Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
49
Þrettán gamlar og
góðar frá Steinum
Hljómpiötur
Árni Johnsen
í tilefni 10 ára afmælis út-
gáfunnar Steinar hf. hefur fyrir-
tækið gefið út að nýju 13 gamlar
plötur, en þessa afmælisútgáfu
kallar Steina hf. Gott tilboð. Hér
er um að ræða fjölbreytt úrval
hljómplatna sem flestar hafa
notið ágætra vinsælda, enda er
það sammerkt þessum plötum
að vel er vandað til útgáfu á
þeim.
Fyrst skal telja plötuna Deió
með Ladda, en þar eru hin góð-
kunnu lög Búkolla, Spánarfljóð,
Stebbi stuðari, Jón spæjó, Skúli
Óskarsson og fleiri góð. Þá er
platan Sturla með Spilverki þjóð-
anna þar sem boðið er upp á lög
og ljóð Spilverksins, m.a. Sirkus
Geira smart, Hæ hó, Arinbjarn-
arson, Skýin, Sannaðu til og
Trumba og Sturla. Breyttir tímar
með EGO er ein af þrettán en
þar er um að ræða lög og texta
Bubba Morthens. Jólaboð Hauks
Morthens er í góða tilboðinu, en
þar syngur Haukur mörg kunn
jólalög, reyndar lög sem allir
þekkja og eru sígild fyrir jólin.
Isbjarnarblús Bubba er í grúpp-
unni, en þar er titillagið sem
platan heitir eftir, löngu þekkt
lag. Sumar á Sýrlandi með Stuð-
mönnum er þarna þrykkt á ný,
en sú plata sló í gegn á sínum
tíma, enda var yfir henni ferskur
blær og skemmtilegheit. Litla
hryllingsbúðin er einnig ein af
útgáfunum sem Steinar hf. hafa
staðið að, en sá söngleikur sló
aldeilis í gegn í Gamla bíói í
uppfærslu Hitt leikhússins. Sá
söngleikur hefur nú verið sýndur
á annað ár við miklar og stöðugar
vinsældir. Þá er komið að Máva-
stellinu hjá Grýlunum þar sem
þær stöllur syngja af mikilli
innlifun um Sigmund kropp, Sísí,
Betri er limur en limlestir,
Tröllaþvaður og fleiri ágæt lög á
þessari hressilegu Grýluplötu.
Platan Hurðaskellir og Stúfur
er í safninu þar sem Laddi,
Magnús Ólafsson, Þorgeir Ást-
valdsson, Bryndís Schram og
fleiri góðir koma við sögu í lögun-
um Bæjarferð með Hurðaskelli
og Stúfi, Básúnan mín, Á góðri
jólastund, Jólasveinafylkinjgin,
Handtaka jólasveinanna, Ara-
mótadans Grýlu og Leppalúða
og fleiri lögum, en einnig kemur
barnakór við sögu á þessari líf-
legu plötu. HLH-flokkurinn með
Haraldi Sigurðssyni, Þórhalli
Sigurðssyni (Ladda) og Björgvin
Halldórssyni er ein af Steina-
plötunum, en sú plata er gerð í
anda sjötta áratugarins hvað
varðar lagaval og hljóðupptöku.
Þar eru lög eins og Vertu ekki
að plata mig, Æskuást, Ham-
ingjulagið, Viltu semja frið,
Venus, Tjúttað í hlöðunni og
Fatafrík. Þá er plata Utangarðs-
manna, Geislavirkir með Bubba
Morthens og kompaníi, platan
Pétur og úlfurinn þar sem Bessi
Bjarnason er sögumaðurinn í
hinu kunna tónlistarævintýri
fyrir börn, en ýmis hljóðfæri
leika önnur hlutverk, en síðast
en ekki síst skal nefna hina
ágætu plötu Fögru veröld þar
sem Guðmundur Guðjónsson
syngur lög eftir Sigfús Halldórs-
son, vönduð plata og hlýleg eins
og við er að búast af þeim félög-
um.
