Morgunblaðið - 20.12.1985, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER1985
- 0
JÓUN
NÁLCAST
og því er ekki seinna vænna
aö fara aö huga aö jólaundirbún-
ingnum. Viö erum reiðubúin til
aöstoöar.
Viljum aðeins minna á aö þaö er “
óþarft aö þeytast um allt þegar
hægt er aö fá ailt til jólanna í einni
ferö í Vöruhús Vesturlands.
MATVÖRUDEILD
Þaö er löngu orðinn þjóðlegur
siður að gera vel við sig og sína í mat
um hátíðarnar. Við höfum á boð-
stólum alla matvöru, hátíðarmat
sem meðlæti. Og vitaskuld alla
hreinlætisvöru. Sem sagt: Allt sem til
þarf.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
Jólakötturinn gengur ekki laus
lengur. Og þó svo væri þyrfti enginn
að lenda í honum því við eigum
fjölbreytt úrval fatnaðar á alla fjöl-
skylduna. Til dæmis buxur og
skyrtur frá Melka. Einnig skóáalla
fjölskylduna. í stuttu máli sagt: Allan
fatnað, frá toppi til táar, yst sem
innst.
GJAFAVÖRUDEILD
Láttu ekki tal um gjafaaustur jól-
anna slá þig út af laginu. Það er
góður siður að gleðja aðra. Líttu inn í
gjafavörudeildina hjá okkur og þú''
sannfærist um að jólagjafir eiga
fullan rétt á sér. Við eigum ávallt
smekklegt úrval gjafavöru, s.s.
bækur, leikföng, búsáhöld o.fl.
RAFTÆKJA-
OG SPORTVÖRUDEILD
Hafi einhver haldið að gjafavara
fengist aðeins í gjafavörudeildinni
leiðréttist það hér með. í sportvöru-
og raftækjadeild fæst fjölbreytt úrval
raftækja og tómstundavöru. Nyt-
samar jólagjafir, smáarog stórar. Og
hér velur fjölskyldan sjálfri sér stór-
gjöfina.
BYGGINGAVÖRUDEILD
Það eru ekki bara húsbyggjend-
ur sem eiga erindi við okkur. í
byggingavörudeild Vöruhúss Vest-
urlands sást sjálfur jólasveinninn
velja sér 1. flokks áhöld til leik-
fangasmíðinnar. Þannig tekur bygg-
ingavörudeildin ekki hvað minnstan
þátt í jólaundirbúningnum.
Góð áhöld gleðja alla.
Það er óneitanlega kostur að fá allt sem
þarf í einni ferð. Ferð í Vöruhús Vesturlands
sparar sporin og er þess vegna ferð til fjár.
Vöruhús Vesturlands
Borgarnesi sími 93-7200
Efstu pör í barómetertvímenningskeppni Bridsfélags Hvolsvallar. Fremri röð: Sigurvegararnir Helgi Hermanns-
son og Óskar Pálsson. Aftari röð frá vinstri: Gísli Kristjánsson og Guðmundur Jónsson sem urðu í 3. sæti
og Brynjólfur Jónsson og Haukur Baldvinsson sem urðu í 2. sæti.
_________Brids___________
Arnór Ragnarsson
Skutu eldri spilurum
ref fyrir rass
Karl Logason og Svavar
Bjömsson urðu Reykjavíkur-
meistarar í tvímenningi 1985.
Þeir báru sigurorð af öllum bestu
pörum landsins í úrslitakeppn-
inni, sem háð var um síðustu
helgi. Mikil barátta var í lokin
um þrjú efstu sætin, þar sem
fjögur efstu pörin áttu í hlut. Þar
á undan höfðu þeir bræður
Hrólfur og Oddur Hjaltasynir
„nánast" tryggt sér titilinn, en
allt hrökk í baklás hjá þeim undir
lokin, og sigur þeirra Karls og
Svavars varð staðreynd. Þeir eru
yngstu Reykjavíkurmeistarar í
tvímenningi til þessa, báðir rétt
23 ára. Mikil efni þar á ferð.
