Morgunblaðið - 12.12.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.12.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1986 Gamlir íslenskir fánar dregnir að húni í Grófinni GAMLIR fánar íslandssögunnar, fjórir að tölu, hafa verið dregnir að húni í Grófinni þrjá sl. laugar- daga og verða áfram uppi á laug- ardögum fram að jólum. Það eru samtök verslana og fyrirUekja í Grófinni sem standa að þessu til að vekja athygli á fánasögu ís- lendinga. Danski fáninn er staðsettur fyrir framan verslunina Geysi, en þangað var danska kóngs- verslunin flutt úr Örfirsey. Fáni Jörunds hundadagakonungs er fyrir framan bókaverslun Snæ- bjarnar þar sem höfuðstöðvar Jörunds voru. Fálkafáninn svo- kallaði er dregin að húni fyrir framan Fálkahúsið þar sem nú eru verslanirnar Heimilistæki, íslenskur heimilisiðnaður og Hamborg. Hvítbláanum, hug- mynd Einars Benediktssonar, er flaggað á Vesturgötu 5, en Einar byggði það hús og bjó í nágrenn- inu. Fyrstu hugmynd um þjóðfána átti Jörundur hundadagakon- ungur. Hann gaf út tilskipun um að ísland skyldi hafa sérstakan fána er hann tók hér völd árið 1809. Segir í auglýsingu Jörundar að fáninn skuli vera blár með þremur þorskfiskum í efsta horni. Fáninn var dregin að húni 12. júlí 1809 en leið undir lok með Jörundi sama ár. Um 1870 vakti Sigurður Guð- mundsson, málari, athygli á því að þjóðin ætti fremur að hafa íslenska fálkann heldur en þorsk- inn í merki sínu. Máli hans var vel tekið og urðu stúdentar og skólapiltar fljótir til að taka fálkann upp í merki sitt. Sumarið 1873 var blár fáni með hvítum fálka í fyrsta skipti dreginn að húni á Þingvöllum og ári síðar, þjóðhátíðarárið, var fánanum flaggað víða um land. Arið 1897 skrifaði Einar Bene- diktsson, skáld, grein í blaðið Dagskrá, sem hann nefndi „ís- lenski fáninn", þar sem hann bendir á að fálkafáninn sé ósam- ræmanlegur við flögg annarra kristinna þjóða. Krossinn sé hið algengasta og hentugasta flagg- merki og leggur Einar til að fáninn verði hvítur kross á blá- um feldi. Sumarið 1897 var þessi fáni í fyrsta skipti hafður á lofti á þjóðminningunni í Reykjavík. Ýmsir töldu fánann of líkan fán- um annarra þjóða, þó einkum Svía og Grikkja. 19. júní 1915 var því gefinn út konungsúrskurður, sem ákveður að fáninn skuli vera heiðblár með hvítum krossi og hárauðum krossi innan í hvíta krossinum. í fyrstu var hér aðeins um að ræða sérfána fyrir ísland, þ.e. fána, sem nota mátti á íslandi og innan íslenskrar landhelgi, en 1. desember 1918 var þessi fáni löggiltur sem þjóðfáni fullvalda ríkis. Á myndinni má sjá tvo af gömlu fánum Islandssögunnar. Fremri fáninn er fálkafáninn svokallaði, sem flaggað er fyrir framan verslunina ís- lenskan heimilisiðnað, og hjá bókaverslun Snæbjarnar sést í fána Jör- unds hundadagakonungs, en hann var blár með þremur þorskfiskum I efsta horni. Stjómunarfélagið: Viðurkenning fyrir bestu ársskýrsluna STTJÓRNUNARFÉLAG íslands af- hendir í dag fimmtudag, árlega viður- kenningu sína fyrir bestu ársskýrslu fyrirtækis eða félags á sérstökum fundi í félaginu, sem hefst kl. 12 á Þingholti. Alls sendu sextán fyrirtæki inn ársskýrslur að þessu sinni. Dóm- nefnd sem skipuð er þeim Stefáni Svavarssyni, löggiltum endurskoð- anda, Árna Vilhjálmssyni, pró- fessor og Helga Bachmann fram- kvæmdastjóra, hefur valið bestu ársskýrsluna og verður álit nefnd- arinnar