Morgunblaðið - 22.11.1985, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1986
Nokkur orð um helstu úti-
vistarsvæði Reykjavíkur
— og átak við endurheimt gróðurs
á mörkum byggðarinnar
— eftir Hiddu
Valtýsdóttur
Reykvíkingar eiga því láni að
fagna að lengstum hafa borgar-
yfirvöld'rækt þá skyldu sína að
varðveita óbyggð og opin svæði
með vissu millibili innan borgar-
markanna svo borgarbúar þurfi
ekki að leita langt frá heimilum
sínum til að njóta hollrar og góðr-
ar útivistar. Sömuleiðis hafa verið
friðuð stór og víðáttumikil svæði
í nágrenni borgarinnar þar sem
tækifæri gefst til að njóta óspilltr-
ar náttúru og stunda alls konar
íþróttir eða göngur. Má í því
sambandi nefna Heiðmörk og Blá-
fjallasvæðið en hið síðarnefnda
var stofnað í samvinnu við ná-
grannasveitarfélögin.
Það er í verkahring umhverfis-
málaráðs m.a. að standa vörð um
varðveislu og uppbyggingu útivist-
arsvæðanna innan borgarmark-
anna og ég hygg að sjálfstæðis-
menn hafi jafnan sýnt fullan skiln-
ing á mikilvægi þessa. Töluverður
misbrestur varð þó á í tíð vinstri-
meirihlutans í Reykjavík á árun-
um 1978-82, þegar sá meirihluti
tók upp stefnu sem hét „þétting
byggðar" og fól í sér að leggja áður
varðveitt útivistarsvæði undir
íbúðarbyggð. Að ósk fulltrúa Al-
þýðubandalagsins í umhverfis-
málaráði var gerð sérstök úttekt á
vegum borgarskipulags á land-
notkunarbreytingum á árunum
1974-84 með tilliti til þess á hvaða
árum hefði verið gengið mest á
útivistar- eða „græn svæði". Þá
kom í ljós að á „vinstra“-tímabil-
inu, nefnilega á árunum 1978-82,
voru rúmir 74 ha lands, sem merkt
var „grænt svæði" á skipulag-
skorti, teknir undir íbúðir, at-
vinnurekstur eða stofnanir. Síð-
ustu árin, eða árin 1982-84, voru
hins vegar aðeins teknir rúmlega
4 hektarar af grænu svæði til
annarra nota en á sama tíma
bættust 16 hektarar við hin grænu
svæði.
Gera má ráð fyrir að komandi
kynslóðir hefðu kunnað okkur litl-
ar þakkir ef þeirri stefnu hefði
verið haidið áfram að virða þessa
grænu reiti, sem sumir kalla
„lungu stórborganna", að vettugi.
Stóru útivistarsvæðin
innan borgarmarkanna
Eitt stærsta og fjölbreyttasta
útivistarsvæði innan borgarinnar
er Elliðaárdalurinn. Nýlega var
tekin sú ákvörðun í borgarstjórn
að fresta stofnun fólkvangs í Ell-
iðaárdal sem hafði þó lengi verið
unnið að og var frestunin ákveðin
vegna þess að enn eru óljós atriði
um yfirráðarétt á landi efst í daln-
um. Mörk útivistarsvæðisins í
Elliðaárdal eru þó ljós að því er
„Það er í verkahring
umhverfismálaráðs m.a.
að standa vörð um varð-
veislu og uppbyggingu
útivistarsvæðanna innan
borgarmarkanna og ég
hygg að sjálfstæðismenn
hafi jafnan sýnt fullan
skilning á mikilvægi
þessa.“
eignarrétt borgarinnar varðar um
langstærsta hluta dalsins.
í Elliðaárdalnum er stundað
fjölbreytt útilíf og koma þar til
bæði einstaklingar, félög og fé-
lagasamtök, íþróttamenn, hesta-
menn og stangveiðimenn að
ógleymdum þeim fjölmörgu sem
nota dalinn til gönguferða og til
að njóta sólar á góðviðrisdögum í
skógarlundum Elliðaárdalshólm-
ans. Og við árósana hafa smábáta-
eigendur aðstöðu.
Vegna mikilvægis Elliðaárdals-
ins sem eins helsta og markverð-
asta útivistarsvæðis Reykvíkinga
hafa verið samþykktar sérstakar
reglur þar sem kveðið er á um
hvernig umgengni þar skuli háttað
og skipuð sérstök undirnefnd á
vegum umhverfismálaráðs sem á
að tryggja að þeim reglum sé fram-
fylgt. I þeirri nefnd eiga sæti tveir
fulltrúar frá umhverfismálaráði
og borgarverkfræðingurinn f
Reykjavík.
