Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Minning:
'/v,; H?'-"
hPÖ§JobS
Gerö B:
Breidd 40 cm
Hæð 40 cm
Dýpt 25 cm
Cartomobili kassinn er
framleiddur úr sérstak-
lega styrktum harö-
pappa með áferðarfal-
legri glanshúð.
Kassinn er styrktur með
járnumgjörð.
Mjög hentugt sem
geymslupláss fyrir
bækur og ýmislegt ann-
að.
Litir: Hvítt, rautt, gult,
grænblátt og bleikt.
Dreifing á Islandi:
Pidiopinn
Hafnargötu 90 - 230 Keflavík
Simar: 92-2652 og 92-2960
Útsölustaöir i Heykjavik:
Vörumarkaöurinn Ármúla.
glltíeinum dropa
Sigmundur Friðriks-
son vörubifreiðastjóri
Fæddur 10. nóvember 1898
Dáinn 10. desember 1985
í dag verður til moldar borinn
tengdafaðir minn, Sigmundur
Friðriksson, vörubifreiðastjóri.
Hann lést í Landakotsspítala 10.
desember siðastliðinn, eftir rúm-
lega þriggja mánaða legu. Sig-
mundur fæddist í Reykjavik 10.
nðvember 1898. Foreldrar hans
voru Ingveldur Hafliðadóttir frá
Brúnavallarkoti á Skeiðum og
Friðrik Sigmundsson frá Iðu í
Biskupstungum. Sigmundur átti
fjögur alsystkini og tvo hálfbræð-
ur og er nú eitt systkinanna se;n
eftir lifir, Magnea, sem býr í
Höfnum.
Sigmundur byrjaði snemma að
vinna eins og títt var um unglinga
Bókin fær stórkost-
legar viðtökur!
Lýsing á ferðalagi inn í
hina andlegu heima
Ég reyndi að halda huganum opnum á þessu
ferðalagi, þvi ég fann að mér voru birtar smátt
og smátt en ákveðið víddir í tíma og rúmi,
víddir sem fyrir mér höfðu tilheyrt vísindaskáld-
sögum eða öllu heldur þeim andlega heimi sem
dulspekin lýsir. En þessar víddir birtust mér.
Þetta skeði hægt. Þessar víddir birtust með
hraða sem hæfði mér, og ég held að allir hafi
sinn eigin hraða í þessum efnum. Fólk þroskast
og tekur framförum eftir því sem það er tilbúið
til. Ég hlýt að hafa verið tilbúin að taka á móti
þeim fróðleik sem ég fékk, því þetta var rétti
tíminn...”
Shirley MacLaine.
Á YSTU NÖF
Bókin var fyrst gefin út í júlí 1983. Kiljuútgáfan sem kom tæplega ári seinna hefur slegið öll sölumet.
Hátt í tvær milljónir eintaka hafa selst af bókinni. rúmlega ári seinna (nóvember 1985) er bókin
ennþá í 5. til 6. sæti á metsölubókalista New York Times. Þá er búiö að þýða bókina á norsku,
sænsku, dönsku og finnsku, og alls er búið að þýöa bókina á 13 tungumál. Unnið er að gerö sjón-
varpsmyndar um efni bókarinnar hjá ABC-sjónvarpsstöðinni og er myndin væntanleg á markaö 1986.
Fengi Shirley MacLaine forsíðumynd og 8 blaðsíðna umfjöllun í virtasta vikuriti á
Vesturlöndum vegna bókarinnar „Á ystu nöf“, nema bókin væri frábær?
____________ Bókaútgáfan Geislar — Simi 54674.
í þá daga og fór hann i kaupavinnu
daginn eftir fermingardaginn.
Lengst af stundaði hann vörubif-
reiðaakstur og var með sína eigin
bifreið hjá Eimskipafélagi fslands
í hartnær 40 ár. Sigmundur var
vel látin bæði af sínum yfirmönn-
um og samstarfsmönnum enda var
hann mjög samviskusamur og
áreiðanlegur og aldrei heyrði ég
hann hallmæla neinum manni.
Sigmundur kvæntist 6. júní 1931
eftirlifandi eiginkonu sinni, Vil-
borgu Þorvarðardóttur ættaðri frá
Gróttu á Seltjarnarnesi. Þau eign-
uðust fjórar dætur, ein lést ný-
fædd.
Elst er Ingveldur, gift Grétari
Sigurðssyni, bókbindara, þá Svava
Erla, hennar maður er Flemming
Andresen framkvæmdastjóri og
eru þau búsett í Bandaríkjunum,
og yngst Guðrún, gift undirrituð-
um. Einnig bjó hjá þeim í fimm ár
bróðurdóttir Sigmundar, Hulda
Hafliðadóttir Bachmann, gift ól-
afi Bachmann og er þeirra heimili
í Los Angeles. Þau hjónin komu
síðast í heimsókn núna í haust og
gladdi það Sigmund mjög að sjá
þau. Svava, dóttir Sigmundar og
Vilborgar, hefur verið búsett er-
lendis í rúm þrjátíu ár, en hefur
oft komið að heimsækja foreldra
sína, sérstakiega núna síðustu ár-
in. Svava var í heimsókn núna
nýlega í tvær vikur og var það
mikill ánægjutími fyrir þau bæði
enda var hann farinn að finna að
stundin nálgaðist.
Sigmundur og Vilborg bjuggu
allan sinn búskap í vesturbænum.
Heimili þeirra var annálað fyrir
gestrisni og myndarskap og voru
þau hjónin samstillt í því að taka
vel á móti gestum sínum og láta
þeim líða vel. Sigmundur var barn-
góður maður og höfðu barnabörn-
in, og núna síðustu árin barna-
börnin, gaman af að koma í heim-
sókn til afa og ömmu á Hjarðar-
haga, þar sem þau nutu mikils
ástríkis og umhyggju. Bamabörn-
in eru tíu og barnabarnabörnin eru
fjögur.
Sigmundur var fróður maður um
mörg málefni og allt fram á það
síðasta las hann öll dagblöð og
fylgdist vel með stjórnmálum og
öðru sem var að gerast í þjóðfélag-
inu. Oft var gaman að ræða við
hann um landsins gagn og nauð-
synjar.
Með þ essum fáu línum kveð ég
tengdaföður minn, Sigmund Frið-
riksson. Fagrar og bjartar minn-
ingar um hann munu geymast.
Tengdamóður minni, Vilborgu,
sem nú sér á eftir ástkærum lífs-
förunaut, svo og öðrum ættingjum
og vinum sendi ég mína dýpstu
samúð.
Valdimar K. Jónsson
irí' lI | ier sama um
Dan ii ?
/amÖDan