Morgunblaðið - 25.05.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986
d n o — — íj twinr ia — atvinm a atx/inna — —. atx/inna — o tuint rjo
4 t VII II lci 14 4 f 1» II t ClLVIII! ic* — ciivn ii ia — CLIVU11 íd
Siglufjörður
Blaðburðarfólk vantar í Brekkuna.
Upplýsingar í síma 71489.
Framreiðslumaður
Óskum eftir að ráða framreiðslumann.
Upplýsingar veitir hótelstjóri eða veitinga-
stjóri í síma 96-22200.
Hótel KEA, Akureyri.
Offsetprentari
óskast
Upplýsingar í prentsmiðjunni Rún, Brautar-
holti 6 eða í síma 22133 og á kvöldin í síma
39892 eða 45616.
Árangur
Metnaðarfullur 34 ára gamall maður með
góða háskólamenntun óskar eftir krefjandi
stjórnunarstarfi. Fyrir hendi er mikil og fjöl-
þætt reynsla. Algjörum trúnaði heitið og
krafist.
Lysthafendur leggi nafn og símanúmer inn
á augld. Mbl. fyrir 30. maí nk. merkt:
„Heilindi/trúnaður — 5626“.
Viðskiptafræðingur
Ungur viðskiptafræðingur frá HÍ óskar eftir
tímabundnu starfifrá 1. júlí—20. sept. 1985.
Hálfnaður með masternám í Bandaríkjunum.
Helstu áhugasvið: Framleiðslu og markaðs-
mál. 1 árs starfsreynsla.
Tilboð sendist augldeild Mbl.
merkt: „V-0142“.
Samkomusalur/
atvinna
Tveir starfsmenn óskast til að sjá um rekstur
á litlum samkomusal, helst hjón. Mestur hluti
vinnunnar er á kvöldin og um helgar. Nánari
uppl. eru veittar á skrifstofu Meistarsambands
byggingarmanna, Skipholti 70, sími 36282 á
venjulegum skrifstofutíma.
Islenzkt þjónustufyrirtæki í Danmörku
óskar að ráða
6-8 málara og
2 dúklagningamenn
til framtíðarstarfa í Danmörku.
Við útvegum húsnæði, m.a. frítt húsnæði á
Norður-Sjálandi ef menn vilja.
Viðkomendur þurfa að vera hörkuduglegir
og tilbúnir til að vinna mikla vinnu.
Mjög góð laun fyrir góða menn.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, fyrri
störf og annað er máli kann að skipta, sendist
augld. Mbl. fyrir 28. maí merktar:
„Góðir menn — 3135“.
Fulltrúi frá fyrirtækinu mun verða staddur
hér dagana 29., 30. og 31. maí og mun hann
hafa samband við væntanlega umsækjendur.
Sumarvinna/Fatlaðir
Stjórn verndaða vinnustaðarins Örva í Kópa-
vogi hefur ákveðið að bjóða upp á sumar-
vinnu fyrir fötluð ungmenni f. 1961-1970 úr
Reykjaneskjördæmi á sumri komanda ef næg
þátttaka fæst.
Um er að ræða hálfs dags starf við fram-
leiðslu og pökkun í plastpakkningar. Ráðgert
er að þessi starfsemi vari í 5 vikur frá 30.
júlítil 11. ágúst.
Tekið skal fram að hér er aðeins átt við mikið
fatlaða einstaklinga sem ekki eiga auðveldan
aðgang á almennum vinnumarkaði eða hafa
vísa aðra sumarvinnu.
Þeir sem áhuga hafa á þessu tilboði, vinsam-
legast hafi samband við skrifstofu Svæðis-
stjórnar málefna fatlaðra, Lyngási 11,
Garðabæ, sfml 651056, fyrir 27. maí 1986
sem einnig gefur nánari upplýsingar.
Vinnustaðurinn Örvi.
Svæðisstjórn Reykjanessvæðis,
málefna fatlaðra.
Laust starf
Óskum eftir að ráða ungan laghentan mann
til starfa í áldeild okkar.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Orka hf.,
Síðumúla 32.
Þjóðskráin segir
mig sjötugan en samt vantar mig starf á
höfuðborgarsvæðinu, fullt eða að hluta. Ára-
tuga reynsla af verslun og viðskiptum en flest
kemur til greina. Full meðmæli ef óskað er.
