Morgunblaðið - 20.12.1985, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
Jólabókaflóðið:
„16 ára í sambúð“ enn
söluhæsta bókin í ár
BÓK Eóvarðs Ingólfssonar, „Sextán
ára í sambúð“, er söluhæsta bókin
í ár samkvæmt könnun, sem Kaup-
þing hf. gerði fyrir Félag íslenskra
bókaútgefenda í síðustu viku. Næst
söluhæst til þessa er „Lífssaga bar-
áttukonu" (Aðalheiðar Bjarnfreðs-
dóttur) eftir Ingu Huld Hákonar-
dóttur og í þriðja sæti er spennusag-
an „Njósnir á hafinu" eftir Alistair
McLean.
Úrtakið í könnuninni er 20 versl-
anir af 106 úr skrá bókaútgefenda.
Áætlað er að úrtakið sé um þriðj-
ungur af bókamarkaðinum, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
Kaupþingi. Við val úrtaksins var
tekið tillit til búsetudreifingar í
landinu. Gert var yfirlit yfir sölu-
hæstu bækurnar í heild og hins-
vegar yfir söluhæstu bækur í sex
flokkum: barnabækur, ungl-
ingabækur, ævisögur og viðtals-
bækur, íslenskar skáldsögur, þýdd-
ar skáldsögur og aðrar bækur.
Tíu söluhæstu bækurnar 11.-17.
desember voru:
SexUn ára ! saoMÍ
Llfssaga b«rÍtt«kohu
Hjósnir i Kaf in«i
Cu&nundur Kjamested II
Bara st^lar
J6lasv«inak6kin
Stríí fyrir ströndvu*
Stúlkan á 614« hjólinu
Löðlegt eu siftlaust
Gerdur, xvisaga
nyndhöggvara
Gunntil Uér of frtéT
1. Sextán ára í sambúð
Eðvarð Ingólfsson
2. Lífssaga baráttukonu
Inga Huld Hákonardóttir
3. Njósnir á hafinu
Alistair McLean
4. Guðmundur Kjærnested
Sveinn Sæmundsson
5. Barastælar
Andrés Indriðason
6. Jólasveinabókin
Rolf Lidberg
Elton John gaf afsvar
fyrir rúmum mánuði
Reynt var að fá hinn þekkta poppara á listahátíð
ENSKI söngvarinn Elton John kem-
ur ekki hingað til lands næsta sumar
til að halda tónleika. Sá möguleiki
var kannaður fyrir nokkrum mánuð-
um að fá hinn kunna söngvara til að
koma á Listahátíð í tengslum við
knattspyrnumót, sem áformað er að
halda í Laugardal næsta sumar í til-
efni 200 ára afmælis Reykjavíkur.
Svar barst fyrir rúmum mánuði og
var það neikvætt. Búið er að skipu-
leggja tónleikaferðalög Eltons John
allt næsta ár. Það er því rangt sem
segir í DV í gær, að unnið sé að því
að fá Elton John til landsins.
Sú hugmynd skaut upp kollinum
að halda knattspyrnumót næsta
sumar í tilefni afmælis Reykjavíkur
og fá hingað erlend knattspyrnufé-
lög. Eitt þeirra liða sem til greina
kom var Watford, en Elton John
er stjórnarformaður þess. Ákveðið
var að hafa samband við Watford
og kanna möguleika á því að liðið
kæmi hingað og jafnframt að Elton
John kæmi með liðinu og héldi
hljómleika á Listahátíð. Baldvin
Jónsson tók að sér að kanna þetta
mál fyrir íþróttaráð Reykjavíkur
og Listahátíð og hafði Doug Ellis,
stjórnarformaður Aston Villa,
milligöngu í málinu.
f bréti dagsettu 13. nóvember sl.
til Baldvins Jónssonar segir Eddie
Plumley ritari Watford að því
miður sé útilokað að Elton John
Telur þú að Albert Guðmundsson
eigi að segja af sér ráðherraemb-
ætti á meðan rannsókn á máli
Hafskips og Útvegsbankans fer
fram? 147 aðspurðra sögðu já, 263
nei, 65 voru ekki vissir og 125 svör-
uðu ekki. Nokkur munur var á
svörum aðspurðra í Reykjavík og
annars staðar á landinu. f Reykja-
vík vildu 44,9% aðspurðra að Albert
segi af sér en 30,2% í öðrum kjör-
dæmum landsins.
Þátttakendur voru spurðir
þriggja annarra spurninga. 69,8%
þeirra sem afstöðu tóku töldu „að
nefnd, skipuð af Hæstarétti, eigi
að rannsaka Hafskipsmálið", en
30,2% töldu það ekki rétt. 61,5%
töldu „að Alþingi eigi að kjósa
rannsóknarnefnd til að kanna
Hafskipsmálið", en 38,5% voru því
andvígir. 76,5% þeirra sem afstöðu
tóku töldu „að rannsókn málsins
eigi að fara fram fyrir opnum tjöld-
um“, en 23,5% töldu það ekki rétt.
