Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
ÚTVARP / SJÓNVARP
Barna-
dagskráin
r
Isögunni af Mario og töfra-
manninum farast Thomasi
Mann svo orð um blessuð börnin:
Börn eru nefnilega eins konar
þjóðflokkur eða samfélag út af
fyrir sig, sérstök þjóð ef svo má
segja. Þau eru fljót að laðast hvert
að öðru vegna sameiginlegra lífs-
hátta, jafnvel þó tungurnar séu
óllikar og orðaforðinn smár. (Bls.
17, Ingólfur Pálmason íslenskaði).
Þessi ummæli nóbelsskáldsins
þýðverska eiga máski ekki síður
við í dag en þegar þau sáu fyrst
dagsins ljós 1929. Eða eru ekki
teikni- og brúðumyndir sjónvarps-
ins gott dæmi um hversu börnin
hugsa í raun og veru keimlíkt
hvort sem þau eru stödd á eyju í
miðju Atlantshafi eða inn í miðri
Parísarborg? Hvað til dæmis um
Oliver bangsa ér fór sigurför um
hugi franskra barna, ég fæ ekki
betur séð en að hann fangi líka
athygli íslenskra barna, eða
spænski teiknimyndaflokkurinn:
Sögur snáksins með fjaðrahaminn
og ekki má gleyma Högna Hinriks
frá Bretlandseyjum, Einari Áskeli
frá Svíþjóð, Ferðum Gúllívers frá
Þýskalandi, „Klaufabárðunum"
frá Tékkóslóvakíu og Tomma og
Jenna frá Bandaríkjunum.
Sérstök þjóð
Eins og lesendur sjá er ansi víða
leitað fanga um öflun barnaefnis,
svo víða, að með sanni má segja
að barnaefnið í sjónvarpinu sé
alþjóðlegt. Og hér komum við aftur
að ummælum Mann: Þau (börnin)
eru fljót að laðast hvert að öðru
vegna sameiginlegra lífshátta,
jafnvel þótt tungurnar séu ólíkar
og orðaforðinn smár. Er ekki
annars stórkostlegt til þess að vita
að á sama augnabliki og íslensk
börn berja augum fyrrgreindar
myndir eru þúsundir jafnvel millj-
ónir annarra barna út um allan
hinn stóra heim að skoða þessar
sömu myndir? Hugsið ykkur bara
hversu miklu ríkari samkennd
verður í brjósti uppvaxandi borg-
ara þessarar jarðar en nú þekkist.
Ástæðan er augljós: Börn okkar
og barnabörn bergja nánast af
sama brunni skemmti- og fræðslu-
efnis hvar sem þau annars eru
niður komin. Ýmsir óttast að smá-
þjóðir og þjóðabrot glati sérkenn-
um sínum og menningu í slíkum
fjölmiðladarraðardansi? Ég tel
persónulega slíkan ótta ástæðu-
lausan svo fremi smáþjóðirnar
nenna að viðhalda menningu sinni
og þjóðlegri arfleifð. Á mínu heim-
ili hefir Búkolla blessunin löngum
skipað fyrsta sætið á vinsældalist-
anum en einnig hafa börnin gaman
af hinu fjölþjóðlega barnaefni er
fyrr var nefnt. í fáum orðum sagt
þá álít ég að fjölmiðlabyltingin
muni sameina jarðarbúa í ríkara
mæli en nú þekkist. Það er svo
aftur stóra spurningin hvort hin
þjóðlega arfleifð verður alþjóðleg
eða varðveitir sérkenni sín og svip-
mót.
Brotalöm
Að mínu viti hefur vel tekist til
um endurskipulagningu barnadag-
skrárinnar í sjónvarpinu. Efnið
alþjóðlegt eins og áður sgði og
ekki ber að amast við endursýning-
um nema síður sé. En þó má finna
brotalöm á barnadagskránni. Á
föstudögum er skorin væn sneið
af barnaefninu og á laugardögum
eru blessuð börnin hornreka í
dagskránni. Ég býst nú við að
samræmis verði gætt í þessu efni
í föstudagsdagskránni og að hlutur
barnanna verði gerður veglegur á
laugardögum. Sérstakur umsjón-
armaður barnaefnis hefir jú verið
ráðinn að sjónvarpinu
ólafurM.