Vinsamlega sendið nafn og símanúmer til
augld. Mbl. fyrir 8. júní nk. merkt:
„Fulltfjör 1986".
12 ára stúlka
óskast í vist í sumar. Uppl. í síma 22812 á
kvöldin.
Gott starf óskast
28 ára gömul stúlka óskar eftir vellaunuðu
starfi sem fyrst. Er með mikla reynslu í inn-
kaupa- og sölustörfum. Mjög góð ensku-
kunnátta. Lysthafendur vinsamlegast hafið
samband í síma 671206.
Gagnfræðaskólinn
í Mosfellssveit
Kennarar óskast næsta skólaár. Kennslu-
greinar: íslenska - stærðfræði - danska -
raungreinar og ennfremur til hjálparkennslu
og bókesafnsstarfa. Möguleikar eru á leik-
skóla - dagheimilisvist á barnaheimilum
sveitarinnar. Leiguíbúðir verða útvegaðar á
viðráðanlegum kjörum. Greiddur verður
flutningsstyrkur kr. 15.000.- fyrir kennara
sem flytjast að um lengri veg.
Forsenda fyrir ofangreindu er að viðkomandi
hafi full kennararéttindi og skrái lögheimili
sitt í Mosfellshreppi.
Upplýsingar gefa: Gylfi Pálsson skólastjóri,
símar 666586 og 666153, Einar Georg Einars-
son yfirkennari, sími 666186 og Helga A.
Richter formaður skólanefndar, sími 666718.
Tölvufræðingur/
forritari
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur tölvu-
fræðing/forritara til starfa sem fyrst.
Starfið felurí sér:
— Forritun.
— Almenna þjónustu og aðstoð.
Kröfur til umsækjenda:
— Haldgóð þekking á COBOL forritungar-
máli.
— Vera lipur í framkomu og eiga
auðvelt með að umgangast fólk.
— Geta unnið sjálfstætt og skipulega.
Markaðsfulltrúi/
sumarstarf
Einnig vantar okkur markaðsfulltrúa til starfa
hálfan daginn.
Starfið felur í sér:
— Almenn skrifstofustörf.
— Viðskipta- og tölvuþjónustu.
Kröfurtii umsækjenda:
— Stúdentspróf eða sambærileg mennt-
un (af t.d. verslunarsviði).
— Áhugifyrirtölvum.
— Jákvæð og ákveðin framkoma.
Umsóknir skulu hafa borist eigi síðar en 31.
maí nk.
LAUSN
h
lliillllll
Box 23,
172 Seltjarnarnesi.
Tölvuþjónusta — Forritun — Sala — Ráðgjöf.
Sölumenn óskast
Starfið felst í sölumennsku og alhliða störfum
sem til falla í verslunum okkar.
Ráðið verður í sölumannsstöðu í Dúkalandi
annars vegar og í Teppalandi hins vegar með
möguleikum á flutningi milli deilda síðar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi stúdents-
próf eða hliðstæða menntun (þó ekki
skilyðri) og lifandi áhuga á sölustörfum.
Áhersla er lögð á stundvísi, reglusemi og
snyrtimennsku.
Æskilegur aldur 20-30 ára.
Við bjóðum góða starfsaðstöðu og góð laun
sem byggjast m.a. á launahvetjandi kerfi.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem
fyrst eða fyrir 1. júlí nk.
Vinsamlegast sendið eða skilið handskrifaðri
umsókn til okkar fyrir 27. maí nk.
Með umsóknir verður farið sem trúnaðarmál
og þeim öllum svarað.
Nánari uppl. ef óskað er veitir Jón H. Karls-
son, framkvæmdastjóri.
Teppa/and
Dúkaland
S. 83577
S. 83430.
Kennarar Kennarar
Kennara vantar að Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar næsta skólaár. Meðal kennslugreina:
kennsla yngri bekkjardeilda, eðlisfræði, líf-
fræði, myndmennt, handmennt pilta og
stúlkna og margt fleira. Nýlegt rúmgott
skólahúsnæði. Nýlegar íbúðir á mjög lágu
verði rétt hjá skólanum. Flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-5159.
Skólanefnd - skólastjóri.