Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI 1986
47
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
w
Utbreiðslu- og
markaðsmál
Eitt öflugasta fjölmiðlafyrirtæki landsins vill
ráða markaðsstjóra til starfa fljótlega. Um
er að ræða mjög krefjandi og sjálfstætt
ábyrgðarstarf.
Starfið felst m.a. í að stjórna útbreiðslu- og
markaðsmálum fyrirtækisins ásamt skyldum
verkefnum með það aðal markmið í huga
að veita viðskiptavinum ávallt þá bestu þjón-
ustu er völ er á hverju sinni.
Við leitum að aðila á aldrinum 25-35 ára,
starfið hentar jafnt konu sem karli, sem
hefur góða undirstöðumenntun, helst ein-
hverja reynslu á þessu sviði, trausta og
örugga framkomu, sjálfstæð og skipulögð
vinnubrögð, mikið eigið frumkvæði og er til-
búinn að leggja á sig mikla vinnu. Tungu-
málakunnátta nauðsynleg.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Allar umsóknir algjört trúnaðarmál.
Eiginhandarumsóknir er tilgreini aldur,
menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu
okkarfyrir 11. maínk.
Gupni Tónsson
RÁÐC JÖF & RÁÐN I N CARÞJÓN U STA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI621322
Atvinna - Vesturbær
Starfskraftur óskast við fatahreinsun.
Upplýsingará staðnum, Ægissíðu 115.
Iðnaðarstörf
Óskum að ráða fólk til sauma- og bræðslu-
starfa við framleiðslu á regn- og sportfatn-
aði. Framleiðum 66°N - FIS - og KAPP fatnað
í fullkomnustu vélum við góð vinnuskilyrði.
Framtíðarstörf. Góð laun fyrir duglegt og
samviskusamt fólk. Hringið eða komið og
leitið upplýsinga.
Erum staðsett rétt við strætisvagnamiðstöð-
ina á Hlemmi.
66°N SEXTÍU OG SEX NOROUR
Sjóklæðagerðin h/f
Skúlagata 51 - Sími 11520-14085.
PONTUNARFEIAG ESKFIRÐINGA
ESKIHMI
óskar að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
☆ Verslunarstjóra í matvörudeild,
☆ bakara til að veita forstöðu brauðgerð,
☆ starfskraft til skrifstofustarfa.
Upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri, Þor-
steinn Sæmundsson, í símum 97-6200 og
97-6201.
H
HRAM!
Fatahreinsun og pressun
Ægisidu 115
Við leitum að
rafeindavirkja
eða sambærilegum starfskrafti til að sjá um
og hafa yfirumsjón með viðhaldi, uppsetn-
ingu og þjónustu við framleiðsluvörur okkar
ásamt öðrum skyldum búnaði. Um er að
ræða fjölbreytt starf með aðsetur á ísafirði.
Hæfum manni bjóðast góð laun. Uppl. hjá
Herði Ingólfssyni eða Erni íngólfssyni í síma
94-3092.
Alþýöubankinn hf.
vill ráða starfsmann í heils- eða hálfsdags-
starf, með búsetu á Akranesi, Húsavík og
ísafirði. Reynsla í bankastörfum og/eða
tölvukunnátta æskileg.
Umsóknir skulu sendast bankastjóra fyrir 15.
maí nk. en hann veitir nánari upplýsingar.
Gott tækifæri
Við krefjumst ekki neinnar sérstakrar mennt-
unar eða starfsreynslu, — ef þú bara ert
ákveðin(n) í að leita þér að framtíðarstarfi —
og ert tilbúin(n) að leggja þig fram við að
læra það sem við kennum þér.
Húsgagnaverslun í austurbænum bætir við
fólki í eftirtalin störf:
A. í verslun við sölu og afgreiðslu og þjón-
ustustörf allan daginn.
B. Á lager og í verslun við móttöku, af-
greiðslu og ýmiskonar lagfæringar.
