Morgunblaðið - 20.12.1985, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Svo óskaplega leiðinlegt
þegar menn eru leiðinlegir
— rætt við Valgeir Guðjónsson um plötu hans með lögum við ljóð Jóhannesar úr Kötlum
Valgeir (lengst til vinstri), Diddú og Ævar Kjartansson við hljóðritun á „Fugli dagsins". MorKunblaðlð/Arn> SæherK
„ÉG BYRJAÐI að semja þessi lög
eftir aö ég fór á skemmtilegt
kvöld með ákaflega snjöllum
norskum vísnasöngvurum á með-
an ég var þar ytra við nám fyrir
nokkrum árum. Þetta fór að verða
til eftir að ég kom heim þá um
kvöldið og smám saman urðu
þessar lagasmíðar einskonar tóm-
stundastarf - heilbrigð tómstunda-
iðja íslensks námsmanns erlendis,
bæði ódýr og holl! En það var ekki
fyrr en löngu seinna að ég fór að
hugsa um hvort ekki mætti gera
plötu með þessu efni.“
Það er Valgeir Guðjónsson
tónlistarmaður sem segir frá.
Frá honum er nýlega komin
einhver áheyrilegasta hljómplat-
an fyrir þessi jól, „Fugl dagsins",
þar sem á eru lög Valgeirs við
Ijóð eftir eitt af stórskáldum
þjóðarinnar á þessari öld, Jó-
hannes út Kötlum. Valgeir syng-
ur sjálfur ásamt þeim Sigrúnu
(Diddú) Hjálmtýsdóttur og
Ævari Kjartanssyni, sem til
þessa hefur verið betur kunnur
sem útvarpsþulur en söngvari -
en Valgeir telur þó með „fyrrver-
andi efnilegustu" samkvæmis-
söngvurum þessa lands.
Beint frá hjartanu
A meðan Valgeir nam félags-
ráðgjöf í Noregi samdi hann tugi
laga við ljóð Jóhannesar úr Kötl-
um. „Þetta gekk vel þegar ég var
kominn af stað og smám saman
færðist ég í aukana," segir hann.
„Þessi lágværa og órafmagnaða
tónlist stendur mér býsna nærri
- hún kemur meira frá hjartanu
en til dæmis rokkið. Þótt ég hafi
verið bendlaður við rytmagítar-
leik á undanförnum árum er ég
fyrst og fremst kassagítarleikari,
enda þykir mér það viðkunnalegt
þegar tónlistarmenn hafa ekki
hátt - þótt auðvitað sé ekki alltaf
hægt að hafa lágt. Allt þetta efni
var samið á kassagítar, eins og
raunar nær öll mín lög, meira
að segja ýmis Stuðmannalög,
sem hafa verið sett í margvísleg
gervi, svo sem íslenskir karl-
menn.“
Valgeir segir að það hafi ekki
verið einber tilviljun, að hann fór
að semja lög við ljóð Jóhannesar
úr Kötlum. „Það vildi svo til að
meðal örfárra bóka, sem ég hafði
með mér utan, voru ljóðabækur
hans. Og raunar ætlaði ég aldrei
að semja nein lög við þessi ljóð,
heldur aðeins að lesa mér til
sáluhjálpar og ánægju," segir
hann. „Svo hef ég náttúrlega
ekki gert lög við nema brot af
þessum kvæðum öllum. Þótt
þarna sé mikið af frábærri ljóð-
list, þá eru þau misjöfn eins og
önnur mannanna verk og svo eru
þau misvel fallin til að setja lög
við. Ég veiddi út úr þau, sem ég
var hrifinn af - en sum lét ég
eiga sig, eins og til dæmis Stal-
ínskvæðið fræga, um Kremlar-
bóndann „sem lagði útí heiminn
með lítinn geitarost", sem birt
er í Staksteinum í Morgunblað-
inu af og til. Það er náttúrlega
all svakalegt kvæði í ljósi sög-
unnar þótt það hafi ekki verið
það, þegar það var ort.“
Leitin að sann-
leikanum
— Var það eitthvað sérstakt
við þessi kvæði, sem kallaði til
þín öðru fremur? Eitthvað öðru
fremur, sem hreif þig með sér?