Skoðanakannanir á íslandi
(SKÁÍS) framkvæmdi skoðana-
könnunina. Var hringt í 600 manns
og viðhorf þeirra könnuð.
7. Stríð fyrir ströndum
Þór Whitehead
8. Stúlkan á bláa hjólinu
Regine Deforges
9. Löglegt en siðlaust
Jón Ormur Halldórsson
10. Gerður — ævisaga mynd-
höggvara
Elín Pálmadóttir
Tvær söluhæstu barnabækurnar
eru „Jólasveinabókin" eftir Rolf
Lidberg og „Gunnhildur og Glói“
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Tvær
söluhæstu unglingabækurnar eru
„Sextán ára í sambúð" eftir Eðvarð
Ingólfsson og „Bara stælar“ eftir
Andrés Indriðason. Tvær sölu-
hæstu ævisögurnar/viðtalsbæk-
urnar eru „Lífssaga baráttukonu"
eftir Ingu Huld Hákonardóttur og
„Guðmundur Kjærnested" eftir
Svein Sæmundsson, söluhæstu ís-
lensku skáldsögurnar eru „Marg-
saga“ eftir Þórarin Eldjárn og
„Skilningstréð“ eftir Sigurð A.
Magnússon, tvær söluhæstu er-
lendu skáldsögurnar eru „Njósnir
á hafinu" eftir Alistair McLean
og „Stúlkan á bláa hjólinu" eftir
Régine Deforges. Af öðrum bókum
eru söluhæstar bækurnar „Stríð
fyrir ströndum" eftir Þór White-
head og „Hlæjum hátt með
Hemma Gunn“ eftir Hermann
Gunnarsson.
Afrit af bréfí sem ritari Watford
sendi Doug Ellis stjórnarformanni
Aston Villa, en hann hafði milli-
göngu um að reyna að fá Elton John
til Islands.
komist til íslands. Hann hafi skipu-
lagt tónleikaferð víða um heim allt
næsta ár. Hins vegar komi vel til
greina að Watford geti tekið þátt
í knattspyrnumóti á íslandi næsta
sumar.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er enn verið að kanna
möguleika á því að halda slíkt mót
en Listahátíð er að leita fyrir sér
með annan popplistamann.
Félagsstofnun stúdenta:
Upplestur og
Stuðmenn
EINAR Már Guðmundsson mun
lesa upp úr verkum sínum í Stúd-
entakjallaranum í kvöld, föstudag,
og hefst upplesturinn kl. 21.00.
Aðgangur er ókeypis. Á morgun,
laugardaginn 21. desember, mun
hljómsveitin Stuðmenn leika fyrir
dansi í Félagsstofnun stúdenta og
opnar húsið klukkan 21.00. Áð-
gangseyrir er krónur 450.
(Úr fréttatilkynninKu)
Morgunbiaöiö/Bjami
Hjónin Brian Pilkington og Ingibjörg Sigurðardóttir með nýútkomna barna-
bók „Blómin á þakinu“
„Auðvelt að láta eigin
drauma rætast í bók“
- segja þau Brian Pilkington og Ingi-
björg Sigurðardóttir höfundar nýút-
kominnar barnabókar „Blómin á þakinu“
NÝLEGA kom út barnabókin
„Blómin á þakinu“ eftir Ingibjörgu
Sigurðardóttur. Myndskreytingar
eru eftir eiginmann hennar Brian
Pilkington.
Þau sögðu í samtali við blaða-
mann að sögupersónan væri Gunn-
jóna, sem væri mjög lifandi en ýkt
persóna, og raunar ætti hún sér
fyrirmynd. Ingibjörg sagði að
Gunnjóna væri nokkurs konar
blanda af mörgum persónuleikum,
sem hún hefði hitt á lífsleiðinni,
en þó væri það ein gömul kona sem
átti hvað mestan þátt í sköpun
sögupersónu bókarinnar. „Þessi
gamla kona lést á sl. ári. Gunnjóna
er hörkukona og drífandi og gerir
það sem henni dettur í hug burtséð
frá öllum lögmálum og reglum."
Sagan hefst uppi í sveit þar sem
Gunnjóna býr í notalegum torfbæ
með öllum dýrunum sínum. Gamla
konan veikist og læknirinn ráðlegg-
ur henni að flytjast til Reykjavíkur.
Gunnjóna verður spennt fyrir borg-
arlífinu í fyrstu en er hún kemur
inn í risíbúðina sina á Brávallagötu
18, þar sem höfundar bókarinnar í
raun búa, líst henni ekkert á blik-
una. Henni finnst umhverfið kald-
ranalegt. Þá kemur sögumaðurinn,
7 ára gamalt barn, inn í líf Gunn-
jónu og fylgist með öllum þeim
uppátækjum sem hún hefur í huga.
