Morgunblaðið - 20.03.1986, Qupperneq 42
5HAM
AJaVÍUÖHOM
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ1986
Kveðja:
Steindór Signr-
steinsson, Selfossi
Fæddur 1. október 1913
Dáinn 14. febrúar 1986
Denni á Sólbakka: „Ég vil ekki
sjá neitt umstang, þó karl eins og
ég deyi.“ Ekki þætti mér undirrituð-
um ótrúlegt að eitthvað þessu líkt
hafi hann sagt við konuna sína,
hana „Guddu", Guðbjörgu Páls-
dóttur, og þá hafi hún svarað: „Við
vitum nú aldrei hvort verður á
undan, væni minn.“ En sú varð
raunin á, sem nú er, Denni er far-
inn, og ekkert auglýst fyrr en að
lokinni útför.
Ég komst ekki hjá að kynnast
þessu ágæta fólki, á yfir 30 ára
búskap mínum á Selfossi, þau frum-
byggjar þorpsins og ég flyt þangað
1950 og bý þar til 1980. Á þessum
árum setur „frumbyggi" úr þorpi í
kauptúni eðlilega mikinn svip á
staðinn. Þótt maður jafn traustur
og ábyggilegur í alla staði hafi
kannski ekki mikið verið í forsvari
í opinberum störfum, fer ekki hjá
því að framgangur byggðarlags
sem Selfosskaupstaður er í dag
hlýtur að draga dám af sínum bú-
endum, einkum frumbyggjum. Hver
"v maður er hluti af umhverfi sínu og
störfum og umhverfið hluti af
manni sjálfum, svo mun og vera
með Selfoss í dag, að maður eins
og Denni hlýtur að „spora“ veru-
lega. Ég ætla mér ekki með þessum
fáu línum að skrifa ævisögu manns
sem jafn margt liggur eftir og
Denna. Nú hefi ég ekki lesið Bíl-
stjórasöguna sem nýlega kom út,
um þá hörkuduglegu menn sem sáu
um aðdrætti og einnig að koma
vörum á markað höfuðstaðarins,
> frá því fyrir stríð eða fyrir 1940
og fram á þessa síðustu daga, enda
er þar mikill munur á, einkum
vegna vega og farartækja. Aðeins
langar mig að minnast eins sem ég
heyrði frá gömlu dögunum og sýnir
hún best hvað þessir menn eins og
Denni og hans félagar sem óku
mjólkurbílunum á fyrri árum máttu
reyna og fáir í þá daga skoðuðu
sem nein afrek, en kynnu að þykja
erfið í dag og er hún þessi saga
sjálfsagt engin sérstæða frá mörg-
um öðrum ferðum þessara þrek-
manna sem sumir eru famir og
þeir sem eftir em láta sér fátt um
finnast.
Sagan er sú, að eitt sinn sem
oftar fóm nokkrir bílar frá KA með
mjólk (að sjálfsögðu á brúsum, ekki
tankbílum) af stað til Reykjavíkur
og þótti ekki góð fæðrin eins og
kallað var. Eftir einn og hálfan
sólarhring eða tvo kömst lestin að
Kolviðarhóli. Var þá Denni látinn
hringja austur og að sjáífsögðu í
Egil Thorarensen, sem þá var sjálf-
kjörið höfuð Selfoss, og sagði illa
gengi, enda þá um tveir sólarhring-
ar frá því að lagt var af stað. Egill
spyr hvort allt sé brotið, segir
Denni, að sem betur fer sé svo ekki.
Svarið var ósköp einfalt. „Hvem Q.
emð þið að hanga þama, komið
ykkur áfram, það er beðið eftir
mjólkinni í Reykjavík," og skellti
tólinu á. í slíkum ferðum var ekki
annað með en ein eða tvær skóflur
svo hægt væri að handmoka frá
hjólum. Einhver biti mun hafa verið
með í ferðunum en ekki þótti
ástæða til að hann væri of mikill.
Menn vom að vinna, ekki verið að
ala upp með fallþunga að markmiði.