„Ætli ég hafi ekki verið hrifn-
astur af því hversu rækilega Jó-
hannes úr Kötlum leitaði sann-
leikans. Og það sem meira er:
hann leyfði sér að skipta um
skoðun, sem er meira en margir
þora. f bókum hans má greini-
lega sjá hvernig hann hefur farið
í gegnum tímabil, en alltaf er
hann heiðarlegur út í gegn, yrkir
jafnhendis um það, sem honum
þykir miður fara eins og hitt, sem
hann hrífst af. Hvergi gerir hann
tilraun til að fela skoðanir sínar,
einsognú er títt.“
— Nú hafa fáar plötur fyrir
þessi jól fengið jafn góða dóma
og „Fugl dagsins". Verður þú þá
ekki feitur og ríkur á öllu saman?
„Ég efast stórlega um að ég
verði ríkur og vona að ég verði
ekki of feitur. En það er rétt, að
ég hef fengið fallegt umtal og
mjög jákvæða dóma frá fólki á
öllum aldri. Það er vitaskuld
mjög skemmtilegt og skiptir mig
máli. Ég neita því ekkert. Það
er að mínu mati kostur við mús-
ík, ef hún gengur í fólk af ýmsum
stærðum og gerðum - og það má
vel segja um þessa tegund tón-
listar, að hvorki taktur hennar
né hávaði ætti að fæla frá.“
Auðvelt að vera
leiðinlegur
— Heldurðu að þú eigir eftir
að senda frá þér fleiri lög við
ljóð Jóhannesar?
„Ég vona það, því á „Fugli
dagsins" eru ekki nema fáein lög
af þeim, sem ég samdi forðum.
En hvort af því verður er annað
mál. Það ræðst af viðtökunum,
sem þessi plata fær - það er að
segja hversu vel hún selst. Það
er nefnilega þannig, að þótt lofið
sé gott, þá lifir enginn á því einu.
Markaðurinn er harður húsbóndi
en fyrir honum þarf maður að
hneigja sig, að minnsta kosti að
einhverju leyti. Og auðvitað eru
allir að höfða til einhverskonar
markaðar, hvort heldur það er
húsmæðramarkaðurinn, „önder-
gránd“-markaðurinn eða tísku-
markaðurinn. Þessi markaðs-
hyggja í tónlist setur mönnum
ákveðnar skorður, og hún kallar
ekki alltaf á það metnaðarfyllsta,
en það er líka hægt að gera sölu-
hæfa tónlist, sem jafnframt er
framsækin og listfeng. Það er
nefnilega enginn vandi að vera
leiðingur - en það er svo óskap-
lega leiöinlegt, þegar menn eru
leiðinlegir."
— ÓV.
Peningamarkadurinn
GENGIS-
SKRANING
Nr. 242 - -19. desember 1985
Kr. Kr. Toll-
Eín.Kl. 09.15 Kaup Sala jengi
Dollari 42,300 42,420 41,660
SLpund 60,108 60,279 61361
Kan.dollari 30,285 30,371 30,161
Dönskltr. 4,6129 4,6260 4,5283
Norskkr. 5,4924 5,5080 5,4611
Sænskkr. 5,4846 5,5002 5,4262
FLmark 7,6867 7,7085 7,6050
Fr. franki 5,4686 5,4842 53770
Bele. franki 0,9199 03223 0,8100
Sv.franki 19,9693 20,0260 19,9140
Holl. gyllini 14,7940 143917 143649
y-þ. mark iLlíra 16,7774 16,8250 16,3867
0,02459 0,02466 0,02423
Austurr. sch. 2,3878 23946 2,3323
Port escudo 0,2636 03643 03612
Sp.peseti 0,2693 03700 03654
f»Pjen 0,20862 030921 030713
írsktpund 51,627 51,774 50,661
8DR(SérsL 45,6959 453264 453689
y
INNLÁNSVEXTIR:
SparájóðtlMBkur................. 22,00%
Sparisióóareikningar
maó 3ja mánaóa uppaögn
Alþýðubankinn............. 25,00%
Búnaðarbankinn............ 25,00%
Iðnaðarbankinn........... 23,00%
Landsbankinn.............. 23,00%
Samvinnubankinn........... 25,00%
Sparisjóöir............... 25,00%
Útvegsbankinn............. 23,00%
Verzlunarbankinn.......... 25,00%
meó 6 mánaóa uppaögn
Alþýðubankinn............. 30,00%
BOnaðarbankinn............ 28,00%
Iðnaðarbankinn............ 28,00%
Samvinnubankinn........... 30,00%
Sparisjóðir............... 28,00%
Útvegsbankinn............. 29,00%
Verzlunarbankinn...........31,00%
meó 12 mánaóa uppsögn
Alþýóubankinn...............32J»%
Landsbankinn...............31,00%
Útvegsbankinn............. 32,00%
innianssKinemi
Alþýðubankinn............. 28,00%
Sparisjóðir............... 28,00%
Verðtryggóir reikningar
mióaó vió lánskjaravísitölu
meó 3ja mánaóa uppsögn
Alþýðubankinn................ 1,50%
Búnaðarbankinn............... 1,00%
lönaöarbankinn............... 1,00%
