Morgunblaðið - 20.12.1985, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Kom söngur
Skagfirðinga
Hljómplötur
Árni Johnsen
Kom söngur heitir nýjasta söng-
plata karlakórsins Heimis í Skaga-
firði. Þar syngur þessi vel þjálfaði
og góðkunni karlakór bæði innlend
og erlend lög, dægurlög úr flokki
sígildra laga og óperuþætti úr
ýmsum óperum. Stjórnandi Heim-
is á umræddri plötu er Jirí Hlavác-
ek og undirleikari Stanislava
Hlaváckova. í nokkrum lögunum
er tvísöngur og þrísöngur. Karla-
kórinn Heimir nálgast nú sextugs-
aldurinn, en hljómur þessa bænda-
kórs er aðdáunarverður.
Meðal kunnra laga á Kom söng-
ur eru Skagafjörður, ljóð Matt-
híasar Jochumssonar og lag Sig-
.urðar Helgasonar, finnska þjóð-
lagið Inn milli fjallanna, ljóð
Guðmundar Magnússonar og Þýt-
ur í skógum úr Finlandiu Sibelius-
ar með texta Axels Guðmundsson-
ar. Meðal minna kunnra laga eru
lög eins og Miðnæturstemmning,
höfundur lagsins er ókunnugur en
hið gullfallega ljóð er eftir Stefán
Friðbjarnarson, Til vorsins, bráð-
skemmtilegt júgóslavneskt lag
með texta Þorvalds G. óskarsson-
ar en í því lagi syngja þeir þrísöng
Guðmann Tóbíasson, Ingimar
Ingimarsson og Jón St. Gíslason.
Þá er einnig logandi fjörugt lagið
Norðlenskar nætur sem er ítalskt
að ætt og uppruna en ljóðið eftir
þúsundþjalasmiðinn Victor A.
Guðlaugsson.
Af óperuþáttum má nefna Píla-
grímakórinn úr Tannhauser, her-
mannakórinn úr il Trovatore og
Veiðimannakórinn úr Töfraskytt-
unni. Þá láta þer félagar ekki
deigan síga þegar þeir taka blítt
og létt nær ellefu mínútna lotu
með sögum úr Vínarskógi eftir
Strauss.
Nokkur galli við upptöku plöt-
unnar er að textaframburður er
sumsstaðar nokkuð loðinn sem
kemur líklega til vegna þess að
uptökusalurinn hefur verið full
lítill.
í heild er hér um að ræða bráð-
skemmtilega og vel sungna plötu
og nýju lögin eru vel valin.
Föstudag 20.12/85
Rokkbræður
Gestir fá óvæntan jóla-
glaðning milli kl.
22.00—23.00.
Kráin opnar kl. 18.00.
Diskótekió kl. 22.00.
P.S. Bjóöum öllum nem-
endum í Hótel- og veit-
ingaskóla íslands og
þeirra stuöningsmenn í
einu og öllu velkomin hér
í kvöld eftir prófin.
YPSILON
BALLBARNANNA
Jólaball starfsmanna Sambandsins
verður haldið föstudaginn27.des.
ki. 15.00-18.oo á Hótei Sögu.
Miðaverð
kr. 200
I Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar.
Jólasveinar á staðnum
og fjörug dagskrá.. #
MIÐAR VERÐA SELDIR HJÁ
AUGLYSINGADEILD SAMBANDSINS, I
LINDARGÖTU 9A, S. 28200, INNANHÚSS 106, I
FYRIR HÁDEGI FÖSTUDAG 27. DES. ^AN/V
OG VIÐ INNGANGINN (SULNASAL).
Frítt fyrir fullorðna og gestir velkomnir.
8
(t) O
Vn/
0111 SIDOSTU OELGI VAO BlflflOOIN AO
OÁHOH KflEMLAfl LENGfll EN LENGSTA
MJÓLKUflOÚBAflOIOflðOIN í MOSKVO
ÆTLARÐU ÚT í KVÖLD? Á KANNSKI AÐ HELLA DULITLU AF DJÚS
YFIR ÍS, VAGGA SÉR í LENDUNUM, SLETTA ÖRLÍTIÐ ÚR HÖFUNUM,
KRÆKJA SÉR í GAGNSTÆTT KYN, SPARKA í RASSINN Á SJÁLFUM
SÉR 0G HITTA ALLT LIÐIÐ SEM ER ÞESS VERT AÐ ÞAÐ SÉ HITT?
ÞÁ ER UM TVENNT AÐ VELJA: BÆTAST í BIÐRÖÐINA TIL KREMLAR
EÐA K0MA SNEMMA 0G GANGA BEINT INN UM GÁTTINA Á MÚRNUM.
EF ÞÚ ERT EIN(N) AF ÞESSUM TÍU SEM EKKERT HAFA HEYRT, ÞÁ ER
RÉTT AÐ GETA ÞESS AÐ KREML ER VIÐ AUSTURVÖLL 0G ER 0PIÐ
TIL KL. 03:00 í NÓTT.
<
co
s
t