Annað stórt útivistarsvæði og
stöðugt vinsælla í Reykjavík er
Öskjuhlíðin. Þar hefur Skógrækt-
arfélag Reykjavíkur annast gróð-
ursetningu um árabil af miklum
dugnaði í vestanverðri hlíðinni á
vegum borgarinnar. Þar er nú
orðin gróin brekka og skjólgóð og
þar sjá menn, sem muna urðina
og grjótið þarna í hlíðinni á fyrri
tíð, hverju er hægt að áorka um
eflingu gróðurs þegar vel er að
verki staðið. Skemmtilegir göngu-
stígar liggja um þetta svæði þar
sem hreyfir varla vind í skjóli
trjánna þótt hann blási úti fyrir.
Þetta nota æ fleiri borgarbúar sér
og ganga þarna um hvort sem er
að sumri eða vetri. Útivistarsvæð-
ið f Öskjuhlíðinni mun síðan í
framtíðinni tengjast óbeint fyrir-
huguðu útivistarsvæði við Naut-
hólsvíkina þar sem ýmis útivistar-
aðstaða er á prjónunum auk þess
sem aðstaða er þar fyrir siglingar.
Á kolli Öskjuhlíðar standa yfir
miklar framkvæmdir. Verið er að
brjóta niður gömlu hitaveitu-
geymana sem eiga að víkja sakir
elli fyrir nýjum. En hugmyndir eru
uppi um að ofan á þeim nýju verði
komið fyrir veitingasal sem áreið-
anlega mun bjóða upp á hið feg-
ursta útsýni.
Þá má ekki gleyma Laugardaln-
um og fögrum trjágarðinum í
hjarta hans. Þar er líka einn fjöl-
skrúðugasti grasagarður á norður-
hveli jarðar, garðyrkjustöð borg-
arinnar, einn af skólagörðunum
og í beinu framhaldi af þessum
hluta kemur íþróttasvæðið og
sundlaugarnar.
Nú er verið að vinna að heildar-
skipulagningu Laugardalsins en
austasti hluti dalsins er ætlaður
sem stofnanasvæði. Má því gera
ráð fyrir byggingu í þeim hluta en
meginhluti hins óbyggða og ófrá-
gengna svæðis er hins vegar frá-
tekinn samkvæmt samþykktri til-
lögu borgarstjóra frá 6. des. 1984
um að þar skyldi komið upp sér-
stöku útivistar- og hátíðarsvæði í
tilefni 200 ára afmælis Reykjavík-
urborgar á næsta ári.
Laugardalurinn er feikilega
fjölsóttur. Á góðviðrisdögum
sækja þangað þúsundir manna,
yngri sem eldri, til að njóta útiveru
í þessum skjólgóða og gróðursæla
reit.
Ný áhersluatriði í rækt-
un og uppgræðslu
Það skal viðurkennt að þótt út-
sýni sé víða fagurt í Reykjavík þá
er það staðreynsd að við hin næstu
útmörk borgarinnar er gróður afar
illa farinn, víðast blásnir melar
og rofabörð. Hólmsheiðin hér rétt
austan við Rauðavatn er þar engin
undantekning, en þar er þó fjöl-
breytt landslag með hæðum og
dalverpum. Á vegum borgarinnar
er nú verið að vinna að undir-
búningi og skipulagningu ræktun-
ar í megindráttum á þessu svæði
og er þar átt við skógrækt, upp-
græðslu og lagfæringu á spilltu
landi eftir því sem við á. Ætlunin
er að bæta þetta land verulega
áður en nokkur byggð verður
skipulögð þar, enda er hún ekki á
næsta leiti, en hún mun þá taka
mið af þeim framkvæmdum. Þetta
er nýjung hér á landi og lofar góðu.
Með þessu skipulagða átaki í
ræktun er líka lögð áhersla á hið
margþætta útivistargildi útmarka
borgarinnar þar sem tækifæri
gefst til að stunda vinsælar úti-
vistaríþróttir.
En augu manna hafa ekki aðeins
beinst að Hólmsheiðinni að því er
„gróðurvæðinguna" varðar. Það er
orða sannast að allt umhverfið hið
næsta byggð hér á höfuðborgar-
svæðinu er næsta lítt aðlaðandi
frá gróðurfarslegu sjónarmiði.
Þessu hafa sveitarfélögin viljað
ráða bót á með sameiginlegu átaki.
