Morgunblaðið - 12.12.1985, Blaðsíða 37
Hollustuvernd ríkisins
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
37
Eitranir af völdum
lampaolíu alvar-
legust eitrunarslysa
t
Fjölbrautaskólakórinn á æfingu.
Selfoss:
Kór Fjölbrautaskólans hygg-
ur á utanlandsferð næsta vor
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
borist eftirfarandi greinargerð tveggja
lækna í Borgarspítalanum varðandi
eitranir af völdum olíulampa, sem eru
meðal algengustu og alvarlegustu eitr-
unarslysa sem henda ung börn.
A undanförnum árum hefur það
gerst æ oftar að komið hefur verið
með börn á slysadeild eftir eitrun
af völdum lampaolíu. Eitrunarein-
kenni þessara barna hafa verið á
mjög mismunandi stigum, flest
þeirra hefur þurft að leggja inn á
sjúkrahús. Ekkert þeirra hefur látist
af völdum eitrunar, en sum voru í
tímbundinni lífshættu.
Aðalhættan við eitranir af völdum
lampaolíu er fólgin í áhrifum á
lungu. Þar getur lampaolían valdið
bráðum lungnabjúg og öndunarbil-
un. Einnig getur gætt ýmissa ann-
arra eituráhrifa víðar um líkamann.
Aldrei verður of oft lögð áhersla á
það að ekki á að láta börn, sem hafa
neytt lampaolíu, kasta upp. Er það
vegna þess að þá eykst stórlega
LAUGARDAGINN 14. desember
1985 fer fram doktorsvörn við við
læknadeild Háskóla íslands. Nikulás
Þ. Sigfússon læknir mun þá verja
doktorsritgerð sína, sem læknadeild
hefur metið hæfa til doktorsprófs I
læknisfræði. Heiti doktorsritgerðar-
innar er: „Hypertension in Middle-
Aged Men. The Effect of Repeated
Screening and Referral to Commun-
ity Physicians on Hypertension Cont-
rol“.
hættan á því að olían geti borist
ofan í lungu. Þessi börn skal hins-
vegar flytja tafarlaust á slysadeild,
jafnvel þó hugsanlegt sé að magnið
sé lítið.
Olían sem notuð er á lampana er
steinolía. Er hún meðhöndluð á
ýmsan veg til að gera hana hæfa til
brennslu innanhúss, ýmist lyktar-
laus eða með einhverskonar blóma-
ilmi og oft lituð gul, blá, græn
o.s.frv., til að líta fallega út í glærum
ílátum. Það er einmitt þessi fallegi
litur sem stundum minnir á ávaxta-
eða svaladrykki sem virðist freista
ungra barna.
Steinolía fellur undir flokk hættu-
legra efna og samkvæmt gildandi
reglum ber að merkja umbúðir fyrir
lampaoliu með varnaðarmerkjum.
Forráðamenn barna eru hvattir til
að gæta þess að börn komist ekki
yfir eiturefni eða hættuleg efni.
Jólahátíðin fer nú i hönd og er þá
jafnan mikið um margskonar
skrautljós á heimilum.
Úr rréUatilkynningu
Andmæiendur af hálfu lækna-
deildar verða prófessor Göran Berg-
lund, yfirlæknir við Sahlgrenska
sjukhuset í Gautaborg, og dr. med.
Þorkell Guðbrandsson. Prófessor
Davíð Davíðsson stjórnar athöfn-
inni.
Doktorsvörnin fer fram í hátíðar-
sal Háskólans og hefst kl. 2 e.h.
Öllum er heimill aðgangur.
(Frétt frá Hánkíla falanda.)
Selfossi, 8. desember.
KÓR Fjölbrautaskóla Suðurlands
hyggur á söngferðalag til Danmerk-
ur næsta vor og er undirbúningur
ferðarinnar þegar hafinn. Hug-
myndin er að heimsækja Silkeborg
í Danmörku, vinabæ Selfoss, auk
annarra staða.
Hugmyndin að utanlandsferð-
inni vaknaði þegar kórinn tók á
móti kór frá Horsens í Danmörku,
en dönsku ungmennin hvöttu kór-
félaga ákaft til að leggja land
undir fót.
Kórinn kemur fram um hverja
helgi hér á Selfossi í desember
fram að jólum og æfingum er
skotið á þegar tími gefst frá lestri
undir próf. Auk þess liggur fyrir
að afla fjár vegna utanfararinnar,
en fyrsta skrefið í þeirri vinnu var
útgáfa ljóðakvers.
1 byrjun nóvember varð gerð
sjónvarpsupptaka þar sem kórinn
söng 10 lög í 20 mínútna þætti, sem
sýndur verður nú í vetur. Stjórn-
andi kórsins er Jón Ingi Sigur-
mundsson. Sig. Jóns.
Stjórnandinn Jón I. Sigmundsson.
Haskóli íslands:
Doktorsvörn við læknadeild
IÓN HELGASON
iðunn opr^
•a-40-w- y_/j\T J
OSKULU
OTANDA
Þetta er saga manns sem var dæmalaus. í lífi sínu
og hugsunarhætti var hann engum líkur. Ellefta
boðorðið, ORÐ SKULU STANDA, var hans
leiðarljós og vegvísir, að viðbættu því að vilja heldur
það, sem betravar. Þettaersaga vegfræðings, sem
fæddist fyrir sunnan og dó fyrir norðan. Hann var
vegfræðingur í tvennum skilningi: Hann vegaði
heiðar og sveitir og hann var sjaldgæfur
vegfræðingur í lífi sínu og hugsunarhætti.
Iðunn hefur endurútgefið nokkrar hinna listrænu
frásagna Jóns Helgasonar,
Tyrkjaránið, íslenskt mannlíf l-IV og nú síðast
Orð skulu standa. Um Jón Helgason ritaði
dr.Kristján Eldjárn meðal annars: „Þessi höfundurfer
listamannshöndum um efni sitt, byggir eins
og listamaður af þeim efnivið, sem hann dregur
sem vísindamaður.“
.tf saman
m&t-
JÓL*