Morgunblaðið - 13.11.1985, Blaðsíða 6
5 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR13. NÓVEMBER1985
ÚTYARP/SJÓNVARP
Endurmat
Iseinasta þáttarkorni vék ég
meöal annars að Bókaþingi
Gunnars Stefánssonar á rás 1.
Taldi ég þátt þennan full gamal-
dags og nánast upprifjun á hlið-
stæðum þáttum Andrésar Björns-
sonar fyrrum útvarpsstjóra. Nú
má enginn skilja mál mitt svo að
ég leggist gegn því að lesið sé úr
nýjum og nýlegum bókum í út-
varpi. Sá siður er af hinu góða og
Gunnar Stefánsson dagskrárstjóri
sinnir upplestrinum af natni en ég
held að lifandi fjölmiðill, líkt og
útvarpið okkar blessað, verði að
fylgja kalli tímans. Þannig held ég
að ekki sé nóg að gert að lesa í
belg og biðu úr bókum, stundin
krefst þess að málið sé skoðað frá
fleiri hliðum. Þannig væri ekki úr
vegi að kveða til lestrarhesta á
bókaþing og ýmsa sérfræðinga er
spjölluðu um efni þeirra bóka er
veljast í þáttinn hverju sinni. Er
ég jafnvel þeirrar skoðunar að við
ættum að leita til fólks í sveitum
landsins og inna það eftir lesefni.
Frónbúar utan úr hinum stóra
heimi hafa líka vafalaust frá ýmsu
að segja. Bókin ferðast víða og er
næsta spennandi viðfangsefni að
rekja þá slóð. Einkum þegar haft
er í huga að óvíða ferðast maður-
inn jafn víða og í heimi textans.
Már
Helgi Már Barðason er einn af
máttarstólpum rásar 2. Á mánu-
dögum milli 16.00 og 18.00 hefir
hann á sinni könnu músíkþátt er
nefnist Allt og sumt. Ég kann
ágætlega við þennan þátt, hann
rennur inn um annað eyrað og út
um hitt. Músíkin yfirleitt ljúf og
óáreitin.
Hugsið ykkur umskiptin frá
þeirri tíð er hetjusymfóníur og
sorgarmarsar dundu í eyrum ís-
lenskrar alþýðu þá hún flatti fisk
eða skúraði gólf. Hér kemur í
hugann frásögn íslenskrar hús-
móður er rekur myndarheimili hér
í bæ: Ég var að ryksuga svo fékk
ég mér kaffi frammi í eldhúsi. Er
ég teygaði sjóðheitt exportkaffið
féll yfir mig undarlegur doði og
hausverkur. Ég tók á rás um gljá-
strokna íbúðina og leit með vel-
þóknun yfir morgunverkið. Það
var ekki fyrr en ég labbaði að út-
varpinu að mér varð ljóst hvað
olli hausverknum. Þegar ég ryk-
sugaði hafði ég ósjálfrátt hækkað
í viðtækinu. Grafarþung tónlist
ættuð úr höllum aðalsmanna á 16.
öld barði hlustirnar. Ég svissaði
yfir á Kanann og eftir smá stund
leið mér betur. Samt er ég lítið
gefin fyrir popp en það er nú svo
að blessuð morgunverkin passa
ekki alveg við tónsmíðar Brahms.
Hugsið ykkur kæru lesendur að
í dag getur þessi húsmóðir stillt
yfir á rás 2 í stað Kanans, þá hún
mundar sópinn. En starfsmenn
rásar 2 mega samt ekki fyllast
sjálfsánægju og ofmetnaði. Vissu-
lega hafa hinar beinu útsendingar
á rásinni þann kost að áheyrand-
anum finnst gjarnan að hann sé
að hlýða á spjall manns við mann
— þar sem allt getur gerst. Ég er
samt ekki sammála Þorgeiri Ast-
valdssyni, rásarstjóra, um að ekki
megi auka útsendingar fullunnins
efnis á rásinni. Ég er ekki alveg
viss um að það sé rétt stefna að
sömu menn sitji allt upp í tvo tíma
í einu fyrir framan hljóðnemann
í beinni útsendingu í viku hverri.
Það þarf að fastráða þá menn er
hafa sannað að þeir kunna tökin
á hljóðnemanum og gefa þeim
færi á að fullvinna ýmsa þætti er
sjá síðar dagsins ljós á rásinni.
Það er og lítilsvirðing við trausta
starfsmenn að gefa þeim ekki kost
á föstu starfi.
Ólafur M.
Jóhannesson
Þræðir á rás 2
■■■ Þátturinn
1 7 00 Þræðir er á
1 • — dagskrá rásar 2
í dag kl. 17.00 í umsjá
Andreu Jónsdóttur.