Fyrsta verkið var að girða allt
svæðið til að verja það ágangi
búfjár. Þeirri girðingu er nú svo
til lokið. Þá var og gerð könnun á
trjágróðri á þessu svæði og landið
flokkað með tilliti til gróðurskil-
yrða. Og nú nýlega hefur sérstök
nefnd á vegum Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins unnið að
tillögu um trjárækt á svæðinu sem
samþykkt var samhljóða á aðal-
fundi samtakanna 1984. Þessi til-
laga var á þá leið að á næstu 5
árum skyldi trjárækt á höfuð-
borgarsvæðinu efld að því marki
að gróðursett verði á vegum sveit-
arfélaganna að minnsta kosti ein
trjáplanta á hvern íbúa árlega í
byggð eða í námunda við byggð.
Þetta átak á vafalaust eftir að
koma íbúunum margfalt til góða
og auka veg sveitarstjórnanna.
- O -
Nú er verið að vinna að endur-
skoðun aðalskipulags Reykjavíkur
á vegum borgarskipulags. Einn
þáttur þess verkefnis er unninn á
teiknistofu Reynis Vilhjálmsson-
ar. Hann er sá er varðar þátt
grænna svæða og göngustígakerf-
isins í aðalskipulaginu og er m.a.
lögð áhersla á að ekki sé of langt
á milli þessara svæða svo menn
eigi þess kost að ganga á milli
þeirra með góðu móti — að þau
myndi nokkuð samhangandi keðju
inni í byggðinni.
f tengslum við þetta verkefni
má einnig nefna það sem þeir
Reynir og samstarfsmaður hans,
Þráinn Hauksson landslagsarki-
tekt, kalla „græna stíga“ eða úti-
vistarstíga til aðgreiningar frá
hinum hefðbundnu stígum þar sem
megintilgangurinn er að komast
sem beinasta leið á milli ákveðinna
staða s.s. heimilis og almennings-
vagns eða heimilis og skóla. En
markmiðið með þessum svokölluðu
„grænu stígum" er að tengja sam-
an mikilvægustu „grænu svæðin"
í eitt kerfi. Eftir þeim á að vera
hægt að rölta, trimma, hjóla eða
ganga á skíðum á milli borgar-
hluta í vistlegu umhverfi. Þessir
stígar verða nokkru plássfrekari
en hinir hefðbundnu þar sem þeim
á að fylgja ýmist gróðurbelti,
grasflatir, leiktæki eða sleða-
brekkur.
Þessum stígum má koma fyrir á
óbyggðum geirum sem skildir hafa
verið eftir í nýrri hverfum og hins
vegar má ætla þeim stað á núver-
andi grassvæðum meðfram stofn-
og tengibrautum.
Þeir hönnuðirnir gera grein
fyrir hugmyndum sínum um þessa
„grænu stíga" í greinargerð sem
þeir hafa tekið saman um græn
svæði í borginni og flokkun þeirra
í sambandi við aðalskipulagið.
Þessi mál eru þó enn á umræðu-
stigi.
- O -
Með þessum línum hef ég leitast
við að gefa lesendum svolitla inn-
sýn í hvað helst er að gerast í þeim
málum sem flokkast undir meiri-
háttar útivistarsvæði í Reykjavík,
og nýjum áheyrsluatriðum í
tengslum við endurheimt gróðurs
við útmörk borgarinnar.
Ég hef hins vegar ekki minnst
á hin fjölmörgu minni útivistar-
svæði innan borgarinnar eða leik-
svæði barna sem skipta hundruð-
um og eru ýmist stutt eða sæmi-
lega á veg komin að því er frágang
varðar. Þeim málum miðar í rétta
átt þótt mörgum finnist of hægt
ganga.
Þess má þó geta að á síðasta ári
var samþykkt tillaga frá sjálf-
stæðismönnum í borgarstjórn að
veita töluverðu fé til að endurnýja
leiktæki fyrir börn á leiksvæðum
borgarinnar, bæði á þeim opnu,
gæsluvöllum og á þeim sem heyra
undir dagvistarkerfið og er það
framlag ætlað sem sérstök af-
mælisgjöf til bama í Reykjavík í
tilefni 200 ára afmælisins. Fram-
kvæmdinni verður skipt niður á
fimm ár og leiktæki endurnýjuð á
um það bil 20 leikvöllum árlega.
Höíundur er borgarfulltrúi í
Reykjavtk ogá sæti í borgarráði.
Hún er einnig formaður umhverfís-
málaráðs.