Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
_HAPPDR/ETTI FUJqBJÖRGUMAR”
PITARINna i
Dregið eftir 3 daqa
l’imm ___ 4^
Ný landabréfabók frá
Námsgagnastofnun
ÚT ER komin hjá Námsgagnastofn-
un Landabréfabók í nýrri útgáfu. í
fréttatilkynningu frá Námsgagna-
stofnun sogir að bókin sé byggð á
tillögum starfshóps sem skipaður var
á sínum tíma til að endurskoða efni
Landabréfabóka I og II, sem Ríkisút-
gáfa námsbóka gaf út árið 1980.
í fréttatilkynningunni segir
ennfremur: „Flest kortanna í bók-
inni eru svonefnd landsháttakort,
þar sem leitast er við að sýna
landþekju (þ.e. skóga, gresjur,
eyðimerkur, ræktað land o.s.frv.)
hvert með sínum lit, en landslagið
dregið fram með skyggingu. Auk
landsháttakorta eru ýmis sérkort
í bókinni, bæði af íslandi, Norður-
löndum og heimsálfunum. Þá má
nefna íslandskort og kort af haf-
svæðum umhverfis landið, auk
gervihnattamyndar af suðvestur-
horni landsins, ásamt skýringum.
Sérstök kort eru yfir Norður- og
Suðurskautið og sérkort sem taka
til jarðarinnar allrar, m.a. jarð-
fræðikort og hafsbotnskort.
Þeirri meginstefnu er fylgt á
landsháttakortum að halda rit-
hætti viðkomandi þjóðtungu eftir
því sem kostur er, en ef sérstök
hefð er fyrir íslenkum rithætti,
Landabréfabók
fylgir hann með í sviga. Á yfirlits-
kortum heimsálfa og á sérkortum
er þó yfirleitt notaður íslenskur
ritháttur. ítarlegar orðaskýringar
eru í bókinni þar sem landfræði-
heiti úr mörgum tungumálum eru
þýdd á íslensku, en nafnaskrá með
um 28.500 staðarnöfnum er aftast
í bókinni."
bókin er 128 síður í stóru broti.
Þula Theodóru Thorodd-
sen um ljúflmgsmeyjarnar
SJÓN OG saga hf. hefur gefió út
bókina „Tíu litlar ljúflingsmeyjar“,
þulu eftir Theodóru Thoroddsen með
myndskreytingum Katrínar Thor-
oddsen.
I frétt frá útgefanda segir, að
bókin hafi fyrst komið út í fyrra,
en dreifing hennar var þá stöðvuð
vegna framleiðslugalla og hefur
bókin nú verið endurunnin og sett
á markað „á þann hátt sem þessu
fallega verki sæmir“.
( fréttatilkynningu útgefandans
segir m.a.:
„Það var á árunum 1943—44 að
skáldkonan Theodóra Thoroddsen
gaf sonardóttur sinni, Katrínu
Thoroddsen, undurfallega og
glettna þulu um tíu litlar ljúflings-
meyjar og bað hana að gera mynd-
ir við.
Þulan var náskyld „Tíu litlu
negrastrákunum“ hans Muggs,
sem var systursonur Theodóru og
kær vinur.
Sjón og saga gefur ljúflingsmey-
jarnar út i samvinnu við Katrínu
Thoroddsen.“