Þessi saga er ekkert einsdæmi, en
þessir þrekmenn vilja sem minnst
um slíkt tala, þetta var sjálfsagður
hiutur. í þessa daga vom föst mán-
aðarlaun, engin yfirvinna, engar
aukatekjur. Hætt er við að nútíma
fólki þætti nóg um. Ef um langtíma
ófærð var að ræða var hvíldin heima
ekki löng, því oftast munu bflstjórar
hafa meira eða minna aðstoðað
viðgerðarmenn þá stuttu stund sem
staðið var við á heimaslóðum, þar
til lagt var í næstu ferð, eftir litla
eða jafnvel enga hvfld. — En Denni
átti góða konu, glaðværa og káta,
en þó gleymdi hún aldrei ábyrgð
þeirri sem gott og fallegt heimili
hefir að segja, fyrir mann sem
vinnur mikið og kemur þreyttur
heim. Saman unnu þau að því að
fegra heimili sitt og ótvírætt mátti
heimfæra málsháttinn „þar sem er
hjartarúm þar er húsrúm“ á heimili
þeirra á Sólbakka, því munu fleiri
mér sammála vera. Óvíða hefi ég
komið þar sem betra og skemmti-
legra var að eiga smástund með
þeim hjónum yfir kaffibolla.
Með þessum fáu línum minnist ég
lítillega góðs drengs sem vissi vel
hvað þurfti til, að koma til manns
góðum og drenglyndum afkomend-
um. Þar stóðu þau hjón saman sem
einn.
Samúðarkveðjur til hans nán-
ustu.
Ól. Þorvaldsson
Mig langar til að minnast fáein-
um orðum vinar míns, Steindórs
Sigursteinssonar, Sólbakka, sem
var kallaður Denni af flestum
samferðarmönnum.
Hann fæddist að Keldum í Mos-
fellssveit, fyrsta dag okóbermánað-
ar 1913. Foreldrar hans voru Hall-
dóra Gísladóttir og Sigursteinn
Steindórsson. Denni munn hafa
komið ungur að Selfossi og var með
fyrstu íbúum staðarins. Þar átti
hann síðan heima til dauðadags,
14. febrúar síðastliðinn.
Innan við tíu ára aldur fór hann
fyrst í sveit, þá lá leiðin að Kiðja-
bergi í Grímsnesi, til hjónanna
Soffíu og Gunnlaugs og var hann
þar á sumrum öll unglingsárin. Þar
var þá stórbú og því nóg að gera.
Það var gaman að ræða við Denna
um þessi sumur, því það var mikil
hlýja til þessa heimilis í þeirri
umræðu.
Um 1930 verður hann vörubif-
reiðastjóri og um leið mótar hann
ævistarfið, því hann ók vörubfl
næstu fimmtíu árin. Fyrst hjá
Kaupfélagi Ámesinga og Mjólkur-
búi Flóamanna. Á sjötta áratugnum
kaupir hann sér vörubíl og fer þá
í vegavinnu. Hann verður um það
leyti félagi í Vörubflstjórafélaginu
Mjölni og er í því næstu tvo ára-
tugi. Þó að Denni væri ekki mikið
fyrir að vera í félagsmálum, þá
komst hann ekki hjá því. Hann var
Iengi í stjóm Mjölnis og ýmsum
nefndum innan félagsins. Það var
gott að vera með honum í þessum
stjómum. Hann var góður, hreinn
og beinn og þó hann væri oft harð-
orður, vissu allir sem þekktu hann
best, að undir sló gott hjarta. Hann
vildi engum mein gera, hvorki
mönnum né málleysingjum. Eftir-
farandi saga lýsir því best.
Eitt haustið sem hann ók mjólk
tii Reykjavíkur, verður hann var við
að það er eitthvað lifandi inni í bfln-
um. Hann fer að gá að þessu og
finnur þá bak við sætið sitt mús.
Þessari mús gefur hann allan vetur-
inn í bílnum af nesti sínu. Er hægt
að hugsa sér meiri hjartahlýju?
Fyrir tæpum fimmtíu ámm gift-
ist hann Guðbjörgu Pálsdóttur,
eftirlifandi konu sinni, frá Eyrar-
bakka, mikilli myndarhúsmóður.
Hann fór aldrei dult með, að það
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför,
JÓNS PÁLSSONAR,
Fossheiði S,
Selfossi.
Árný Sigurjónsdóttir,
börn, fósturbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför
JÓNASAR L. JÓNSSONAR
frá Hrísum,
sem andaðist 15. mars, fer fram 22. mars kl. 14.00 frá Víöidals-
tungukirkju, V-Hún.
Farið verður í áætlunarbíl frá Reykjavík. Þeir sem hafa áhuga á
fari, hringi í síma 21896 og 20554.
