Morgunblaðið - 01.05.1986, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1986
Eitt vinsælasta leikrit Moliéres í Nemendaleikhúsinu á föstudaginn
„Við lifum á stillilegri tíð, er
ofbeldisverk er öfug raunarbót“
Nemendurnir sex sem útskrifast úr Leiklistarskóla ríkisins á föstudaginn. Talið frá vinstri: Valdimar
Orn Flygenring, Bryndis Petra Bragadóttir, Inga Hildur Haraldsdóttir, Guðbjörg Þórisdóttir, Skúli
Gautason og Eirikur Guðmundsson.
Nemendaleikhúsið frumsýnir
leikritið „Tartuffe" eftir Moliére
föstudaginn 2. maí nk. kl. 20.30
í Lindarbæ. Þetta er eitt vinsæl-
asta leikrit Moliére og sem er
hvað oftast leikið erlendis, en
hefur þó aldrei áður verið flutt
á sviði hér á landi. I útvarpi var
leikritið flutt árið 1946 á vegum
Herranætur Menntaskólans í
Reykjavík. Þýðingu gerði Bogi
Olafsson og var hún í óbundnu
máli. Þá þýðingu sem Nemenda-
leikhúsið notar gerði Karl Guð-
mundsson sérstaklega fyrir Leik-
listarskóla rikisins.
Leikstjóri er Radu Peniulescu,
sem starfað hefur sem leikstjóri í
heimalandi sínu Rúmeníu, í Banda-
ríkjunum, Englandi, Frakklandi,
Finnlandi og í Svíþjóð, þar sem
hann er nú búsettur. Hann hefur
starfað mikið sem leiðbeinandi með
leikstjórnamemum og leiklistar-
nemum, nú síðast við Dramatiska
Institutet í Stokkhólmi og í Ríkis-
leiklistarskólanum í Málmey. Leik-
listarskólinn fékk fjárstyrk frá
Norrænu leiklistamefndinni til að
fá Radu Peniulesco hingað.
Það er orðin hefð að gestaleikar- ■
ar taki þátt í sýningu Nemendaleik-
hússins og að þessu sinni tóku þau
Sigríður Hagalín og Þorsteinn
Gunnarsson þátt í sýningunni og
að sögn Helgu Hjörvar, skólastjóra
Leiklistarskóla Islands, er skólanum
mikill fengur að slíkri samvinnu.
„Tartuffe“ er lokaverkefni sex
nemenda við skólann, útskriftar-
verkefni þeirra. Að frumsýningu
lokin fær þessi hópur afhent skír-
teini sín, því til staðfestingar að
hann er kominn í leikarastétt.
Sexmenningarnir eru: Bryndís
Petra Bragadóttir, Eiríkur Guð-
mundsson, Guðbjörg Þórisdóttir,
Inga Hildur Haraldsdóttir, Skúli
Gautason og Valdimar Om Flygen-
ring.
„Tartuffe“ er gamanleikur
(kómedía) með ádeilusvip. Molíere
skopast í leiknum að trúarofstæki
frönsku klerkastéttarinnar og
hræsni, sem leiðir fólk út í öfgar,
vegna þess að það gerir ekki grein-
armun á réttu og röngu. Leikritið
var fyrst sýnt árið 1664 og sýndi
leikflokkur Moliéres leikritið kon-
unginum, sjálfum Loðvíki fjórtánda.
Sagt var að konungurinn hafí ekk-
ert haft út á leikritið að setja, heldur
miklu frekar kunnað mjög vel við
það. Hins vegar líkaði klerkinum
ekki háð Moliéres, enda beinir hann
spjótum sínum að þessari stétt.
Kirkjan var voldug stofnun og kom
því til leiðar með miklum þrýstingi
á konung, að leikritið var bannað.
Markaði þetta bann upphafið að
árásum kirkjunnar og vissra afla
innan aðalsins á Moliére. Hann lét
þó ekki deigan síga fyrir svo öflug-
um andstæðingi. Moliére dreifði
leikriti sínu meðal hinna ljölmörgu
vina sinna og kunningja og alls
staðar var því vel tekið og innan
skamms var vart um annað rætt á
götum Parísar en „Tartuffe", nýja
leikritið eftir Moliére, sem kirkjan
lagðist gegn.
Klerkastéttin reiddist að sjálf-
sögðu þessu og vildi ekkert frekar
en að bann konungs næði ekki
aðeins til flutnings á verkinu, heldur
einnig lesturs á því. Unnið var öllum
árum að því að konungurinn bann-
aði verkið algjörlega. Prestar hvöttu
til að Moliére væri brenndur á báli
og biskupar hótuðu bannfæringu
þeim sem sýndu, Iæsu eða létu lesa
leikritið.
