Morgunblaðið - 20.03.1986, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ1986
64
Hver ekur hvaða bfl?
1. Alan Prost
2. Keke Rosberg
3. Martin Brundle
4. Eddie Cheever
5. Nigel Mansell
6. Nelson Piquet
7. Ricardo Petrese
8. Elio de Angells
9. Mike Thackwell
11. Johnny Dumfrles
12. Ayrton Sonna
14. Jonathan Palmer
16. Alan Jones
16. PatrickTambay
17. MarcSurer
18. Thlerry Boutsen
19. TeoFabi
20. Qerhard Berger
21. IvanCapelli
22. Christian Danner
23. Andrea de Cesarls
24. Alessandro Nanini
26. René Arnoux
26. Jaques Laffite
27. Michele Alboreto
28. Stefan Johansson
McLaren Tag V6
McLaren Tag V6
Tyrrell Renault V0
Tyrell Renault V6
Williams Honda V6
Williams HondaVö
Brabham BMW 4 cyl.
Braham BMW4cyi.
RAM Hart/FordVö
Lotus RenauK V6
Lotus RenaultV6
Zakspeed T4 4 cyt.
Lola Hart/Ford V0
Lola Hart/Ford V0
Arrowa BMW 4 cyl.
Arrows BMW 4 cyt.
Benetton BMW 4 cyl.
Benetton BMW 4 cyl.
Osella Alf a V8
Osella Atfa V8
Minardi MotoriVö
Mlnardi MotoriV6
Ugier RenaultVö
Ugier Renault V6
Ferrarí V6
Ferrari Vð
e Gamla kempan Alan Jones hefur ákveðiS að hefja keppni í kappakstri að nýju. Hann mun aka nýjum
Beatrice Lola/Ford keppnisbíl en samskonar bíl mun Patrick Tambay aka.
Sviptingar hjá Formula i keppnisliðum:
Margir ökumenn
hafa nauðugir
skipt um bfl
FYRSTI Formula 1-kappaksturinn í ár verður í Rio de Janeiro í Brasil-
íu á sunnudaginn. Þá munu 26 ökumenn, flestir hálaunaðir, berjast
'um sigur í keppni á einni erfiðustu kappakstursbraut heimsmeistara-
keppninnar. Keppnin verður sú fyrsta af 16 sem gefur stig til heims-
meistaratitilsins. Það hafa verið miklar sviptingar innan keppnislið-
anna, frá því keppnistfmabilinu lauk á liðnu ári. Margir ökumenn
hafa skipt um lið, nýir bflar og kraftmeiri vólar. Aldrei hafa jafnmörg
keppnislið haft peninga til að gera stóra hluti og nú œtla menn að
leggja hið sigursœla McLaren-lið að velli — eins og oft áður.
Það verður þó enginn leikur.
Hjá þeim ekur heimsmeistarinn
Alain Prost og hefur hann nú feng-
ið fyrrum heimsmeistara, Finnann
Keke Rosberg, í lið með sér. Þeir
munu báðir aka nýsmíðuðum
McLaren-bílum og Prost hefur
sigrað í brasilíska kappakstrinum
tvö undanfarin ár. McLaren-liðið
gæti vart verið sterkara, en það
eru önnur lið líka. Rosberg hætti
L'j|^jó Williams-liðinu, þar munu nú
sitja fákana Bretinn Nigel Mansell
og fyrrum heimsmeistari, Brasilíu-
maðurinn Nelson Piquet, sem átti
afleitt ár með Brabham í fyrra
vegna tæknilegra vandamála.
Braham er nú með nýjan bíl og
nýja ökumenn, sem ætla sér mikið.
Ricardo Patrese og Elio de Angelis
munu stjórna Brabham-bílunum,
en de Angelis var sparkað frá
Lotus að undirlagi annars öku-
manns þar, Brasilíumannsins Ayr-
ton Senna. Senna taldi de Angelis
of góðan til að vera í sama liði og
hann, það setti of mikli pressu á
liðið. Virðist hann hafa tak á stjórn-
endum þar. Senna er líklega fljót-
asti ökumaðurinn í dag, en hefur
skort úthald og ekki oft lokiö
keppni. Hann er líklegur til afreka
í ár. Félagi Senna verður nýliðinn
Johnny Dumfries.