Hún skapar náttúrulegt umhverfi
í kringum sig; nær í hænsnin sín í
sveitina, býr til matjurtagarð í
Skoðanakönnun Helgarpóstsins:
64 % telja að Albert eigi
ekki að segja af sér
- á meðan rannsókn Hafskipsmálsins fer fram
í nýútkomnum Helgarpósti eru birtar niðurstöður úr skoðanakönnun á
viðhorfum fólks til rannsóknar Hafskipsmálsins. 64,1% þeirra sem afstöðu
tóku töldu að Albert Guðmundsson eigi ekki að segja af sér ráðherraemb-
ætti á meðan rannsókn málsins stendur, en 35,9%vildu það.
Spurningin var svohljóðandi: skiptaráðandi og þriggja manna
Leiðrétting
ÞESSAR tvær myndir af auglýs-
ingum Hafskips hf. birtust með
fréttaskýringu í Morgunblaðinu
í gær. Það skal tekið fram að
auglýsingin um hlutafjárútboðið
birtist í Morgunblaðinu í febrúar
1980 í tengslum við nýtt hluta-
fjárútboð þá. Auglýsingin um
Ámeríkusiglingar Hafskips birt-
ist einnig mun fyrr en ákvörðun
um Atlantshafssiglingar var
tekin. Með birtingu þessara
mynda var ekki ætlunin að gefa
ranga mynd af athöfnum for-
svarsmanna Hafskips fyrr á
þessu ári þegar lagt var út í
hlutafjársöfnun og Atlantshafs-
siglingar Hafskips voru nýhafn-
ar. Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á því ef birting þessara
mynda hefur gefið ranga hug-
mynd um athafnir forsvars-
manna fyrirtækisins.
íbúðinni sinni og leggur torf á þakið
áblokkinni.
„Þetta eru allt draumar sem við
höfum í huga og í raun er ósköp
auðvelt að láta drauma sína rætast
í bók. Stundum er borgarstreitan
svo yfirþyrmandi að það er viss
fangelsistilfinning sem fylgir
henni. Við þráum að búa til mann-
eskjulegra umhverfi en við lifum
við. Þó erum við hjónin það heppin
að hafa yndislega fjallasýn af svöl-
unum í risíbúðinni okkar sem við
notum óspart, en við getum aldrei
gert okkur lítinn matjurtagarð eins
og hún Gunnjóna gerði," sagði
Ingibjörg.
Þetta er fyrsta bók Ingibjargar,
en hún hefur áður skrifað barna-
sögu um Gunnjónu sem sýnd var í
Stundinni okkar í sjónvarpinu fyrir
3 árum með myndskreytingum eftir
Brian. „Ég ætlaði aldrei að skrifa
bók en neyddist eiginlega til þess
þar sem myndskreytingamenn fá
tiltölulega illa borgað miðað við
textahöfunda. Nóg hafði ég af
hugmyndunum svo ég dreif í þessu.
Mig langar jafnvel að skrifa fleiri
bækur um Gunnjónu ef þessi bók
gengur vel. „Ég er virkilega ánægð
með persónuna. Einn gagnrýnand-
inn komst vel að orði um daginn
er hann sagði að slíkan kvenmann
vantaði í ríkisstjórn. Ég er svo
hjartanlega sammála honum.
Brian sagði að Gunnjónu svipaði
mjög í útliti til ömmu sinnar heit-
innar í Énglandi. „Amma keypti sér
hræðileg föt en henni tókst samt
alltaf að vera fín.“ Brian hefur áður
myndskreytt nokkrar bækur
þ. á m. „Ástarsögu úr fjöllunum"
eftir Guðrúnu Helgadóttur, „Gili-
trutt", „Elías" eftir Auði Haralds
og „Hundrað ára afmælið" eftir
Þráinn Bertelson en sú bók var
verðlaunuð í fyrra sem besta barna-
bókin.
Ingibjörg er menntuð sem leir-
kerasmiður en hún sagðist gera
flest annað en það. Hún hefur litla
vinnustofu í næsta herbergi við
vinnustofu Brians í Hafnarstræti
15 þar sem hún m.a. vefur og býr
til skartgripi úr fjöruskarti.
Svanhildur er
félagsmálafulltrúi
RANGT var farið með starfsheiti
Svanhildar Halldórsdóttur i frétt
af ráðningu nýs framkvæmda-
stjóra BSRB í blaðinu á fimmtu-
dag. Svanhildur var sögð fræðslu-
fulltrúi bandalagsins en hið rétta
er, að hún er félagsmálafulltrúi
BSRB. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.