Morgunblaðið - 20.12.1985, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Nýkomiðmikiðúrval
afmyndumfrá
C-ogG-Biileder
BORGAR
húsqöqn
Hreyfilshúsinu
við Grensásveg.
Siinar 686070 og 685944
Frystigeymslan við hlið Hraðfrystihúss Tálknafjarðar tekur um 50 þúsund kassa af fiski.
Tálknafjörður:
Hraðfrystihúsið bygg-
ir stóra frystigeymslu
TálknafirAi, 18. desember.
í JÍJNÍ sl. var hafin bygging frystigeymslu hjá Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar
hf., en undanfarin ár hefur það valdið erfiðleikum í starfsemi frystihússins
hve eldri frystigeymslur eru litlar, en þær taka ekki með góðu móti nema
um 15 þúsund kassa. Flatarmál nýju geymslunnar er um 500 fm (4.255
rúmmetrar) og væntanlegt geymslurými um 50 þúsund kassar, sem raðað
verður á bretti. Eykur þetta mjög alla hagræðingu og hraða við útskipun,
þar sem nú verður hægt að beita lyfturum til flutnings úr geymslunni beint
um borð í skip, þar sem frystihúsið er staðsett á hafnarsvæðinu.
Byggingin er þegar fokheld með
járni á þaki, áætlað kostnaðarverð
nú í haust á fullgerðri geymslunni
er 20—22 milljónir króna. Með
þessari viðbyggingu myndast
miklar möguleikar á stækkun
vinnslu- og vélasala frystihussins,
þegar eldri frystigeymslur verða
teknar undir þá starfsemi, sem
væntanlega verður lokaáfangi
þessara framkvæmda. Verktaki er
Trésmiðjan Eik sf., Tálknafirði,
og hefur verkinu miðað samkvæmt
áætlun.
Hraðfrystihús Tálknafjarðar hf.
fær hráefni sitt frá eigin togara,
bv. Tálknfirðingi, sem keyptur var
nýr frá Noregi árið 1979, og hefur
reynst mesta happaskip. Starfs-
menn frystihússins eru nú um 90
og er framleiðslan eingöngu fryst-
ur fiskur sem að magni til var 72
þúsund kassar árið 1984. Lítil
fiskimjölsverksmiðja var rekin á
vegum frystihússins þar til haust-
ið 1984 að hún brann og hefur
ekki verið endurbyggð.
Árið 1947 var fyrst byggt frysti-
hús hér á Tálknafirði, það brann
árið 1957 og var þá endurbyggt í
núverandi mynd. Framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Tálknafjarð-
ar hf. og aðalhvatamaður að stofn-
un þess var Albert Guðmundsson,
en hann lést árið 1967, fram-
kvæmdastjóri síðan þá er Pétur
Þorsteinsson.
Auk Hraðfrystihúss Tálkna-
fjarðar eru rekin hér nokkur önnur
fyrirtæki, svo sem Þórsberg hf.,
sem starfrækir saltfiskverkun og
gerir auk þess út tvö báta. Hjá
Vélsmiðju Tálknafjarðar hf. og
Trésmiðjunni Eik sf. starfa að
jafnaði 8—10 manns hjá hvoru
fyrirtæki. Laxarækt er hér í örum
vexti og einnig eru starfandi nokk-
ur smærri fyrirtæki.
f allt eru gerðir út héðan 7 þil-
farsbátar og nokkrir smábátar auk
togarans. Tálknfirðingur er eini
vestfirski togarinn sem hefur
sóknarmark og er útlit fyrir að
afli verði ca. 4.200 tonn í ár. Und-
anfarin 20 ár hefur verið hér næg
atvinna, svo að varla hefur fallið
úr dagur og hefur orðið að flytja
inn erlent verkafólk til að anna
vinnslunni.
Síðastliðin tvö ár hefur fremur
lítið verið byggt af íbúarhúsum
eftir mikla uppbyggingu árin þar
á undan. tbúafjöldi var í árslok
1984 um 380 manns.
— JB.
Leiðrétting:
Hitaveita
Akureyrar
í forystugrein Morgunblaðsins í
gær, fimmtudag, er fjallað um hug-
mynd Sigurðar J. Sigurðssonar,
bæjarfulltrúa á Akureyri, þess efnis,
að kaupstaðurinn selji eignarhluta
sinn í Landsvirkjun til að styrkja
eiginfjárstöðu Hitaveitu Akureyrar,
sem býr við miklar skuldir og hátt
heitavatnsverð til neytenda.
í greininni er vikið að verðjöfn-
unargjaldi, sem Akureyringar
greiða ofan á hátt orkuverð. Hér
er að sjálfsögðu átt við verðjöfnun-
argjald á raforku, en Akureyrar-
kaupstaður á og rekur tvær orku-
stofnanir, hitaveitu og rafveitu.
Orðalag er hinsvegar á þann veg
að ætla má að verðjöfnunargjaldið
bætist við heitavatnsverðið. Það
leiðréttist hér með.
J Læf Stærð m 0.75—100 óla ista verð á ma Rauðgreni kr. 270.- tré rkaðinum Þinur 820.- Fjaliafura
1.01 — 1.25 kr. 440.- 1.010.-
1.26—1.50 kr. 620.- 1.280.-
1.51 — 1.75 kr. 820.- 1.570.- 1.150.-
1.76—2.00 kr. 1.100.- 2.180.- 1.450.-
2.01—2.50 kr. 1.310.- 2.560.-
Leiöisvendir kr. 490.- /Tlft Leiöiskrossar kr. 780.- ÆlíycV2)|VA\ Leiðiskerti kr. 49,-