Úrsliturðuþessi:
Karl Logason —
Svavar Björnsson 169
Hrólfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason 163
Hermann Lárusson —
ólafur Lárusson 141
Þórarinn Sigþórsson —
Þorlákur Jónsson 133
Guðlaugur R. Jóhannsson —
Örn Arnþórsson 117
Aðalsteinn Jörgensen —
Valur Sigurðsson 116
Jón Ásbjörnsson —
Símon Simonarson 94
Ragnar Björnsson —
Sævin Bjarnason 93
Björn Eysteinsson —
Guðmundur Sv. Hermannsson 83
Ásmundur Pálsson —
Karl Sigurhjartarson 58
Ragnar Magnússon —
Valgarð Blöndal 49
Gestur Jónsson —
Sigurjón Tryggvason 49
Stefán Guðjohnsen —
Þórir Sigurðsson 49
Hörður Arnþórsson —
Jón Hjaltason 40
Mótið fór vel fram undir stjórn
fsaks Arnar Sigurðssonar og
tölvuútreiknings Vigfúsar Páls-
sonar.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
f 7. og 8. umferð sveitakeppn-
innar fengu efstu sveitirnar
meira og minna á baukinn. Topp-
baráttan er nú afar tvísýn, eins
og stöðumælirinn gefur til
kynna.
Sv. Bjarna Jóhannss. 153
Sv. Kristófers Magnúss. 150
Sv. Böðvars Magnúss. 149
Sv. Þrastar Sveinss. 141
Sv. Erlu Sigurjónsd. 133
Næsta spilakvöld BH verður
þ. 13. janúar 1986 og verður þá
haldið áfram með sveitakeppn-
ina. Athygli skal vakin á því, að
það er breyting frá skriflegri
spilaáætlun félagsins.
BH þakkar umsjónarmönnum
bridsdálka dagblaðanna fyrir
ágætt samstarf á árinu 1985 og
óskar öllum bridsurum landsins
gleðilegra jóla og farsæls kom-
andi árs.
Hverjir eru bestir?
Meistarastigaskrá 1986 mun
sjá dagsins ljós í byrjun janúar
nk. Henni verður dreift til allra
félaga innan Bridgesambands-
ins, svo fljótt sem auðið er.
Efstu spilarar skv. nýju
skránni eru eftirtaldir:
1. Þórarinn Sigþórsson B.R. 899
2. Jón Baldursson B.R. 820
3. Ásmundur Pálsson B.R. 762
4. Sigurður Sverrisson B.R. 744
5. Örn Arnþórsson B.R. 727
6. Guðlaugur R. Jóh. B.R. 726
7. Valur Sigurðsson B.R. 686
8. Símon Símonars. B.R. 660
9. Jón Ásbjörnss. B.R. 619
10. Guðm. P. Arnars. B.R. 615
11. Karl Sigurhj. B.R. 562
12. Hörður Arnþórss. B.R. 555
13. Guðm. Hermannss. B.R. 529
14. Sævar Þorbjörnss. B.R. 501
15. Stefán Guðjohnsen B.R. 487
16. Guðm. Péturss. B.R. 464
17. Hjalti Eliass. B.R. 452
18. Óli Már Guðm. B.R. 392
19. Þorgeir P. Eyjólfss. 373
20. Björn Eysteinss. Hfj. 365
21. Sigtr. Sigurðss. B.R. 358
22. Jón Hjaltason B.R. 352
23. Aðalst. Jörgens. H.fj. 342
24. ÞórirSigurðss. B.R. 323
25. Hermann Láruss. B.R. 321
26. Ólafur Láruss. B.R. 316
27. Hörður Blöndal Ak. 295
28. Þorlákur Jónss. B.R. 274
29. Sigfús Þórðars. Self. 267
30. Gestur Jónsson TBK 262
Bridsfélag Hvolsvallar
og nágrennis
Bridsfélag Hvolsvallar og ná-
grennis hóf vetrarstarf sitt með
nokkrum léttum æfingakvöldum
en síðan var tekið til við stórt
tvímenningsmót með barómeter-
fyrirkomulagi. Byggingarfélagið
Ás hf. gaf verðlaun og mun þetta
mót verða árlegur viðburður og
keppt um veglegan farandsbikar.
