Morgunblaðið - 20.12.1985, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUft 20. DESEMBER1985
Sparisjóður Hafnarfjarðar hef-
ur nú séð á bak mikilhæfum
stjórnanda. Það er stórt skarð
fyrir skildi og vandfyllt. Eftirsjáin
er mikil. En vonandi ber stjórn
Sparisjóðsins gæfu til að fylla það
skarð eins og best verður á kosið,
við hliðina á ungum, dugmiklum
sparisjóðsstjóra, svo ég noti
ummæli Guðmundar um sam-
starfsmann sinn.
Starfsferill Guðmundar var
orðinn langur, og margt að breyt-
ast með nútímatækni. Það hafði
hvarflað að Guðmundi að hætta.
Fyrir stuttu sagði han við mig: „Ég
vissi, að það var einhver breyting
framundan, við vorum búin að
ræða það, en ekki grunaði mig, að
hún yrði þessi." Mennirnir álykta,
en Guð ræður. Farsælu ævistarfi
er lokið, ástríkur heimilisfaðir
hefur kvatt.
Ég veit, að starfsfólk Sparisjóðs
Hafnarfjarðar saknar Guðmund-
ar. Það kynntist mannkostum
hans, góðvild og græskulausu
gamni, þegar við átti. Minningin
lifir.
Ástvinum öllum votta ég samúð
mína og minni á heilaga ritningu:
„Verið ekki hugsjúkir um neitt,
heldur gjörið í öllum hlutum óskir
yðar kunnar Guði með bæn og
beiðni ásamt þakkargjörð. Og frið-
ur Guðs, sem er æðri öllum skiln-
ingi, mun varðveita hjörtu yðar í
samfélaginu við Krist Jesúm.“
Þessi orð mín voru síðasta
kveðja til Guðmundar.
Guðlaug Elísa Kristinsdóttir
Ég var ekki hár í lofti, þegar ég
í fyrsta sinni, þá fimm ára gamall
fór erinda fyrir föður minn í verzl-
un Þorvaldar Bjarnasonar. Mér
var ævinlega vel tekið af þeim sem
það störfuðu, en ég minnist þess
sérstaklega þegar ungur maður
heilsaði mér með hlýju ávarpi og
sagði: „Komdu sæll frændi."
Af meðfæddri forvitni þá spurði
ég föður minn, þegar ég hafði
skilað því sem ég var sendur eftir,
hver þessi maður væri og hvernig
við værum frændur.
Maðurinn var Guðmundur Guð-
mundsson, sem þá var nýorðinn
verzlunarstjóri þar og vissulega
vorum við frændur.
í þá hálfu öld sem síðan er lrðin
höfum við Guðmundur Guðmunds-
son sparisjóðsstjóri átt samleið og
náið samstarf en nú skilja leiðir
að sinni því frændi minn Guð-
mundur lézt 13. þ.m. 71 árs að aldri
og verður jarðsettur frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag. Guðmundur
Guðmundsson fæddist í Hafnar-
firði 2. desember 1914 og af traustu
hafnfirsku bergi brotinn.
Faðir hans og nafni, Guðmundur
J. Guðmundsson sjómaður og
fiskimatsmaður, var einn hinna
kunnu Hellubræðra, sem flestir
voru þekktir sjómenn í Hafnarfirði
í upphafi þessarar aldar og öðrum
betur þekktu fiskmiðin út Hafnar-
fjörð útáSvið.
Móðir Guðmundar, Vilborg var
Jónsdóttir Þorvaldar bónda Olafs-
sonar í Ási við Hafnarfjörð og
konu hans Önnu Katrínu en hún
var dóttir Árna J. Matthiesen
verzlunarmanns.
Guðmundur ólst upp í foreldra-
húsum í hópi fjögurra systkina og
stundaði nám við Flensborgar-
skóla og síðar Verzlunarskóla ís-
lands. Enda þótt sjórinn heillaði
hann ungan lét hann sér nægja
að aðstoða föður sinn í þeim efnum
á námsárunum og eyða frístundum
sínum þegar fram í sótti við bátinn
sinn. Svo fór að faðir hans drukkn-
aði er síldveiðiskipið Örninn fórst
sumarið 1936 en móðir hans lézt í
hárri elli.