Sæktu um annaðhvort starfið með eigin rit-
hendi, segðu okkur aldur þinn, síma, hvar
þú átt heima, hvenær þú getir byrjað og
hvar þú hefur unnið áður — og komdu
umslagi á augldeild Mbl. merktu: „Ég vil læra
1053“.
Hagvangur hf
- SÉRHÆTO RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
BYGGÐ Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐI
Deildarstjóri (35)
Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki í Reykjavik.
Starfssvið: Yfirumsjón, ábyrgð og stjórnun
tollútreikningsdeildarinnar.
Við leitum að manni sem hefur reynslu af
tollútreikningi og gerð tollskýrslna.
Fulltrúi (69)
Fyrirtækið er lánastofnun í Reykjavík.
Starfssvið: Upplýsingamiðlun, ráðgjöf, kynn-
ingarstarfsemi, útgáfa skuldabréfa, ýmsir
útreikningar, tölvuvinnsla o.fl.
Við leitum að sjálfstæðum og töluglöggum
manni, sem á auðvelt með að koma fram
fyrir hönd stofnunarinnnar. Háskólamenntun
æskileg. Gæti verði heppilegt fyrir kennara.
Nauðsynlegt að viðkomandi geti hafið störf
strax.
Vinsamlega sendið umsóknir á eyðublöðum
sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar
númeri viðkomandi starfs.
Hagvangurhf
RÁÐNINCARPJÓNUSTA
GRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666
óskar að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
1. Móttaka.
2. Næturvörð.
3. Herbergisþernu.
4. Ræstingu.
Upplýsingar veittar á staðnum í dag og
næstu daga.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 11,
sími 11440.
&
Gagnfræðaskólinn í
Mosfellssveit
auglýsir lausar kennarastöður næsta skólaár.
Kennslugreinar:
íslenska, stærðfræði, erlend mál,
samfélagsfræði, raungreinar,
handmenntir, verslunargreinar.
Upplýsingar gefa Gylfi Pálsson, skólastjóri í
símum 666586 og 666153 og Einar Georg
Einarsson, yfirkennari í símum 666186 og
30457.
Stjórnunarstarf
Verslunar- og þjónustufyrirtæki af millistærð
á Stór-Reykjavíkursvæðinu óskar eftir að
ráða mann til að stjórna daglegum rekstri.
Ennfremur að taka þátt í breytingu og upp-
byggingu fyrirtækisins.
Starfið er líflegt og krefjandi.
Aðeins reglusamur maður með menntun
og reynslu á sviði viðskipta og verslunar
kemurtil greina.
Umsóknir leggist inn á augld. Mbl. fyrir 6.
maí nk. merktar: „J — 8875".
Póllinhf.,
Isafirði.
Tískufataverslunin
Afgreiðslustúlka
óskast allan daginn. Aldur 19-40 ára. Til
greina kemur að ráða tvær hálfs dags stúlk-
ur. Einnig vantar stúlkur til sumarafleysinga.
Snyrtimennska, stundvísi og reglusemi skil-
yrði.
Upplýsingar veittar í versluninni, mánudag-
inn 5. maí kl. 17.00-19.00. Upplýsingar ekki
veittar í síma.
Atvinnurekendur
athugið
Hjá okkur er fjölhæfur starfskraftur, til lengri
eða skemmri tíma, með menntun og reynslu
á flestum sviðum atvinnulífsins. Símar 621080
og 621081.
Atvinnumiðlun námsmanna
Félagsstofnun stúdenta v/Hringbraut.
Þýskar bréfaskriftir
Umboðs- og heildverslun staðsett í mið-
bænum óskar að ráða ritara hálfan eða allan
daginn sem fyrst.
Starfið felst m.a. í þýskum bréfaskriftum eftir
diktafóni, telexþjónustu og almennum skrif-
stofustörfum.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. fyrir 9. þ.m.
merktar: „Þýskar bréfaskriftir — 3466".