Landsbankinn................. 1,00%
Samvinnubankinn.............. 1,00%
Sparisjóöir.................. 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn............. 2,00%
meó 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 3,50%
Búnaðarbankinn............... 3,50%
Iðnaðarbankinn............... 3Í50%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn.............. 3,00%
Sparisjóðir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn............. 3,50%
meó 18 mánaóa uppsðgn:
Útvegsbankinn................ 7,00%
Ávísana- og hlaupareikningar:
Alþýðubankinn
— ávisanareikningar....... 17,00%
— hlaupareikningar.......... 10,00%
Búnaöarbankinn............... 8,00%
lönaöarbankinn............... 8,00%
Landsbankinn................. 10,00%
Samvinnubankinn.............. 8,00%
Sparisjóöir.................. 101»%
Útvegsbankinn................ 8,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
Stjömureikningar I, II, III
Alþýðubankinn................ 9,00%
Salnlán - heimilistán - B-lán - pkislán
meó 3ja til 5 mánaóa bindingu
lönaðarbankinn.............. 23,00%
Landsbankinn..................231»%
Sparisjóöir................. 25,00%
Samvinnubankinn............. 23,00%
Útvegsbankinn............... 23,00%
Verzlunarbankinn............ 25,00%
6 mánaóa bindingu aóa lengur
Iðnaðarbankinn............... 26,00%
Landsbankinn................ 23,00%
Sparisjóðir................. 28,00%
Útvegsbankinn............... 29,00%
Innlendir gjaldeyrisreikníngar:
Bandaríkjadollar
Alþýöubankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn............... 7,50%
lönaöarbankinn............... 7,00%
Landsbankinn................. 7,50%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir.................. 8,00%
Útvegsbankinn................ 7,50%
Verzlunarbankinn............. 7,50%
Sterlingspund
Alþýðubankinn.............. 11,50%
Búnaöarbankinn..............11,00%
lönaöarbankinn............. 11,00%
Landsbankinn............... 11,50%
Samvinnubankinn.............11,50%
Sparisjóðir................ 11,50%
Útvegsbankinn.............. 11,00%
Verzlunarbankinn............11,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýöubankinn............... 4,50%
Búnaðarbankinn.............. 4,25%
lönaöarbankinn.............. 4,00%
Landsbankinn................ 4,50%
Samvinnubankinn............. 4,50%
Sparisjóöir................. 4,50%
Útvegsbankinn............... 4,50%
Verzlunarbankinn............ 5,00%
Danskar krónur
Alþýðubankinn............... 9,50%
Búnaðarbankinn.............. 8,00%
lönaðarbankinn.............. 8,00%
Landsbankinn................ 9,00%
Samvinnubankinn............. 9,00%
Sparisjóöir................. 9,00%
Útvegsbankinn............... 9,00%
Verzlunarbankinn............10,00%
ÍJTLÁNSVEXTIR:
Almennir víxlar, forvextir
Landsbankinn............... 30,00%
Útvegsbankinn.............. 30,00%
Búnaöarbankinn............. 30,00%
lönaðarbankinn............. 30,00%
Verzlunarbankinn........... 30,00%
Samvinnubankinn..............301»%
Alþýðubankinn.............. 29,00%
Sparisjóöir.............. 30,00%
Vióskiptavíxlar
Alþýöubankinn.............. 32,50%
Landsbankinn...... ........ 32,50%
Búnaöarbankinn............. 34,00%
Sparisjóöir................. 32^0%
Yfirdráttarlán af hlaupareikningum:
Landsbankinn................31,50%
Útvegsbankinn.............. 31,50%
Búnaðarbankinn..............31,50%
lönaöarbankinn ............ 31,50%
Verzlunarbankinn............31,50%
Samvinnubankinn............ 31,50%
Alþýöubankinn.............. 31,50%
Sparisjóöir.................31,50%
Endurteijanieg lán
fyrir innlendan markaó........... 28,50%
lán í SDR vegna útfl.frami........ 9,50%
Bandaríkjadollar............ 9,50%
Sterlingspund.............. 12,75%
Vestur-þýsk mðrk............ 6,25%
CÞnMakaAl iilmann-
oKuiGðDr9T| aimenn.