Árið 1667 var gerð ný tilraun til
að sýna „Tartuffe“, en í mjög
breyttri útgáfu og undir öðru nafni,
„Panuylfe" (Stóri úlfur). Klerkar
héldu vöku sinni og verkið var
bannað að morgni næsta dags.
Tveimur árum síðar fékk Moliére
loks leyfi til að sýna „Tartuffe" og
ekki var að sökum að spyija, leik-
ritið sló í gegn og var sýnt 55 sinn-
um á árinu, þar af 28 daga í röð.
Síðan þetta gerðist hefur leikrit
Moliéres verið fært á svið oft og
mörgum sinnum og undir mismun-
andi áherslum hvers tíma. Samtíðin
skilur ef til vill leikritið enn betur
en 17. aldar fólk og þess vegna er
ekkert leikrit Moliéres oftar sýnt
en einmitt „Tartuffe".
Bryndís Petra
Bragadóttir:
„Leikarar verða
aldrei fullnuma“
„Þetta eru búin að vera yndisleg
ár og mjög góður skóli. I huga mér
er þetta sem hálf ævin en þó ekki
nema tvær vikur, svo hratt hefur
tíminn liðið. Ég hef þroskast gífur-
lega og efst í huga mér er þakklæti
fyrir að geta lært þá Iist sem er
mér mitt hjartans mál,“ segir
Bryndís Petra Bragadóttir, en hún
leikur þjónustustúlkuna Doris í
„Tartuffe", leikriti Moliéres.
„Doris er mjög klók að eðlisfari
og hún reynir að bjarga því sem
hægt er að bjarga. Hún reynir að
opna augu Orgons fyrir Tartuffe.
Doris framkvæmir hlutina mjög
hratt, drífur í þeim.
Já, ég tel mig vera að ná tökum
á Doris, þetta er alveg að koma og
verður vonandi gott á frumsýning-
unni. Annars er það frekar áhorf-
enda að dæma um getu mína.“
— Telur þú þig hafa náð tökum
á leiklistinni eftir fjögurra ára nám
við Leiklistarskólann?
„Nei, örugglega ekki. Námið við
Leiklistarskólann er aðeins undir-
búningur. Þar lærum við að vinna
og undirbúa okkur. Ég er núna
fyrst að byija á leiklistinni. Reynsl-
an kemur með tímanum, því leikar-
ar verða aldrei fullnuma. Leikari
er alltaf að læra svo lengi sem hann
lifir.
Við erum með tvo gestaleikara í
þessu leikriti og þeir hafa kennt
okkur leiklistarnemunum ákaflega
mikið. Það er ómetanlegt að eiga
þess kost að leika á móti atvinnu-
leikurum.
„Tartuffe" er algjör perla, eitt
af gimsteinum leikhúsheimsins. Ég
efast ekki um að fólk fái góða
skemmtun þessa kvöldstund í Lind-
arbæ. Sýningin er raunverulega
söguleg stund. Þjóðleikhúsið í París
hefur sýnt leikritið meira en 3.000
sinnum, en hér er það í fyrsta sinn
á sviði.“
— Hvað tekur nú við hjá þér?
„Nú tekur við þriggja vikna nám-
skeið í kvikmyndaleik, sem er mjög
nauðsynlegt og við höfum ekki átt
kost á slíku námskeiði í Leiklistar-
skólanum. Hvað svo tekur við get
ég ekki sagt frá á þessari stundu,
en að sjálfsögðu langar mig ekkert
frekar en að fá starf hjá leikhúsun-
um.“
Inga Hildur
Haraldsdóttir:
„Sviðið er besti
skóli leikarans“
„Nei, ég hef varla ennþá náð
fullkomnum tökum á hlutverkinu,
því Elmíra er mjög erfið. Hlutverkið
finnst mér ákaflega spennandi og
leikritið er stórkostlega vel skrifað.
Hlutverkin hæfa okkur leiklistar-
nemum mjög vel, en textinn er í
bundnu máli og nokkuð erfiður,
enda dýrt kveðinn," sagði Inga
Hildur Haraldsdóttir, en hún leikur
Elmíru.
„Elmíra er seinni kona Orgons,
húsbóndans á heimilinu, en sagan
• gerist þar innandyra á einum degi.
Elmíra er töluvert yngri en Orgon,
Skúli Gautason.
Valdimar Örn Flygenring og Eiríkur Guðmundsson.
Leikstjórinn, Rúmeninn Radu Penciulescu.
*