Andrea sagði í samtali
við blaðamann að uppi-
staðan í þættinum yrði
enski gítarleikarinn
Jimmy Page, sem er hvað
frægastur fyrir samstarf
með hljómsveitinni Led
Zeppelin, en starfar nú
með hljómsveitinni Firm.
Leikin verða lög þar sem
hann hefur komið við sögu
með hinum ýmsu hljóm-
sveitum gegnum árin en
hann hefur m.a. spilað
með Kings.
Þá sagði Andrea að ef
tími gæfist til myndi hún
spila lög með gítarleikar-
anum Jeff Beck, en til
skamms tíma unnu þeir
Beck og Page saman í
hljómsveitinni Yardbirds
í Énglandi.
Andrea Jónsdóttir
David Suzuki, umsjónar-
maður „Maður og jörð“.
Maður og jörð
■■■■ Þriðji þáttur
aa kanadíska
£í\) — heimilda-
myndaflokksins „Maður
og jörð“ er á dagskrá sjón-
varps kl. 20.40 í kvöld, en
alls eru þættirnir átta.
Umsjónarmaður þátt-
arins, David Suzuki, leit-
ast við að kanna tengsl
mannsins við uppruna
sinn, náttúru og dýralíf
og firringu hans frá um-
hverfinu á tækniöld. Mað-
urinn heldur gjarnan að
hann hafi yfirráð á jörðu
með nútímavísindum sín-
um og að jörðin hafi verið
sköpuð fyrst og fremst
fyrir tilvist hans eins.
Aftanstund
■■■1 Aftanstund,
1 q 25 barnaþáttur
1«/ — með innlendu
og erlendu efni, verður á
dagskrá sjónvarps kl.
19.25 íkvöld.
Bryndís Víglundsdóttir
segir sögu sína Sólu í
Söguhorninu. Myndir eru
eftir Nínu Dal. Þá kemur
spánskur þáttur í Aftan-
stund, „Sögur snáksins
með fjaðrahaminn", sem
eru þjóðsögur indíána í
Mið- og Suður-Ameríku.
Þýðandi er Ólöf Péturs-
dóttir og sögumaður Sig-
urður Jónsson. Síðast í
barnaþættinum verður
norsk barnamynd, „Bjarni
lærir að hjóla".
Barnaútvarpið
Sveitin mína
99
■■■■ Þáttur Hildu
•| J5 Torfadóttur,
10 “■ „Sveitin mín“,
er á dagskrá rásar 1 í dag
kl. 15.15 og kemur hann
frá Akureyri að venju.
Hilda mun í tveimur
næstu þáttum sínum
spjalla við Jórunni ólafs-
dóttur frá Sörlastöðum í
Fnjóskadal og segir Jór-
unn frá sveitinni sinni, ■
Fnjóskadal, þar sem hún
ólst upp og bjó lengi vel.
Jórunn býr nú á Akur-
eyri, en hefur frá ýmsu að
segja í þáttunum m.a. frá
því þegar sími var fyrst
lagður í Fnjóskadalinn.
Síðari bættinum um Jór-
unni Ólafsdóttur verður
útvarpað að viku liðinni.
Jórunn Ólafsdóttir
■■■■ Barnaútvarpið í
1 rj oo umsjá Kristín-
1 I — ar Helgadóttur
er á rás 1 í dag kl. 17.00
og henni til aðstoðar verða
þau Pétur Snæland, 14
ára, og Heiðveig Helga-
dóttir, 12 ára. Ennfremur
verður Gyða Eyjólfsdótt-
ur, 15 ára, með en hún er
í starfskynningu í útvarp-
inu um þessar mundir.
Kristín sagði að meðal
efnis í þættinum yrði
popptónlist, sem Pétur og
Heiðveig hafa séð um að
velja - svokallaður topp
10 vinsældalisti. Þá verður
framhaldssagan „Brons-
verðið" á dagskrá en það
er tólfti og jafnframt
næstsíðasti lesturinn.
Sagan er eftir Jóhannes
Heggland. Knútur R.
Magnússon les þýðingu
Ingólfs Jónssonar frá
Prestbakka.
Kristín sagði að ný
framhaldssaga hæfi
göngu sína í barnaútvarpi
20. nóvember. Lesin verð-
ur sagan „Ivik bjarndýrs-
bani“ eftir Pipaluk Fre-
uchen. Guðrún Guðlaugs-
dóttir les þýðingu Sigurð-
ar Gunnarssonar og verða
lestrarnir alls sex.
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
13. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7J30 Fréttir. Tilkynnlngar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
„Litli tréhesturinn" eftir Urs-
ulu Moray Williams. Sigrlður
Thorlacius þýddi. Baldvin
Halldórssonles(13j.
