Morgunblaðið - 20.12.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
27
Kvennaráð
eru ísköld
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Fay WeMon: Ævi og ástír kvendjöfuls
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi
Útgefandi Forlagið 1985.
MARGIR lesendur kannast án efa
við Fay Weldon, bækur hennar
hafa vakið mikla athygli á síðustu
árum og að minnsta kosti ein,
Praxis, komið út á íslenzku. í henni
var áleitin spurningin um stöðu
konunnar gagnvart karlmannin-
um og ég man mér fannst hún
skyld þeirri umtöluðu bók Kvenna-
klósettinu.
Ævi og ástir kvendjöfuls er hins
vegar engri bók lík, alténd ekki af
þeim sem ég hef lesið eftir Fay
Weldon.
Rut og Bobó búa i hjónabandi
og eiga tvö börn. Rut er einstak-
lega ólánlegur kvenmaður i útliti,
alltof há vexti og auk þess feiknar-
lega ófríð. Bobbó virðist vera ljóm-
andi myndarlegur og hann fer að
halda við Mary Fisher sem býr i
Háaturni. Þrátt fyrir að þau hjón
hafa einhvern tíma komið sér
saman um að hafa hjónabandið
„opið“ getur Rut ekki sætt sig við
það þegar alvara færist í leikinn
milli Bobbós og Mary Fisher i
Háaturni. Og þegar hann yfirgefur
hana grípur hún til sinna ráða:
Hún kveikir í húsinu þeirra svo
að börnin eiga engan samastað.
Ergo: Hún fer með börnin til
hjúanna i Háaturni, þeim til
óskiptrar hrellingar og truflunar.
Hún fær vinnu á elliheimili þar
sem karlæg móðir Mary Fisher er
og býr þannig um hnútana af hinni
mestu slægð að gamla konan verð-
ur að fara af heimilinu. Og hvert
á hún að leita? Nema til dóttur
sinnar Mary Fisher og Bobbós í
Háaturni.
En þetta dugar ekki til að svala
hefndarþorsta Rutar. Hún lærir
bókfærslu í snatri og af því hún
hefur enn lykil að endurskoðenda-
skrifstofu Bobbós er henni nú í lófa
lagið að dunda sér við það að
breyta bókhaldinu og færir meðal
annars nokkrar milljónir yfir á
sérstakan reikning fyrir sig, sem
hún ætlar að nota í ákveðnu
augnamiði. Bobbó er dæmdur í
fangelsi í sjö ár.
Mary Fisher hefur fengizt við
að skrifa reyfara, en henni er að
fatast flugið í öllum þessum þreng-
ingum, sem yfir dynja. Og skyldi
engan undra. Rut kemur sér í
kynni við guðsmann, sem síðar
leitar Mary Fisher uppi og hefur
þau áhrif á brenglað geð hennar,
að ferli hennar sem höfundar er
endanlega lokið.
En samt er aðalhefndaraðgerðin
enn ógerð og nú hefst Rut handa
fyrir alvöru.
Þann kafla er kannski ekki vert
að rekja. En velta má fyrir sér
hvað vaki fyrir Fay Weldon í þess-
ari bók: er hún að segja sögu ólán-
samrar konu sem verður að ná
fram hefndum vegna þess sárs-
auka sem Mary Fisher og Bobbó
hafa valdið henni? Er hún að fjalla
um hefndina sem slíka og hversu
sterkt afl hún er í manneskjunni
almennt? Eða er hún að segja eins
konar súrrealíska dæmisögu? Le-
sanda skal látið eftir að dæma um
það. En Fay Weldon bregst ekki
ritleiknin frekar en fyrri daginn
þótt maður sé kannski hvorki sátt-
ur við efnið né boðskapinn — hver
sem hann er.
Mér sýnist þýðandi hafi komizt
vel frá sínu verki, sem án efa hefur
ekki verið neitt áhlaupaverk.
H
öfóar til
_____fólks í öllum
starfsgreinum!
L t f/lfM/ ÍÁ} ' )
* * 3?
Vj-
1*
• JXíí E r-ÆS;. -
« ■ ' ■
<** s|t‘ *
v * * 4 .A
5 * *'
£'**.*/
>N
REYKJAVÍKURKORT DAGATAL 1986
GOMUL
REYKJAVÍKUR-
KORT
Árbæjarsafn og 200 ára Afmælisnefnd Reykja-
víkur hafa gefið út stórmerkilegt litprentað
dagatal fyrir árið 1986.
Á dagatalinu eru 12 kort frá árunum 1715 til
dagsins í dag, auk bráðfallegs korts Benedikts
Gröndal frá 1876. Árbæjarsafn hefur dregið
þessi kort fram í dagsljósið og haft umsjón með
útgáfunni. Sum þessara korta hafa ekki fyrr
verið birt almenningi þ.m.t. áðumefnt kort
Ben. Gröndal.
Hér er um stórmerka og forvitnilega útgáfu að
Árbæjarsafn
ræða. Fróðlegt er að sjá á kortunum Reykjavík
þróast úr þorpi í þá borg sem hún er í dag. Skýr-
ingartextar eru á íslensku og ensku og því til-
vaíin gjöf til kunningja og viðskiptavina hér
heima sem erlendis.
Dagatalið fæst í bókaverslunum, hjá Sögu-
félaginu og á Árbæjarsafni, en safnið sér um
dreifingu. Utsöluverð er kr. 400.-.
Einstaklingar og fyrirtæki: Tryggið ykkur ein-
tökáðurenupplagþrýtur. Sími 84412
/ /) Afmælisnefnd
Reykjavíkur