Morgunblaðið - 12.12.1985, Qupperneq 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
i kvöld kl. 20.30 er almenn samkoma í Þríbúöum,
Hverfisgötu 42.
Dorkas-konur sjá um samkomuna meö fjölbreyttri
dagskrá. Þaö veröur mikill söngur, viö heyrum
vitnisburöi og flutt veröa ávörp. Gunnbjörg Óla-
dóttir syngur einsöng.
Allir eru velkomnir. Samhjálp
I
i
Kæru eiginkonur
Tilvalin jólagjöf til þeirra eiginmanna,
sem enn, þrátt fyrir kvennaáratuginn
hafa ekki lært að pressa buxurnar sínar:
Fatahengi meö rafmagnspressu
Qi|
ŒEJ
Bláskógar
ÁRMÚLI 8
SÍMi: 86080
Fyrirhuguð bygging mun rísa austan við leiguíbúðir aldraðra sem eru fremst á myndinni, fjsr sér í Sjúkrahús
Suðurlands og Mjólkurbú Flóamanna t.h.
Selfoss:
Samvinna um að reisa söluíbúðir
fyrir aldraða og þjónustumiðstöð
Sigurður Óskarsson formaður ASS, Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Stefán Ó.
Jónsson, bæjarstjóri og Guðmundur Jónsson, bæjarfulltrúi.
Seiroasi, 9. deaember.
ALÞÝÐUSAMBAND Suðurlands og
Selfosskaupstaöur hyggjast reisa 24
íbúðir og þjónustumiðstöð fyrir aldr-
aða, við Grænumörk á Selfossi.
Gerður hefur veirð uppdráttur af fyr-
irhugaðri byggingu og var hann
kynntur á kynningarfundi 7. des-
ember sl., ásamt öðru er að þessu
máli lýtur.
Á kynningarfundinum sagði Sig-
urður óskarsson formaður Álþýðu-
sambands Suðurlands að hug-
myndin að byggingu íbúða fyrir
aldraða hefði orðið til út frá um-
ræðum um það hvort sambandið
ætti að einbeita sér að launamálum
eingöngu eða taka fyrir önnur mál-
efni til úrlausnar. „Við teljum að
íbúðamálið sé ekki síður hagsmuna-
mál en árangur í launamálum,"
sagði Sigurður.
Á 8. þingi sambandsins í mars
sl. var samþykkt ályktun um hús-
næðismál aldraðra og nauðsyn þess
að aldrað verkafólk ætti kost á sér-
stökum íbúðum með aðgangi að
þjónustu. Leitað var eftir samstarfi
við Samtök sveitarfélaga á Suður-
landi 5. september sl. Samtökin
tóku vel t málið og vísuðu því til
einstakra sveitarfélaga. Bæjarráð
Selfoss tók jákvætt í erindi Al-
þýðusambandsins og fyrsti fundur
aðila um málið var haldinn 25.
september. Þar var ákveðið að
undirbúa kynningu á sérhannaðri
íbúðabyggingu fyrir aldraða með
þjónustumiðstöð. Teiknistofan
Hönn á Selfossi hefur gert frum-
drög að byggingunni og í framhaldi
af því var kynningarriti varðandi
þetta mál dreift í hús. Kynningunni
lauk svo með fundinum 7. desem-
ber.
í búðirnar verða í tveimur álmum,
tveggja og þriggja hæða, sem
tengjst í millihúsi. Á jarðhæð
hyggst Selfosskaupstaður bjóða
ýmsa þjónustu í tengslum við dag-
vist aldraðra. Þar er gert ráð fyrir
matsal, smáverslun, hárgreiðslu,
fótsnyrtingu, föndri, ieikfimi,
sjúkrabaði, ljósum og heilsugæslu.
Þá verður í húsinu bókasafn og
setustofa. Þessi þjónusta stendur
öllum öldruðum á Selfossi til boða
og verður undir yfirumsjón félags-
málastofnunar bæjarins, og rekin
í samvinnu við heilsugæslustöðina
og Sjúkrahús Suðurlands.
1 fyrirhugaðri byggingu sem
áformað er að reisa í næsta ná-
grenni Sjúkrahúss Suðurlands, eru
24 íbúðir. 9 þeirra eru 62 m2, 10
íbúðir 66 m2 og 5 íbúðir 81 mz. íbúð-
irnar hafa allar geymslur og hlutur
hverrar í sameign er 20 m2.
í íbúðunum er gert ráð fyrir að
hreyfihamlaðir eða þeir sem eru
bundnir hjólastólum geti hindrun-
arlaust farið um og staðsetning
tækjabúnaðar við það miðuð. I
hverri íbúð er kallkerfi og annar
öryggisbúnaður verður í bygging-
unni.
Þeir félagsmenn í verkalýðsfélög-
um á Suðurlandi, innan ASS, sem
eru orðnir 63 ára eða eldri eiga rétt
að kaupa íbúðir í fyrirhugaðri
byggingu. Félagar sem orðnir eru
67 ára eða eldri hafa þó forgang
um úthlutun.
íbúðirnar verða seldar á bygging-
arkostnaðarverði, með forkaups-
rétti og innlausnarskyldu Alþýðu-
sambands Suðurlands. Þær verða
sjálfseignaríbúðir með öllum rétt-
indum og skyldum sem fylgja íbúð-
umífjölbýli.
Stefnt er að því að allar fram-
kvæmdir verði boðnar út og þannig
reynt að tryggja hagstæðan bygg-
ingarkostnað. Á kynningarfundin-
um 7. desember kom fram að
ákvörðun um það hvort fram-
kvæmdir hefjast verður tekin fljót-
lega á næsta ári, þegar fyrir liggur
hver áhugi er fyrir íbúðunum sem
í boði eru.
Sig.Jóns.
RAFIÐJAN SF. IGNIS umboðið
Ármúla 8
108 Reykjavík
Sími 91-82535
H. 133, br. 56, d. 60,
270 lítra, m/frystf-
H. 144, br. 60, d. 60,
340 litra, m/frysti-
hólfi.