkibiskups af
Kantaraborg, myndi fara til Beir-
út á morgun, miðvikudag, og reyna
að fá leysta úr haldi fjóra Banda-
ríkjamenn, sem verið hafa fangar
hjá öfgasinnuðum hópi múham-
eðstrúarmanna í langan tíma.
. t.
(AP/Slmamynd)
Þannig var umhorfs eftir sprenginguna í Beirút í gær, sem varð með þeim
hætti, að maður ók bifreið hlaðinni sprengjuefni á hús, sem gereyðilagðist
í sprengingunni. Fjórir biðu bana, þar á meðal maðurinn, sem ók bifreið-
inni.
fangelsi í Kuwait 1983 fyrir ríkjamanna og Frakka þar, verði
sprengjuárásir á sendiráð Banda- látnir lausir.