Jóhanneson
FÖSTUDAGUR
20. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurtregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Elvis, Elvis" eftir Mariu
Gripe
Torfey Steinsdóttir pýddi.
Sigurlaug M. Jónasdóttir les
(18).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál.
Endurtekinn páttur frá kvöld-
inu áður sem Sigurður G.
Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Tilkynningar. Lesið úr
forustugreinum dagblað-
anna.
10.55 Þingfréttir.
11.05 .Ljáöu mér eyra"
Umsjón: Málmfrlöur Sigurð-
ardóttir. (Frá Akureyri).
11.35 Morguntónleikar.
a. .Hamlet", hljómsveitar-
svlta op. 32a eftir Dmitri
Sjostakovitsj. Fllharmonlu-
sveitin I Moskvu leikur.
Gennady Rozhdestvensky
stjórnar.
b. .Astarljóð" eftir Isaac
Albeniz.
David Oistrakh leikur á fiölu
og Wladimir Jamolskij á
planó.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.20 Slðdegistónleikar.
a. Trió I a-moll op. 114 eftir
Johannes Brahms.
Tamás Vosáry, Karl Leister
og Ottomar Borwitsky leika
á planó, klarinettu og selló.
b. .Bachianas Brasileiras"
nr. 5 eftir Heitor Villa-Lobos.
Arleen Augér syngur með
sellóleikurum Fllharmónlu-
sveitarinnar I Berlln.
17.00 Helgarútvarp barnanna.
Afmælisdagskrá um Stefán
Jónsson rithöfund, slðari
hluti.
Stjórnandi: Vernharöur Linn-
et.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18j45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
FÖSTUDAGUR
20. desember
19.15 A dðfinni.
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.25 Svona gerum við.
Tvær sænskar fræðslu-
myndir sem sýna hvernig
brauö er bakað og gluggar
smlðaðir. Þýðandi og þulur
Bogi Arnar Finnbogason.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpiö).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Þingsjá.
Umsjónarmaöur Páll Magn-
ússon.
19.00 Fréttir.
19.35 Tilkynningar.
20.10 Þingmál.
Umsjón: Atli Rúnar Halldórs-
son.
20.20 Lög unga fólksins.
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
21.20 Kvöldvaka.
a. Jólavísur.
Félagar úr kvæðamannafé-
laginu Iðunni kveða.
b. Bernskujólin min.
Edda Vilborg Guömunds-
dóttir les úr bókinni .Hetjur
hversdagsllfsins" eftir Hann-
es J. Magnússon.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum.
Atli Heimir Sveinsson kynnir
tónverksitt, „Glórlu".
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
21.00 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Einar Sig-
urðsson.
21.35 Skonrokk.
Umsjónarmenn Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
22.25 Derrick.
Tlundi þáttur. Þýskur saka-
málamyndaflokkur. Aðal-
hlutverk: Horst Tappert og
Fritz Wepper. Þýðandi Vet-
urliði Guðnason.
23.25 Seinni fréttir.
23.40 Astlmeinum.
(The Weather in the Streets).
Ný bresk sjónvarpsmynd
gerð eftir tveimur skáldsög-
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.25 Kvöldtónleikar.
a. „Concert royal" nr. 4 eftir
Francois Couperin.
Lise Dahoust og Robert
Sigmund leika á flautur og
sembal.
b. Jessye Norman syngur
„Um eillfa ást" op. 43 nr. 1
eftir Johannes Brahms.
Geffrey Parsons leikur á
planó.
22.55 Svipmynd.
Þáttur Jónasar Jónassonar.
(Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur.
— Tómas R. Einarsson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
um eftir Rosamond Leh-
mann. Leikstjóri Gavin Millar.
Leikendur: Michael York,
Lisa Eichhorn og Joanna
Lumley.
Myndin gerist I Bretlandi um
og eftir 1930. Söguhetjan
Olivia hyggst skapa sér sjálf-
stæða tilveru I Lundúnum
eftir misheppnað hjónaband.
