Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Sveinafélag rafeindavirkja:
Félagsfundur
veitti heimild til
verkfallsboðunar gkjp fr& Sanko Line í Straumsvík
FRI.AnSFITNniTR í Kvoinnfólnoi viku harst. heim aft.nr hréf frá Pnati *■
FÉLAGSFUNDUR í Sveinafélagi
rafeindavirkja samþykkti í fyrradag
aö veita stjórn og trúnaðarráöi fé-
lagsins heimild til verkfallsboðunar.
Valgeir Jónasson stjórnarmaður
í Sveinafélagi rafeindavirkja sagði
að forsvarsmenn Pósts og síma og
útvarps og sjónvarps vildu að raf-
eindavirkjar vaeru áfram í Félagi
íslenskra símamanna eða starfs-
mannafélögum útvarps og sjón-
varps, en yfir 100 manns gengu úr
þessum félögum fyrir 1 'h ári og
stofnuðu Sveinafélag rafeinda-
virkja.
„Við teljum okkur hinsvegar hafa
félagafrelsi og getum verið í hvaða
félagi sem við kjósum. Um þetta
stendur styrinn og þeir vilja ekkert
við þetta félag tala. Verkfalls-
heimildin var veitt til að knýja á
um samninga í gegnum félagið,"
sagði Valgeir.
Um 90 starfsmenn hjá Pósti og
síma gengu í Sveinafélag rafeinda-
virkja á sínum tíma. 75 þeirra hafa
sagt upp störfum frá og með ára-
mótum ef viðræður við félagið um
samninga verði ekki hafnar. Þessir
starfsmenn fengu bréf frá stofnun-
inni fyrir nokkru þar sem tilkynnt
var að ef uppsagnir þeirra yrðu
ekki dregnar til baka fyrir 12. des-
ember yrðu þeir teknir af launa-
skrá. Valgeir sagðist ekki vita til
þess að nokkur þessara manna
hefði svarað bréfinu. Fyrr í þessari
Leyfi þarf til
að reka verð-
bréfamiðlun
Viðskiptaráðherra lagði fram á
Alþingi í gær tvö stjórnarfrumvörp,
hið fyrra um verðbréfamiðlun og hið
síðara um nafnskráningu skulda-
bréfa. Þar er meðal annars lagt til
að Bankaeftirlitið hafi eftirlit með
starfsemi verðbréfamiðlara.
í síðarnefnda frumvarpinu er
gert ráð fyrir að öll skuldabréf
verði skráð á nafn. í því fyrrnefnda
eru ákvæði um menntun og aðrar
kröfur sem gerðar eru til þeirra
er reka verðbréfamiðlun. En verði
frumvarpið samþykkt þarf sér-
stakt leyfi viðskiptaráðherra til
að starfrækja verðbréfafyrirtæki.
Þess verður krafist ef frumvarpið
nær fram að ganga að menn hafi
hagfræði-, lögfræði-, eða við-
skiptamenntun til að hljóta leyfi
til að starfrækja verðbréfamiðlun.
Ráðherra getur hins vegar veitt
undanþágu frá þessu ákvæði.
Sjá nánar þingfréttir bls. 44.
BSRB og ríkið:
Samningavið-
ræður eftir
áramótin
VIÐRÆÐUR fjármálaráðuneytisins
og Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja um nýjan kjarasamning hefj-
ast eftir áramót. Það varð niðurstað-
an af fundi formanns og varafor-
manna BSRB með fjármálaráöhcrra
ígær.
A fundinum skýrðu forystu-
menn bandalagsins meginatriðin í
væntanlegri kröfugerð BSRB f
komandi kjarasamningum. Aðal-
kjarasamningur BSRB og ríkisins,
svo og allir sérkjarasamningar,
eru lausir um áramótin.
60 manna aðalsamninganefnd
BSRB kemur saman 7. janúar
næstkomandi.
viku barst þeim aftur bréf frá Pósti
og síma þar sem tilkynnt var að
samgönguráðuneytið og fjármála-
ráðuneytið telji uppsagnirnar vera
skilyrtar og því væru þær ógildar.
„Nú hefur stjórn félagsins og
trúnaðarráð heimild til að boða
verkfall og mér finnst ekki ótrúlegt
að það verði gert fljótlega ef ekkert
gerist," sagði Valgeir Jónasson að
lokum.
VIÐ höfnina í Straumsvík liggur nú
rúmlega 40 þúsund lesta flutninga-
skip merkt japanska skipafélaginu
Sanko Line, sem varð gjaldþrota fyrr
á árinu. Þótt gjaldþrot Hafskips hf.
sé stórt á íslenska vísu er það lítið í
samanburði við gjaldþrot Sanko
Line.
Japanska skipafélagið rak á
annað hundrað skip, flest af stærð-
argráðunni 50 þúsund til 200 þús-
und lestir, sem aðallega fluttu kol
og járnvörur. Til samanburðar má
nefna að íslensku flutningaskipin
eru á bilinu þúsund til fimm þúsund
lestir. Orsök gjaldþrots Sanko Line
er talin hafa verið geysileg offjár-
festing félagsins. Það lét smíða um
100 skip á fáum árum í þeirri von
að flutningar ykjust. Sú von brást
og því fór sem fór. Mörgum skipa
þrotabús Sanko Lines er haldið
áfram í rekstri undir nafni fyrir-
tækisins, þótt aðrir eigendur hafi
tekið við þeim.
Skipið sem liggur við festar í
Straumsvík er með rúmlega 38 þús-
und lestir af súráli frá Ástralíu.
Unnið er að uppskipun, en ekki er
víst að takist að ljúka henni fyrir
jól.
NQTADRJÚGI
ORBYLGJUOFNINN
FRA PHILIPS KEMST
AUÐVELDLEGA
FYRIRI
SMÆSTU
ELDHUSUM OG
KOSTAR AÐEINS
14.900.-KRONUR.
IPsÉÉÉlsISi ffii
Wrbylgjuofninn frá Philips er ákaflega fyrirferðarlítill og rúmast
alls staðar. Hann er engu að slður ótrúlega stór að innan og
afgreiðir fjallstórar jólasteikur á lygilega skömmum tíma.
Þú getur fest ofninn uppá vegg eða neðan á eldhússkápinn, eða
bara þar sem hentugast er fyrir þig að stinga steikinni og
jólabakstrinum í hann.
Það tekuraðeins 5 mínúturað læra á ofninn, en hann getur
sparað þér mörg hundruð mínútur við undirbúning jólanna. Og
svo er verðið auðvitað alveg einstakt; aðeins 14.900,- krónur.
Philips tryggir öryggið og endinguna, við hjá Heimilistækjum
tryggjum þér góða þjónustu og gefum þér allar nánari upplýsingar
með bros á vör.
Við erum sveigjanlegir í samningum.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - S: 20455- SÆTÚNI 8- S 27500