Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
Guðmundur skip-
herra Kjærnested
Síðara bindi minninga komið út
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur gefið út síðara bindi æviminn-
inga Guðmundar Kjærnested skip-
herra, skráða af Sveini Sæmunds-
syni. Fyrra bindið kom út fyrir síð-
ustu jól og varð metsölubók.
I seinna bindinu eru 140 ljós-
myndir á 56 blaðsíðum er varpa
skýru ljósi á þau hatrömmu átök
sem Guðmundur segir frá í bók
Á bókarkápu segir m.a.: „Þetta
er saga hatrammra átaka, tauga-
stríðs og ofbeldisverka; saga um
harðfylgi og þrautseigju íslenskra
varðskipsmanna og óumdeildan
foringja þeirra í baráttunni við
ofurefli, sem að lokum laut í lægra
haldi.
Sveinn Sæmundsson skráir sögu
Guðmundar skipherra og barátt-
unnar við breska ljónið sem náði
hámarki er herskip reyndi að
sökkva varðskipinu Tý.
Breskir útgerðarmenn kröfðust
þess að Guðmundur yrði rekinn í
land og herskipamenn óttuðust
hann og hötuðu.
„Við erum ekki stríðsmenn,"
sagði Guðmundur, „en þegar ráðist
er á okkur með ofbeldi legg ég allt
í sölurnar til að verja sjálfstæði
íslands."
Bókin Guðmundur skipherra
Kjærnested er 280 blaðsíður. 1
henni er ítarleg nafnaskrá yfir
alla þá sem koma við sögu.
Bókin er sett og prentuð í Prent-
stofu G. Benediktssonar, en bundin
hjá Arnarfelli hf. Sigurþór Jakob-
sson hannaði kápuna.
Reykjavík
tíma“
99
fyrri
Bækur Árna Óla í endurútgáfu
ÚT er komin hjá bókaútgáfunni
Skuggsjá í Hafnarfirði, Reykjavík
fyrri tíma II eftir Árna Óla. Þetta
er annað bindið í endurútgáfu
Reykjavíkurbóka hans, en þær voru
sex að tölu. Þessi nýja útgáfa Reykja-
víkurbókanna verður í þremur bind-
um, þ.e. tvær bækur í hverju bindi.
Fyrsta bindið kom út í fyrra, en í
því'voru Fortíð Reykjavíkur og
Gamla Reykjavík. í öðru bindinu,
sem nú er að koma út, eru Skuggsjá
Reykjavíkur og Horft á Reykjavík.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Reykjavíkurbækur Árna óla
hafa að geyma geysilega mikinn
fróðleik um Reykjavík fyrri tíma,
um persónur, stofnanir og staði,
en í þessu bindi eru hátt í hundrað
gamalla mynda frá þessum tíma,
m.a. nokkrar myndir af málverk-
um Jóns Helgasonar biskups. Saga
og sögustaðir verða ríkir af lífi og
frá síðum bókanna gefur sýn til
fortíðar og framtíðar. Nútíma-
maðurinn öðlast nýjan skilning á
höfuðborg landsins og forverun-
um, sem Reykjavík byggðu. 011 er
útgáfan hin vandaðasta, svo sem
vera ber.
Sigurður Bjarnason frá Vigur,
sem var um langt árabil náinn
vinur og samstarfsmaður Árna
Óla á Morgunblaðinu, skrifar
formála fyrir þessari nýju útgáfu,
er birtist í fyrsta bindinu. Þar
segir hann m.a.:
„ ... íslenzka þjóðin og þá ekki
sízt íbúar Reykjavíkur eiga honum
mikið að þakka. Þessi mikilhæfi
fræðimaður var alla sína ævi að
grafa upp alþýðlegan fróðleik. Ég
hefi leyft mér að staðhæfa: Hann
var hógværastur allra, leitaði
ávallt sannleikans að fomu og
nýju.“
Reykjavík fyrri tíma II er 582 bls.
í stóru broti. Káputeikningu gerði
Böðvar Leós.
Stjórn og varastjórn Gamla miðbæjarins. Frá vinstri Guðni Pálsson arkitekt, Jafet Ólafsson, SÍS, Sigurður
Steinþórsson, Gulli og silfri, Haukur Gunnarsson, Rammagerðinni, Benedikt Geirsson, SPRON, Edda Ólafs-
dóttir, lögfræðingur, Bolli Kristinsson, versiuninni Sautján, Guðlaugur Bergmann, Karnabæ, Helga Bachmann,
Þjóðleikhúsinu, Skúli Jóhannesson, Tékk-kristal, Ásgeir Ásgeisson, Kúnígúnd, Baldvin Jónsson, Morgun-
blaðinu, Ásgeir Hannes Eiríksson, Pylsuvagninum, Páli Bragi Kristjónsson, Skrifstofuvélum, Jón Hjaltason,
Óðali, Einar Óskarsson, Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, og Guðmundur Sigmundsson, Bókabúð Braga.
Á myndina vantar Garðar Kjartansson, Sportvali og Bikarnum, Pétur Arason, ACO, og Einar Högnason, Skó-
verslun Axels Ó.
