Morgunblaðið - 12.12.1985, Page 32

Morgunblaðið - 12.12.1985, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985 ÍSLENSK BÓKAMENNINC ERVERÐMÆTI tSLENSK BÓKAMENNING ERVERÐMÆTI rv FJÚK Steingerður Guðmunds dðttir A LEIK- VELU LÍFSINS Þórunn Elfa Magnúsdóttir Þetta er fimmta Ijóðabók Steingerðar Guðmundsdóttur. Hér gerist þessi listræna og vandvirka skáldkona skapheit- ari en áður og næsta hreinskil- in og bersögul. Megineinkenni kvæða Steingerðar er samt enn sem fyrr einlæg trú á feg- urð og göfgi og Ijóðin eru klið- mjúk og blæfögur. Bókaúlgáfa /MENNING4RSJÓÐS SKALHOLTSSTfQ 7 • REYKJAVlK • SlMI 6218 22 Sögupersónur Þórunnar Elfu Magnúsdóttur bera svip af óbreyttu hversdagsfólki, og spenna frásagnarinnar ræðst mun fremur af örlögum en viðburðum. Skáldkonan er nærfærin og skilningsrík. Hún finnur sárt til með þeim er standa höllum fæti eða þola andstreymi. Þórunn Elfa erfulltrúi íslensku konunnar sem krefst réttlætis og vill stefna í áttina til bjartari framtíðar. Hún ann því lífi sem oft á í vök að verjast en ber í sér frjómagn og táknar mannlega uppreisn. Bókaúfgófa /MENNING4RSJÓÐS SKALHOLTSSTlG T REYKJAVlK* SlMI 6218 22 ÍSLENSK BÓKAMENNING ER VERÐMÆTI • ANDVARI Aðalgrein Andvara að þessu sinni er æviágrip dr. Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings eftir Sigurð Steinþórsson. Rit* stjóri Andvara er Gunnar Stef- ánsson dagskrárstjóri og bókmenntafræðingur. ALMANAK Þetta er 112. árgangur Þjóð- vinafélagsalmanaksins sem flytur auk almanaks um árið 1986 Árbók íslands 1984. Almanakið hefur dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur reiknað og búið til prentunar, en árbókina tók Heimir Þor- leifsson menntaskólakennari saman. ANDVARI Bókaúfgáfa /MENNING4RSJÖÐS SKALHOLTSSTlG 7* REYKJAVlK • SlMI 621822 TVÖ LEIKRIT UM KONUR OG STJÓRN- MÁL Aristófanes Hér birtast fyrsta sinni á ís- lensku leikritin Lýsistrata og Þingkonurnar eftir hinn forna gríska skopleikjahöfund sem telst einn af máttarstólpum heimsbókmenntanna. Aristó- fanes dregur áhorfendur inn í hinar ævintýralegustu kring- umstæður, oft á þann hátt að snúa við þeim sem fyrir eru, og þannig verða þessar kring- umstæður einatt prófsteinn á veruleikann og tilefni til að beina skeytum að því í samtíð höfundar sem honum var verst við. Þýðandi er Kristján Árna- son. UÓD- HIÆU GRONDAIS Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal hefur oft verið kall- aður rómantískasta skáld okk- ar íslendinga. Nú á dögum er hann frægastur og viður- kenndastur fyrir Söguna af Heljarslóðarorrustu og sjálfs- ævisögu sína, Dægradvöl, en telst einnig í alfremstu röð íslenskra Ijóðskálda á nítjándu öld. Hugarflug hans var eins- dæmi og málsnilldin sérstæð. Hann var og fjölmenntaður maður, víðlesinn og margfróð- ur. Ber skáldskapur hans því vitni, svo og hinni skemmtilegu fyndni Gröndals og tiltektar- semi. Bókaúfgáfa /MENNINGMRSJÓÐS SKALHOLTSSTlG 7* REYKJAVlK • SlMI 621822 Ekkert grín er gleði- kvennalíf Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Sverre Asmervik: En hugsanir mín- ar færðu aldrei. Þýöandi: Hildur Finnsdóttir. Útgefandi: Iðunn 1985. Að undirtitli hefur bókin Skáldsaga um líf og örlög gleðikvenna. í formála segir höfundur að bók- in sé að vísu mestu skáldskapur en byggist að hluta til á raun- verulegum atburðum, sem hann hafi aflað sér með lestri á lögreglu- skýrslum og á samtölum við vænd- iskonur, melludólga, lögreglu- þjóna, leigubílstjóra, félagsráð- gjafa og fleiri. Hann segir enn- fremur að það markmið sem hann stefndi að hafi verið að draga upp raunsanna mynd af lífinu. Það er oft til hægðarauka að höfundur skuli segja manni fyrir- fram, hvað fyrir honum vaki, þá þarf enginn að velkjast í vafa um það. Því er svo farið að þessa bók, að hér fer ekki framhjá manni að verið er að skrifa um líf gleði- kvenna. En spyrja má hvaða til- gangi það þjóni. Einkum og sér í lagi þegar ekki er farið dýpra en höfundur gerir hér. Þrátt fyrir öll samtölin sem hann kveðst hafa átt til að afla sér upplýsinga. Það sem er meginveikleiki bókar Asmerviks og það sem dregur úr áhrifum óhugnaðarins sem fyrir honum vakir að sýna, einsemdar- innar og ömurleikans, er að mínum dómi eitt atriði. En það vegur býsna þungt: Af hverju leiddust þær Susanne og Sonja og allar hinar út í þetta gleðikonulíf? For- leikurinn er ekki sannfærandi: hvaða börn og unglingar lenda ekki í deilum við foreldra sína, hvaða börn og ungling ar búa ekki að eigin dómi við skilningsskort og ástleysi af hálfu foreldra, að minnsta kosti á ákveðnu tíma- skeiði? Fróðlegt ef Asmervik hefði fundið þá. Auðvitað eru unglingar misjafn- lega brothættir, þegar þeir upp- götva þetta „ástleysi" og sumir láta bugast undan erfiðleikum sem aðrir sigrast á. En í sögu af þessu tagi er verulega vont að lesandi geti ekki skynjað þjáningu ungl- inganna og skilið af hverju þeir velja þær leiðir sem gengið er út á. Og þar sem forsendur vantar er líka erfitt að hafa samúðina með þeim stúlkunum og vantar sannarlega ekki að Asmervik reyni að gera líf þeirra eins hræðilegt og ímyndunaraflið nær. Þessi veiki hlekkur verður truflandi og meira en það. Hvort sem höfundur hefur, að dómi erlendra gagnrýnenda, sem óspart er vitnað í á kápusíðu, tekizt, dregið hér upp raunsanna mynd af lífinu eða ekki, er hún að mínu mati svo einlit og svo mikið kapp lagt á að lýsa ytri atburðum að úr verður áreiðanlega ekki það sem að minnsta kosti ég bjóst við íbókarbyrjun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.