Fataframleiðendurnir Benetton
hafa lagt milljónir dollara í kapp-
akstur og hafa nú undir eigin nafni
framleitt nýjan keppnisbíl handa
þeim Teo Fabi og Gerhard Berger.
Fabi var mjög góöur í fyrra en
skorti traustan bíl. Alan Jones
þekkja flestir, sem eitthvað þekkja
til kappaksturs. Hann varð heims-
meistari 1980 en hætti síðan
•"^lkeppni, í ár byrjar hann að nýju á
nýjum bíl með nýja vél frá Ford.
Frakkinn Patrick Tambay, herra-
maðurinn í Formula-sirkusnum,
mun aka samskonar bfl. Hann var
áður hjá Renault, sem hætti keppni
í fyrra. Annar sem hefja mun
keppni í ár að nýju er Frakkinn
René Arnoux, sem rekinn var frá
Ferrari fyrir tveimur árum fyrir
ruddaskkap innan og utan brautar.
Ligier hefur ráðið hann auk Jaques
Laffite, sem hætti við að hætta í
fyrra vegna góðs árangurs.
Ferrari er nær eina liði með
sömu ökumenn og í fyrra, þá Stef-
an Johanson og Michele Alboreto,
sem vegna slaks keppnisbíls
missti af heimsmeistaratitlinum á
sl. ári. Þeir æfðu ásamt öðrum
Formula 1-ökumönnum í Rio fyrir
stuttu og voru ekkert of ánæðir
með nýja bfla sína. Náðu þeir þó
þriðja og fjórða besta æfingatíma,
á eftir Ayrton Senna og Nelson
Piquet. Stór spurningamerki eru
Martin Brundle og Eddie Cheever
á nýjum Tyrell og Thierry Boutsen
og Marc Surer á Arrows. Hverjir
koma til með að berjast um titilinn
ætti að vera Ijóst í fyrstu keppnun-
um, það nægir ekki að ökumenn-
irnir séu góðir, álagið á viðgerðar-
mennina og stjórnendur keppnis-
liðanna er mikið og ekki má skorta
peningaflæði frá auglýsendum.
Því eiga fátækari liðin eins og
Zakspeed, Osell og Minardi litla
möguleika. Peningar og reynsla
er það sem gildir, því ættu Will-
iams, Mclaren, Lotus, Ferrari,
Benetton og Ligier að vera í farar-
broddi í ár.
GR
Risastórsvig:
Wasmeier bestur
MARKUS WASMEIER frá Vest-
ur-Þýskalandi sigraði i risastórs-
vigi heimsbikarsins í Bandaíkjun-
um á sunnudaginn. Með sigri sfn-
um vann hann heimsbikarkeppn-
ina í ristastórsvigi samanlagt.
Þetta var annar sigur Wasmeier
í ristastórsvigi á þessu keppnis-
tímabili. Hann hefur einni orðið í
öðru og þriðja sæti. Pirmin Zur-
briggen frá Sviss var sá eini sem
gat ógnað sigri hans í þessar
grein, en hann varð í níunda sæti.
Martin Hangl frá Sviss varð annar
hálfri sekúndu á eftir Wasmeier.
Peter Roth frá Vestur-Þýskalandi
varð þriðji, Hans Enn frá Austurríki
fjórði og enn einn Vestgur-Þjóð-
verji, Michael Eder, varð fimmti.
Sannarlega góður árnagur hjá
Vestur-Þjóðverjum.
MULLER FELL I SIÐ-
ASTA BRUNINU
Á laugardaginn var keppt í síð-
ustu brunkeppni heimsbikarsins.
Þar sigraði Anton Steiner frá
Austurríki. Peter Múller frá Sviss,
sem hafði alla möguleika á að
vinna brunkeppnina samanlagt
varð fyrir því óláni að detta í braut-
inni er hann átti aðeins 200 metra
eftir og hafði haft besta millitím-
ann. Peter Wirnsbergerfrá Austur-
ríki vann bruntitilinn.
Þetta var annar sigur Steinar á
þessu keppnistímabili. Hann var
11 hundruðustu úr sekúndu á
undan Michael Mair frá Ítalíu.