Gamli miðbærinn stærsti
stórmarkaður landsins
— segir Guðlaugur Bergmann formaður fram-
kvæmdastjórnar félagsins Gamli miðbærinn
FÉLAG um gamla miðbæinn var
stofnað í síðustu viku. Nýkjörin
stjórn félagsins kom saman síðast-
liðinn þriðjudag og kaus eftirtalda
menn til trúnaðarstarfa og um leið
í framkvæmdastjórn. Guðlaugur
Bergmann var kjörinn formaður,
Skúli Jóhannesson varaformaður,
Ásgeir Hannes Eiríksson ritari,
Bolli Kristinsson gjaldkeri. Fulltrúi
í framkvæmdastjórn er Jón Hjalta-
son og framkvæmdastjóri var ráð-
inn Sigurður V. Kolbeinsson.
„Ákveðið var að láta nokkur
verkefni félagsins hafa forgang
fram til jóla,“ sagði Guðlaugur
Bergmann. „Mikil þörf er á að
benda fólki á þau bílastæði sem
fyrir hendi eru í miðbænum.
Ákveðið hefur verið að auglýsa
hvar þessi bílastæði eru.
Á sama hátt verður akstur inn
og út úr miðbænum athugaður.
Félagið mun athuga í samráði
við borgaryfirvöld hvort hægt
væri að fá strætisvagn sem
ganga mundi um gamla mið-
bæinn og þá sérstaklega til og
frá bílastæðum. Þá var rætt um
að auglýsa umfang gamla mið-
bæjarins. Hann er ótvírætt
Sigurður K. Kolbeinsson
kvæmdastjóri.
fram-
stærsti stórmarkaður landsins -
miðstöð allra landsmanna.
í desember verða skipulagðar
ýmsar uppákomur á hinum ýmsu
stöðum í miðbænum. Opnunar-
tími verslana verður skipulagður
í samræmi við samkeppnisaðila
utan svæðisins, svo sem ýmsa
stórmarkaði. Við munum hvetja
forráðamenn verslana til að hafa
opið til klukkan 16 á laugardög-
um. Einnig var rætt um að hefja
viðræður við Póst og síma um
opnunartíma pósthúsa í gamla
miðbænum fram til jóla. Mörg
fleiri mál voru rædd, enda mikill
hugur í stjórnarmönnum," sagði
Guðlaugur Bergmann.
Stjórnin tók ákvörðum um að
félagsmenn greiddu ársgjald
fyrir tímabilið 1. desember 1985
til 1. desember 1986, kr. 3000.-,
nema þeir sem eiga bæði húsnæði
og reka fyrirtæki, þeir greiði þá
tvöfalt gjald. Félagsmenn eru
eigendur húsnæðis, verslunar- og
þjónustuaðilar, stofnanir ríkis
og borgar, félagasamtök og íbúa-
samtök. Sérsamningar verða
gerðir við stofnanir og stærri
fyrirtæki.
Mikill fjöldi verslana og þjón-
ustufyrirtækja eru aðilar að fé-
laginu. Svo dæmi sé tekið eru á
þessu svæði yfir 100 verslanir
sem selja fatnað fyrir börn og
fullorðna og eru þar með taldar
svokallaðar tískuverslanir. Þá
eru þarna 16 ferðaskrifstofur og
30 hárgreiðslu- og rakarastofur
svo eitthvað sé nefnt. Samtals
vinna um 6000 manns hjá fyrir-
tækjum í gamla miðbænum.
Skýrsla um hugsanlega þátttöku íslands í umræðu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd:
Til meðferðar í utanríkismála-
nefnd sem uppkast og trúnaðarmál
STARFSMENN utanríkisráðuneytisins hafa að beiðni utanríkismálanefndar
Alþingis tekið saman drög að skýrslu um hugsanlega þátttöku íslands í
umræðu um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. „Drögin hafa verið
lögð fyrir nefndina og eru þar til meðferðar sem uppkast og sem trúnaðar-
mál,“ segir Birgir ísleifur Gunnarsson, alþingismaður.
Árni Óla
I vor samþykkti Alþingi þings-
ályktunartillögu um stefnu íslend-
inga í afvopnunarmálum, þar sem
utanríkismálanefnd var m.a. falið
„að kanna í samráðí við utanríkis-
ráðherra hugsanlega þátttöku ís-
lands í frekari umræðu um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum." Var nefndinni falið að
skila um það áliti til Alþingis fyrir
15. nóvember 1985.
Birgir ísleifur Gunnarsson seg-
ir, að hér sé um umfangsmikið
mál að ræða og utanríkismála-
nefnd telji sig þurfa meiri tíma til
að vinna að endanlegri gerð skýrsl-
unnar. „Það verður fljótlega rætt
í nefndinni, hvernig ganga á frá
skýrslunni," sagði hann.
Dagana 29. og 30. nóvember
verður haldin í Kaupmannahöfn
ráðstefna um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd. Að sögn Birgis Isleifs
standa að henni óformleg samtök
stjórnmálaflokkanna á Norður-
löndum. „Það er ekki meiningin
að gera neinar samþykktir á þess-
ari ráðstefnu,“ sagði hann. „Hug-
myndin er sú, að skiptast á upplýs-
ingum og kannski að reyna að
afmarka ágreining sem kann að
vera fyrir hendi á milli einstakra
landa og stjórnmálaflokka."
Fulltrúar íslensku stjórnmála-
flokkanna verða Eyjólfur Konráð
Jónsson, formaður utanríkismála-
nefndar, og alþingismennirnir
Birgir ísleifur Gunnarsson, ólafur
G. Einarsson, Ingvar Gíslason, Jón
Baldvin Hannibalsson, Guðrún
Agnarsdóttir, Kristín Kvaran og
Svavar Gestsson.
©
INNLENT