Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985 45 „Stanzlaust fjör í gamla miðbænum“ „STANZLAUST fjör í gamla miö- bænum“ nefnist skemmtidagskrá, sem veröur í miöbæ Reykjavíkur á morgun, laugardag. l»ar munu koma fram ýmsir þekktir skemmtikraftar og mun dagskráin standa frá klukk- an 13.30 til 18. Verzlanir verða opn- ar til klukkan 22 á morgun. ’ Dagskráin verður í grófum dráttum sem hér segir: Við Laugaveg 59 (Kjörgarð) Kl. 13:30: Jólasveinar koma og skemmta. Kl. 15:00: Hljómskálakvintettinn leikur jólalög. Við Nýja Laugaveg Kl. 14:30: Jólasveinarnir skemmta og gera ýmislegt fleira. Kl. 15:00: Skotturnar skemmta á palli. Skotturnar eru þrjár litríkar og eldfjörugar persónur sem flytja leik- þátt sem Brynja Bene- diktsdóttir hefur samið og leikstýrir. Á Lskjartorgi og í Austurstræti Kl. 15:30: Hljómskálakvintettinn leikur jólalög. Laddi tekur við gullplötu frá Steinum hf. fyrir sölu á 5.000 ein- tökum á „Einn voða vit- laus“. Eiríkur Fjalar verð- ur væntanlega viðstaddur og „Strumparnir bjóða gleðilegjól". Laddi fær gullplötu fyrir 5.000 seld eintök af tveimur hljómplötum, sem hann hefur sungiö inn á. Kl. 17:00: Hljómskálakvintettinn leikur jólalög við Skóla- vörðustíg 12 (Vogue). Kl. 18:00: Allflestir popparar og söngvarar úr íslensku hjálparsveitinni koma að Hlemmtorgi Kl. 18.00 og ganga af stað niður að Lækjartorgi og kynna plötuna til stuðnings hungruðum í Eþíópíu. Miðbæjarhlaup Gamla miðbæjarins og KR Kl. 14:00: Lagt verður af stað frá Aðalstræti Hlaupið verð- ur norður Aðalstræti, austur Hafnarstræti upp Hverfisgötu að Rauðarár- stíg (Hlemmi), niður Laugaveg og Bankastræti, suður Lækjargötu, inn hjá Skólabrú meðfram Póst- hússtræti og endað aust- ast í Austurstræti (göngu- gata). Hlaupið er opið öll- um sem áhuga hafa. Vega- lengd er um 3,5 km. Kl. 16:00: Kór Hamrahlíðarskóla undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur mun ganga niður Laugaveg að Lækj- ________artorgi og syngja jólalög. Leiðrétting Við birtingu á erindi Braga Hannessonar, bankastjóra, um nýjungar í bankalöggjöf sl. mið- vikudag féll niður setning, sem breytir merkingu eins kafla erind- isins. Sá kafli átti að birtast svona og eru þau orð, sem niður féllu feitletruð: „Bankar í hlutafélaga- formi kappkosti eðli málsins sam- kvæmt að greiða hluthöfum sínum arð. Nýju lögin gera ekki ráð fyrir, að ríkisbankarnir greiöi eiganda sínum arö. Til þess aö hlutafélags- bankarnir geti haldið sama eigin- fjárhlutfalli og ríkisbankarnir, þurfa þeir að hagnast þeim mun meira. Þannig valda ákvæði þessi mismunun milli banka.“ Þetta leiðréttist hér með. Léttir á brún þrátt fyrir annir Frumvörp til fjárlaga og lánsfjárlaga fyrir áriö 1986 eru aö þessu sinni samferða á Alþingi og þykir þaö til mikillar fyrirmyndar. Þeir Þorsteinn Pálsson, fjármálaráöherra, og Friörik Sophusson, varaformaöur fjár- hags- og viðskiptanefndar neöri deildar, hafa staöið í ströngu vegna frumvarpanna tveggja undanfarna daga og ekki fengið mikla hvfld frá störfum. Þeir voru hins vegar léttir á brún þegar Ijósmyndari Morgun- blaösins tók þessa mynd af þeim í vikunni. Lokaumræða um fjárlög í dag FRUMVARP til fjárlaga fyrir áriö 1986 kemur til þriöju umræöu í samein- uðu þingi í dag og búist er við því aö atkvæöagreiðsla um frumvarpiö fari fram á laugardag. Breytingartillögur frá meirihluta og minnihluta fjárveit- inganefndar og einstökum þingmönnum veröa líklega ekki færri en 200. Þingflokkur Alþýöuflokks hefur þegar boöaö 80 breytingartillögur. Þingflokkur Bandalags jafnaðar- manna hefur hins vegar ákveðið að leggja ekki fram neinar breyt- ingartillögur við frumvarpið. 