Morgunblaðið - 20.03.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1986
tækrar þekkingar á ýmsum sviðum
sem nú tíðkast að kalla hátækni.
Á borði þess liggja t.d. hug-
myndir í lfftækni og rafeindaiðnaði
til úrvinnslu, svo eitthvað sé nefnt.
Frumkvæði hf. var stofnað þrátt
fyrir óhagkvæm skattakjör áhættu-
fjármagns til þess eins að sýna fram
á nauðsyn þess að fjármagna nýiðn-
aðarhugmyndir með áhættufé. Ár-
angurinn er hægt og bítandi að
koma í ljós.
Við eigum fjöldann allan af
spennandi verkefnum að fást við.
Okkar unga og velmenntaða fólk
væntir þess að athafnir komi nú í
stað orða.
Nú er kominn tími til þess að
hætta slagorðaglamri og fagurgala
um nýiðnaðaruppbyggingu í
landinu.
Til þess að hrinda hlutunum í
framkvæmd þarf peninga.
Afl atvinnuppbyggingar hefur
allt af verið þrennt, hugvit,
áhættufjármagn og gróðavonin.
Atvinnuuppbyggingin verður
ekki framkvæmd af lánsfé einu
saman.
Það er kominn tími til þess að
við íslendingar horfumst í augu við
það að frumskylda atvinnufyrir-
tækjanna er að græða peninga. Með
því byggja þau upp atvinnu f
landinu, greiða góð laun og auka
almenna velmegun. Taprekstur
leiðir til lélegra lífskjara og hnign-
unar.
Án gróða fæst ekki áhættufjár-
magn frá einstaklingum í þessu
þjóðfélagi.
En hvort tveggja þurfum við
strax til þess að byggja upp þann
efnahagslega vöxt sem nauðsynleg-
ur er til að auka velmegun og bæta
mannlífið í landinu.
Það er athyglisvert að árið 1986
streitast menn á íslandi enn gegn
því að viðurkenna gróðaþörf at-
vinnulífsins, þótt leiðtogar eins og
Gorbatschev og Deng Xiao Ping séu
búnir að gangast við henni.
di«éar
Tökum upp aukasendingar af:
1. Drengjafermingafötum.
2. Stúlknafermingafötum.
3. Slaufum.
4. Mittislindum.
5. Klútum.
6. Skyrtum.
7. Blússum.
8. Bindum/Klútum.
Þetta eru síðustu sendingar af
þessiun vinsæla fermingarfatnaði.
ATH:
Opið alla laugardaga
til l.júní frá
kl. 10—2 e.h.
EINS OG SÉST!
Hefur Þórscafe opnað fullkomið diskótek
á heimsmælikvarða!
OG NÚ!
Opnum við diskótekið
FIMMTUDAGSKVÖLD
Með meiriháttar uppákomum!
EIRÍKUR HAUKSSON
Sérsamið atriði frá Dansstúdíói Sóleyjar
Tískusýning frá Christine.
Og margt fleira!
Kynnir: Jónas Jónsson.
REYKJAVÍK ISLAND