Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
37
Júgóslavnesk börn
seld yfir til Ítalíu
- þar sem þau eru látin betla og stela
AFHJCPUÐ hefur verid umfangsmikil verslun með börn frá vanþróuð-
um héruðum í Júgóslavíu. Hefur danska blaðið Jyllands-Posten það eftir
fréttaritara sínum í París, að þau hafi verið seld til Italíu fyrir upphæð
sem svarar til um 550 þúsund ísl. króna hvert að meðaltali. Nokkur
barnanna hafa verið ættleidd á Italíu, en langflest þeirra hafa verið
seld glæpaflokkum, sem láta þau betla eða stunda vasaþjófnað og inn-
brot
Mörg barnanna afla milli 25
og 30 þúsund króna yfir daginn,
en þau verða að afhenda umsjár-
mönnum sínum megnið af fénu,
þar sem þau eru algjörlega upp
á náð þeirra komin. I staðinn fá
þau mat og húsaskjól. Að sögn
ítölsku lögreglunnar hafa um
10.000 júgóslavnesk börn verið
seld til Italíu frá árinu 1980.
Italska lögreglan hefur nú með
aðstoð austurrísku lögreglunnar
afhjúpað þessa skipulögðu
barnaverslun. Lögreglan í báðum
þessum löndum hefur veitt at-
hygli þeim mikla fjölda barna,
sem komið hefur frá Júgóslavíu
í gegnum Trieste. Hefur það ýtt
undir, að auga væri haft með
börnunum, eða réttara sagt
fylgdarmönnum þeirra. Þetta
hefur nú leitt til þess, að fjórir
júgóslavneskir barnasalar hafa
verið handteknir. Allir sérhæfðu
þeir sig í að selja börn frá
Kosovo, Makedóníu og sunnan-
verðri Serbíu.
Börnin, sem voru í bifreið fjór-
menninganna, höfðu verið keypt
milliliðalaust af foreldrunum,
sem eru sígaunar, á tæpar 9.000
krónur hvert. Höfðu þau hlotið
þjálfun í heimabæ sínum í vasa-
þjófnaði. M.a. hafði þeim verið
kennt að ná axlaböndum af
manni án þess að viðkomandi
yrði þess var. Létu lögreglu-
mennirnir börnin sýna leikni
sína í vasaþjófnaði og urðu undr-
andi yfir hversu fimlega þau gátu
laumað litlu höndunum niður í
vasa viðstaddra.
Nokkur barnanna hafa verið
notuð við störf á svarta vinnu-
markaðnum. Þar er vinnudagur
þeirra yfirleitt 14-15 klukku-
stundir. Verð á starfsmanni á
„stuttbuxnamarkaðinum", sem
Italir kalla svo, er um 550 þúsund
krónur. Tíu ára gamalt stúlku-
barn fer á yfir 800 þúsund krónur
af því að þar er um sérstaklega
góða fjárfestingu að ræða.
Italska lögreglan heldur því
fram, að u.þ.b. 10.000 júgóslavn-
esk börn séu nú í svartri vinnu
á Italíu. Þar við bætast þau, sem
betlarar leigja. Þeir klæða börn-
in í tötra og láta þau ganga skó-
laus, svo að fólk aumkist yfir þau
og gefi þeim peninga.
Nokkur júgóslavnesku barn-
anna eru seld áfram til Spánar,
Portúgals og Frakklands. Fína
gatan milli Concorde-torgsins og
Vendome-torgsins í París er til
dæmis uppfull af litlum vasa-
þjófum frá Júgóslavíu.
Ítalíæ
Bankaræningjar
skotnir í bardaga
við lögreglu
Bisceglie, lulíu, 19.desember. AP.
ÞRÍR menn, sem gerðu tilraun til að
ræna banka í borginni Biscegli á ftal-
íu, týndu allir lífínu í skotbardaga við
lögreglu. Mennirnir, sem vopnaðir
voru skammbyssum, réðust inn í
bankann árdegis á fímmtudag og
börðu niður vörð sem þar var á vakt.
Er þeir höfðu safnað saman tiltæku
lausafé í poka, gripu tveir mannanna
bankastjórann og flúðu í bfl sem þeir
höfðu lagt fyrir utan bankann.
Lögreglan náði að stöðva bifreið
ræningjanna skammt frá bankan-
um. Tveir ræningjanna féllu í skot-
bardaga við lögregluna og banka-
stjórinn hlaut minniháttar skotsár.
Þriðji ræninginn flúði á öðrum bíl
en lögreglan elti hann uppi og var
hann einnig skotinn til ólífis í skot-
bardaga.
Grænland:
Fundur Cartagena-ríkjanna:
Afborganir lána miðist við
hagvöxt í löndum skuldaranna
Montevideo, llruguay, 18. desember. AP.