1 fréttatilkynningu frá þingflokkn- um segir, að ástæðurnar séu eink- um fjórar. í fyrsta lagi hafi breyt- ingartillögur Bandalagsins við fjárlagafrumvarpið 1984 verið felldar. í öðru lagi er bent á, að haustið 1984 hafi þingflokkurinn lagt fram á annan tug tillagna til þingsályktana um samdrátt og breytingar í ríkisrekstri. Þessar tillögur hafi ýmist verið felldar eða látnar daga uppi í nefndum þingsins. í þriðja lagi hafi breyt- ingartillögur þingflokksins við fjárlagafrumvarpið í fyrra verið felldar. f fjórða lagi séu vinnu- brögð við fjárlög úrelt og þar sé við stjórnvöld að sakast. Þrátt fyrir 50 milljóna króna útgjöld til nefnda, stjórna og ráða sé yfirsýn ríkisstjórnar yfir áhrif og útkomu fjárlaga ekki meiri en svo að tíu dögum fyrir áramót hafi engin ráðherra hugmynd um hvernig fjárlagaárið komi út. Bankaeftirlitið líti eftir starfsemi verðbréfamiðlara Leyfi þarf fyrir rekstri að uppfylltum kröfum um menntum auk annarra skilyrða Viöskiptaráðherra lagði fram á Alþingi í gær frumvarp til laga um verðbréfamiðlun, en hann hafði fyrr í vetur boöaö slíkt frumvarp fyrir jólaleyfl. f frumvarpinu er gert ráö fyrir að starfsemi veröbréfafyrir- tækja veröi settar ákveönar skorð- Skammstafanir í stjórnmálafréttum í stjórnmálafréUum Morgunblaðsins eru þessar skammstafanir notaðar. Fyrir flokka: A.: Alþýðuflokkur Abl.: Alþýðubandalag Bj.: Bandalag jafnaðarm. F.: Framsóknarflokkur Kl.: Kvennalisti Kf.: Kvennaframboð S.: Sjálfstæðisflokkur Fyrir kjördæmi: Rvk.: Reykjavík VI.: Vesturland Vf.: Vestfirðir Nv.: Norðurland vestra Ne.: Norðurland eystra Al.: Austurland Sl.: Suðurland Rn.: Reykjanes ur, mcöal annars gerðar kröfur um menntun þeirra er stunda verð- bréfamiðlun. Eftirlit meö starfsemi veröbréfamiðlara veröur í höndum Bankaeftirlitsins nái frumvarpið fram að ganga. Aðeins þeir sem lokið hafa prófi í hagfræði, lögfræði eða viðskipta- fræði geta fengið leyfi viðskipta- ráðherra fyrir rekstri verðbréfa- miðlunar. Ráðherra er þó heimilt að fenginni umsögn stjórnar Verð- bréfaþings íslands að veita undan- þágu hafi umsækjandi sambæri- lega menntun eða mikla starfs- reynslu. í frumvarpinu er einnig heimild til að setja reglugerð þar sem kveðið er á um að umsækjend- ur þurfi að standast sérstakt próf um verðbréfaviðskipti. Auk kröfu um sérstaka menntun er íslenskur ríkisborgararéttur, óflekkað mannorð og fjárræði skilyrði fyrir veitingu leyfis. Hver sá er fær leyfi verður að setja fram tveggja millj- jóna króna bankatryggingu til að standa straum af greiðslu skaða- bóta sem honum kann að vera gert að greiða vegna starfsemi sinnar. I frumvarpinu er einnig ákvæði um að félagi eða stofnun sé óheim- ilt að reka verðbréfamiðlun nema að sá maður sem veitir miðluninni forstöðu og fer með daglega stjórn hennar hafi leyfi viðskiptaráð- herra til að stunda slíka starfsemi. Sjötti kafli frumvarpsins fjallar um viðurlög við brotum á lögunum, en þar er meðal annars gert ráð fyrir að það varði sektum eða fangelsi, allt að sex mánuðum, ef maður rekúr verðbréfamiðlun án réttinda. í 1. grein frumvarpsins segir að með verðbréfi sé „átt við hvers konar framseljanleg kröfuréttindi til peningagreiðslna eða ígildis hennar svo og framseljanleg skír- teini fyrir eignarréttindum að öðru en fasteign eða einstökum lausafjármunum“. í frumvarpinu eru einnig ákvæði um hlutleysi verðbréfamiðlara gagnvart kaupanda og seljanda og þagmælsku um öll viðskipti er fara um hendur hans. Verðbréfamiðl- ara er skylt að halda fjármunum viðskiptamanna á