Kári litli í sveit
Bókmenntir
Siguröur Haukur Guöjónsson
KÁRIUTLI f SVEIT
Höfundur: Stefán Júlíusson
Myndir: Halldór Pétursson
Kápa: Pétur Halldórsson
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi: Æskan
Sú var tíð, að flest okkar áttu
dýr að vinum, hund, hest eða kött,
vini sem fylgdu okkur um leikvöll
bernskunnar, tóku þátt i amstri
okkar og önn, gleði okkar og sorg.
Víst var lífið annað þá, færri þeir
sem lemstruðust á lífsins vegi,
breyttust úr mönnum í skugga,
urðu úti í vorhretum. Orsakirnar
eru sjálfsagt margar, en sú miklu
stærst, hversu óralangt við erum
nú komin frá náttúrunni sjálfri.
Við höfum kvatt hólinn og byggt
hús, hulið grundir og mó undir
steinsteypu og asfalti til þess að
lifa fínna. En þessi flottheit öll
hafa rofið samband okkar við nátt-
úruna sjálfa, rofið sambandið við
móður jörð, og því ráfa svo margir
um sem graslömb, ná aldrei
þroska. Kári litli í sveit er saga
um snáða sem átti vin í hundi,
slíkan vin sem beztir gerast. Þeir
héldu í sveitina til afa drengsins
og ömmu, hundurinn og drengur-
inn Kári, átta ára lukkuprins.
Drengurinn fær verk fyrir hendur,
skyldur að axla. Hann þroskast og
styrkist, reynist miklu meiri mað-
ur en aldur segir til um. Hann
fylgir fullorðnum til starfa, lærir
af þeim handtök úr reynslusjóði
kynslóðanna. En jafnöldrum kynn-
ist hann líka, eignast með þeim
dýrðarstundir.
Vinirnir Kári og Lappi vinna
þrekvirki saman og á heillastund
er brjóst afa svo hlýtt, að hann
segir: „Heyrðu, Kári Magnússon,
nú vill kerlingin endilega gefa þér
Sokka litla. Ætli það sé þá ekki
best að þú eigir folaldið, lasm."
Sokki var fallegasta folaldið sem
Kári litli hafði nokkurn tíma séð.
Það var rauður hestur með hvíta
fætur."
Hann var orðinn maður með
mönnum, átti hest og hund. Já,
þegar hann heldur heim eftir
ævintýrasumar ber hann ekki
aðeins gjafir ömmu og afa sér við
hlið, heldur líka í brjósti, gjafir
sem munu fylgja honum lífið á
enda. Sagan er sögð á hlýjan,
hugljúfan hátt og á fögru máli.
Það er því að vonum, að hún hefir
orðið svo vinsæl meðal barna siðan
hún kom út fyrst 1950, að í þrígang
hefir hún selzt upp og er því 4.
útgáfan hér á borðum. Myndir
Halldórs eru snilldarverk og Pétur
auðsjsáanlega í náð hjá listadís-
inni líka.
Prentverk mjög vel unnið.
Besti vinur...
lltlu stúlkunnar er auðvltað
mjúk og hlý Camilla Mllla
dúkka.
Við hana getur hún bjástrað
á daginn, sofnað með á
kvöldin og huggaö sig við,
þegar eitthvað bjátar á.
Camllla Mllla dúkkurnar
eru sterkar, vandaðar og
þola að á þelm sé teklð.
Camilla Milla er frá SEBINO
Það tryggir gæðin.
Góð aðkeyrsla, næg
bílastæði.
Póstsendum um land allt.
TómsiunDflHúsis HF
LaugouegilS'l Reyttauii: »21901
Rúmteppi — Rúmteppi
Fallegu portúgölsku rúmteppin
komin aftur.
Verö frá kr. 1.350
Tilvalin jólagjöf
n h tkntiilk
lönaöarhúsinu. Hallveigarstíg 1. Sími 22235.
V_________________I_______________)
LAUGAVEGI28
FuUbiíðafinýjum vörum fyrir
DÖMUROG HERRA
fiú
DONOVAN®
SPORT SWEAR - PARIS