Morgunblaðið - 12.12.1985, Side 76

Morgunblaðið - 12.12.1985, Side 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985 Morgun blaöiö/Theodór Borgarnes: Verslunin Nesval hefur starfsemi Borgarnesi, 6. desember. LAUGARDAGINN 30. nóvember hóf ný verslun starfsemi sína í Borgar- nesi. Verslunin heitir Nesval og er til húsa í verslunarhúsinu Nesb* við Borgarbraut 57. Eigandi verslunarinnar heitir Jenný Halldórsdóttir, kvaðst hún aetla að versla með fatnað, leikfong og föndurvörur. Á myndinni sést eigandinn Jenný Halldórsdóttir. Attu í vandræðum með að finna vandaða gjöf? Ef svo er, ættir þú að líta inn hjá okkur. Þú getur valið úr vönduðum gjafavörum og búsáhöldum frá WMF í V-Þýskalandi - sannkölluðum gæðavörum sem standast ströngustu kröfur þínar um endingu og fallegt útlit. Lindau hnífapör - falleg og stílhrein hnífapör úr krómhúðuðu stáli. ( þessari tegund eigum við einnig forréttahnífapör, áleggsgaffla, ausur, tertuspaða o.fl. Verð: Hnífur, gaffall og skeið kr. 896,- og teskeið kr. 159,- «4 ^ > Bolero - sterkt og vandað pottasett sem fellur að smekk unga fólksins. Þrír pottar í settinu. Litur: emalerað hvítt með rauðum röndum. Verð aðeins kr. 3.950,- Silfurhjartað er skartgripaskrfn með hjartalagi, falleg og góð gjöf handa ungu stúlkunni. Silfurhúðað, með ígreyptri perlurönd á loki og klætt að innan með rauðu plussi. Verð aðeins kr. 595,- Martina kristalglös - Sérlega falleg glös úr skomum kristal. Ýmsar gerðir, þ.á m. fyrir rauðvín, hvítvín og portvín. Verð frá kr. 690,- tll kr. 990,- — La Paloma ostabakkar - Fallegir glerbakkar í mörgum stærðum og gerðum undir osta, ávexti og annað meðlæti. Verð frá kr. 600,- ◄ Monique - fínleg glerskál með loki, hæfilega stór fyrir sælgæti eða smákökur. Verð kr. 990,- Bolluskál og glös úrkristal. Einfalt munstur undirstrikar létt og frísklegt yfirbragðið. Skálin rúmar 4,5 litra. - Fæst einnig í Öðrum gerðum, þ.á m. með fæti. Verð: Skál kr. 3.190,- og glös kr. 475,- pr. stk. Glæsilegar gjafavörur M - Næg bílastæði - Mikið gjafaúrval - þægilegra getur það varla verið! Borðbúnaður og búsahöld studiohúsið AUSTURVERI • SlMI 31555 ct Selfoss: Endurbætur á rakara- stofu Björns Selfoasi, 9. desember. BJÖRN Gíslason hárskerameistari hefur starfrækt rakarastofu sína á Selfossi síðan 1967. Stofan er í al- faraleið á Eyrarvegi 5. Nýlega lauk Björn við að gera endurbætur á stofunni og „lét gamlan draum rætast", eins og hann orðaði það. Nýjar innrétting- ar voru settar upp og aðstaða til permanentþj ónustu. í tilefni nýjunganna og til að hressa upp á jólastemmninguna bauð Björn viðskiptavinum kaffi og ömmukleinur á meðan þeir biðu. Þessar góðgerðir þágu reyndar fleiri en viðskiptavinir. Á meðan tekin var mynd af Birni og starfs- fólki hans, Kjartani og Elísabetu, snaraðist inn úr dyrunum stæði- legur lögregluþjónn og fékk sér sopa svona til hressingar á vakt- inni og til að lyfta sér upp í stuttu „rakarastofuspjalli". Kleinurnar hjá Birni urðu reyndar svo vinsælar að bakaríin tvö kepptust við að koma kleinum á bakkann hjá Birni. Sig. Jóns. Úr kaffistofunni nýju á Strandgötu 41 í Hafnarfirði. CAFE 41: Ný kaffístofa Ný kaffistofa, CAFE 41, hefur verið opnuð á Strandgötu 41 í Hafnarfirði. Þar verður hægt að fá kaffi, kökur, smurt brauð, pizzur og fleira. Ríkey Ingimundardóttir sýnir þar um þessar mundir mál- verk sín og platta. Vottar Jehóva halda mót í Reykjavík Vottar Jehóva halda nú um helg- ina tveggja daga mót í samkomu- húsi sínu við Sogaveg I Reykjavík. Mótið hefst kl. 10.00 á morgun og er á dagskrá fjöldi erinda, við- tala og umræðuþátta af ýmsu tagi. Einkunnarorð mótsins eru „Verið staðfastir í trúnni". Aðalræðu flyt- ur Bjarni Jónsson á sunnudag kl. 14.00 og nefnist hún „Grundvöllur trúar í trúlausum heimi". Mót undir sömu einkunnarorð- um og með sömu dagskrá var haldið á Akureyri í síðasta mánuði og er mótið í Reykjavfk ætlað fólki af suðvesturhorni landsins. Mótið er opið öllu áhugafólki um Bibl- íuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.