Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 4

Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985 Næsta ár verður helgað heilbrigði og bindindi ÁRID 1986 verður helgað heilbrigði og bindindi. Höluð tilgangur þessa er að vekja athygli á áfengis- og eitur- lyfjavandamálinu, og jafnframt að hvetja almenning til heilbrigðra lífs- hátta. Það eru biskup tslands, landlækn- ir, samtökin Átak gegn áfengi, Landssambandið gegn áfengisböl- inu, Áfengisvarnarráð, Stórstúka íslands, íþróttasamband íslands, Umgmennasamband íslands og Kvenfélagasamband íslands, sem standa að skipulagningu. Að sam- tökunum Átak gegn áfengi standa 35 félög og stofnanir, meðai annars, stjórnmálaflokkar, skátar, Æsku- lýðsráð ríkisins, SÁÁ og Æsku- lýðsráð Reykjavíkur. Stutt er síðan ákvörðun um að næsta ár yrði helgað heilbrigði og bindindi var tekin, en umræður hafa átt sér stað frá síðasta ári. Hilmar Jónsson stórtemplar sagði á blaðamannafundi í gær að neysla áfengis og fíkniefna hefði aukist mjög á undanförnum árum og er það ein meginástæða að staðið er að þessu átaki. Ólafur Ólafsson, landlæknir benti á að aldur þeirra sem neyta þessara efna hefði farið lækkandi og heimilisaðstæður ungl- inga hefðu bein áhrif á það hvort þeir leiðast út í hana. En það eru ekki aðeins unglingar sem ánetjast áfengi og eiturefnum heldur einnig hinir eldri og sagði landlæknir að nauðsynlegt væri að beina fræðslu og umræðu að þessum hópi ekki síður en að unglingum. Á næsta ári er fyrirhugað að halda þrjár ráðstefnur undir for- ystu landlæknis í Reykjavík, á Akureyri og Eigilsstöðum. Þá verða einnig haldnar samkomur á Suður- landi, Vesturlandi, Vestfjörðum og Suðurnesjum. Undirbúningshópur hefur í hyggju að senda öllum sveitar- stjórnum bréf þar sem þess er óskað að kosnar verði þriggja manna nefndir í hverju sveitarfélagi til að vinna að og skipuleggja átak gegn áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Auk þessara þriggja er lagt til að for- menn æskulýðsráða og áfengisvarn- arnefnda verði sjálfkjörnir í nefnd- ina. Og að lokum verða skipulögð greinarskrif í dagblöð og gefið út veggspjald með merki ársins. Nokkur samtök hafa tekið sig saman um að helga árið 1986 heilbrigði og bindindi. Á myndinni eru nokkrir aðstandendur t.v.: Hilmar Jónsson, stór- templar, María Petursdóttir, Ólafur Ólafsson landlsknir, sr. Jón Bjarman, Árni Einarsson og Páll Daníelsson. „Heims um ból, helg eru jól...“ Kennarar og nemendur syngja saman á Sal f gsrmorgun við undirleik Óskars Einarssonar, nemanda í 3. bekk. Lengst til vinstri er skólameistari, Tryggvi Gíslason og á myndinni má einnig sjá kennarana Þóri Haraldsson, Ragnheiði Gestsdóttur, Giselu Bjarnason og Jóhann Sigurjónsson, konrektor, auk fjölda nemenda. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gamalli hefð haldið við í Menntaskólanum á Akureyri: í jólafrí á afmælisdegi Þórarins Björnssonar fyrrverandi meistara Akureyri, 19. desember. ÞÓRARINN Björnsson, fyrrum skólameistari Menntaskólans á Akureyri fæddist 19. desember 1905 og hefði því orðið áttræður í dag hefði hann lifað. Það er orðin hefð í MA að gefa jólafrí á afmælisdegi Þórarins — og svo var einnig í dag. Hringt var á Sal um kl. 10 í morgun. Þar hélt Tryggvi skóla- meistari Gíslason tölu og sagði meðal annars: „Tíminn er hrað- fleygur fugl. Lífið er aðeins ör- skotsstund. Ég minnist atburðar á þessum stað á Sal fyrir réttum þrjátíu árum og þó er það eins og gerst hefði í gær. Öllum á óvart var hringt á Sal 19. desember 1955. Nemendur skólans, sem þá voru 294, þar af 219 í sjálfum mennta- skólanum en 75 í miðskóladeild, komu allir á Sal fullir eftirvænt- ingar. í pontu steig Brynjólfur Sveinsson yfirkennari og mælti þessi orð: „Bylting hefur verið gerð á kennarastofu Menntaskólans á Akureyri og byltingarmenn hafa að meistara forspurðum látið hringja á Sal í tilefni þess að Þór- arinn skólameistari Björnsson er fimmtugur í dag.