sérstaklega skráðum reikningum og einnig að tryggja að verðbréf í hans vörslu séu skráð á nafn eigenda. Eins og áður segir er lagt til í frumvarpi viðskiptaráðherra að Bankaeftirlit Seðlabanka íslands hafi eftirlit með störfum verðbréfamiðlara og er því heimill aðgangur að öllum gögnum og upplýsingum þeirra sem nauðsynleg kunna að teljast. Öll skuldabréf á að skrá á nafn FRUMVARP til laga um nafnskrán- ingu skuldabréfa var lagt fram á Alþingi í gær af viðskiptaráðherra. Þar er lagt til að skuldabréf verði Efrí deild: Breyttar reglur um r annsóknar ne fnd Klofningur í Alþýðubandalaginu FRUMVARP til laga um nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka íslands og Hafskips hf. var samþykkt í efri deild alþingis á miövikudag. Aö frum- kvæöi stjórnarandstöðu og meö samþykki stjórnarliða höföu veriö geröar breytingar á frv., sem fela m.a. í sér útvíkkun á starfl nefndarinnar og veita henni heimild til að krefjast skýrslna, munnlegra eöa skriflegra, af einstökum mönnum og opinberum aöilum. Tillaga stjórnarandstæðinga um un innan þingflokksins varð stuðn- að sameinað þing kjósi að auki sex alþingismenn samkvæmt tilnefn- ingu þingflokka til að fylgjast með rannsókn nefndarinnar var felld við atkvæðagreiðslu í deildinni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var ágreiningur í þing- flokki Alþýðubandalagsins um það hvort greiða ætti atkvæði með frumvarpinu eftir að á því höfðu orðið ofangreindar breytingar. í atkvæðagreiðsla eða skoðanakönn- ingur við frumvarpið ofan á. Svav- ar Gestsson, Steingrímur J. Sig- fússon og Skúli Alexandersson voru því andvígir, en fjarverandi voru Geir Gunnarsson og Hjörleif- ur Guttormsson. Við atkvæða- greiðsluna í efri deild studdi Skúli hins vegar frv. með áorðnum breytingum. Eftir breytinguna felur frum- varpið nú í sér, að hlutverk hinnar þriggja manna nefndar sem Hæstiréttar skal tilnefna til að kanna viðskipti Útvegsbankans og Hafskips, er, „að kanna hvort um óeðlilega viðskiptahætti hafi verið að ræða í viðskiptum Útvegsbanka íslands og Hafskips hf. á undan- förnum árum eða í viðskiptum Hafskips hf. við aðra aðila." Nefndin á að setja sér starfsreglur, afla nauðsynlegra gagna og henni er heimilt í samráði við skiptaráð- anda, „að krefjast skýrslna, munn- legra og skriflegra, af einstökum mönnum og opinberum aðilum, m.a. starfsmönnum Útvegsbanka íslands." Þá er mælt fyrir um, að rannsóknarnefndin skuli hraða störfum sínum og skila skýrslu til viðskiptaráðherra sem geri Al- þingi grein fyrir störfum hennar og niðurstöðum. við útgáfu að bera meö sér hver sé kröfuhaflnn. Til að taka af öll tvímæli, eins og segir í athugasemdum frum- varpsins, er gert ráð fyrir að til- greina viðtakanda greiðslu, ef hann er annar en kröfuhafi. Þá er einnig kveðið á um að framsöl skuli árituð og á að koma skýrt fram hverjum krafan er framseld. I þriðju grein er mælt fyrir um að óheimilt sé að þinglýsa eða skrásetja með opinberum hætti réttindi er ekki uppfylla ofan- greind skilyrði. Undanþegnir fyr- irmælum frumvarpsins eru víxlar og tékkar. Þá verður viðskipta- bönkum og sparisjóðum óheimilt að taka veð til eignar eða inn- heimtu skuldabréfa er ekki upp- fylla umrædd skilyrði. Þinghlé á laugardag ÞINGHLÉ veröur væntanlega gert á laugardag, þegar lokiö er af- greiðslu fjárlagafrumvarpsins í sam- einuðu þingi. Forsætisráðherra hefur lagt fram tillögu um, að fundum Alþingis verði frestað frá 21. desember (laugardag) eða síðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 27. janúar 1986.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.