Morgunblaðið - 01.05.1986, Síða 17

Morgunblaðið - 01.05.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUR1. MAÍ 1986 17 Nemendur 9. bekkjar í Egilsstaðaskóla þreyta samræmt próf í stærðfræði. Sveinn Heijólfsson íslensku- kennari. varðar mikilvægi einstakra náms- þátta og þeir höguðu væntanlega vali á námsefni og hefðu vægi hinna ýmsu þátta í ríkari mæli eftir eigin höfði ef þær skorður, sem samræmd próf setja, kæmu ekki tii. Auk þess skapa samræmd próf kennurum nokkurt aðhald og þeir hafa gott af því eins og aðrir. Af framansögðu má ljóst vera að ég er mótfallinn því að sam- ræmd próf verði afnumin. Þvert á móti tel ég að þeim eigi að fjölga og jafnvel láta þau ná til allra námsgreina 9. bekkjar. Nú eru samræmd próf í fjórum greinum og þtjár þeirra eru tungumál. Próf þessi í sinni núverandi mynd eru því ekki hallkvæm þeim sem eiga í basli með málanám. Það er rétt- lætismál að þessu verði breytt. Mér hefur alltaf fundist það orka tvímælis að raða nemendum niður með þeim hætti að ákveða fyrir- fram hlutfall þeirra sem teljast hafa uppfyllt námskröfur. Eg sakna því ekki normalkúrfunnar svonefndu en notkun gamla ein- kunnastigans krefst þess að próf séu samin af sérstakri alúð og nákvæmni. Það kom t.d. fyrir í samræmda prófinu í íslensku nú á dögunum að spurt var um þekking- aratriði þar sem prófa skyldi les- skilning. Þetta var að vísu smáat- riði því að öðru leyti var prófið samið af vandvirkni. Að lokum vil ég vara við því að einblína á próf og námsmat þótt hvort tveggja séu nauðsynlegir liðir skólastarfs. Breyttir þjóðfé- lagshættir með aukinni sérhæfingu á öllum sviðum leggja skólunum auknar skyldur á herðar. Er það meira mál en svo að því verði gerð viðhlítandi skil hér en próf og það sem þeim viðkemur mega með engu móti skyggja á aðra þætti skólastarfs." Þórarinn V. Sigurðs- son, Jón V. Guðgeirsson o g Björn Gylfason, nemendur: Nauðsynlegi að miida skilin milli grunn- skólans og framhalds- skólans „Prófín voru almennt öllu léttari eða a.m.k. ekki þyngri en við höfð- um búist við,“ sögðu þeir félagar, þegar tíðindamaður Morgunblaðs- ins tók þá tali að afloknu síðasta prófinu. „Samræmdu prófin hljóta að gefa nokkuð raunsanna mynd af stöðu okkar nemendanna í viðkom- andi grein. Já, réttari mynd en skólaprófin, en við viljum samt ekki fjölga samræmdu prófunum. Hins vegar finnst okkur afleitt að slíta skólatímann svona sundur með samræmdu prófunum. Það ætti að halda samræmdu prófin í lok skólatímans. Nei, alls ekki fyrr á skólaárinu, það myndi eingöngu freista nemenda til áð slá slöku við námið það sem eftir væri vetr- ar. Samræmdu prófin eru ákveðið aðhald. En það er alveg nauðsynlegt að brúa betur bilið milli grunnskólans og framhaldsskólans. Við þurfum að vita betur að hveiju við göngum í framhaldsskólunum,“ sögðu þeir félagar að lokum. Sigrún Kristjánsdóttir enskukennari: Samræmdu prófin eiga rétt á sér „Mér finnst samræmdu prófin tvímælalaust eiga rétt á sér. Skóla- prófin ein duga greinilega ekki gagnvart framhaldsskólunum. Það er svo misjafnt hvað að baki þeim býr. Hins vegar finnst mér ótækt að prófað sé samræmt í þremur tungumálum, það er alltof einhæft. T.d. finnst mér ekki fráleitt að nemendur gætu hreinlega valið um það hvort þeir kjósi að gangast undir samræmt próf í ensku eða dönsku. Nema prófað væri ein- göngu í stærðfræði og íslensku. Fjöldi samræmdra prófgreina skiptir að mínu mati ekki megin- máli heldur öllu heldur hveijar prófgreinarnar eru. Mér finnst t.d. alveg koma til greina að prófa samræmt í verklegum greinum. Mér finnst vorið eðlileg tíma- setning samræmdu prófanna mið- að við það að komast þurfi yfir ákveðið námsefni til prófs. Auðvitað verða að gilda ákveðn- ar lágmarkseinkunnir til inngöngu í framhaldsskóla. Auk þess ættu að vera ákveðin áfangapróf innan grunnskólans í stað þess að hleypa nemendum áfram upp allan grunn- skólann eins og nú er gert hvað svo sem kunnáttu hvers og eins líður. Það er mjög brýnt mál að horfið sé frá þessari endalausu skiptingu nemenda í námshópa innan grunnskólans eftir fæðingar- ári. Nemendur eiga heimtingu á því lögum samkvæmt að fá kennslu við sitt hæfí, en það fá þeir aldrei ef ekki má raða þeim í námshópa eftir kunnáttu og hæfileikum hvers og eins. Það sjá allir sem vilja sjá að kennsla í 25 manna hópi, sem á fæðingarárið eitt sameiginlegt, er miðjumoð þar sem þeir slökustu og duglegustu sitja á hakanum. Áfangakerfi er því það sem þarf í grunnskólanum," sagði Sigrún Kristjánsdóttir að lokum. _ — Ólafur. Telpnakórinn Úr leikritinu „Festarmey að Iáni“, frá vinstri: Inga Rún Björns- dóttir, Ásta Huld Henrýsdóttir, Björk Magnúsdóttir og Sveinbjörn Indriðason. Diskódans, frá vinstri: Ásta B. Björnsdóttir, Bylgja E. Björnsdóttir og Aðalheiður Eggertsdóttir. Ungfrú og Herra UTSÝN valin og krýnd á gala-vorfagnaði í BROADW/ miðvikudaginn 7. maí (kvöldið fyrir uppstigningardag) Fjöldi skemmtiatriða, happdrættisvinningur, stórt ferðabingó, hár- og snyrtisýning, glæsileg dans- og tízkusýning. Kl. 22.00 verður fríður og föngulegur hópur 12 stúlkna og pilta kynntur og síðan valin Ungfrú og Herra Útsýn á miðnætti. Danstil kl. 03.00. Missið ekki af glæsilegri skemmtun. Fagnið sumri með Útsýn! f §F,< Gómsætur hátíðakvöld- verður hefst kl. 20.45. Matseðill: Púrtvínslöguð alifugla- súpa m/villikrydduðu andakjöti Lambahnetusteik m/rjómasoðnum, ferskum sveppum. Piparmintuís m/vínlegnum perum og rjóma. I Verð aðeins kr. 1.100.- Aðgöngumiðar og borðapantanir í Broadway, sími 77500 Feróaskrifstofa*
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.