Benedikt Jónsson.
hefði verið sitt mesta gæfuspor á
lífsleiðinni. Þau eignuðust fjögur
böm saman, einn son átti hún áður,
sem hann gekk í föðurstað. Böm
þeirra eru öll mesta myndarfólk,
góðir þegnar í þjóðfélaginu.
Þau hjón stilltu sína strengi oft
nokkuð hátt, en þau kunnu þá list
að stilla þá saman og voru höfðingj-
ar heim að sækja.
Ég vil að lokum þakka fyrir mikla
gestrisni og góðvild í minn garð á
iiðnum árum. I guðs friði.
Róbert Róbertsson
Steindór Sigursteinsson, eða
Denni eins og hann var kallaður
milli samferðamanna og ættingja,
andaðist á heimili sínu 14. febrúar
síðastliðinn. Foreldrar Denna voru
Halldóra Gísladóttir og Sigursteinn
Steinþórsson. Á Stokkseyri ólst
Denni upp meðal sjómanna, verka-
manna og bænda, fólki sem kunni
að vinna, fólki sem ekki sóttist eftir
veraldarauð til dagiegs brúks, (
einhvem allsheijar bjargráðasjóð
nútímans. Þetta var hugdjarft al-
þýðufólk sem háði harða og drengi-
lega baráttu fyrir hinu daglega
brauði, veðurglöggir sjómenn, sem
urðu að rísa snemma úr rekkju til
að hlusta eftir brimhljóði morguns-
ins, harðjaxlar íslenskrar sjómanna-
stéttar sem urðu að hugsa um líf
áhafna sinna, að allir áhafnarmeð-
limir kæmust heilir í höfn. Þannig
var veðurspá íslenskra sjómanna á
þeim tíma er Denni var að alast
upp. Hann hlustaði ávallt eftir brim-
hljóði morgundagsins. Ég vil staldra
við og íhuga hvað Einar Benedikts-
son segir f ljóðinu Brim:
Volduga hjartaslag hafdjúpsins kalda,
af hljóm þínum drekk ég mér kraft og frið.
Ég heyri i þér, skammlífa, skjálfandi alda.
Skóhljóð timans sem fram skal halda,
og blóð mitt þýtur með brimsins nið.
Ég beini sál minni að helsins hafi,
sem handan við sól drekkur lifs mfns straum.
Ég sé minn himin með sólbjarma trafi.
yið sjóndeild blandast skugganna kafi.
Ég sekk mér í huga míns, dýpsta draum.
Ég sekk mér í brimhljóðsins sogandi öldu.
Og sál mína á óminnisdjúpinu kný.
Ég tel mig í ætt við unnina köldu,
sem einn af dropunum mældu og töldu.
Sem hljómbrot í eilífðar hafsins gný.
Margar ljóðlínur í þessu stór-
brotna kvæði Einars Benediktsson-
ar eiga við lífsgöngu þessa dreng-
lundaða höfðingja. Starfsævi Denna
hefst á Selfossi í heimskreppunni
miklu 1930—1940. Það dugði ekki
annað en reglusemi til að lifa því
lffi sem fjölskyldufeðrum og ein-
stæðingum var boðið upp á á þess-
um tíma. Ég þreifaði lítillega á
þessu sultarlffi er ég bjó á þessum
árum hjá móður minni í kjallaraholu
á Vesturgötunni, 7 ára gamall. Það
var mikil veisla ef gefin voru nokkur
sykurkom út á hafragrautinn. Það
sem einkennt hefur heimili Denna
og Guðbjargar á Sólbakka er gest-
risni. Þar bjó traust alþýðufólk, fólk
sem þekkir hinn harða skóla lffsins,
þar sem engum var úthýst er að
garði bar. Og enn vil ég vitna f
Einar Benediktsson:
ÖII sælaergleði hinsgóða.
Hún gjörir að höll hvert kot
Án hennar er auður hismi
og hreysi, hvert konungsslot
Aftveggjasálnasælu
er sál hvers engils glödd.
En heimsböm, sem himin glæða
til hæðanna verða kvödd.
Það göfuga og góða vinnur
sér gengi, við lánsins spil
þvi jörðin tU himins horfir
og himinninn jarðar til.
Um langa tíð starfaði Denni
heitinn sem bifreiðastjóri hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna. Var hann þar
hinn trausti maður sem aldrei gaf
eftir á hverju sem gekk. í hinum
erfiðu vetrarferðum yfir Hellisheiði
sem oft á tíðum tóku sólarhring var
ekki annað að gera en moka sig
áfram með skóflu. Þetta er ótrúleg
saga, en sönn.
