Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985 Fyrsti ósigur Kasparovs sem heimsmeistara Skák Margeir Pétursson Það reyndist fullsnemmt að af- skrifa möguleika Jans Timman í einvíginu við Gary Kasparov, heims- meistara, þó Hollendingurinn hafi tapað tveimur fyrstu skákunum. í þriðju skákinni, sem tefld var á þriðjudaginn, gerði Timman sér lítið fyrir og lagði Kasparov að velli í 42 leikjum, eftir æsispennandi bar- áttu í lokin. Þetta er fyrsta tapskák Kasparovs eftir að hann varð heims- meistari í skák fyrir rúmum mánuði síðan. Það er hollenska sjónvarps- og útvarpsstöðin KRO, sem heldur einvígið í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Sigur Timmans í þriðju skák- inni kom mjög á óvart, því fyrstu tvær skákirnar hafði heimsmeist- arinn teflt frábærlega vel og í annarri skákinni beið Hollending- urinn algjört afhroð. Þá átti hann gjörtapað tafl eftir aðeins tuttugu leiki. Timman fór rólega af stað í þriðju skákinni, sem tefldist eins og sú fyrsta, allt fram í 23. leik, er Timman breytti út af. í 30. leik hleypi hann síðan öllu í bál og brand, fórnaði skiptamun fyrir sókn gegn kóngi heimsmeistar- ans. Síðan fórnaði Timman ridd- ara í 32. leik. „Sóknin var byggð á misskilningi,“ sagði hann eftir á, en samt sem áður fataðist Kasparov vörnin og er Sovét- maðurinn gafst upp i 42. leik lá fyrir að hann myndi tapa drottn- ingunni. Hollenskir skákfrömuðir voru að vonum ánægðir með þá hörku Timmans, að leggja allt undir, eftir ófarirnar í tveimur fyrstu skákunum. Hefði Kasparov fund- ið réttu vörnina hefði hann líklega unnið þriðju skákina í röð. „Nú er Timman laus úr álögum og hann gæti ennþá unnið einvígið," sagði Jos Timmer hjá KRO-stöð- inni. „Það er ekki að ástæðulausu að Timman er einn þeirra fjög- urra sem berjast um réttinn á heimsmeistaraeinvígi næsta haust," bætti hann við. Þetta einvígi, sem er ekki liður í heimsmeistarakeppninni, er nú hálfnað. Fjórðu skákina átti að tefla í gær, fimmtudag, þá fimmtu í dag og þá síðustu á sunnudaginn. Þriðja einvígisskákin: Hvítt: Jan Timman Svart: Gary Kasparov Spænski leikurinn I. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. 04) — Be7, 6. Hel — b5, 7. Bb3 — d6, 8. c3 — 04), 9. h3 — Bb7, 10. d4 — He8, II. Rg5 — HI8,12. RH — He8 Riddaraflandur hvíts þjónaði þeim tilgangi einum að færa hann nær tímakörkunum. 13. Rbd2 — Bf8, 14. a3 — h6, 15. Bc2 — Rb8, 16. b4 — Rbd7, 17. Bb2 — g6, 18. c4 — exd4, 19. cxb5 — axb5, 20. Rxd4 — c6, 21. a4 — bxa4,22. Bxa4 — Db6 Þessi staða kom einnig upp í fyrstu skákinni. Þá lék Timman b4-b5, sem leiddi ekki til neins, svo nú breytir hann út af. 23. Rc2 — Dc7, 24. Bb3 — Ba6, 25. Hcl — Bg7, 26. Re3 — Bb5, 27. Rd5! - Rxd5, 28. Bxg7 - Kxg7, 29. exd5 — Re5 De7, 34. f3 hefur hvítur töluvert spil fyrir skiptamuninn, en það er hins vegar mjög erfitt að sjá hvernig hvitur hefur ætlað að halda áfram sókninni eftir 31. — De7!, sem kemur drottningunni í vörnina og heldur gafflinum á hvítu hrókana. 32. Rf6!! 32. Dc3+ — He5! leiddi hins vegar ekki til neins. — Hxel+, 33. Hxel — Kxf6, 34. Dc3+ — Re5 Það var ekki fýsilegt að fara með kónginn út á borðið, svo Kasparov ákveður að gefa mann- inn til baka. • b c d I 9 •« Fram að þessu hefur allt gengið eðlilega fyrir sig. Svartur hótar 30. — Rd3 og nú hefði verið örugg- asti að leika 31. Rc4 og skákin myndi fljótlega fjara út í jafn- tefli. En í staðinn velur Timman afskaplega djarft framhald. Kasparov átti nú aðeins 17 mínút- ur eftir á klukkunni. 30. Re4!? — Rd3,31. Dd2 Ekki 31. dxc6? — f5! og svartur vinnur. — Ha3? Svo virðist sem Kasparov hafi yfirsézt næsti leikur hvíts. Eftir 31. - Rxcl!, 32. Dd4+ - f6!, 33. Hxcl (hvítur kemst ekkert lengra áleiðis eftir 33. Dxf6+ — Kh7) — 35. - Ba4?? Aftur sneiðir Kasparov hjá eðlilegum og góðum leikjum og nú kostar það hann skákina. Vafalaust mátti enn halda jafn- tefli með 35. — Kg7, 36. fxe5 — dxe5, því 37. Hxe5 gengur auðvit- að ekki vegna 37. — Hxb3. Hvítur yrði þar af leiðandi að leika 37. Db2 — Da6+, 38. Khl — cxdö eða 37. Khl, en í báðum tilfellum er jafntefli líklegasta niðurstaðan. 