Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Bandaríkjaþing:
N iður skurðarfr um-
varpið strandaði
á skattaákvæðum
Washington, 19. deaember. AP.
FULLTRUAR fjárveitinganefnda
beggja deilda Bandaríkjaþings
hlupu til í gsr og freistuðu þess að
koma í gegnum þingið frumvarpi
um niðurskurð opinberra útgjalda
og skattahækkanir. Markmið frum-
varpsins var að minnka hallann á
bandarísku fjárlögunum um 80
Disneyland í
Frakklandi
Burhank, kalirorníu, 19. desember. AP.
WALT Disney fyritskið hefur und-
irritað samning við frönsk stjórn-
völd um að evrópsku Disneylandi
verði komið upp í einu úthverfa
Parísar eða í Marne-La-Vallee, um
36 kílómetra austur af París.
Spánn hafði einnig hug á að fá
skemmtigarðinn, en Frakkar urðu
hlutskarpari. Samningurinn þýðir
að þúsundir starfa munu skapast
í Frakklandi, enda um milljaröa-
fjárfestingu að ræða, auk þess sem
búast má við að ferðamanna-
straumur aukist. Þetta er fjórði
skemmtigarður Disneyfyrirtækj-
anna. Sá fyrsti í Kaliforníu var
opnaður 1955, annar í Flórida 1971
og sá þriðji í Tókýó í Japan 1983.
Búist er við að garðurinn í Frakk-
landi verði opnaður 1990—91.
milljarða dollara á næstu þremur
árum.
í þingdeildunum náðist bráða-
birgðasamkomulag — eftir
tveggja vikna samningaþóf — um
yfir 51 milljarðs dollara niður-
skurð á næstu þremur árum. En
við lokaumræðuna strandaði af-
greiðsla frumvarpsins á deilum um
skattaákvæði þess, þ.á m. um til-
lögu öldungadeildarinnar um
framleiðslugjald til að standa
undir kostnaði við að fjarlægja
eiturefnaúrgang.
„Eg veit ekki, hvert framhaldið
verður nú,“ sagði Bob Packwood,
formaður fjárveitinganefndar öld-
ungadeildarinnar, þegar fulitrúa-
deildarþingmenn mættu ekki á
samningafund, þar sem reyna átti
að leysa ágreiningsefnin.
Dan Rostenkowski, formaður
fjárveitinganefndar fulltrúadeild-
arinnar, sem var oddviti samn-
inganefndar fulltrúadeilarinnar,
hóf þess í stað að vinna að fram-
gangi annars frumvarps, sem
miðar að því, að gildistími ýmissa
laga, sem eru um það bil að falla
úr gildi, verði framlengdur til 15.
mars. Verði þetta frumvarp sam-
þykkt, gerir það þingmönnum
kleift að fara í jólaleyfi og hefja
nýja skoðun fjárlagamálsins eftir
áramót.
Kólombía:
Snarpur jarðskjálfti
veldur skelfingu
BofoU, Kólombtu, 19. desember. AP.
SNARPtJR jarðskjálfti fór um stór-
an hluta Kólombíu á miðvikudag og
var sterkastur í grennd við landa-
mæri Venezuela. Fyrstu fregnir um
jarðskjálftann greindu ekki frá
dauðsföllum eða eignatjóni af völd-
um hans en fólk í nokkrum borgum
hljóp út á götur í örvæntingu er
skjálftinn stóð sem hæst.
Jarðskjálftinn, sem mældist 5,2
stig á Richter kvarða, átti upptök
sín um 273 km austur af Bogoda,
í grennd við borgina Bucarmanga,
að sögn talsmanns Andeanjarð-
fræðistofnunarinnar.
Frá síðustu för Columbiu.
('anaverml-höröa, 19. desember. AP.
Geimskoti frestað
GEIMSKOTI geimskutlunnar Kólumbíu var frestað aðeins 14 sekúndum áður en hún átti að hefja sig til
lofts, vegna vandamála sem komu upp í sambandi við stýrieldflaugar skutlunnar. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær næsta tilraun til geimskots verður gerð.
