Morgunblaðið - 22.11.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER1985
59
Fleiri eru breyskir
Nýendurskipuð ríkisstjórn
endurskoðaði nýlega fjárlaga-
frumvarp ársins 1986 í því
augnamiði að lækka útgjöldin
svo, að hjá því verði komist að
hækka skatta enn og/eða erlend-
ar ríkisskuldir.
Um árangur skal hér engu
spáð, en fyrstu fréttir af við-
brögðum ráðherra lofa ekki góðu
að ekki sé meira sagt.
Nýi menntamálaráðherrann
Sverrir Hermannsson var varla
sestur í stólinn þegar hann lýsti
því yfir að háskólaútibú skuli
stofnað á Akureyri á komanda
hausti. Þurfti hann sýnilega
hvorki að kynna sér hversu brýn
þörf væri fyrir slíka stofnun né
heldur hvað hún kæmi til með
að kosta. Slíkt er ábyrgðarleysið
hjá ráðherranum þrátt fyrir
yfirlýsta viðleitni ríkisstjórnar
um að draga úr útgjöldum eftir
því sem framast er unnt.
Þessum annars ágæta ráð-
herra mun ýmislegt betur gefið
en gætileg meðferð ríkisfjár. Til
dæmis mun hann hafa liðið það
að á liðnu sumri var haldið úti
um 20 manna vinnuflokki með
tilheyrandi vélakosti við vega-
gerð á Fljótsdalsöræfum. Hefur
þó legið fyrir um nokkur ár að
þessa vegar verður ekki þörf á
þessari öld. Verði hans þörf upp
úr aldamótum verður hann að
mestu horfinn af yfirborði jarðar
og kemur því aldrei að notum.
En fleiri eru nú breyskir en
en Björn
Björn. Samgönguráðherrann tel-
ur mjög aðkallandi að verja
tugum eða hundruðum milljóna
til þess að bora göt á Vestfjarða-
fjöllin og brúa þar firðina.
Sennilega hefðum við nú getað
orðið við þessum óskum ráð-
herranna og reyndar ýmsum
fleiri ef við á sínum tíma hefðum
haft þor og kjark til að þiggja
af hernum steyptan veg milli
Reykjavíkur og Langaness og
Fljótsdalsvirkjun frá erlendu
auðfélagi, hvort tveggja okkur
að kostnaðarlausu. Það er seint
að iðrast eftir dauðann.
Trúlega hafa fleiri ráðherrar
en þeir tveir, sem hér hafa verið
nefndir, einhverjar álíka bráðað-
kallandi framkvæmdir í poka-
horninu, þótt þeir ekki varpi
þeim fram að svo stöddu.
Þrátt fyrir ailt er þó vonandi
að ríkisstjórn og Alþingi beri
gæfu til að snúa af villigötunni
og gera fjárlagafrumvarpið og
þar með fjárlögin svo úr garði
að hvorki komi til auknar lántök-
ur né skattahækkanir.
Neskaupstaö,
Eyþór Þórðarson.
Til stjórnenda
harmonikku-
þáttar
Stjórnendur harmonikkuþáttar
virðast sniðganga íslenzka harm-
onikkusnillinga en sækja allt til
útlanda.
Starfsbræður ykkar hér eru
jafnvel betri en þeir sem þið eruð
að dragnast með — sumir miklu
betri. Megum við ekki heyra í ís-
lenzkum listamönnum? Þarf allt
að vera útlent?
Næst spyr ég Markús Örn hvort
þetta sé hans vilji, því hann ræður
yfir ykkur. Hins vegar vona ég að
þið takið ábendingum þessum svo
alvarlega sem ég heyri marga
gagnrýna þetta. Má ég nefna
nokkra snillinga sem þið forðist
að láta okkur heyra í: Bragi Hlíð-
berg, Jón Hrólfsson, Karl Jóna-
tansson, örvar Kristjánsson svo
dæmi séu tekin. { þessum mönnum
vill fólk heyra, en hitt er siðleysi
að bjóða alltaf upp á einhverja
útlendinga. Ég er ekki einn um
þetta álit og við munum senda
Markúsi Erni kæru, ef þið hættið
ekki þessum ósóma.
Jóhann Þórólfsson,
Norðurbrún 1.
Börn og gamalmenni
í umferðinni
Áhætta eldra fólks í umferð- hönd.
inni er mun meiri en þeirra sem Börnin í umferðinni eru börnin
yngri eru. Sjón og heyrn þeirra okkar. Þar sem þau eru á eða við
hefur daprast. Það er stirðara til akbrautir er nauðsynlegt að sýna
gangs og eftirtektin lakari en sérstaka aðgát. öll viljum við
áður. Sýnum öldruðum tillits- vernda börnin fyrir hættum í
semi og réttum þeim hjálpar- umferðinni.
Umboösmenn — sölumenn — heildsalar
Norskt innflutningsfyrirtæki sem verslar meö gæöa-
vörur frá hinum ýmsu löndum óskar eftir samstarfi
við íslenska aðila. Um er að ræða vörur fyrir sólbaðs-
og líkamsræktarstofur og bensínstöðvar, ilmvötn,
gjafavörur, skó- og leðurfatnaö.
A’BAC International, 1620 Gresvik Norge.
Sími: 90 47 32 28400.
:shannon:
:datastor:
:ðatastor:
Allt á sínum staö
Cl elnhver serstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband vlö okkur sem
anralyrst og munum vlö fúslega sýna fram á hvernig
SnflHHOH skjalaskápur hefur ,,allt á sínum staö".
Otaölustaðir:
REYKJAVlK Penninn Hallamiúla KEFLAVlK Bókabuí Keflavikur AKRANES Bokaversi Andrés
Nielsson HF ISAFJÖRÐUR Bókaverslun Jónasar Tómassonar AKUREYRI. Bókaval bóka- og
ntfangaverslun HUSAVlK Bókaverslun .Pórarrns Slalánssonar ESKIFJÖRÐUR Elrs Guónason
verslun VESTKANNAEYJAR Bókabuðrn EOILSSTAOW Bókabuðm Hloðum
t
SUNOABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
r
KROSSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birki eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
verði
SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
LAND5!NS> \ W<5 fáið að sníða niður allt plötuefni
BBSTA okkur í stórri sög
ÚfZVAL /(JV'X - ykkur að kostnaðarlausu.
BJÖRNINN
Við erum í Borgartúni 28