36. fxe5+ — dxe5,37. d6! Vinningsleikurinn — Dxd6 Svartur er einnig varnarlaus eftir 37. — Da7+, 38. Khl. 38. Df3+ - Ke7, 39. Dxf7+ - Kd8, 40. Hdl — Hal, 41. Df6+ og Kasparov gafst upp. E.t.v. hefur heimsmeistarinn ofmetnast eftir velgengnina í upphafi, a.m.k. tefldi hann vörn- ina af of mikilli bjartsýni og það er sjaldgæft að Kasparov verði á jafn grófar yfirsjónir og í loka- kafla þessarar skákar. HE-MAN Barnaskyrtur St. 1V/2-14 kr. 690.- Barnapeysa kr. 590.- iöf barnanna íár Morgunbladid/SigJóns. Verðlaunahafar í ritgerðasamkeppninni: Ingibjörg Lára Hjartardóttir, Þór- halla Andrésdóttir, Auður Ágústa Ágústsdóttir og Hildur Arnadóttir, ásamt fulltrúum í framkvæmdanefnd. Sala hvíta pennans: 600 þúsund út- hlutað í þágu aldr- aðra á Suðurlandi Selfossi, 16. desember. 8.559 hvítir pennar seldust á Suðurlandi dagana 8.—9. nóvem- ber sl. þegar fram fór söfnun í þágu aldraðra. Til úthlutunar hjá framkvæmdanefnd söfnunarinnar komu kr. 600 þúsund, sem skiputst á 6 staði. Framkvæmdanefnd söfnunar í þágu aldraðra á Suðurlandi hélt fund 13. desember sl. í safnaöarheimili Selfosskirkju og kynnti árangur söfnunarinnar og úthlutun fjárins. Þá voru kynnt úrslit í ritgerðasamkeppni grunnskólanema á Suðurlandi og bestu ritgerðirnar lesnar upp. Til félagslegrar aðstoðar og þjónustu við aldraðra var úthlutað kr. 50 þús. á hvern eftirtaldra staða: Kirkjubæjarklaustur, Vík, Hvolsvöll og Hellu. Til heimilis aldraðra á Blesa- stöðum á Skeiðum var úhlutað kr. 100 þúsund. Til uppbyggingar langlegudeildar við Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi var úthlutað 300 þúsundum ásamt því sem síðar kann að skila sér af söfnuninni. Þetta framlag til langlegudeild- arinnar er ákveðin viljayfirlýsing um að framkvæmdir hefjist. Nefndin lítur á framlag þetta sem hlut Sunnlendinga á móti framlagi Barnabuxur margir litir kr. 980.- Barna-jogging-gallar 50% bómull — 50% akríl. Litur grár Kr. 690.- Herra ullarbuxur Kr. 1290—1490.- Herra ullar- peysur kr. 1190.- Dömupeysur, blússur, jogging-gallar, úlpur. Dömu- og herra- buxurímiklu úrvali. Opið frá kl. 10—22 Grandagarði 3, Rvík. s. 29190, Mánagötu 1, Isaf. s. 94-4669, Egilsbraut 5. Neskaupst. s. 97-7732, Eyrarvegi 17, Selfossi s. 99- 1283. ríkissjoðs, en í slík verkefni er framlag heimaaðila 15% af kostn- aði en ríkis85%. Fyrstu verðlaun í ritgerðasam- keppni sem fram fór í grunnskól- um á Suðurlandi, í Árnes-, Rang- árvalla- og Vestur-Skaftafells- sýslu, hlaut fyrstu verðlaun Auður Agústa Hermannsdóttir, 12 ára í barnaskólanum á Selfossi, fyrir ritgerð sem bar heitið Æskan hjálpar öldruðum. Önnur verðlaun hlaut Hildur Árnadóttir í 9. bekk á Hvolsvelli, hennar ritgerð bar nafnið Hugleið- inggamals manns. Ingibjörg Lára Hjartardóttir, 12 ára í Ljósafosskóla, hlaut 3. verð- laun fyrir ritgerðina Hvað getum við gert fyrir aldraða? Aukaverð- laun voru veitt Þórhöllu Andrés- dóttur, 12 ára frá Selfossi, fyrir ritgerðina Æska og elli. Verðlaun- in voru bækur frá Iðunni, Erni og örlygi, Vöku og Helgafelli. Auk verðlaunahafanna hlutu 7 skólar bókaverðlaun sem viðurkenningu fyrir ritgerðar nemanda þaðan. Framkvæmdanefnd söfnunar í þágu aldraðra á Suðurlandi var skipuð þeim sr. Halldór Gunnars- syni, Holti, Rang., Grétari Jóns- syni, Selfossi, og Böðvari Pálssyni, Búrfelli, Grímsnesi. Halldór Gunnarsson formaður nefndarinnar sagði að með út- hlutun söfnunarfjárins vænti nefndin þess að hafa komið til móts við þær óskir sem fram hafa komið um að hvíti penninn mætti hjálpa öldruðum og styðja það góða verk sem víða væri unnið í þeirra þágu á Suðurlandi. SigJóns. $6777 AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTA HF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.