I Ás-mótinu tóku þátt þetta árið
15 pör og sigurvegarar urðu
Helgi Hermannsson og Óskar
Pálsson með 94 stig. í öðru sæti
urðu Brynjólfur Jónsson og
Haukur Baldvinsson með 87 stig
og í þriðja sæti Guðmundur Jóns-
son og Gísli Kristjánsson með
50 stig.
Næst var tekið til við Hrað-
sveitakeppni. Sigurvegarar urðu
spilarar í sveit Eyþórs Gunn-
þórssonar með 176 stig. Með
honum í sveit voru Kristján
Hálfdánarson, Andri Jónsson og
Árni Jónsson. í öðru sæti varð
sveit Helga Hermannssonar með
171 stig. í þriðja sæti sveit
Guðmundar Jónssonar með 167
stig og í 4. sæti sveit Brynjólfs
Jónssonar með 157 stig.
Starfsemi Bridgefélags Hvols-
vallar og nágrennis á þessu ári
er svo áætlað að ljúki með
KR-mótinu þann 28. des. Mót það
er opið öllum rangæskum spilur-
um. Kaupf. Rangæinga gefur
vegleg verðlaun og eru þau vöru-
úttekt kr. 7.000 1. sæti, 5.000 2.
sæti, 3.000 3. sæti.
Spilað verður í héraðsbóka-
safninu og hefst spilamennskan
kl. 11. Þátttökutilkynningar
skulu berast til Kjartans í síma
8222 fyrir kvöldið þann 23. des-
ember.
Bridsklúbbur
Tálknafjarðar
Sl. mánudag hófst tveggja
kvölda tvímenningskeppni. 10
pör taka þátt í keppninni, sem
er með barómetersniði, 6 spil
milli para. Eftir fyrsta kvöldið,
er staða efstu para þessi:
Guðlaug Friðriksdóttir —
Steinberg Ríkharðsson 19
Heiðar Jóhannsson —
Ingigerður Einarsdóttir Ólöf Ólafsdóttir — 16
Björn Sveinsson 12
Bridsdeild Skag- firðingafélagsins
Jólasveinar Skagfirðinga í ár
urðu: Helgi Nielsen, Sveinn Þor-
valdsson, Esther Jakobsdóttir og
Þorfinnur Karlsson. Þessi tvö
pör urðu jöfn og efst í 2 kvölda
Jóla-Mitchell-keppni deildarinn-
ar, sem lauk sl. þriðjudag. Dregið
var úr stokk um 1. verðlaun (sem
var besti kvöldverður bæjarins
fyrir 4) og komu þau í hlut þeirra
Helga og Sveins. í þriðja sæti
komu svo Baldur Arnason og
Gústaf Björnsson.
Röð efstu para varð þessi:
Helgi Nielsen —
Sveinn Þorvaldss. 742
Esther Jakobsdóttir —
Þorfinnur Karlss. 742
Baldur Árnason —
Gústaf Björnsson 737
Hannes R. Jónsson —
Páll Valdimarss. 734
Magnús Aspelund —
Steingrímur Jónass. 729
Guðmundur Thorsteinss. —
Sigurður Ámundas. 724
Steingrímur Steingr. —
Örn Scheving 723
Guðrún Hinriksd. —
Haukur Hannesson 669
Meðalskor var 624
Bridgedeildin óskar bridge-
áhugafólki um land allt árs og
friðar. Spilamennska hefst á
nýja árinu þriðjudaginn 8. eða
15. janúar (ekki ljóst enn v/við-
gerða á húsnæðinu) með eins
kvölds tvímenningskeppni.