Morgunblaðið - 12.12.1985, Blaðsíða 36
Að sjálfsögðu fylgir segulband með í kaupunum.
F= ÁRMÚLA 11 SfMI 81500
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK:
HAFNARFJÖRÐUR:
KEFLAVÍK:
VESTMANNAEYJAR:
SELFOSS:
HVOLSVÖLLUR:
Þór hf.,Ármúla 11
Bókabúð Braga við Hlemm
Kf. Hafnfirðinga
Stapafell hf.
Kjarni sf.
Radio & Sjónvarpsstofan
Kf. Rangæinga
HÖFN:
EGILSSTAÐIR:
REYÐARFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
Kf. Austur-
Skaftfellinga
Kf. Héraðsbua
Kf. Héraðsbúa
Stálbúðin
Bókav. Þórarins
Stefánssonar
AKUREYRI:
SAUÐÁRKRÓKUR:
BLÖNDUÓS:
fSAFJÖRDUR:
BOLUNGARVÍK:
BORGARNES:
AKRANES:
KEA - Hljómdeild
Kf. Skagfirðfnga
Kf. Húnvetninga
Póllinn
Ljósvakinn
Kf. Borgfirðinga
Bókaskemman
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
Glenn R. Cella á fundi
SVS og Varðbergs:
Áform Rússa
verða ljós
á næsta ári
drægra kjarnorkueldflauga. Þsr til-
lögur ættu aö gefa ágæta vísbendingu
um áform hinna nýju leiðtoga Sovét-
ríkjanna og hvort vænta megi bættrar
sambúöar stórveldanna.
Þetta kom fram í erindi um „ís-
land, Atlantshafsbandalagið og
öryggismál á Norður-Atlantshafi",
sem Glenn R. Cella flutti á hádegis-
fundi Samtaka um vestræna sam-
vinnu og Varðbergs á Hóte! Sögu á
laugardaginn. Cella er yfirmaður
rannsóknardeildar vestur-evr-
ópskra málefna í utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna og fyrrum starfs-
maður Atlantshafsbandalagsins í
Brussel, og því gjörkunnugur af-
vopnunarviðræðum stórveldanna.
Cella sagði, að öryggismál á haf-
inu umhverfis ísland væru órjúfan-
legur þáttur í öryggismálum Vest-
urlanda almennt. Siglingaleiðin um
Norður-Atlantshaf væri ákaflega
þýðingarmikil jafnt á friðartímum
sem á tímum ófriðar. ísland væri
að sami skapi gífurlega mikilvægt
fyrir Atlantshafsbandalagið til að
halda uppi eftirliti á þessum slóðum
og þýðing landsins hefði aukist,
frekar en hitt, á undanförnum
árum. í því sambandi nefndi hann
hin miklu umsvif sovéska flotans í
norðurhöfum.
Glenn sagði, að aðild íslands að
Atlantshafsbandalaginu fælist ekki
aðeins í því að vera mikilvægur
hlekkur í varnarkeðju vestrænna
lýðræðisríkja. íslendingar hefðu
tekið virkan þátt í starfi bandalags-
ins og ættu hlut að því að gera
bandalagið að því sem það er: sam-
tök til að vernda lýðræði, frelsi og
mannréttindi. Hann sagði, að það
væri vandlega hlustað á málflutning
fulltrúa íslendinga í höfuðstöðvun-
um í Brússel.
Glenn benti á, að Atlantshafs-
bandalagið hefði ekki aðeins hag af
aðild íslands. Hagurinn væri auð-
vitað gagnkvæmur og hvað varnir
snerti sérstaklega væri á það að líta,
að íslendingar væru í hópi örfárra
þjóða, sem þyrftu ekki að standa
undir útgjöldum til að halda her.
Fullyrða mætti, að aðildin að
bandalaginu styrkti frekar sjálf-
stæði íslands, en hitt. Aðildin gerði
íslendingum kleift aö koma fram
með meiri reisn á alþjóðavettvangi,
en fulltrúum ýmissa annarra þjóða.
Nefndi hann í því viðfangi ræðu
Geirs Hallgrímssonar, utanríkis-
ráðherra, á Helsinki-fundinum í
ágúst, sem hann kvað hafa vakið
mikla athygli. í ræðunni gagnrýndi
utanríkisráöherra Sovétstjórnina
harðlega fyrir að virða ekki mann-
réttindaákvæði Helsinki-sáttmál-
ans.
Enn fremur nefndi Glenn þátt
Atlantshafsbandalagsins i lausn
fiskveiðideilunnar við Breta og
Vestur-Þjóðverja 1975 og samstarf
aðildarríkjanna á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, er átti
sinn þátt í samþykkt hafréttarsátt-
málans, sem er íslendingum mjög
hagkvæmur.
Glenn Cella fjallaði einnig al-
mennt um sambúð austurs og vest-
urs og helstu deiluefni stórveld-
anna. Hann sagði m.a., að í viðræð-
unum við Sovétmenn um takmörkun
vígbúnaðar legðu fulltrúar Banda-
ríkjanna áherslu á þrjú atriði. í
fyrsta lagi, að ekki yrði aðeins um
jafna almenna fækkun kjarnorku-
vopna að ræða, heldur yrði að koma
á jafnvægi á þeim sviðum vígbúnað-
ar, þar sem annað stórveldið hefði
yfirburði. I annan stað, að takmörk-
un, sem um væri samið, væri mikil-
væg frá hernaðarlegu sjónarmiði
og breytti hernaðarstöðunni í heim-
inum. í þriðja lagi, að báðir aðilar
gætu gengið úr skugga um að sam-
komulagið væri virt.
Morgunbladið/Bjarni
Glenn R. Cellal talar á fundi SVS og Varðbergs i Hótel Sögu sl. laugardag. Við borðið sitja Björn Bjarnason,
formaður SVS, og Gunnar Jóhann Birgisson, nýkjörinn formaður Varðbergs.
LÍKLEGT er, aö snemma á næsta ári
fáist úr því skorið hvort einhver
áþreifanlegur árangur hafi orðiö af
fundi Reagans, forseta Bandaríkj-
anna, og Gorbachevs, leiötoga Sovét-
ríkjanna, í síðasta mánuöi. Þá mun
koma í Ijós hvaöa tillögur fulltrúar
Sovétríkjanna hafa fram aö færa í
viðræöunum í Genf um fækkun lang-
Verð áður kr. 11.950,- Jólafcilboðkr. 9.950,-
Fram að jolum
bjóöum viö COMMODORE 64