Hún hittir aftur mann, sem
hún hreifst af sem ung
stúlka, en hann er nú kvænt-
ur. Samband þeirra verður
náið og hneykslar marga auk
þess sem það veldur Oliviu
ýmsum sárindum. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
01.25 Dagskrárlok.
ár
FÖSTUDAGUR
20. desember
10:00—12:00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Asgeir Tómas-
son og Páll Þorsteinsson.
Hlé
14:00—16KM Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16K10—18HJ0 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ölafsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11:00, 15 00
16:00 og 17:00.
Hlé
20d0—21:00 Heitar krásir úr
köldu strlöi
Reykvlskur vinsældalisti frá
júnl 1956, fyrrihluti.
Stjórnendur: Trausti Jónsson
og Magnús Þór Jónsson
21:00—22KM Kringlan
Tónlist úr ðllum heimshorn-
um.
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
22HJ0—23:00 Nýræktin
Þáttur um nýja rokktónlist,
innlenda og erlenda.
Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Hetgason.
17:00—18:30 Rlkisútvarpið á
Akureyri — Svæðisútvarp.
17Æ0—18:00 Svæðisútvarp
Reykjavfkur og nágrennis
(Fm 90.1MHz) \
SJÓNVARP
ÚTVARP
Á aðventu
— lokaþáttur
■■■■ Á sunnudaginn
1 PT 10 kl. 15.10 er ó
1D— dagskrá síðasti
þáttur Þórdísar Móses-
dóttur „Á aðventu", sem
verið hefur á dagskrá
undanfarna sunnudaga.
Gestir þáttarins eru
Hörður Áskelsson organ-
isti við Hallgrímskirkju
og kona hans, Inga Rós
Ingólfsdóttir sellóleikari,
sem segja frá venjum sín-
um og siðum tengdum
aðventunni og áhrifum frá
Þýskalandi þar sem þau
stunduðu nám. Þau velja
tónlistina sem er aðventu-
tónlist og flutt meðal
annarra af Hamrahlíðar-
kórnum og Mótettukór
Hallgrímskirkju. Aðstoð-
armaður við gerð þáttar-
ins er Málfríður Finn-
bogadóttir.
Kast-
ljós
■■ Kastljós,
01 00 fréttaþáttur um
íd 1 — innlend mál-
efni, verður á dagskrá
sjónvarpsins kl. 21.00 í
kvöld í umsjá Einars Sig-
urðssonar.
í þættinum mun hann
m.a. fjalla um höfnina í
Bremenhaven, sem er
mikilvægur fiskimarkað-
ur fyrir okkur Islendinga
í Vestur-Þýskalandi og
einnig leið höfnin mjög
fyrir útþenslu íslensku
landhelginnar á sínum
tíma.
Þá ætlar Einar að fjalla
um hugsanlega samein-
ingu dagblaðanna þriggja:
NT, Alþýðublaðsins og
Þjóðviljans, en umræður
um slíka sameiningu hafa
staðið yfir undanfarna
daga.
Elskendurnir í „Ást í meinum“ — Michael York og Lisa Eichhorn.
Ást í meiniim
— bresk sjónvarpsmynd
■■■■ Ný bresk sjón-
OQ 40 varpsmynd,
LiO — „Ást í meinum',
er á dagskrá sjónvarps kl.
23.40 í kvöld, en hún er
gerð eftir tveimur skáld-
sögum eftir Rosamond
Lehmann. Leikstjóri er
Gavin Millar. Leikendur
eru: Michael York, Lisa
Eichhorn og Joanna Lum-
ley.
Myndin gerist í Bret-
landi um og eftir 1930.
Söguhetjan Olivia hyggst
skapa sér sjálfstæða til-
veru í Lundúnum eftir
misheppnað hjónaband.
Hún hittir aftur mann,
sem hún hreifst af sem
ung stúlka, en hann er ní
kvæntur. Samband þeirra
verður náið og hneykslai
marga auk þess sem þai
veldur Oliviu ýmsum sár-
indum.
Þýðandi er Jóhanna
Þráinsdóttir.