Eins og að framan greinir hóf
Guðmundur störf við verzlun Þor-
valdar Bjarnasonar 1934. Gerðist
hann þar verzlunarstjóri, en ekkja
Þorvaldar Bjarnasonar kaup-
manns, frú María Jónsdóttir Víðis,
rak verzlunina; starfaði Guðmund-
ur þar til ársins 1946. Hann gerðist
þá framkvæmdastjóri fyrir fisk-
veiðahlutafélaginu Stefni hf. og
skrifstofustjóri hjá Jóni Gíslasyni
útgerðarmanni og síðar fram-
kvæmdastjóri hjá Lýsi og mjöl hf.
Árið 1965 hóf Guðmundur Guð-
mundsson störf hjá Sparisjóði
Hafnarfjarðar og varð sparisjóðs-
stjóri frá 1. ágúst 1967 til dánar-
dægurs.
Frændi minn Guðmundur var
áhugamaður um félagsmál og var
alls staðar sótzt eftir starfskröft-
um hans. Samfara skarpskyggni
og víðtækri þekkingu á málum var
samvizkusemi hans og áreiðan-
leika viðbrugðið.
Til forystu var hann kvaddur
hvort heldur var í hópi samstarfs-
manna eða áhugamanna um sam-
eiginleg málefni.
Ungur skipaði Guðmundur sér í
raðir þeirra sem grundvalla lífs-
skoðanir sínar á frelsi einstakl-
ingsins. Hann var í forystusveit
ungra sjálfstæðismanna, formað-
ur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði og í stjórn
kjördæmaráðsins í Reykjaneskjör-
dæmi. í bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar kusu sjálfstæðismenn hann
1970—82, en áður hafði hann gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir þá
sem þar sátu.
Á vettvangi starfsins og meðal
samstarfsmanna var hann til for-
ystu valinn, hvort heldur um var
að ræða samtök vinnuveitenda eða
sparisjóðina.
Til þess var tekið hversu mikla
alúð og rækt hann lagði við þau
störf sem hann tók að sér og gjarn-
an kenndur við þau störf svo
samgróinn var hann þeim.
í samskiptum sínum sem full-
trúi vinnuveitenda við verkalýðs-
samtökin ávann hann sér mikið
traust og trúnað, enda af samtök-
unum og félögum leitað til hans
til lausnar vandamálum.
Guðmundur Guðmundsson eign-
aðist traustan og góðan lífsföru-
naut, þegar hann 2. júlí 1938
kvæntist eftirlifandi eiginkonu
sinni Elísabetu Magnúsdóttur Jó-
hannssonar læknis á Hofsósi. Börn
þeirra sem lifa eru þrjú og í hópinn
hafa bætzt tengdabörn og barna-
börn.
Þrátt fyrir tímafrek störf var
ævinlega stund fyrir börnin og í
föðurhlutverkinu var Guðmundur
vissulega stærstur og beztur með
styrkri stoð eiginkonu sinnar.
Á kveðjustund vil ég þakka
Guðmundi Guðmundssyni marg-
háttuð störf hans, sem ég veit að
hinir fjölmörgu sem hann starfaði
með og átti viðskipti við taka
undir.
Persónulega þakka ég frænda
mínum Guðmundi samfylgdina og
samstarfið sem var mér ómetan-
legt.
Við Sigrún sendum Elsu og fjöl-
skyldu hennar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Guðmundar
Guðmundssonar.^
Matthías Á. Mathiesen
Atvikin höguðu því svo að Guð-
mundur Guðmundsson var einn
þeirra manna, sem ég kynntist
fyrstu daga eftir að ég flutti til
Hafnarfjarðar. í ársbyrjun 1941
réðist ég til skrifstofustarfa hjá
Skipasmiðastöð Hafnarfjarðar.
M.a. þurfti ég að annast bókhald
og uppgjör reikninga. Slíkum
störfum var ég alls óvanur og
þurfti að læra flest frá grunni.
Vinnuveitandi minn sagði mér að
maður sá, sem hefði hjálpað sér
með þessi störf að undanförnu
væri reiðubúinn til þess að leið-
beina mér. Og maðurinn var Guð-
mundur Guðmundsson. Hann ráð-
lagði mér að fá mér kennslubók í
bókfærslu og í vélritun, sem ég
gerði. Síðan æfði ég vélritun og las
mér til í bókfærslunni, studdist
jafnframt við það bókhald sem
Guðmundur hafði fært auk til-
sagnar hans og leiðbeininga. Átti
ég honum mikið að þakka í þessu
59
efni og held ég að starfið hafi
gengið sæmilega. Þannig fékk ég
fyrstu bókhaldsþekkingu mína frá
Guðmundi Guðmundssyni.