kynnt á fundinum. Áður flytur Stefán Svavarsson erindi um hugmyndir á breyttum reikn- ingsskilareglum. I fyrra var það Iðnaðarbankinn sem hlaut verðlaun Stjórnunarfé- lagsins fyrir besta ársreikninginn. Leiðrétting I RITDÓMMI um bók dr. Þórs Whitehead, Stríð fyrir ströndum, misritaðist nafn Trausta Jónsson- ar, veðurfræðings. Eru hlutaðeig- endur beðnir velvirðingar á þeim mistökum. Mánudagsmynd Regnbogans: Mynd um landflótta vesturlandabúa í Moskvu Stjómvöld marki ákveÖnari stefnu — í baráttunni gegn vímuefnum REGNBOGINN sýnir nýja mánu- dagsmynd sem hlotið hefur nafnið „Annað föðurland". Hún fjallar um mann sem gerist landráðamaður, flýr föðurland sitt og sest að í Moskvu. Aðalhlutverk leika Rupert Everett og Kolin Firth. Landráðmaðurinn Guy Bennett fær síðan heimsókn af vestrænum blaðamanni, sem kemur til þess að HÍJSEININGAR hf. á Siglufirði hafa reist 340 fermetra hótelbygg- ingu á Hvammstanga og tók verkið aðeins tvær vikur. Tveir smiðir unnu við byggingu hússins og hófu þeir verkið 25. nóvember síðastlið- inn. Hinn 7. desember var húsið upp komið, tilbúið að utan, með gleri, járni og útihurðum og rúmlega fokhelt að innan. Bergsteinn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Húseininga h.f. sagði i samtali við Morgunblaðið að samningur um byggingu húss- ins hefði verið undirritaður 15. nóvember. Húsið hefði siðan verið sent frá Siglufirði til Hvamms- tanga hinn 25. nóvember. Smiðirn- ir Vernharður Skarphéðinsson og Jón Bergsveinsson hófust þá ræða við hann. Er hann þá kominn á efri ár og skýrir þá frá því hvað hafi komið honum til þess að stíga þetta skref, að flýja land. Einnig segir hann frá uppeldisárum sínum og skólavist. Að sögn kvikmyndahússins hefur kvikmynd þessi alls staðar hlotið mjög góða dóma og vakið athygli. Leikstjóri er Marek Kanievska. handa við smíðina og reistu húsið á þessum stutta tíma. Það er hlutafélagið Vertshúsið hf. á Hvammstanga, sem stendur að þessum framkvæmdum. Hlut- hafar eru Kaupfélag V-Húnvetn- inga, Hvammstangahreppur, Þór- haílur Jónsson, Ólafur H. Stefáns- son, Ingvar H. Jakobsson ogólafur Jakobsson. Þórhallur Jónsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að ætlunin væri að hafa hótelið opið allt árið. í húsinu verða sex tveggja manna herbergi og mat- salur fyrir 50 manns. Þá væri ætlunin að reka ferðamannaversl- un á hótelinu. Þórhallur sagði að reiknað væri með að reksturinn gæti b.afist í apríl á næsta ári. Menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason, skipaði árið 1981 nefnd til þess að fjalla um æskulýðsstarfsemi í landinu, skipulag hennar, fjár- mögnun og aðstöðu. Nefnd þessi hefur nú lokið störfum og lagt álit sitt og tillögur fyrir menntamálaráð- herra, Sverri Hermannsson. Æskulýðsstarf greinist í þrjá höfuðþætti, þ.e. starf æskulýðs- félaga, félagsstarf í skólum og æskulýðsstarf sveitarfélaga. Álit æskulýðsmálanefndarinnar var kynnt fréttamönnum á dögunum og er það byggt á þessari skiptingu. Helstu ' tillögum nefndarinnar varðandi þessa þrjá þætti fara hér á eftir. Nefndin telur að æskulýðs- starf eigi að vera sem mest í höndum æskulýðs- og félagasam- taka, enda hafi starf þeirra ótví- rætt sannað gildi sitt. Þá telur nefndin, að ríki og sveitarfélög eigi að efla stuðning sinn við æskulýðs- félögin og setja sér ákveðnar regl- ur um fjárveitingar til þeirra. Nefndin