Morgunblaðið - 12.12.1985, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
57
Borgar-
skipulag
Rvíkur
í nýtt
húsnæði
í FYRRADAG fluttist Borgarskipu-
lag Reykjavíkur úr Þverholti 15 í
nýtt húsnæði að Borgartúni 3. Borg-
arskipulagið, áður Þróunarstofnun
Reykjavíkur, var sett á stofn árið
1972 með það raegin verkefni að
endurskoða aðalskipulag Reykjavík-
ur 1962—1983. Þróunarstofnunin
og Skipulagsdeild borgarverkfræð-
ings voru síðar sameinaðar árið
1980 í Borgarskipulag Reykjavíkur.
Við sameininguna komust skipu-
lagsmál borgarinnar undir stjórn
einnar stofnunar, sem varð sjálf-
stæðari og með víðtækara verksvið
en fyrri stofnanir.
Borgarskipulag er undir yfir-
stjórn skipulagsnefndar Reykja-
víkur, sem er pólitískt kjörin
nefnd. Skipulagsnefnd er stefnu-
markandi og ráðgefandi fyrir
borgarráð og borgarstjórn svo og
aðrar borgarstofnanir varðandi
skipulagsmál Reykjavíkur.
í Borgarskipulagi er nú unnið
að nýju aðalskipulagi fyrir
Reykjavík. Hlutverk aðalskipulags
er að sýna meginatriði í þróun
byggðar, landnotkunar og umferð-
arkerfis næstu tvo áratugina í
Reykjavík. Frumtillögur Borgar-
skipulags að aðalskipulagi verða
kynntar borgarfulltrúum fljótlega
eftir áramótin og borgarbúum á
sérstökum hverfafundum næsta
vor.
í ágúst á næsta ári verður aðal-
skipulagið kynnt á skipulagssýn-
ingu í tengslum við 200 ára afmæli
borgarinnar. í tillögum Borgar-
skipulags að nýju aðalskipulagi
fyrir Reykjavík er m.a. lögð mikil
áhersla á endurlífgun eldri borgar-
hverfa og uppbyggingu nýrra íbúð-
arreita innan núverandi byggða-
marka án þess þó að gengið sé á
græn svæði í borginni; auk nýrra
íbúðahverfa við norð-austurmörk
núverandi byggðar.
Eitt af þeim nýmælum sem
tengjast þessu nýja aðalskipulagi
er gerð hverfaskipulags. Núver-
andi byggð í Reykjavík verður
skipt í átta hverfi, þar sem nánar
er gert grein fyrir líklegri þróun
byggðar í hverju hverfi á skipu-
lagstímabilinu.
Annað nýmæli í gerð nýs aðal-
skipulags fyrir Reykjavík er að nú
er lagt til að það verði tekið til
endurskoðunar eftir hverjar borg-
arstjórnarkosningar, annað hvort
skipulagið í heild eða einstakir
þættir þess. Slík vinnubrögð munu
tryggja að skipulagið verði betur
í takt við raunverulega byggðaþró-
un á hverjum tíma og um leið
verður aðalskipulagið raunhæfara
stjórntæki.
Auk nýs aðalskipulags er undir
stjórn Borgarskipulags unnið að
fjölda skipulagsverkefna víða um
borgina. Nefna má' deiliskipulag
Kvosarinnar sem nú er til sýnis í
Byggingarþjónustunni Hallveigar-
stig 1, auk deiliskipulags af Skúla-
götusvæði, Háskólasvæði, Laugar-
dal og Reykjavíkurflugvelli. Enn-
fremur má nefna frumtillögu að
nýju skógræktarsvæði í Hólms-
heiði ofan Rauðavatns.
í Borgarskipulagi Reykjavíkur
starfa nú 17 manns, m.a. arkitekt-
ar, landfræðingar og skipulags-
fræðingur. Forstöðumaður er Þor-
valdur S. Þorvaldsson arkitekt.
Nýja húsnæðið verður opnað kl.
8.20 í dag og verður símanúmerið
áfram hið sama, 26102.
(FrétUtilkynning.)
Konsaik
Lík ungrar stúlku er flutt af
skurðstofu sjúkrahússins um
miðja nótt. Enginn veit hver
fylgdi henni á sjúkrahúsið né
hverjir ættingjar hennar eru.
Þessa nótt hefst harmleikur sem
hefur örlagaríkar afleiðingar
á sjúkrahúsinu.
Erika Werner er ungur læknir
sem stendur í ástarsambandi við
Bornholm yfirlækni, aðalskurð-
lækni sjúkrahússins.
Henni er ekki Ijóst að hann notar
hana á miskunnarlausan hátt til
að hyljayfirglæp.
Áður hafa komið út eftir Heinz
G. Konsalik á íslensku bækurnar
Hjartalæknir mafíunnar, Eyði-
merkurlæknirinn og Hákarlar um
borð og hefur hann þegar tryggt
sess sinn á íslenskum markaði.
DAVID MORRELL
„Ó guð minn góður!“ sagði konan.
„Það eru fleiri grafir sem ekki finnast."
Allt byrjaði þetta í heimsstyrjöldinni síðari
og endaði þrjátíu og sjö árum síðar á skelfi-
legan hátt. Pétur Houston kemur til Frakk-
lands til að efna gamalt heit um að heim-
sækja leiði föður síns sem dáið hafði
í stríðinu. En yfirvöld tjá honum að
leiðið finnist ekki og franskur vinur föður
hans sem lofað hafði að annast gröfina hafði
horfið á dularfullan hátt árið 1944.
Eini maðurinn sem veit leyndarmál hans er
gamall og lasburða prestur sem er þögull
eins og gröfin.
Höfundur bókarinnar, David Morrell,
nýtur mikilla vinsælda og bækur hans
seljast í stórum upplögum um alian heim.
Eftirfyrstu bók hans, í greipum dauðans, var
gerð samnefnd kvikmynd (First Blood),
og söguhetjan Rambo varð síðar tilefni
annarrar geysivinsællar myndar.
''?»888kr.
ÞÚ-+SOFNAR SEINTUNtÞESSrJOL
IÐUNN
OCTAVO/SiA 23 24