Morgunblaðið - 12.12.1985, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1985
83'
Rikshaw
Velvakandi.
Við erum hér tvær sem langar
til að þakka strákunum í hljóm-
sveitinni Rikshaw fyrir frábæra
tónleika í Tónabæ, þann 29. nóv-
ember sl.
Við höfðum ekki mikið álit á
hljómsveitinni áður en núna skor-
um við á fólk að hlusta á hana því
það verður enginn svikin af tón-
listinni.
Þóra og Birna.
Ungt fólk þekkir ekki neyðina
H.S. skrifar:
Þann 1. nóvember síðastliðinn
birtist í Morgunblaðinu grein eftir
Sigurlaugu Bjarnadóttur frá Vig-
ur. Þetta er merkilegasta grein
sem sést hefur í íslensku blaði um
langa tíð, þó hefur hvorki Stak-
steinahöfundur Morgunblaðsins
né aðrir á þeim bæ séð ástæðu til
að árétta neitt af því sem stendur
í þessari frábæru grein.
Sigurlaug segir í grein sinni að
æskufólk samtímans þekki ekki
nema af bókum hvernig ástatt var
fyrir þeim sem voru minnimáttar
og hjálparþurfi og það aðeins fyrir
fáeinum árum. Hitt er þó réttara
að unga fólkið þekkir þetta alls
ekki, ekki heldur af bókum. Og þó
væri brýn þörf að fræða það um
þessa hluti, því það getur varla
gert sér í hugarlund hvernig hér
var ástatt fyrir daga trygginganna
og ekki einasta meðal þeirra fá-
tækustu heldur hjá langflestum.
Þeir sem nú eru aldraðir voru
fulltíðamenn, þegar enn voru eng-
in ellilaun, hvað þá tekjutrygging,
engar örorkubætur né slysatrygg-
ing. Alla heilbrigðisþjónustu og
læknishjálp varð að borga fullu
verði. Einn mánuður á sjúkrahúsi
og uppskurður kostaði margra
mánaða laun verkmanns. Vonandi
kemur ekki sú stíð að fólk þurfi
fátækravottorð frá hreppsnefnd-
um til að komast á sjúkrahús.
Forystumenn i launþegasamtök-
um ekki síst þeir hjá BSRB hafa
lengi stagast á því að fólk í flestum
löndum búi við mun betri kjör en
íslendingar. Nú hafa frjálshyggju-
postularnir tekið undir þennan
söng, enda báðum jafn létt um að
ljúga. Þetta væri efni í langa grein,
sem ekki verður skrifuð hér og nú.
Bandaríkin eru ein af þeim löndum
sem oft er vitnað til þegar hinir
og þessir moðhausar eru að bera
saman kjör íslendinga og annarra
þjóða. Ég tek hér traustataki kafla
úr hinni frábæru grein Sigurlaug-
ar Bjarnadóttur, hann er svona:
J Bandaríkjunum eru taldar 40
milljónir manna undir fátækra-
mörkum og annað eins af ólæsum
og óskrifandi, árangurinn af
tvöföldu skólakerfi, fyrsta flokks
einkaskólum og annars—þriðja
flokks ríkisskólum. Auðvitað
skrifast það ekki allt á reikning
Reagans. Og hvað ætli þær séu
margar, íslenzku konurnar, bú-
settar í Bandaríkjunum, sem
hafa komið heim til íslands til
að fæða börn sín, vegna þess að
þær höfðu ekki efni á fæðingar-
hjálp vestan hafs?“
Berið þetta saman við aðstæður
hér þar sem konur fá allt ókeypis
á fæðingardeildum og þær sem
vinna hjá ríki eða opinberum
stofnunum fá þriggja mánaða
fæðingarorlof á fullu kaupi. ólaun-
aðar konur fá mánaðarlegar
greiðslur frá Tryggingastofnun
Vetur
Vclvakandi.