gerir það að tillögu sinni, að endurskoðuð verði reglugerð um félagsstörf í skólum með það í huga að stórefla félagsstarf í samvinnu við nemendur, foreldra og starfsfólk skólanna. Nefndin leggur til að skipaður verði námsstjóri eða umsjónar- maður félagsstarfs og félagsmála- fræðslu i skólum og ennfremur að hér á landi gefist kostur á námi fyrir Ieiðbeinendur í félags- og tómstundastarfi. Þá leggur nefnd- in til að sveitastjórnir, hver fyrir sig, setji ákveðnar reglur varðandi skipan æskulýðsmála og stuðning við æskulýðsstarf og einnig að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti sér fyrir stóraukinni sam- vinnu þeirra ráða og nefnda sveit- arfélaganna sem vinna að æsku- lýðs- og tómstundastörfum. Nefndin telur að ekki þurfi að gera grundvallarbreytingar á skip- an og stjórnun æskulýðsmála frá því sem nú er. Með auknum tóm- stundum fólks verði þó ekki hjá því komist að veita þessum málum enn meiri athygli en áður. Varð- andi æskulýðsmálin í heild leggur nefndin m.a. til að gildandi lög um æskylýðsmál verði endurskoðuð á grundvelli þeirra tillagna sem nefndin leggur fram. Ennfremur að stofnaður verði ákveðinn sjóður (Æskulýðssjóður) er hafi það hlut- verk að veita styrki til æskulýðs- starfsemi og að gerð verði ítarlega könnun á samnýtingu skólahús- næðis til kennslu annars vegar, og félags- og tómstundastarfa nem- enda og íbúa viðkomandi byggðar- laga hins vegar. Þá gerir nefndin það að tillögu sinni að stjórnvöld marki ákveðn- ari stefnu í baráttu gegn hvers konar vímuefnum og auki stuðning sinn við þau félög, samtök og stofn- anir sem vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn þeim í samræmi við mótaða stefnu. Þá telur nefnd- in að herða þurfi verulega refsing- ar og aðgerðir gegn þeim sem standa að innflutningi og sölu REGNBOGINN frumsýnir kvik- myndina „Óvætturinn", sem fjallar um baráttu við risagölt í Ástralíu og nefndur er „Razorback". Göltur þessi getur orðið mjög stór, illvígur og grimmur, segir í fréttatilkynn- ingu frá kvikmyndahúsinu. Inn í þessa baráttu fléttast svo ólöglegra vímuefna. Reynir G. Karlsson, deildar- stjóri í íþrótta- og æskulýðsráði, formaður nefndarinnar sagði á blaðamannafundinum, að álit nefndarinnar hefði fyrir nokkru verið afhent menntamálaráðherra og þar yrðu tillögur hennar metn- ar. Reyndar hefði ráðherra þegar skipað nefnd til að endurskoða lög um æskulýðsmál, samkvæmt til- lögum nefndarinnar, sem getið var um hér að framanverðu. Auk Reynis G. Karlssonar voru eftir- taldir skipaðir í æskulýðsmála- nefnd: Arnaldur Björnsson sveit- arstjóri, Myvatnssveit, Arnfinnur Jonsson skólastjóri Reykjavík, Guðmundur Guðmundsson for- maður Æskulýðsráðs ríkisins, Reykjavík, Kristján Valdimars- son, framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík, Unnar Stefánsson ritstjóri, Reykjavík, Ómar Einarsson, framkvæmda- stjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur og Níels Árni Lund, æskulýðsfull- trúi ríkisins. örlög bandarískrar blaðakonu, sem kemur á þessar slóðir í fréttaleit, en hverfur. Unnusti hennar kemur til þess að leita hennar og lendir í furðulegustu ævintýrum. Aðalhlutverk leika Gregory Harrison og Bill Kerr. Leikstjóri er Russell Mulcahy. Nýtt hótel á Hvammstanga: Reistu húsið á hálfum mánuði Regnboginn sýnir „Ovættinn“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.