Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Hann er að flýta sér í Vesturröst
Fróðleiksbrunnur um
íslenska knattspyrnu 1985
Rossignol skíöi á frábæru verði
Unglingaskíöi
fullorðinsskíði
gönguskíði
frá kr. 2.860.-
frá kr. 3.915.-
frá kr. 1.500.-
Vesturröst
Laugavegi 178, R.,
sími 16770 84455.
_________Bækur
Steinar J. Lúövfksson
íslensk knattspyrna 1985
eftir Víði Sigurðsson.
Útgefandi: Bókhlaöan 1985
Árbækur um islenska knatt-
spyrnu hafa nú komið út frá árinu
1981. Sigurður Sverrisson ritaði
fyrstu bokina en árið eftir unnu
Sigurður og Víðir Sigurösson bók-
ina saman og frá árinu 1983 hefur
Víðir annast verkið einn. Allt frá
upphafi hafa bækurnar verið svip-
aðar að formi en aukist nokuð að
vöxtum bæði vegna þess að um-
fjöllun þeirra er ítarlegri og eins
vegna þess að umfang íslenskrar
knattspyrnu vex frá ári til árs.
Knattspyrna er sennilega vinsæl-
asta íþróttagrein hérlendis og á
meðan á keppnistímabilinu stend-
ur taka þúsundir karla og kvenna
á ýmsum aldri og alls staðar á
landinu þátt í íþróttinni. Það er
því vissulega frá mörgu að segja —
margt sem skeður sem vert er að
geymist í bók og eins og er eðli
þóka sem þessara þá eykst gildi
þeirra þegar árin líða. Þær verða
góður stuðningur þegar rifjaðir
eru upp atburðir og ekki er ótrú-
legt að einhverjir muni i framtíð-
inni ylja sér við minningar þegar
bókunum er flett. Heimildargildi
slíkra bóka er einnig ótvirætt og
verður vafalaust oft til þeirra grip-
ið og í þær vitnað þegar afla þarf
upplýsinga um eitthvað er gerðist
á þeim árum sem bækurnar taka
til.
Víðir Sigurðsson rekur atburði
íslenskrar knattspyrnu árið 1985
mjög ítarlega. Hann beinir ekki
aðeins kastljósi sínu að meiri hátt-
ar viðburðum eins og landsleikj-
um, Evrópuleikjum og 1. deildar
keppninni heldur fjallar einnig um
keppni í öðrum deildum og greinir
frá úrslitum í leikjum hinna yngri.
Slikt eykur vitanlega mjög gildi
STÓRA HUNDABÓK
Ein veglegasta bók sem séð hefur
dagsljósið (og jólaljósin) í áraraðir.
Því er Stóra Hundabókin í sérflokki
sem vegleg vinargjöf. En hún er auk
þess geysiiega efnismikil bók og því
eru margir sem útvega sér hana til að
gefa sjálfum sér í jólagjöf. Sanniö til
góðir hálsar, hún vekur athygli og
verðskuldaða ánægju.
STÓRA HUNDABÓKIN
Hafsjór af fróðleik um hundana, þessa
tryggustu vini mannsins.
Lýsing í máli og myndum á 200 mismunandi
hundakynum heims.
Leiðbeiningar um hundahald, uppeldi og
þjálfun hundsins, svo hann verði góður fé-
lagi og vinur.
þessarar bókar. Þótt aðal athyglin
beinist jafnan að keppni þeirra
bestu og baráttunni um titlana þá
má það ekki gleymast að mjög
mikið starf fer fram á öðrum vett-
vangi og að því er vert að gefa
gaum og meta það að verðleikum.
Það er ekki langt síðan íþróttir
voru litnar hálfgerðu hornauga og
taldar tilgangslaust sprikl. Nú
hefur sem betur fer orðið viðhorfs-
breyting. íþróttir eru taldar nauð-
synlegur og mikilvægur þáttur í
menningarlífi þjóða. Það þarf því
að gefa öllu starfinu gaum. íþrótt-
um má líkja við ísjakann. Það sem
oftast er í fréttum er sá hluti sem
stendur upp úr og sést á yfirborð-
inu en undir er langtum stærri
hluti jakans.
Víðir skiptir bók sinni í nokkra
kafla. Fjallar hann um keppni í
hverri deild fyrir sig, greinir frá
úrslitum leikja og kynnir liðin sem
léku. Þetta gerir bókina mjög svo
aðgengilega og auðveldara að
finna það sem að er leitað. Hann
hefur greinilega lagt mikla vinnu
í að safna saman upplýsingum því
þótt leikskýrslur séu skráðar yfir
alla leiki sem fram fara i opin-
berum mótum hefur hann þurft
að vinna upp úr þeim, telja saman
leiki og sannreyna úrslit. Allt
þetta er mjög vel og samviskusam-
lega unnið hjá höfundinum og
gerir bókina að merkri heimild um
íslenska knattspyrnu. Landsleikir
allra landsliða okkar, svo og Evr-
ópuleikir fá verðugt rými og sér-
kaflar eru í bókinni um íslenska
knattspyrnumenn sem leika með
iiðum erlendis og í bókarlok er
síðan fjallað um upphafsár knatt-
spyrnunnar á Íslandi. Uppsetning
bókarinnar er einkar lífleg. Gifur-
legur fjöldi ágætra ljósmynda er
i bókinni og eiga þær sinn þátt i
þvi að gera hana aðgengilega, ekki
síst fyrir unga lesendur. Þá eru
litmyndir af öllum liðum sem
hlutu meistaratitlana á árinu.
Sem heimildarit er bókin íslensk
knattspyrna 1985 gott rit. Texti
bókarinnar er liflega skrifaður en
samt hlutlaust. Þeir sem lesa og
skoða bókina fá mjög gott yfirlit
yfir allar staðreyndir íslenskrar
knattspyrnu en helst er gagnrýni
vert að höfundurinn gefur ekki
meira af sjálfum sér í bókinni.
Skrifar fréttaskýringar ef þannig
má að orði komast. Viðir Sigurðs-
son hefur sýnt það með íþrótta-
skrifum sinum að hann fylgist
mjög vel með og hefur gott mat á
þvi sem er að gerast. Hann skrifar
nokkur stutt innskot frá eigin
brjósti í bókinni en þær greinar
hefðu að skaðlausu mátt verða
fyrirferðarmeiri og ítarlegri. Að
slíkum skýringum væri mikið gagn
þegar fennt hefur í sporin og menn
velta ýmsu sem gerðist í knatt-
spyrnunni árið 1985 fyrir sér.
Þannig er t.d. um hið margfræga
„Jónsmál" sem tæpt er á í bókinni
en lítið hugleitt hvaða áhrif það
hafði í raun og veru og hve ein-
kennileg niðurstaða þess varð ef
miðað er við það er gerðist er
Vestmanneyingar voru sendir nið-
ur í 2. deild árið 1983 fyrir hlið-
stætt „afbrot".