Hauststormurinn blés sumrinu
burt um daginn, langt, langt út í
óvissu líðandi stundar og hins
ókomna. Það er ekki lengur í sjón-
máli, heldur horfið þangað sem
enginn veit. Kannski það sé
draumur atómanna sem sofa á
þessum árstíma i klaka og köldu
grjóti. Trén hafa fellt sumarklæði
sín og breytt þau yfir jörðina áður
en kólnar meir. Dagarnir ganga
fyrr til náða og rökkrið leggst fyrr
yfir núorðið. Sólkrónur blómanna
sem við dáðumst að á sumartíð eru
dánar, liggja eins og brotinn speg-
ill sem sólin speglaði sig í á liðnu
sumri. Ylurinn líður hægt og hægt
úr jörð og að lokum kólnar landið
og leggst til svefns undir fannar-
sæng og laufadúni.
Fyrsta snjófölin er fallin og hvít
jörðin styttir tíðina fram til jóla.
Skógarþrestirnir skoppa um í
hrímguðu laufinu eins og litlir
ullarhnoðrar sem ultu úr kjöltunni
á ömmu. Þeir lofa skapara sinn
fyrir þessa góðu tíð.
Esjan breiðir úr sér og er tilbúin
að verja litla bæinn fyrir norðan-
næðingnum þegar hann kemur
eftir langa ferð um ísilagðar slóðir
norðursins. Þarna gnæfir hún við
ríkisins í þrjá mánuði og lengur
ef veikindi hrjá móður eða barn.
Allt líkt og viðurkenning á mikil-
vægi þess að færa þjóðfélaginu
nýjan þegn.
himin með hvíta herðaslá, eins og
amma og kastar kveðju á Hengil
og Vífilfell, sem móðir náttúra
hefur háttað undir hvíta vetrar-
sæng. Mér finnst hún brosa til
barnsins sem situr og leikur sér
við fætur hennar.
Ég bíð með eftirvæntingu eftir
því að frostið narti mig vinalega
í kinnarnar, bylurinn leiki um
andlit mitt og að ég fái að hlusta
á hvininn í norðanstorminum og
sjái hann dansa kring um sjón-
varpsloftnetin í skini ljósastaur-
anna í götunni. Ég þrái að fá að
labba um fannhvíta jörð í kyrrð
kvöldsins og sjá börn að leik í
snjónum i brekkunni heima.
Einar Ingvi Magnússon,
stud. theol.
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
kolvetnisinnihald
á augabragði
Langar þig til þess að vita hve margar hitaeiningar eru í eplinu
sem þú ert að fara að borða — eða hve mörg kolvetni eru í því?
Kannski langar þig til að vita hve miklar hitaeiningar
eru í lambakótelettunni sem þú ert að fara að leggja þér til munns,
nú eða einum disk af kornflögum.
Petta og margt f leira færðu að vita á
augabragði meö nýrri rafeindavog sem
komin er á markaðlnn.
Petta er eldhúsvog sem gerir vmis-
legt fleira en að mæla hveiti og svkur.
• Hún gefur upp hitaeiningar-, fitu-,
kolvetna- og trefjainnihald teg-
unda.
í • Brevtlrgrömmumíúnsurogöfugt
á augabragði.
• Hefur tímastilli frá SO sek. upp i 99
mínútur.
• Hægt er að vigta margar tegundir
samtímis.
Vogin gengur fyrir venjulegri 9 votta
rafhlöðu, sem á að duga í eitt ár, Með
hennl fvlgir bók á ensku bar sem er að
f Inna kóða til að finna út næringargildi
nokkur hundruð fæðutegunda. islensk
bVðing á bókinni er væntanleg innan
skamms.
Útsölustaöir: Clóev, Armúla, h. Biering, Laugavegi, H. c. cuðjónsson, stigahlíö,
Hagkaup, Skeifunni, Heímilistæki, Sætúnl, Rafbúð Domus Medica, Egllsgötu,
versl. Rafmagn, Vesturgötu.
SEIKO
JÓLAGETRAUN
Hjá þessum úrsmiðum
getur þú tekið þátt
í SEIKO jólagetrauninni.
GARÐAR ÓLAFSSSON, Lækjartorgi, Rvík
GILBERT GUÐJÓNSSON, Laugavegi 62, Rvík
JÓN OG ÓSKAR, Laugavegi 70, Rvík
GUÐMUNDUR HANNAH, Laugavegi 55, Rvík
GEORG HANNAH, Hafnargötu 49, Keflavík
TRYGGVI ÓLAFSSON, Strandgötu, Hafnarfirði
KARL GUÐMUNDSSON, Austurv. 11, Selfossi