Landsbankinn................ 32,00%
Útvegsbankinn............... 32,00%
Búnaðarbankinn.............. 32,00%
lönaöarbankinn.............. 32,00%
Verzlunarbankinn..............32,0%
Samvinnubankinn............. 32,00%
Alþýöubankinn............... 32,00%
Sparisjóöir................. 32,00%
Vióskiptaskuldabréh
Landsbankinn....... ........ 33,00%
Búnaöarbankinn.............. 35,00%
Sparisjóöirnir.............. 35,00%
Verótiyggö lán mióaó vió
lánskjaravísitölu
íallt að2'/?ár ........................ 4%
lengur en 2Vi ár....................... 5%
Vanskilavextir........................ 45%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefinfyrir 11.08.'84 ............ 32,00%
Lífeyrissjódslán:
Lífeyrissjóöur starfsmanna ríkis-
ins:
Lánsupphæð er nú 400 þúsund krón-
ur og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 5%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur
veriö skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veö er í er
lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt
lánstímann.
Greiöandi sjóösfélagar geta sótt
um lán úr lífeyrissjóönum ef þeir hafa
greitt iögjöld til sjóösins í tvö ár,
miöaö viö fullt starf. Biötími eftir láni
er sex mánuöir frá því umsókn berst
sjóönum.
Lífeyrisajóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir 3ja ára aöild
aö lífeyrissjóönum, 216.000 krónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast viö lániö 18.000 krónur,
unz sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild
aö sjóönum. A tímabilinu frá 5 til 10
ára sjóðsaðild bætast viö höfuöstól
leyfilegar lánsupphæöar 9.000 krón-
ur á hverjum ársfjóröungi, en eftir
10 ára sjóösaðild er lánsupphæöin
orðin 540.000 krónur. Eftir 10 ára
aðild bætast viö 4.500 krónur fyrir
hvern ársfjóröung sem líöur. Því er í
raun ekkert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
lánskjaravísitölu, en lánsupphæðin
ber nú 5% ársvexti. Lánstíminn er
10 til 32 ár aö vali lántakanda.
Þá lánar sjóðurinn méö skilyröum
sérstök lán til þeirra, sem eru eignast
sína fyrstu fasteign og hafa greitt til
sjóösins samfellt í 5 ár, kr. 590.000
til 37 ára.
Lánskjaravísitala fyrir desember
1985 er 1337 stig en var fyrir nóv-
ember 1301 stig. Hækkun milli mán-
aöanna er 2,76%. Miöaö er viö vísi-
töluna 100 í júní 1979.
Byggingavísitala fyrir október til
desember 1985 er 229 stig, og er
þá miöaö viö 100 í janúar 1983.
Handhafaskuldabróf i fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18—20%.
Sérboð
Nafnvextir m.v. Höfuóttóla-
óvsrótr. verðtr. Vsrðtrygg. færslur vaxta
kjör kjór tímabil vaxta é éri
Obundiö fé
Landsbanki, Kjörbók: 1) ................ ?—36,0 1,0 3mán. 1
Utvegsbanki, Abót: ....................... 22-34,6 1,0 1mán. 1
Búnaöarb., Sparib: 1)...................... ?-36,0 1,0 3mán. 1
Verzlunarb., Kaskóreikn: ................. 22—31,0 3,5 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: ................ 22—31,6 1—3,0 3mán. 2
Alþýöub., Sérvaxtabók: ................. 27—33,0 ... ... 4
Sparisjóðir.Trompreikn: ..................... 32,0 3,0 1mán. 2
lönaöarbankinn: 2)........................... 28,0 3,5 1 mán. 2
Bundiðfé:
Búnaöarb., 18mán.reikn: ..................... 39,0 3,5 6mán. 2
1) Vaxtaleiðrétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka og Búnaðarbanka
2) Tvær úttektir heimilaöar á hverju sex mánaöa tímabili án, þes að vextir IsBkkl.