Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Fylgi flokka og ríkisstjórnar Skoðanakönnun Hagvangs, sem framkvæmd var dagana 28. nóvember til 8. desember síðastliðinn, leiðir í ljós meiri stöðugleika í fylgi við flokka en í stuðningi við ríkisstjórnina. Sveiflurnar í afstöðunni til ein- stakra flokka frá því að síðasta könnun var gerð um mánaða- mótin júní/júlí sl. voru innan við 3% upp eða niður. Ríkis- stjórnin naut stuðnings 57,4% þeirra, sem afstöðu tóku um mitt árið, en aðeins 49,7% nú. Hefur stuðningur við ríkis- stjórnina aldrei verið jafn lítill frá því að hún komst til valda í maí 1983, ef tekið er mið af könnunum Hagvangs. Af þeim, sem auka fylgi sitt, er hlutur Alþýðubandalagsins mestur, nú lýsa 14,6% stuðningi við flokkinn en 12% síðast. Alþýðubandalagsmenn voru í sviðsljósinu skömmu áður en könnunin fór fram vegna flokks- þingsins. Þeir telja sjálfir, að þingið hafi styrkt flokkinn út á við. Átök milli þingflokks og framkvæmdastjórnar Alþýðu- bandalagsins sýna á hinn bóg- inn, að því fer fjarri að jafnað hafi verið úr ágreiningi innan flokksins. Þá er athyglisvert, að Alþýðubandalagið nýtur ekki stuðnings jafn margra nú og greiddu flokknum atkvæði í apríl 1983. Tvisvar sinnum síðan hefur flokkurinn notið meira trausts í skoðanakönnunum Hagvangs en núna. Bandalag jafnaðarmanna (BJ) hafði ekki haldið landsfund þegar leitað var álits almenn- ings í þessari könnun. Fylgi Bandalagsins minnkar úr 7,7% í 4,3% og hefur ekki verið minna síðan í apríl 1984. Upplausnin innan BJ. hefur verið mikil undanfarna mánuði. Þótt skipu- lag þess hafi verið stokkað upp á landsfundinum 7. og 8. des- ember er ólíklegt að það eitt valdi því, að fólk veiti flokknum stuðning. Þetta ár hefur einkennst að mikilli sveiflu kjósenda til Al- þýðuflokksins, ef marka má skoðanakannanir. Fyrir flokks- þing haustið 1984 naut flokkur- inn aðeins stuðnings 7% í Hag- vangskönnun. Eftir flokksþing og valdatöku Jóns Baldvins Hannibalssonar rauk stuðning- ur við flokkinn upp í 21,3% í maí síðastliðnum. Nú lýstu 16,2% stuðningi við Alþýðu- flokkinn. Er hann annar stærsti flokkurinn og hefur haldið því sæti síðan í febrúar á þessu ári. Allar kannanir frá síðustu kosningum sýna, að Kvennalist- inn nýtur meiri stuðnings í könnunum en þegar kosið var. Listinn heldur þessari stöðu enn með 8,9% en hlaut 5,5% í kosn- ingunum. Allt frá því að kosið var hefur Framsóknarflokkurinn, sem þá hlaut 18,5% atkvæða og var annar stærsti flokkurinn, átt undir högg að sækja. í byrjun þessa árs var fylgi hans komið niður i 9,9%. Hann hefur frekar sótt í sig veðrið að nýju og nýtur nú stuðnings 13%, bætir hlut- fallið um 2% frá síðustu könnun. Væringar Steingríms Her- mannssonar, formanns, við flokksbræður virðast hafa aukið áhuga kjósenda á flokknum. Athyglisvert er hve gífurlegur munur er á fylgi Framsóknar- flokksins eftir búsetu. Þannig segjast aðeins 6,4% kjósenda á höfuðborgarsvæðinu og 11,8% í þéttbýli úti á landi leggja hon- um lið en 56,3% íbúa í dreifbýli. Með hliðsjón af átökunum í flokknum má velta því fyrir sér, hvort flokksformaðurinn njóti stuðnings þéttbýlinga en þing- flokksformaðurinn dreifbýl- inga. Þegar Hagvangur leitaði álits þeirra 1000 manna, sem spurðir voru, átti Sjálfstæðisflokkurinn undir högg að sækja í almennum umræðum. Af andstæðingum hans var leitast við að tengja flokkinn við okurmálið og Haf- skipsmálið. Með þetta í huga er athyglisvert, að flokkurinn nýt- ur nú meira fylgis en í sambæri- legri könnun í febrúar á þessu ári. 42,1% lýsa stuðningi við flokkinn nú, 1,5% færri en síðast en 2,3% fleiri en í febrúar. í kosningunum 1983 fékk flokkur- inn 38,7% atkvæða. Hreyfingar á fylgi einstakra flokka er auðvelt að skýra. Hið sama verður ekki sagt