Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 76
76
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Haukasigur eftir
tvær lengingar
HAUKAR lögðu Valsmenn að velli
( úrvalsdeildinni í körfuknattleik
í gærkvöldi meö 88 stigum gegn
84. Sigur Hauka var þó sízt af öllu
átakalaus, því tvisvar þurfti að
lengja leikinn þar sem jafnt var
eftir venjulegan leiktíma, 71-71,
og einnig eftir fyrri 5 mínútna
lenginguna, 77-77.
í fyrri hálfleik voru Haukarnir
yfirburöamenn á vellinum. Vals-
menn náöu ekki saman og áttu
erfitt uppdráttar innan vallar sem
utan. Munaöi deyfö bakvaröa
þeirra miklu. Satt bezt aö segja
var munurinn í hálfleik óeölilega
lítill, 47-37, miðaö viö gang leiks-
ins.
Haukarnir bjuggust líklega ekki
viö því aö Valsmenn reistu sig úr
flagi i seinni hálfleik. Barátta Vals-
manna kom þeim í opna skjöldu.
Smátt og smátt söxuöu Valsmenn
á forskot Hauka meö góöri baráttu
og skynsamlegum leik og var hníf-
jafnt síöustu 12 mínútur seinni
hálfleiks. Er rúmar 5 mínútur venju-
legs tíma voru eftir jöfnuöu Vals-
menn, 61-61. Haukar réttu úr kútn-
um og staðan 71-67 þegar tæpar
tvær mínútur voru eftir, en |íeim
mistókst aö bæta um betur og
þegar fjórar sekúndur voru eftir
jafnaöi Sturla Örlygs fyrir Val og
framlenging staöreynd.
j fyrri lengingunni fóru fyrstu sex
sóknirnar í vaskinn og tauga-
spenna hrjáöi leikmenn. Haukar
voru fyrri til aö skora, Valsmenn
komust síöan yfir, 75-73 og aftur
77-75, en Haukarnir jöfnuöu þegar
mínúta var eftir. Minnstu munaöi
aö Pálmar tryggði Haukasigur á
síöustu sekúndunni en knötturinn
hrökk af hringnum.
Haukar byrjuöu seinni lenging-
una kröftuglega og komust í 83-77
á tveimur mínútum. Valsmenn voru
hálf drums viö þetta og Haukunum
tókst aö halda forskoti sínu og
fögnuöu þeir sigri. Slæmt að bara
annaö liöiö getur sigraö í jafn
skemmtilegum leik.
Óli Rafns átti stórleik meö Hauk-
um í fyrri hálfleik og skoraöi 21
stig á 10 mín. kafla. ivar Webster
var beztur Haukanna, en Pálmar
stóö fyrir sínu þrátt fyrir að jafnan
lægju á honum tveir Valsmenn.
Viöar Vignis kom einnig vel frá
leiknum.
Hjá Val voru Leifur Gústafs og
Tómas Holton einna var sæmilegur
og Sturla sýndi góöa baráttu í
seinni hálfleik. Kristján Ágústsson
lék aö nýju meö Val.
Stlg Hauka: Ólafur Rafns 28, ivar Webster
24. Viðar Vignjs 16, Pálmar Sig. 15, ivar As-
gríms 4 og Henning Hennings 1.
Stig Vals: Leifur Gústafs 20. Tómas Holton
17, Sturla örlygs 14, Torfi Magnúss. 12, Jón
Steingríms 10, Kristján Agústs 6, Einar Ólafs
3 og Jóhannes Magnússon 2. ágás
Mannheim
áfram
MANNHEIM vann Laverkusen í
bikarkeppninni þýsku í gærkvöldi
1:0 og þar með eru þeir komnir í
fjögurra liða úrslit. Þaö var JUrgen .
Kohler sem geröi eina mark leiks-
ins á 70. mínútu og það voru því
8.500 óánægðir áhorfendur sem
yfirgáfu leikvanginn í Leverkusen
í gærkvöldi.
