Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 57
MORG UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
57*
Gunnhild-
ur og Glói
Bókmenntir
Siguröur Haukur Guöjónsson
Gunnhildur og Glói
Höfundur texta: Guðrún Helgadóttir
Myndir: Terry Burton og Úlfar Örn
Valdimarsson
Prentverk: Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi: Iðunn
Það er gaman að sitja með ungt,
forvitið barn í fangi og hafa þessa
bók í höndum. Hér er margt að
sjá, margt að heyra.
Textinn er tilraun til þess að
gera ungu barni ljóst, að við
mannverur lifum í tveim heimum.
Annar er hinn ytri sem við sjáum
og bjástrum í, hinn er hið innra
með okkur, heimur tilfinninga og
viðhorfa. Hinn ytri heimur fær jú
bjarma sinn af hnettinum sól, en
ekki aðeins þaðan, því meiru veld-
ur hvaða birta ríkir í hinum innra
heimi skoðandans. Sól getur flætt
af himni, vafið angandi jörð að sér,
himinhvolfið ómað af margradda
söng, en ef sorg og myrkur er í
barmi þess er skoðar, þá kemur
hann ekki auga á dýrðina, hann
hefir byrgt hana úti, dregið
gluggatjöld tilfinninga sinna nið-
ur.
Guðrún lýsir þessu með því að
láta litla hnátu, Gunnhildi, vakna
til táradags. Það er sudda veður,
og í huga telpunnar er kalt og
hráslagalegt. Allt er öfugsnúið,
ljótt og leiðinlegt. Það sem er rautt
ætti að vera blátt, eða öfugt, og
jafnvel leikfélagarnir góðu verða
leiðinda ormar. Gunnhildur dreg-
ur sig frá og í draumi ævintýris
hittir hún drenginn Glóa, undar-
legan álf, sem notar undarleg orð.
Hann talar um tárin, þessi sáru
og þungu, sem geislasteina, töfr-
andi gersemar. Og þau skoða líka
heiminn saman: „... litlir hvítir
skýjahnoðrar veltust um og brostu
til Gunnhildar og Glóa. Sólin hljóp
á eftir þeim eldrjóð og stríðin og
potaði í þau með geislunum sín-
um.“ Leiðinlegu krakkaormarnir á
leikvellinum breytast I ærslafull,
glöð og leikandi börn, og mamma
verður aftur fallegasta konan í
heiminum.
Guðrún segir þessa sögu vel,
mjög vel, á lipru, auðskildu máli,
undirstrikar að hún er í hópi beztu
barnabókahöfunda ókkar.
Myndir listavel gerðar.
Prentverk afbragðs gott. Fögur,
hugljúf bók, sem vert fer að veita
athygli.
Arnarflug hef-
ur flug til Ham-
borgar í vor
ARNARFLUG hefur fengió leyfi
samgönguráðherra til að hefja flug
til Hamborgar í V-Þýskalandi. Fyrir-
hugað er að fljúga fyrst um sinn
einu sinni í viku en síðan tvisvar og
hefst flug þann 10. aprfl næstkom-
andi. Áður hafði Arnarflug fengið
leyfi þýskra flugyfirvalda til að
fljúga til Hamborgar. Þann 1. mars
næstkomandi er fyrirhugað að opna
söluskrifstofu í Hamborg.
Þá hefur félagið tekið að sér
leiguflug á næstu fjórum vikum
milli Kaupmannahafnar og Spán-
ar fyrir danska flugfélagið Conair,
sem er í eigu hinnar þekktu ferða-
skrifstofu Spies. Flogið verður
föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga milli Kaupmannahafnar og
þriggja staða á Spáni, Las Palmas,
Malaga og Tenerife og verður
notuð þota af gerðinni DC 8.
Fyrsta ferðin verður á föstudag.
Félagið hefur ekki enn tekið
ákvörðun um tilboð, sem borist
hafa í Boeing 707-þotuna, sem fé-
lagið hyggst selja til þess að bæta
fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Fjög-
ur tilboð frá bandarískum aðilum
liggja fyrir og hljóðar hið hæsta
upp á 1,5 milljónir dollara.