Morgunblaðið - 25.05.1986, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986
gjarnan eru lagðirá „tímabundið",
en gróa svo fastir og eru öllum til
ama.
Það þurfa að gilda í þessu eðlileg
markaðslögmál. Núgildandi kvóta-
kerfi er ekki nógu gott, enda var
það upphaflega sett á til eins árs
og flestir sammála um að það gæti
ekki gengið tii lengdar. Það tryggir
ekki þjóðinni næga hagkvæmni.
Ekki nógu mikinn hagnað. Samt
þarf veiðistjóm.
Sumir vilja að íslenska ríkið selji
kvótann. Ég er ekki tilbúinn að
taka undir þau rök að sinni, enda
vil ég reyna vinnslustöðvakvóta
fyrst og sjá hvemig hann reynist.
Éins og ég hef bent á í ræðu minni
um daginn og hér að framan þá tel
ég að ná mætti mun meiri hag-
kvæmni út úr því fyrir alla aðila.
Ef við tökum þetta saman.
Fiskvinnslan fær kvótann. Hún
á stóran flota skipa, sm hún getur
sett á veiðar, en þeir bátar verða
að vera samkeppnisfærir, því fleiri
eiga skip í landinu og útgerðarmenn
þeirra gera tilboð í að sækja við-
komandi kvóta og í bráð og lengd
verða fiskvinnslufyrirtækin hvert
af öðm að taka hagkvæmustu til-
boðum. Ella verða þau undir. Skip-
um fækkar, afli eykst á hag-
kvæmustu skipin. Tekjur hvers
skips aukast, afkoma batnar. Eitt-
hvað færri atvinnutækifæri í boði
á sjó, en atvinna eykst í landi meira
en því nemur. Góðir sjómenn fá góð
pláss og góðar tekjur. Fiskvinnslan
skipuleggur betur vinnslu í landi
og það eykur nýtingu. Hráefnisverð
pr. kíló upp úr sjó lækkar. Afkoma
fiskvinnslunnar batnar. Fiskvinnsl-
an leggur meira fé í vömþróun og
framfarir og getur greitt fisk-
vinnslufólki hærri laun.
Það, sem mestu skiptir þó, er,
að afkoma í sjávarútveginum mun
í heild batna, afkoma útvegsmanna,
sjómanna og fiskvinnslufólks og
það mun þegar í stað hafa bætandi
áhrif út í þjóðlífið allt.
Þeir einir munu tapa, sem ekki
vilja bregðast við breyttum aðstæð-
um og munu reyna að gera út óhag-
kvæm skip á óhagkvæman hátt, en
þeim skipum mun fljótt fækka.
Þeir verða að taka sig á eða hætta
ella.
Hin eilífa deila um fiskverð verð-
ur úr sögunni. Samningar um „fisk-
verð“ flytjast í annað og eðlilegra
horf.
Útflutningur á
ferskum fiski
Ég ætla ekki að hafa þessi orð
miklu fleiri hér. Við íslendingar
stöndum frammi fyrir miklum
vanda að þurfa að skipta takmörk-
uðum afla úr sameiginlegri auðlind
á milli þjóðarinnar á sem hag-
kvæmastan hátt. Ég hef á undan-
fömum vikum reynt að útskýra
hvemig ein leið væri fær. Til þess
reyni ég að stilla upp módeli af
þeirri leið og útfæra það.
Auðvitað em til margar aðrar
leiðir til að nálgast þennan vanda.
Ég geri mér fulla grein fyrir því,
að sú leið, sem þetta módel lýsir,
er bara ein af mörgum öðmm og
er gölluð eins og aðrar leiðir, sem
nefndar hafa verið, en ég er sann-
færður um að hún er fær og ég tel
fullvíst, að hún sé þjóðarheildinni
hagkvæmari en sú aðferð, sem við
notum í dag. Ég held að við eigum
aðrejma.
í ljósi þeirrar reynslu, sem af
því fæst, eigum við að útfæra aðferð
við skiptingu auðlindarinnar, sem
gerir ráð fyrir jöftium möguleikum
allra, sem í hana vilja sækja, þó
að þeir fái það ekki nema það skili
mestum arði til þjóðarinnar.
Á merku málþingi, sem sjávarút-
vegsráðherra gekkst fyrir í Vest-
mannaeyjum fyrir viku, var talsvert
rætt um kvótann eins og flest
annað, sem snertir sjávarútveginn.
Þar komu fiam stcrkar raddir um
að núverandi fyrirkomulag veiði-
stjómar væri ekki heppilegt, en
skiptar skoðanir vom um hvað
koma skyldi í staðinn.