Morgunblaðtö/JúUus
• Pálmar Sigurðsson lók vel að vanda með Haukum í gær er þeir unnu Val í tvíframlengdum leik. Pálm-
ars var vel gætt allan tímann en stóð sig þó vel. Hér skorar hann úr hraðaupphlaupi.
IBK sigraði KR-inga
KEFLVÍKINGAR unnu KR í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöldi er liðin mættust í Keflavík.
Keflvíkingar skoruðu 84 stig gegn
77 stigum KR-inga. Staðan í leik-
hléi var 43:34 fyrir heimamenn.
Leikur liðanna var nokkuö
sveiflukenndur og þokkalega
skemmtilegur á að horfa. KR-ingar
komust í 7:10 og var þaö mesta
forskot sem þeir náöu.
Jafnt var þo fram í miðjan fyrri
hálfleik eöa þar til staöan var
20:20. Þá tóku Keflvíkingar góöan
kipp og breyttu stööunni í 32:22
og er 2 mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik var staöan 41:26.
KR-ingar hófu síöari hálfleikinn
mjög vel og er rúmar tvær mínútur
voru liönar höföu þeir náö aö
minnka muninn í 43:40. Lengra
hleyptu heimamenn þeim þó ekki
í bili og höföu þeir forystuna þaö
sem eftir lifði leiks nema hvaö jafnt
var í 63:63.
Keflvíkingar náöu síöan 6—8
stiga forskoti og héldu því þaö sem
eftir var leiksins. Bestu menn ÍBK
voru þeir Siguröur Ingimundarson,
Jón Kr. og Guöjón Skúlason. Hjá
KR var Birgir Mikaelsson yfir-
buröamaöur.
Stig IBK: Sigurður Ingimundarson 22,
Guðjón Skúlason 15, Jón Kr. Gislason 14,
Ingólfur Haraldsson 11, Ólafur Gottskálksson
10, Hrelnn Þorkelsson 8, Magnús Guðflnnsson
4.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 36, Páll Kol-
beinsson 17. Garðar Jóhannsson 10, Þor-
steinn Gunnarsson 4, Astþór Ingason 4,
Guömundur Jóhannsson 4. Samuel Guö-
mundsson 2. __ ÓTH
Daníel og Árni Þór
stóðu sig þokkalega
ÍSLENSKA •kíðalandsliðið í alpa-
greinum karla kappti í svigi (Osló
á miðvikudagskvöld. Daníel Hilm-
arsson hafnaði í 23. sæti og Árni
Þór Árnason, sem reyndar er ekki
í landsliöinu, varð rétt á eftir í 24.
sæti. Sex þjóðir sendu keppendur
í þetta FlS-mót.
Sigurvegari varö Finn Christjan
Jagge frá Noregi, hann fékk sam-
anlagöan tíma 84,81 sek. Svíinn
Bent Fjelberg, sem hefur veriö í
A-landsliöi Svía, varö í 2. sæti á
84,96 sek. Daníel var 23. sæti á
89,12 sek og Árni Þór Árnason,
sem æft hefur af miklum krafti í
Geilo i Noregi aö undanförnu, kom
næstur á eftir Daníel á tímanum
89,18 sekúndum.
Hinir íslensku keppendurnir luku
ekki keppni. 134 keppendur tóku
þátt í mótinu og komu 60 þeirra í
mark.
Tveir á hækjum
TVEIR Framarar gangu um þessar mundir um götur bæjarins á
hækjum. Þetta eru þeir Sverrir Einarsson og Þorsteinn Þorsteinsson
en þeir leika stöðu miövarða hjá Fram. Sverrir átti við meiðsli að
stríöa allt síöastliðið sumar og gekkst undir uppskurö í haust en
Þorsteinn meiddist á æfingu hjá Fram fyrr i þessum mánuði. Júlíus
Sigurjónsson tók þessa mynd þegar þeir félagar mættu í Höföa
fyrir skömmu ásamt öörum leikmönnum Fram til aö taka viö styrk
frá íþróttaráði Reykjavíkur.