Leonard Stock frá Austurríki varð
þriðjiá2:10.14mín.
MorgunblaðiS/Gunnlaugur Rögnvaldsson
S Finninn Keke Rosberg mun aka með rflcasta keppnisliðinu, McLar-
en ásamt heimsmeistaranum Alain Prost. Hann átti í erfiðleikum með
að heimfæra akstursmáta sinn á McLaren-bflinn á æfingum f Brasilíu.
Risastórsvig:
Marina Kiehl vann
í síðustu keppni
en Valliser er efst í stigakeppninni
ÁÐUR ÓÞEKKT bandarísk stúlka,
Pam Fletcher, vann mjög óvænt
sigur í síðustu brunkeppni
kvenna í Kolaradó f Bandarfkjun-
um á laugardaginn. Marina Kiehl
frá Vestur-Þýskalandi sigraði f
risastórsvigi á sunnudaginn á
sama stað.
Maria Walliser frá Sviss tryggði
sér sigurinn samanlagt í brun-
keppnum heimsbikarsins. Hún
varð í þriðja sæti á laugardaginn.
Önnur varð Laurie Graham frá
Kanada. Fletcher sem er 23 ára
hafði start númer 30 og kom sigur
hennar mjög á óvart. Hún var síð-
asta stúlkan sem komst í banda-
ríska kvennaliðið sem þátt tekur í
heimsbikarnum.
í risastórsviginu á sunnudaginn
var Marina Kiehl fyrst eins og áður
segir á tímanum, 1:23.40 mín.
Önnur var Anita Wachter frá Aust-
urríki á 1:23.64 mín. Liisa Savijarvi
frá Kanada varð þriðja á 1:23.90
mín. Michaela Gerg varð fjórða á
1:23.95 mín. Laurie Grahm frá
Kanada varð fimmta á 1:24.37 mín.
Staðan í heimsbikarkeppni
kvenna er nú þessi:
María Walliser, Sviss, 276
Eríka Hess, Sviss, 238
Michela Figini, Sviss, 177
Brígitte Oertli, Sviss, 177
Vemi Schneider, Sviss, 170
Olga Charvatova, Tékkóslóvakfu, 169
Traudl Haecher, V-Þýskalandi, 163
Marína Kiehl, V-Þýskalandi, 161
Katrín Gutensohn, Austurrfki, 146
Michaela Gerg, V-Þýskalandi, 144
Lokastaðan í risastórsviginu er
þessi:
Marlna Kiehl, V-Þýskalandl, 76
Liisa Savijarvi, Kanada, 66
Micaela Marzola, ftalfu, 47
Italía:
Roma nálgast Juventus
ÖRUGGUR 3:0 sigur næstefsta
liðsins, Roma, á því efsta, Juvent-
us hleypti nýju lífl f fyrstu deild
ftölsku knattspyrnunnar. Fimm
umferðir eru eftir og forysta Ju-
ventus er skyndilega komin niður
f þrjú stig. Hefði liðið unnið Roma
væri forysta þess 7 stig, og að-
eins formsatriði að Ijúka keppn-
inni.
En leikmenn Roma voru ekkert
á því að hleypa Juventus svo langt
frammúr. Attatíu þúsund kátir
áhorfendur sáu Roma ná forystu
strax á annarri mínútu með marki
Graziani. Pruzzo og Cerezo skor-
uðu hin mörkin tvö. I hinum topp-
leiknum í ítölsku knattspyrnunni
um helgina skoraði Diego Mara-
dona sigurmark Napoli gegn Inter
Milanó úr vítaspyrnu. Ahorfendur
í Napoli voru 72.000.
Mark Hately skoraöi bæöi mörk
AC Milanó á móti Udinese, hið
síðara með hörkugóðum skalla.
Fallegasta mark umferðarinnar var
hinsvegar örugglega þrumufleygur
gömlu brasilísku kempunnar
Dirceu af þrjátíu metra færi - snún-
ingsbolti úr aukaspyrnu í bláhornið
uppi. Markið dugði þó Pisa ekki,
því Balderisi jafnaði í síöari hálfleik.