um stuðn- inginn við ríkisstjórnina. Hún nýtur aðeins stuðnings 49,7% þeirra, sem afstöðu tóku. í fyrsta sinn frá því að hún settist að völdum sýnir könnun Hag- vangs minnihlutastuðning við hana. Stjórnarflokkarnir fá hins vegar stuðning 55,1% þeirra, sem afstöðu tóku. Fylgi ríkisstjórnarinnar hefur minnk- að um 7,7% síðan í júlí. óánægj- an vegna stjórnmálaþróunar- innar bitnar þannig harkalegar á ríkisstjórninni en þeim flokk- um, sem að henni standa. Stjórnin nýtur lítils fylgis á höfuðborgarsvæðinu (43,7%) en mikils í dreifbýli (73,7%). Af þessum tölum og skiptingu stjórnarflokkafylgisins eftir bú- setu má draga þá ályktun, að framsóknarmenn séu ákveðnari í stuðningi sinum við ríkis- stjórnina en sjálfstæðismenn. Að þessu leyti veitir skoðana- könnunin stjórnmálamönnum skýrasta ábendingu um straum- ana í almenningsálitinu um þessar mundir. Fljúgandi augnl stofa á vegum n samtakanna 1 — eftir Gyðu Sigurðardóttur Healy ORBIS-samtökin (Project Orbis) voru stofnuð í þeim tilgangi að miðla augniæknum um allan heim af nýjustu þekkingu og tækni á sviði augnlækninga. Samtökin létu innrétta flugvél af gerðinni DC-8 sem fljúgandi augnskurðstofu. Allar aðgerðir eru sjúklingunum algerlega að kostnaðarlausu. Gyða Sigurðardóttir Healy sendi Morgunblaðinu þessa grein sem er í senn stutt ferða- saga og kynning á samtökunum. Eiginmaður hennar, Patrick J. Healey, er framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs þeirra (Director of Operations). Þau hjónin eiga heima í Colorado í Bandaríkjun- um. Mikil eftirvænting ríkti um borð í flugvélinni ORBIS þegar við nálg- uðumst Peking, höfuðborg Kína. Loksins eftir mikinn undirbúning virtist þessum áfanga náð. Þegar við héldum af stað frá flugvellin- um í Hong Kong var klappað hraustlega þegar flugvélin, sem er elsta DC-8 í notkun í heiminum, hóf sig til flugs. Innan skamms myndum við lenda í Peking og ég gat vart trúað því að draumur minn væri að rætast. Útsýnið var ævintýri lík- ast. Hver einasti smáskiki virtist vera nýttur til ræktunar, sem er ekki að undra því í þessu sérkenni- lega landi býr einn milljarður manna. Við hlið mér sat Þór litli, þriggja ára snáði. Pabbi hans er flugvél- stjóri hjá ORBIS og þess vegna voru við nú komin til þessa fjar- læga lands. Eg benti honum á það sem fyrir augu bar og sagði honum að þetta væri Kína. Þrátt fyrir ungan aldur er ég þess fullviss, að ferð þessi mun seint líða honum úr minni. Á flugvellinum í Peking bauð 400 manna mótttökunefnd okkur velkomin. Fólkið var allt sérlega vingjarnlegt. Allir vildu ólmir fá að skoða flugvélina og var fólkinu hleypt inn f litlum hópum. Starfs-' menn ORBIS eru þessu vanir, því hvar sem þeir koma flykkist að fólk, sem vill skoða þennan furðu- fugl. Að afloknum myndatökum og blaðaviðtölum við fulltrúa ORBIS-samtakanna var haldið til miðborgarinnar, en þangað er um 40 mínútna akstur. Við tókum myndir út um bílgluggana því margt forvitnilegt bar fyrir augu. Gamlir hestvagnar sýnast vera helstu samgöngutækin. Fólkið virtist feimið en veifaði þó til okkar. Á hótelinu fengum við hlýjar mótttökur og var okkur því næst vísað til herbergja okkar. Við bjuggum á Great Wall Hotel, sem er eitt helsta stolt Kínverja f hótelrekstri og var tekið í notkun á síðasta ári. Þar með var hafin þriggja vikna heimsókn ORBIS- samtakanna til Peking. Starfað í þágu mannúðar Flugvélin ORBIS I er fljúgandi Sjónvarpstækin eru nýtt til fullnustu um borð f ORBIS I. Allar aðgerðir en notaö til kennslu. Flugvélin er búinn fullkomnum ómskoðunartækjum, smásjám og leysitæki. augnskurðstofa. Takmarkið með þjóðum heims kleift að nýta sér rekstri flugvélarinnar er að gera nýjustu tækni og þekkingu á sviði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.