Denni var gæfumaður f sfnu lífi.
Hann kvæntist traustrí og heil-
steyptri konu, Guðbjörgu Pálsdótt-
ur frá Skúmstöðum á Eyrarbakka.
Þau eignuðust flögur mannvænleg
böm. Þau eru: Sigursteinn, Ingi-
björg Jóna, Sverrir og Gfsli. Áður
hafði Guðbjörg, sem er móðursystir
mín, eignast son, Pál Ámason, og
reyndist Denni honum ávallt sem
hinn trausti faðir.
Við hjónin sendum eiginkonu og
bömum innilegar samúðarkveðjur
við fráfall þessa góða drengs. Guð
blessi ykkur.
Sverrir Gfslason
Félag áhugaslökkvi-
liðsmanna stofnað
HINN 8. mars sl. var stofnað að
Hreðavatni „Félag áhugslökkvi-
liðsmanna á íslandi".
Voru mættir slökkviliðsmenn
víðsvegar af landinu.
Tilgangurinn með stofnun fé-
lagsins er að vinna að bættum
launamálum, tryggingarmálum og
allri aðstöðu fyrir slökkviliðsmenn.
Ýmsar tillögur vom lagðar fram
á fundinum og voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar:
— Að allir slökkviliðsmenn verði
tryggðir gegn slysum í starfi
fyrir eigi lægri upphæð en 2
millj. kr. miðað við fulla örorku
eða dauða, og að greiddir verði
eigi lægri dagpeningar en kr.
12.000 á viku í allt að 40 vikur.
— Að félagsmálaráðherra vinni að
því, að stofnsettur verði sérstak-
ur sjóður til eflingar brunavama
í landinu. Fundarmenn töldu
eðlilegt, að aflað verði tekna í
þennan sjóð með því að leggja
1% gjald'á allar bmnatryggingar
í landinu.
— Að stjóm félagsins heíji nú þegar
viðræður við samtök sveitarfé-
laga í landinu og við einstök
sveitarfélög í þeim tilgangi, að
vinna að og samræma launamál
áhugaslökkviliðsmanna.
— Þar sem sveitarfélög telja 1.000
íbúa eða fleiri, verði skipaður
slökkviliðsstjóri í fullt starf og
hafi hann jafnframt á hendi eld-
vamareftirlit í umdæminu.
Stjóm félagsins skipa:
Formaður Bjöm Sverrisson,
Sauðárkróki, ritari Bjami Þor-
steinsson, Borgamesi, gjaldkeri
Símon Aðalsteinsson, Bæjarsveit,
og til vara Guðjón Jónsson, Suður-
eyri og Sævar Benediktsson,
Hólmavík.
raðáuglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Akranes — Morgunfundur
Fundur um bæjarmálefni verður haldin i Sjálfstæðishúsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn 23. mars kl. 10.30.
Bæjarfulltrúar sjálfstæðisf lokksins mæta á fundinn.
Sjálfstæðisfélögin Akranesi.
Kópavogur — Kópavogur
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi
heldur fund fimmtudaginn 20. mars nk. kl. 20.30 í Sjálfstæöishúsinu
að Hamraborg 1,3. hæð.
Dagskrá:
1. Tillaga kjörnefndar að framboöslista Sjálfstæöisflokksins fyrir
bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi i mai 1986.
2. Önnurmál.
Fulltrúaráösmenn eru hvattir til aö fjölmenna og mæta stundvislega.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Bolungarvík — prófkjör
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík vegna bæjarstjórnakosn-
inga i vor verður i verkalýðshúsinu, laugardaginn 22. mars og sunnu-
daginn 23. mars kl. 14.00-17.00.
Kosið verður utan kjörstaöar í Valhöll sjálfstæðishúsinu í Reykjavik
fimmtudaginn 20. mars kl. 17.00-21.00.
í kjöri eru: Víðir Benediktsson, örn Jóhannsson, Ásgeir Þór Jónsson,
Björgvin Bjarnason, Einar Jónatansson, Gunnar Hallsson, Ólafur
Kristjánsson, Ragnar Haraldsson.
Þeir sem kjósa vilja i Bolungarvík utan kjörfundar hafi samband við
formann kjörstjórnar, Einar K. Guðfinnsson.
Kjörstjórn.