9J20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar. þulur velur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá kvöldinu áður I
umsjá Sigurðar ta. Tómas-
sonar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið ur forustugreinum
dagblaðanna.
1040 Land og saga. Ragnar
Agústsson sér um þáttinn.
Lesari: Unnur Agústa Sigur-
jónsdóttir.
11.10 Úr atvinnullfinu — Sjáv-
arútvegur og fiskvinnsla.
Umsjón: Glsli Jón Kristjáns-
son.
11.30 Morguntónleikar. Þjóðlðg
frá ýmsum löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
1220 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13J0 I dagsins önn — Heimili
og skóli. Umsjón: Bogi Arnar
Finnbogason.
14.00 Miðdegissagan: .Skref
fyrir skref“ eftir Gerdu Antti.
Guörún Þórarinsdóttir þýddi.
Margrét Helga Jóhannsdóttir
les(17).
14.30 Óperettutónlist.
15.15 Sveitin mln. Umsjón:
Hilda Torfadóttir. (Frá Akur-
eyri.)
1545 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Sfödegistónleikar.
a. Norsk kunstnerkarnival
op. 14 eftir Johann Svend-
sen. Sinfónluhljómsveitin I
Björgvin leikur. Karsten
Andersen stjórnar. b. Fiölu-
konsert nr. 3 I h-moll op. 61
eftir Camille Saint Saéns.
Kyung-Wha Chung leikur
með Sinfónluhljómsveit
Lundúna. Lawrence Foster
stjórnar.
17410 Barnaútvarpið.
Meðal efnis: „Bronssverðiö"
eftir Johannes Heggland.
Knútur R. Magnússon les
þýöingu Ingólfs Jónssonar
frá Prestbakka (12). Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
1740 Slðdegisútvarp.
— Sverrir Gauti Diego.
Tónleikar. Tilkynningar.
1845 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
1940 Tilkynningar.
1945 Málræktarþáttur. Helgi J.
Halldórsson flytur.
19Æ0 Eftir fréttir. Bernharður
Guðmundsson flytur þátt um
mannréttindamál.
20.00 Hálftlminn. Elln Kristins-
dóttir kynnir popptónlist.
20.30 íþróttir. Umsjón: Samúel
Örn Erlingsson.
20.50 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
21.30 Sögublik — A ferö um
Hvanndali. Umsjón: Friðrik
G. Olgeirsson. Lesari með
honum: Guðrún Þorsteins-
dóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
SJÓNVARP
19.00 Stundin okkar.
Endursýndur þáttur frá 10.
nóvember.
19.25 Aftanstund.
Barnaþáttur meö innlendu
og erlendu efni. Sðguhornið
— Bryndls Vlglundsdóttir
segir sögu slna Sólu, myndir
teiknaði Nlna Dal. Sögur
snáksins með fjaðrahaminn
— Þjóðsögur indlána I Mið-
og Suður-Amerfku, nýr
spánskur teiknimyndaflokk-
ur. Þýöandi Ólöf Pétursdótt-
ir, sðgumaður Siguröur
Jónsson. Bjarni lærir að hjóla
MIÐVIKUDAGUR
13. nóvember
— Norsk barnamynd.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið.)
19£0 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
2040 Maðurogjörð.
(A Planet for the Taking.)
Þriðji þáttur. Kanadlskur
heimildamyndaflokkur I átta
þáttum um tengsl mannsins
við uppruna sinn, náttúru og
dýralif og firringu hans frá
umhverfinu á tækniöld.
Umsjónarmaður David Suz-
uki. Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
21.45 Dallas.
Arfurinn. Bandarlskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi
Björn Baldursson.
22.35 Chet Baker I Operunni —
fyrri hluti.
Frá tónleikum á vegum Jass-
vakningar 2. febrúar 1985.
Með Chet Baker, trompet-
leikara, léku Kristján Magn-
ússon, Svelnn Óli Jónsson
og Tómas R. Einarsson.
Upptöku fyrir sjónvarpiö
stjórnaöi Tage Ammendrup.
23.15 Fréttir I dagskrárlok.
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.25 Bókaþáttur. Umsjón:
Njörður P. Njarðvlk.
23.05 A óperusviðinu. Leifur
Þórarinsson kynnir óperu-
tónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
13. nóvember
104X)—124» Morgunþáttur.
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
Hlé.
14:00—15:00 Eftirtvö.
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
164)0—174)0 Dægurflugur.
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leopold Sveins-
son.
174)0—184)0 Þræðir.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttlr.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan 1.1:00, 15:00,
16:00 og 17:00.