“ Síðan gaf Brynj- ólfur jólafrí. Síðan þá hefur það verið hefð í MA að gefa frí 19. desember. Tryggvi sagði anda Þórarins Björnssonar enn svífa yfir vötnun- um í MA því 17 af núverandi kennurum skólans hefðu stundað eða lokið námi í tíð hans. Þórarinn gegndi starfi skólameista frá 1. janúar 1948 til dauðadags, 28. janúar 1968. Eftir ræðu Tryggva sungu nem- endur og kennarar saman fyrsta erindi sálmsins Heims um ból — og síðan hélt hver sína leið. „Fordæmi Jóns mætti vera sem flestum til eftirbreytni" - sagði Geir Hallgrímsson er hann fylgdi úr hlaði ritsafni Jóns Þorlákssonar „ÉG HYGG að fátt það sem sagt er í stjórnmálaumræðu samtímans þoli birtingu eftir fimmtíu ár, eins og raun er um stjórnmálagreinar Jóns Þorlákssonar," sagði Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, er hann fylgdi ritsafni Jóns úr hlaði á fundi Stofnunar Jóns Þorlákssonar ígær. Geir sagði, að Jón Þorláksson, fyrrum borgarstjóri og forsætis- ráðherra, hefði verið rökfastur og yfirvegaður stjórnmálamaður. Einkenni hans hefðu verið vönduð vinnubrögð og öfgalaus málflutn- ingur. Fordæmi hans mætti vera sem flestum til eftirbreytni. Ritsafnið Jón Þorláksson. Ræður og ritgerðir er gefið út af Stofnun Jóns Þorlákssonar, sem er rannsóknarstofnun í stjórn- málum og atvinnumálum, er starfað hefur frá ársbyrjun 1983. Framkvæmdastjóri hennar er dr. Hannes H. Gissurarson. Ritsafn- inu fylgir inngangur um ævi og störf Jóns, sem Gunnar heitinn Thoroddsen samdi. í því er síðan að finna allar þær ritgerðir Jóns, sem útgefandi telur að skipti verulegu máli til þess að menn geti gert sér mynd af honum, og hafa sögulegt, verkfræðilegt eða hagfræðilegt heimildargildi. Gylfi Þ. Gíslason, prófessor, sagði á fundinum, að Jón Þorláks- son hefði lagt merkan skerf til íslenskrar hagfræði, enda þótt hann væri verkfræðingur að mennt. Rit hans Um lággengið (1924) væri annað íslenska hag- fræðiritið eftir Auðfræði Arnljóts Ólafssonar, sem samin var á öld- inni sem leið. Það bæri vott um mikla þekkingu og skarpskyggni höfundar. Margt sem þar væri skrifað hefði enn gildi. Gylfi rifjaði upp að Jón hefði verið náinn vinur föður síns, Þorsteins Gíslasonar, ritstjóra, og tíður gestur á bernskuheimili sínu. Hann hefði ekki haft af honum persónuleg kynni, en verk Jóns og vitnisburðir annarra um hann sýndu að hann hefði verið einhver merkasti stjórnmálamað- ur íslendinga. Þórarinn Þórarinsson, fyrrum ritstjóri, rakti einnig minningar sínar um Jón og minntist þess m.a. að hann hefði setið fundi borgarstjórnar Reykjavíkur, sem blaðamaður, er Jón var borgar- stjóri á fyrri hluta aldarinnar. „Rökfastari ræðumann hef ég ekki hlustað á,“ sagði Þórarinn, og kvað engan íslenskan stjórn- málamann honum fremri um skipulegan málflutning. Þórarinn sagði, að eitt af mestu stjórnmálaafrekum sem unnið hefði verið hér á landi væri að Frá blaðamannafundinum í gær, þar sem ritsafn Jóns Þorlákssonar var fylgt úr hlaði. Frá vinstri við háborðið silja: Þórarinn Þórarinsson, Hjörtur Hjartarson, Jonas H. Haralz, Geir Hallgrímsson, Vala Thoroddsen og Gylfi Þ. Gíslason. Fremst á myndinni eru þeir Ólafur Björnsson, til vinstri og Helgi Hkúli Kjartansson. Jón Þorláksson stofna íhaldsflokkinn og síðar Sjálfstæðisflokkinn, sem breiðan flokk er höfðaði til allra stétta. Það væri fyrst og fremst verk Jóns. Hann hefði sniðið flokkana að breskri fyrirmynd, en ekki norrænni. Þórarinn lauk einnig lofsorði á störf Jóns í fjármála- ráðuneytinu á þriðja áratugnum. Hann sagði, að þegar framsóknar- menn tóku við ráðuneytinu 1930 hefði verið slík röð og regla á fjár- málum ríkisins, að þeir hefðu ekki þurft að hækka skatta, eins og aðrir er við þvi ráðuneyti hafa tekið. ólafur Björnsson, fyrrv. pró- fessor og alþingismaður, fór einn- ig viðurkenningarorðum um framlag Jóns til íslenskrar hag- fræði. Hann kvaðst minnast þess að þegar rit Jóns Um lággengið kom út og hann var sjálfur á fermingaraldri, hafi hann gluggað í það en átt erfitt með að botna í því sem höfundurinn var að fara. Öðru máli hefði gegnt um ritgerðir Jónasar frá Hriflu á þessu tíma, sem honum þóttu auðskildar og skynsamlegar. Þetta mat sitt hefði síðan breyst mikið við nánari kynni af hug- myndum Jóns. Jónas Elíasson, prófessor, vakti athygli á framlagi Jóns Þorláks- sonar til verklegra framkvæmda í Reykjavík, m.a. frumkvæði hans að byggingu vatnsveitunnar. Hann kvað Jón hafa verið mjðg framsýnan í öllum verklegum efnum og til dæmis um það nefndi Jónas, að ritgerðir hans um virkj- anakosti og stóriðju væru enn tímabært framlag til umræðu um þau efni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.