Alla tíð síðan lágu leiðir okkar
Guðmundar saman meira og
minna. Einkum var það í sambandi
við félagsmál og þá innan sjálf-
stæðisflokksins. Það var gott að
vinna með Guðmundi. Hann var
ósérhlífinn og skilaði því starfi
sem hann tók að sér. Hann var
góður að skipuleggja verk og var
dugmikill afkastamaður. Guð-
mundur var alltaf hreinn og beinn
og sagði álit sitt í hverju máli, sem
við var að fást.
Lifssaga Guðmundar, sem öll
var í Hafnarfirði, verður ekki
rakin í stuttu máli. Hann kom víða
við sögu í bæjarlífinu. Hann var
virkur í atvinnulífinu um langt
árabil og var vinsæll og traustur
starfsmaður og yfirmaður. Bæjar-
fulltrúi var hann í 12 ár og gegndi
mörgum trúnaðarstörfum á þeim
vettvangi. Auk þess gegndi hann
ýmsum trúnaðarstörfum á þeim
vettvangi. Auk þess gegndi hann
ýmsum trúnaðarstörfum í félögum
og í Sjálfstæðisflokknum. Þá var
hann sparisjóðsstjóri frá 1967.
Guðmundur fylgdist vel með og
kynntist ýmsum erfiðleikum fólks
og mun margur hafa notið leið-
beininga hans sér til gagns. Það
kom vel fram í opinberum störfum
hans, að hann lagði sig fram um
að halda þannig á málum, að þeir
sem minna máttu sín væru ekki
hlunnfarnir, heldur studdir og
hjálparhönd rétt þar sem þörf var
á. Umfram allt vildi hann stuðla
að því að fólk gæti staðið á eigin
fótum eins og kostur var.
Guðmundur var orðheldinn og
þótti miður gæti hann ekki borið
fullt traust til annarra í þeim
efnum. Hann var reglusamur og
stóð eins og klettur gegn því að
losað væri um hömlur í sambandi
við vímuefnaneyslu, enda mun
hann í störfum sínum oft hafa
kynnst harmleikjum í sambandi
. .TUf
iGróf'**1
Það verdur fjör og fjölmenni
á Steindórsplaninu.
Jólaskemmtun á morgun laugardag
frá klukkan 15°° og fram eftir degi.
Álafosskórinn syngur jólalög.
*
Gluggagægir hittir alla hressa
krakka og gefur Freyjugott.
*
Jólatríóið leikur og syngur jólalög.
Mætum öll í hátíðarskapi.
Gleðileg jól
Verslanir í Grófinni
A,
Vesti
HA«NA»ST«4 T S *H «09 'J! «1« •.
! AAFOSSBÚÐIN
Vesturgötu 2. simar 13404 — 22090
Veslurgotu 1 — simi 11350
BOKAVERSLUN
*■- SNÆBJARNAR
__ . , _ tm. k*C 11II C Hafnarstræti 4 simi 14281
PjúslHinnii
kolhrun lijor^ol/sdollir
Kt-ramiker
VESTVRCOn 5
j.* BLINAÐARBANKI
ÍSLANDS
Tryggvagötu 22 ReyKjavik. Austurstr 5
siml 11556
*BIÍ)Mt\\lXnR
HAfnarstiæti 3 sm>. 1?717 — 23317
Heimilistæki hf
Hafnajvtrstl 3. 101 Reykjavfk
FERÐASKRIFSTOfAN
Iffarandi
Vesturgötu 5
Aðalstræti 4
Simi 15005
VESTURGÖTU 4
1 15 SO
'Ska
juöinti
SENDIBÍLAR HF. TOPP.
islenskur
si
__
j 1 : VELTUSUNDI 1
rj X -fe) heimilisidnaöur O -jp -jO
Halnartlrsli 3. •imi 117(5
IHfnaoirA ii K<-,k)A,ik 'imi IA7MI Aöalslr*!. 6
]\ES VIDEO
HAFNARSTRÆTI 2
^ , ,3- ,
^EJORI s.f YArtí
Hafnarslr*!. 1 - Simi 17451
HAFNARSTRÆTI 4
“ Vlamhorq