Þar og víðar var nefnt, að leið út
úr þessum vanda kynni að vera
skipting kvótans milli veiða og
vinnslu í einhveijum hlutföllum, t.d.
til helminga. Kannski er sú leið
fær, en ég tel því miður ekki líklegt,
að hún reyndist heppilegt.
Okkur verður tíðrætt um vanda-
málin hér heima, en okkur er einnig
brýn nauðsyn að taka höndum
saman og reyna að ná rétti okkar
í tollaviðskiptum okkar við ná-
granna okkar. Það er ófært að láta
td. Þjóðveija og Breta í skjóli toll-
vemdar Evrópubandalagsins hrifsa
til sín stærri og stærri hlut af hrá-
efninu okkar.
Það hefur t.d. sýnt sig, að út-
flutningur af ferskum flökum í flugi
á fullan rétt á sér. Á þeim flökum
er þó 15 til 18 prósent tollur á
meðan óunninn fiskur er tollfrír.
Þessu eigum við ekki að una,
enda augljóst, að ftystihúsunum er
næsta auðvelt að nýta vinnslurás-
imar að ftystitækjunum og ná góð-
um árangri við útflutning á 'ferskum
flökum, þegar það á við, ef tollpró-
sentan fæst lagfærð.
Á ráðstefnunni í Eyjum kom
fram skýr skilningur þátttakenda á
nauðsyn þess að viðhalda langtíma
viðskiptum íslendinga við fyrirtæki
og þjóðir, sem reynst hafa okkur
tryggir og góðir viðskiptavinir, enda
þótt um sinn væm aðrar lausnir í
boði, sem gætu gefið stundargróða.
Jafnframt töldu menn, að áreið-
anleiki væri snar þáttur í því að
halda háu útflutningsverði og því
yrði að sinna öllum mörkuðum,
enda þótt gengissveiflur og aðrar
óviðráðanlegar jrtri aðstæður kynnu
að gera það erfitt um sinn.
Undir þetta sjónarmið er rétt að
taka sterklega.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og dótturfyrirtæki hennar erlendis
hafa öðm fremur notið þess að
teljast áreiðanleg í viðskiptum og
tryggja viðskiptavinum stöðugt
framboð af gæðavöm.
Á ölium fiskmörkuðum á íslensk-
ur fiskur í harðri samkeppni við.
aðra seljendur, bæði að fiski og
annarri matvöm og við megum
hvergi slaka á.
Ég þekki vel það orð, sem fer
af íslenskum saltfiski í Suður-
Evrópu og á ferð minni um freð-
fiskmarkaðina beggja vegna Atl-
antshafsins í vetur varð ég þess
mjög var, hve staða fyrirtækja
okkar erlendis er sterk.
Sú mikla viðskiptavild, sem við
eigum út um víða veröld, mun halda
áfiam að skila okkur hæsta verði
á öllum mörkuðum, ef við bemm
gæfu til að standa þétt við bakið á
sölumönnum okkar og gera þeim
kleift að sannfæra viðskiptavini
okkar um gæði, áreiðanleika og
stöðugt framboð.
Við eigum að vera fremstir.
Skrifstofuvélar hf kynna nýjungar á PC tölvum
og búnaði frá IBM. Meðal þess sem við kynnum er öflugra
minni frá 256k upp í 10,5MB, stærri diskar frá 10MB upp
í 60MB, meiri vinnsluhraði, nýtt hnappaborð og síðast en ekki síst, ný AT tölva,
hraðvirkari og öflugri en áður. Þetta eru atriði sem eru sannarlega frekari athugunar
virði.
Með IBM PROPRINTER eða QUIETWRITER tölvuprenturum verður öll útskrift á
gögnum hraðvirk og hljóðlát, með vönduðu letri og snyrtilegum frágangi.
Auk IBM PC bjóðum við til sölu IBM system 36 tölvubúnað í þremur stærðum
ásamt tilheyrandi notendahugbúnaði.
STOÐFORRITIN
Áætlunarstoð ... kr. 6.000
Skrástoð ......kr. 6.000
Myndstoð ......kr. 6.000
Skýrslustoð......kr. 5.100
Ritstoð................kr. 6.000
Teiknistoð.......kr. 6.200
PRENTARAR
Proprinter ................... kr. 27.000
Quietwriter ................... kr.61.000
Quietwriter m/grafík.......... kr. 76.000
Arkamatari f/Quietwriter...... kr. 17.500
Pappírsdragari f/Quietwriter . kr. 3.900
TÖLVUR
IBM PC............kr. 95.800
IBMPC/XT20MB......kr. 156.200
IBM PC/AT 20MB....kr. 226.100
IBM PC/AT-3 30 MB ... kr. 258.300
1986
1946
V Hverf isgötu 33, s í mi: 20560
Tölvudeild Akureyri:
Gránufélagsgötu 4,
sími: 96-26155
I