Meðal sjö manna áhafnar flaugarinnar er þingmaður frá Florida. Áhöfnin yfirgaf flaugina hálfum tíma eftir
frestun geimskotsins og héldu til búða sinna til að bíða annarrar tilraunar. í þessari ferð er áhöfninni ætlað
að koma fyrir gervihnetti, taka myndir af halastjörnu Halleys, auk annars.
Sovétríkin:
Yevtushenko gagnrýnir
forréttindi og sögufölsun
Moskvu, 19. desember. AP.
í R/EDU, sem sovéska skáldið Yevgeny Yevtushenko hélt nýlega á þingi
sovéskra rithöfunda, vék hann á óbeinan hátt að og gagnrýndi ritskoðun-
ina í Sovétríkjunum og önnur þjóðfélagsmein og hvatti til aukins frelsis
í landinu.
í ræðunni, sem Yevtushenko
flutti 12. des. sl., nefnir hann
„miskunnarlausa útrýmingu"
Stalíns á andófsmönnum, mennta-
mönnum og mörgum hershöfðingj-
um Rauða hersins án þess þó að
nefna Josef Stalín á nafn.
Yevtushenko er það Ijóðskáld
sovéskt, sem kunnast er erlendis,
en hann vakti fyrst á sér athygli
á sjötta áratugnum með því að
yrkja um efni, sem jafnan hafa
verið talin forboðin í Sovétríkjun-
um.
Yevtushenko fór af stað með
hefðbundnum hætti í ræðu sinni,
lofaði Lenin og fór með nokkrar
kommúnískar trúarjátningar, en
að því búnu tók hann að gagnrýna
það, sem honum þótti miður fara
í landinu. Réðst hann t.d. harka-
lega á matarskömmtunina í bæj-
um og þorpum í Sovétríkjunum og
á forréttindin, sem hinir útvöldu
njóta.
„Það er siðferðilega rangt, að
fámenn forréttindastétt skuli hafa
betri aðgang en aðrir að mat og
neysluvörum og öðrum fríðindum.
Við þurfum ekki að leita langt yfir
skammt. I vösunum höfum við
allir, sem erum á þessu þingi, sér-
stakt kort og með því að framvísa
því fáum við að versla í vissum
verslunum," sagði Yevtushenko.
Yevtushenko hvatti til, að tján-
Yevgeny Yevtushenko
ingarfrelsið yrði aukið og fór hörð-
um orðum um opinbera söguföls-
Stjörnuspámenn féllu
á stjörnuspekiprófi
Su PranrÍHCo, 18. desember. Frá Magnus] Þriodi Þóróarayni, frétUriUra MorKunblaóeins.
EÐLISFRÆÐINGUR við Lawrence-tilraunastöðina í Berkeley hefur flett
ofan af stjörnuspekingum og stjörnukortagerðarmönnum. Hann tók 28
virtustu stjörnuspámenn heims í landhelgi og felldi þá á eigin bragði.
Stjörnuspár eru líklega eitt víðlesnasta efni blaða og tímarita. Fjöldi
fólks fer ekki út úr húsi, fyrr en búið er að kanna spá dagsins, svo að
hægt sé að haga gerðum sínum í samræmi við spána. Margir hafa líka
tröllatrú á stjörnukortum og halda, að persónueinkenni og framtíð fólks
ráðist af stöðu stjarnanna á því
dagsins Ijós.
Vísindamenn hafa gefið lítið
fyrir þessa speki og talið fyrir
neðan virðingu sína að sinna
þessari grein stjarn- og sálvís-
inda. Því er öðruvísi farið um
Shawn nokkurn Carlson. Carlson
er atvinnutöframaður og vann
fyrir sér með töfrabrögðum, á
meðan hann stundaði nám í eðl-
isfræði við Kaliforníuháskóla.
Carlson hafði áhuga á að prófa
stjörnuspámenn á vísindalegan
hátt og leitaði samstarfs við
stéttina sjálfa. Því var vel tekið.
