Morgunblaðið - 12.12.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
Athugasemd vegna
sjónvarpsfrétta
— frá ættingjum Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal
FJARSIÝRÐIR BÍLAR
I MIKLU URVALI
Vegna fréttar í sjónvarpi um nýút-
komna bók dr. Þórs Whitehead
skal eftirfarandi tekið fram:
1. Það er rangt að Guðmundur
Einarsson hafi verið persónu-
legur kunningi Heinrichs
Himmler eða að milli þessara
manna hafi verið persónuleg
tengsl. Að sögn dr. Þórs (og það
er staðfest af ekkju Guðmund-
ar) var Guðmundi boðið opin-
berlega til mótttöku hjá
Himmler einu sinni. Var það
árið 1936. Um bréfaskipti er
ekki vitað.
2. Afskipti Guðmundar af hugsan-
legri leirmuna- og jarðefna-
vinnslu á íslandi á vegum Þjóð-
verja voru ekki bundin því
hverjir stóðu að baki henni í
Þýskalandi, þ.e. nasistar. Guð-
mundur taldi sig skipta við þýsk
stjórnvöld. Árið 1927 byrjaði
hann að vinna að þessum mál-
um hérlendis á eigin vegum og
síðan á vegum Skipulagsnefnd-
ar atvinnumála. Hann og Jó-
hannes Nordal verkfræðingur
unnu áætlun um stofnun verk-
smiðju sem hlaut góðar undir-
tektir stjornvalda, en af fram-
kvæmdum varð ekki. Samvinna
varð við danska, sænska og
þýska aðila um rannsóknirnar.
Enn síðar var athugunum hald-
ið áfram með aðstoð Nýbygg-
ingarráðs og Framkvæmda-
bankans eftir að hann kom til
sögu. Það er ljóst að þegar út-
sendari hinnar nasísku stjórn-
ar, Gerlach sendiherra á ís-
landi, kom því til skila aö þýsk
stjórnarstofnun hefði áhuga á
að sinna umræddu máli, taldi
Guðmundur ekki rangt að taka
því boði. Ennfremur er ljóst að
þegar árið 1940 er úti um sam-
skiptin þótt hvergi sé skjalfest
hvers vegna svo fór.
Það er loks brýnt að fram komi:
í fyrsta lagi: Guðmundur frá Mið-
dal var ekki viðriðinn neins konar
undirróður, njósnir eða þess hátt-
ar. Það staðfestir dr. Þór í bók
sinni og væntanlega betur í kom-
andi bók. Hið sama er ljóst af
samskiptum Guðmundar og Breta
og Bandaríkjamanna.
í öðru iagi:Guðmundur kom aldrei
nálægt samtökum nasista á ís-
landi né má finna í rituðu máli
eftir hann stuðning við þá eða slíka
stefnu. Hugmyndir hans um þjóð-
erni, líkamsrækt, listir o.fl. voru
vissulega þjóðlegar í gömlum stíl
enda var hann einn af frammá-
mönnum Ungmennasambands ís-
lands. Þess ber líka að gæta að
hann nam í Múnchen í Þýskalandi
alllöngu fyrir 1930 og þá í anda
þýskrar þjóðernisstefnu, ef eitt-
hvað er, en ekki þess sem síðar
kristallaðist úr henni.
í þridja lagi: Það kemur fram af
gögnum að Guðmundur var mikill
vinur Þjóðverja; einnig eftir að
stríðsstefna þeirra var fram kom-
in, en þá þegar fór andstaða hans
vaxandi líkt og meðal nær allra
annarra íslenskra Þýskalandsvina
sem ekki voru tengdir íslenskum
nasistum. Þess vegna mistókst
Gerlach sendiherra ætlunarverk
nasista hérlendis og þess vegna
mun Guðmundur hafa talið sam-
vinnu um leirmuna- og jarðefna-
vinnslu útilokaða þegar á leið —
og það áður en Bretar gengu hér
á land.
í stuttri frétt sjónvarpsins komu
fram mörg tilefni til rangtúlkana
og missagna. Hennar vegna og
vegna alrangrar, gamallar tíma-
ritsgreinar sem dubbuð var upp í
„njósnaskýrslu" í lok viðtalsbókar
við Pétur Kidson Karlson í fyrra
(Iðunn) þarf langa greinargerð til
þess að skýra aðild Guðmundar
Einarssonar að sögu 3. áratugar-
ins. Mun hún væntanleg. Rétt er
að taka fram að lokum að ættingj-
ar Guðmundar fengu að líta yfir
hluta af bók dr. Þórs Whitehead.
Þótt einhver munur sé á túlkunum
hans og þeirra þá ber að fara
viðurkenningarorðum um verk dr.
Þórs.
F.h. settingja Guðmundar Einars-
sonar,
Ari Trausti Guðmundsson
Hjá okkur fæst landsins mesta úrval af
fjarstýrðum bílum af öllum gerðum
í öllum verðflokkum. Til dæmis
Range Rover 4x4 og Toyota
Hilux 4x4 með rafdrifnu
spili. Póstsendum land
allt. Góð aðkeyrsla
næg bílastæði.
mSTUflDflHUSIÐ
Laugavegi 164- Reykjavík- S: 21901
ISHIDR
Tölvuvogin fyrir afgreiöslu-
boröiö og/eöa uppvigtunina
Mjög fyrirferðarlítil en tekur samt 15 kg
■' .
• 350 minni
• EAN-kerfi
• 3miöastæröir
• Hitaprentari
(innbyggöur)
• Pökkun + síðasti
söludagur
• Quarts-klukka
Breytir dags. (sjálf-
krafa)
• Pole Display (aflestur
ásúlu)
Hliöarborö
fyrir 48 atriöi
alla af-
því sem
Innihaldslýsing: Fyrir allar matar- og drykkjarvörur.
Bæöi hægt aö stafa inn eöa setja heil orð inn í minnin.
Innbyggö reiknivél fyrir samlagningu (+), frá-
drátt (-) eða margföldun (x).
Við framleiðum og prentum allar gerðir af
miöum.
•
Ef þú átt ALPHA COSMIC sem ekki er gerð
fyrir innihaldslýsingu, þá breytum við henni
fyrir þig ef þú vilt.
Hringdu og fáöu nánari upplýsingar um vogina
1. Auöveldar
greiöslu á
vigtaö er (spjald meö
vöruheitum).
2. Notaö til aö skrifa inn
í minnin allar upplýs-
ingar (spjald meö
stafrófinu + fl.).
6 orösendingar í ramma
0«
Ct
ISHIDA-vogirnar eru þekktar fyrir gæði um allt land og
viöhalds- og varahlutaþjónusta okkar er fyrsta flokks.
^ Plastpoka og prentun færöu hjá
Plwttws liF
Bíldshöfða 10,
110 Reykjavík.
91-82655/671900