ELLEFU skuldugustu ríki Rómönsku Ameríku, Cartagena-ríkin svokölluðu,
fóru í dag fram á, að lánsheimildir þeirra og nokkurra fleiri ríkja í Mið-
og Suður-Ameríku yrðu rýmkaðar meira en lagt er til í nýlegum tillögum
Bandaríkjamanna þ.a.l. og að vextir yrðu lækkaðir verulega, svo að svigrúm
fengist til að blása lífi í hart keyrðan efnahag landanna.
„A undanförnum fimm árum
hefur okkur borið áratug aftur í
tímann," sagði í álitsgerð, sem birt
var í gærkvöldi á fundi Cartagena-
ríkjanna í Montevideo í Uruguay.
„Þær gífurlega hörðu efnahagsráð-
stafanir, sem við höfum gert í því
skyni að auka hagvöxt og fram-
leiðni og styrkja útflutningsfram-
leiðsluna hafa ekki dugað."
Utanríkis- og efnahagsmálaráð-
herrar Cartagena-ríkjanna sögðu,
að skuldabyrðarnar, sem nema um
340 af 360 milljarða dollara skuld-
um landanna í þessum heimshluta,
væru hemill á hagvöxt og ógnuðu
lýðræðinu í löndunum.
„Hagvaxtarkreppa í þessum
heimshluta veldur óstöðugleika og
spennu og stofnar þróun lýðræðis-
ins í hættu," sagði í yfirlýsingu
ráðherranna.
I svokallaðri „neyðaráætlun" ráð-
herranna fara þeir fram á 20%
árlega aukningu lána hjá Alþjóða-
bankanum næstu þrjú árin, en í
tillögum James Bakers, fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, var gert
ráð fyrir 50% aukningu alls á sama
tímabili.
Julio Sanguinetti, forseti Uru-
guay, sagði, að tillögur Bakers væru
Jákvætt skref“ og fælu í sér viður-
kenningu á þeirri staðreynd, að
skuldakreppan yrði ekki leyst með
hertum efnahagsráðstöfunum.
„Afborganir skuldanna verða að
vera í samræmi við hagvöxt í lönd-
um skuldaranna," sagði Augusto
Ramirez Ocampo, utanrikisráð-
herra Kólumbíu.
Varabæjar-
stjóra vikið
úr embætti
Kaupmannahorn, 18. drsember. Frá NiU
Jorgcn Bruun, rrétUriUra MorgunblaA«ins.
BÆJARSTJORN Frederiksháb á
Grænlandi hefur valið nýjan vara-
bæjarstjóra, en sá sem gegndi emb-
ættinu áður, lögreglumaður að at-
vinnu, hlaut nýlega dóm fyrir að
beita ofbeldi.
I lögregluþjónsstarfi sínu löðr-
ungaði hann mann nokkurn og
sparkaði í hann. Taldi hann mann-
inn hafa ógnað sér, en rétturinn
hélt fram sakleysi mannsins. Og
nú hefur bæjarstjórnin ákveðið, að
varabæjarstjórinn skuli víkja úr
embætti.
Veður
víða um heim
Lmgst Ht»st
Akureyri -8 skýjað
Amsterdam 3 7 skýjaó
Aþena 5 16 skýjaó
Barcelona 13 mistur
Berltn 1 6 rigning
Briissel 2 10 skýjaó
Chicago -23 -12 snjókoma
Dublin 6 11 skýjað
Feneyjar 4 þokum.
Genf +5 6 heióskírt
Helsinki ■f14 +4 snjókoma
Hong Kong 15 19 skýjaó
Jerúsalem 6 13 skýjaó
Kaupmannah. Las Palmas 1 6 skýjaó 19
Lissabon 7 13 skýjað
London 6 11 skýjaó
Los Angeles 11 29 heiðskírt
Lúxemborg 3 skúr
Malaga 18 skýjaó
Maliorca 15 skýjað
Miami 15 24 skýjaó
Montreal -22 +9 skýjað
Moskva +20 +18 heiöskírt
New York +9 1 skýjað
Osló +6 +6 skýjað
París 5 10 skýjaó
Peking +7 3 heióskírt
Reykjavtk +1 skýjað
Ríó de Janeiro 19 33 heiðskírt
Rómaborg 0 12 heiðskírt
Stokkhólmur +0 5 skýjað
Sydney 17 29 skýjaó
Tókýó 0 11 heióskirt
Vínarborg 4 11 heiðskírt
bórshðfn 2 léttskýjað
Úrval smáhúsgagna í antikhnotu
• Skrifborð
• Skatthol
• Tevagnar
• Sófaborð og smáborð
• Innskotsborð
Hagstætt verð.
• Skáparm.k.
• Sjónvarpsskápar
• Hljómtækjaskápar
• Homskápar
• Kommóður
Bláskógar
Armúla 8.
Sími 68-60-80.