Var ákveðið að semja próf í þessu
efni. Helztu leiðtogar atvinnu-
augnabliki, er einstaklingurinn sér
stjörnuspámanna veittu fulltingi
sitt. Stéttarfélag þeirra, stjörnu-
spádómarannsóknarfélag
Bandaríkjanna, lýsti því yfir að
prófið væri sanngjarnt. Prófinu
var enda ætlað að sanna, að
stjörnuspekingar væru ekta.
Leiddir voru fram 28 fremstu
stjörnuspámenn í Evrópu og
Ameríku. Því var haldið fram af
stéttarfélaginu, að þeir gætu og
myndu skilgreina nákvæmlega
eðli og skapgerð fólks, án þess
nokkurn tíma að hitta viðkom-
andi, en eingöngu með þvi að
teikna og lesa úr stjörnukortum
hvers og eins. Þeir féllu á próf-
inu. Spekingarnir reyndu hæfi-
leika sína á 126 einstaklingum
og reyndust hafa rangt fyrir sér
um tvo af hverjum þremur.
Hver stjörnuspekingur
spreytti sig á þremur einstakl-
ingum, sem áður höfðu verið
greindir samkvæmt aðferðum,
sem aðilar komu sér saman um.
Nokkrir sálfræðingar úr hópi
stjörnuspekinga hjálpuðu Carl-
son við þann hluta verksins. Þess
var gætt, að spurningar og stað-
reyndir gengju nægilega mikið á
víxl. Þannig var tryggt, að á báða
bóga væri útilokað að svindla.
Tveir spámannanna notuðu
stjörnuspátölvur við að kort-
leggja hinar óséðu sálir. Þess var
yfirleitt gætt í hvívetna að full
sanngimi ríkti gagnvart spá-
mönnunum, sem héldu því fram
að öll fyrri próf hafi verið hlut-
dræg í þeirra garð. Niðurstöð-
urnar voru síðan mjög vandlega
metnar og vegnar. Það kom spá-
mönnum þess vegna mjög á
óvart, að vopnið snerist í höndun-
um á þeim. Enginn þeirra hefur
enn viljað láta hafa eftir sér eitt
eða neitt um málið.
Árangurinn, þrjátíu prósent
rétt, er engu betri en handahófs-
aðferðin. Tilraun þessi greinilega
hrekur stjörnuspekikenningar
um að plánetur og fæðingarstað-
ur og tími ráði örlögum manna.
Miklu líklegra er, að aðrir þættir
ráði niðurstöðu stjörnuspá-
manna og viðskiptavinirnir opin-
beri sig að meira eða minna leyti
áður en kortalesturinn hefst.
Menn geta því óhræddir gengið
um gleðinnar dyr, því enn er í
fullu gildi, að hver er sinnar
gæfu smiður.
un.
„Okkur ber skylda til að þegja
ekki um liðna atburði. Skynsam-
legar hugmyndir millistéttar-
bænda og hinna rægðu kúlakka
(sjálfseignarbænda) voru troðnar
í svaðið og bestu mönnum flokks-
ins og bestu mönnum í hernum var
rutt úr vegi,“ sagði Yevtushenko
en þessar ofsóknir áttu sér stað á
dögum Stalíns.
TWA til sölu
New York, 19. desember. AP.
TRANS World Airlines er til sölu á
nýjan leik og flugfélögunum Amer-
ican Airlines, Northwest Airlines og
Resorts Airlines International, hef-
ur verið boðið að gera tilboð í félag-
ið, að sögn bandaríska dagblaðsins
The Wall Street Journal. Oljóst er
hvort félögin gera tilboð eða ekki.
Ekki tókst að ná í talsmenn
flugfélaganna til að fá álit þeirra
á þessum fregnum. Fjármálamaö-
urinn Carl Icahn, sem hefur umráð
yfir 51% hlutabréfa í TWA, hafði
ætlað sér að taka alveg yfir félagið
fyrir 24 dollara hlutinn, en honum
hefur ekki tekist aö ná saman þeim
850 milljónum dollara, sem til þess
þarf, vegna ótta fjárfestingaraðila
um stöðu fyrirtækisins, en það
tapaði 70 milljónum dollara fyrstu
níu mánuði þessa árs. TWA er
fjórða stærsta flugfélag Banda-
ríkjanna.